Morgunblaðið - 06.10.1985, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER1985
39
Gib í draumórum meó „þeirri öruggu", sem myndin dregur nafn sitt
«f — ,.The Sure Thing“.
Sú eina —
Kvikmyndir
Snæbjörn Valdimarsson
BÍÓHÖLLIN: Á PUTTANUM —
THE SURE THING irk'A
Leikstjóri Rob Reiner. Aðstoðar-
framleiöandi Henry Winkler.
Handrit SteVen Bloom og Jonathan
Roberts. Tónlist Tom Scott. Aðal-
hlutverk John Cusack, Daphne
Zuniga, Viveca Lindfors, Nicolette
Sheridan, Boyd Gaines. Monu-
ment/Embassy Pictures. Banda-
rísk, frumsýnd í júní síðastliðnum.
Ekkert lát er á vinsældum „ungl-
ingamyndanna" vestanhafs, (enda
og sanna
heldur sá aldursflokkur iðnaðinum
gangandi), á meðan það ástand
varir er víst að engra breytinga
er að vænta úr herbúðum Holly-
wood-jöfranna. Maður elur samt
þá von í brjósti að stefnubreytinga
sé að vænta, svo mikið sem flýtur
með af undirmálsmyndum.
Á puttanum er nokkur undan-
tekning, hér er engin merkismynd
á ferðinni, hinsvegar er hún greini-
lega gerð af áhuga og ánægju sem
skín í gegn. Leikur, handrit og
leikstjórn í vænu meðallagi.
Söguþráðurinn er kunnuglegur.
Gib, (John Cusack), er hress strák-
ur, nemandi við menntaskóla á
austurströndinni, ólaginn við
kvenfólk. Allison, skólasystir hans,
leiðir hugann lítt að kynferðismál-
um og er í dauðyflislegu sambandi
við grautfúlan laganema. Óvirkj-
uð. Fyrir tiiviljun liggja svo leiðir
þeirra saman, þvert vestur yfir
Bandaríkin í jólafrí. Þar á Gib
stefnumót við eina „örugga", sem
hann hefur reyndar aldrei augum
litið, og lögfræðingsefnið bíður
spennt eftir sinni heittelskuðu, að
eyða með henni fríinu yfir te-
glundri og kasíjón. Slíkt gengur
náttúrlega ekki upp og framhaldið
þarf ekki að tíunda.
Það sem Á puttanum hefur fram-
yfir margar aðrar myndir af sama
toga er viss hreinskilni, vel skrifað
og hnyttið handrit, með skemmti-
legum aukapersónum og hliðar-
sporum, ferðalagið gegnum Amer-
íku er t.d. utan alfaraleiðar og frá
öðrum sjónarhóli en við eigum að
venjast. Þá er leikhópurinn einkar
geðugur, persónurnar eðlilegar og
óýktar.
Rob Reiner, sem var inná gafli
á hverju einasta, a.m.k. amerísku
heimili, um árabil sem „Meathead"
í AII in the Family, leikstýrir hér
sinni þriðju mynd af smekkvísi og
röggsemi. Hefur að auki hlotið ríkt
skopskyn í erfðir frá föður sínum.
Rob sannaði í sumar að hann er
leikstjóri sem taka ber mark á, því
nýjasta mynd hans, Cocoon, hefur
hvorttveggja hlotið góða aðsókn
og afar jákvæða dóma. Myndin er
vísinda-kómedía, fokdýr með urm-
ul þekktra leikara. Á puttanum er
hinsvegar litil, vel heppnuð, fyndin
og hlýleg mynd með sjarma.
Síðari heimsstyrjöld
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
Synchronopse des Zweiten Weltkriegs.
Zusammengestellt von Riidiger Bolz.
Hermes Hand Lexikon. Econ Taschen-
buch Verlag 1983.
og menningarleg upplausn í Evrópu. I
Öllum goðum fyrri aldra var steypt
og þar með undirstöðu allrar póli-
tískrar festu og hefðbundinna leik- ■
reglna. Múgsefjunin magnaðist með
tilkomu nýrrar fjölmiðlatækni og
taumlauss áróðurs gegn öllu, sem
stóð í vegi fyrir valdatöku mannkyns ;
og þjóðafrelsara, sem boðuðu sæld
og alsnægtir í sæluríkjum framtíð-
arinnar.
Hermes-lexikoninn telur nú fjöl-
mörg bindi, hann er þannig upp-
byggður, að fjallað er um hvert efni
í einu riti. í þessu bindi er það
annáll síðari heimsstyrjaldar. Efn-
inu er raðað í tímaröð.
Foch marskálkur sagði árið 1919
á friðarfundinum í Versölum: „Þetta
eru ekki friðarsamningar, þetta er
vopnahlé til tuttugu ára. Það reynd-
ust orð að sönnu. Ástæðurnar fyrir
því að svo fór voru margvíslegar og
eru þær raktar í inngangi ritsins:
Jafnvægi milli ríkja og jafnvægi
milli andstæðra afla innanlands
raskaðist, þótt þetta jafnvægi væri
aldrei full trygging fyrir friði, þá
var það ríkjandi í Evrópu 19. aldar.
Útópíufantasíurnar, ör tæknivæðing
og einföldun hugmyndanna um gerð
og getu einstaklingsins samfara
sjálfsdýrkun og framfarahugmynd-
um ýttu undir ókyrrleika og undir
kraumaði i bældu öryggisleysi. Fyrri
heimsstyrjöldin olli mögnun allra
þeirra þátta, sem vísir var að fyrir
1914. Eftir styrjöldina varð pólitísk
Þann 1. september 1939 hófst hild-
arleikurinn og lauk ekki fyrr en í
maímánuði 1945 í Evrópu. Rakinn
er gangur styrjaldarinnar á öllum
vígstöðvum, hernámi hinna ýmsu
landa, alþjóðastjórnmálum og af-
stöðu hlutlausra ríkja til styrjalda- i
raðila. Lýst er aðgerðum andspyrnu- t
hópa og róttækum aðgerðum nasista
í sambandi við hina „endanlegu
lausn gyðingavandamálsins", út-
rýmingarstöðvum og fangabúðum.
Getið er afstöðu Stalíris í sambandi
við uppreisnina í Varsjá, Katýn-
morðanna, árása bandamanna á
þýskar borgir í lok stríðsins, eyði-
leggingu Dresden og kafbátahernað-
arins. Getið er lauslega áhrifa styrj-
aldarinnar á menningu og vísinda-
starfsemi, en sú starfsemi var virkj-
uð í þágu stríðsins þ.m.t. rannsóknir
þýskra lækna á þoli fanga í útrým-
ingarbúðunum.
Hér er tíunduð atburðarás stríðs-
ins í knöppu máli og fjölmörgum
myndum bæði í litum og svart/ ,
hvítum.
Habitat bæklingurinn 1986 erkominn út, glæsilegri en nokkru sinni fyrr. Mest
áberandi er nýja City línan: Fínleg og fáguð húsgögn hönnuð út frá
klassískum formum og undirstrikuð með mjög nýstárlegum lömpum,
Ijósum, mottum og ýmsum smáhlutum. City línan er örugglega það
sem koma skal.
Það er líka ýmislegt fleira í Habitat bæklingnum: 212 síður fullar af
vönduðum vörum á góðu verði.
Habitat bæklingurinn 1986 er tvímælalaust hagstæðasta útkoma í
m
4