Morgunblaðið - 06.10.1985, Síða 40

Morgunblaðið - 06.10.1985, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER1985 Kvikmynda- safn íslands á krossgötum Hafnarfjarðarbíó. Skyldi þetta rótgróna bíó, sem stofnað var árið 1914, eiga eftir að taka að sér það hlutverk að vera hús kvikmyndarinnar ó íslandi? Lengst til vinstri er Lista- og menningarmiðstöð Hafnarfjarðar. — eftir Erlend Sveinsson Undanfarnar vikur hefur (jöldi manns komið að máli við undirritað- an og lýst áhyggjum sínum vegna þeirra breytinga á rekstri og stjórn Kvikmyndasafnsins, sem fyrirhug- aðar eru á næstunni með tilkomu nýrra laga um kvikmyndamál. I»ess- um áhugamönnum um velferð Kvikmyndasafnsins hefur reynst erfitt að skilja, hvers vegna ákveðið hafi verið að fela einum manni að vera bæði framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs og forstöðumaður Kvikmyndasafnsins. Hér sé um ólík verksvið að ræða og sú hætta sé fyrir hendi að kröfur kvikmyndaframleið- enda á hendur þessum langþráða starfsmanni Sjóðsins muni leiða til þess, að kvikmyndasafnið verði van- rækt. Enginn viðmælenda minna hefur mælt þessari breytingu bót og menn lýsa yfir vanþóknun sinni á þeirri fljótaskriftarafgreiðslu sem þessi nýju lög fengu á Alþingi. Svo sem kunnugt er hefur starf undirrit- aðs verið lagt niður og hið nýja starf auglýst laust til umsóknar. Þessi mikli áhugi, sem komið hefur fram á málefnum Kvik- myndasafnsins á þessum tíma- mótum hefur orðið mér hvatning til þess að festa nokkur orð á blað um Kvikmyndasafnið, einkum með hliðsjón af því að sjaldnast hefur gefist tóm til að ræða málið á förnum vegi, en þar hafa þessi mál oftast borið á góma. Á sínum tima reyndi undirritaður að hafa áhrif á hina nýju lagasetningu en árangurslaust. Ástæðulaust er að orðlengja þá baráttu hér. Aftur á móti tel ég rétt að gefa velunnur- um safnsins nokkra innsýn í það starf, sem unnið hefur verið hjá safninu og stöðu mála þar nú. Al- mennt má segja að safninu hafi tekist að leggja sæmilega rækt við þrjú af fjórum höfuðviðfangsefn- um sínum, nefnilega söfnunar- starf, varðveislu og skrásetningu, en kvikmyndasýningar í reglu- bundnu formi hafa ekki náð fram að ganga. Önnur ástæða fyrir þessum greinarskrifum mínum er sú staðreynd að nú er tækifæri til þess að láta til skarar skríða í sambandi við kvikmyndasýningar og aukin samskipti við almenning. Bæði er það að hin nýju kvik- myndalög eiga að tryggja safninu aukið starfslið og svo hitt, sem gæti skipt sköpum fyrir þessa starfsemi, að Kvikmyndasafninu og Kvikmyndasjóði stendur til boða að festa kaup á Hafnarfjarð- arbíói þar sem hægt væri að koma allri starfsemi þessara stofnana undir eitt þak og beina henni í það horf, sem alla tíð hefur verið stefnt að. Með eftirfarandi yfirliti yfir starfsemi Kvikmyndasafns vil ég freista þess að sýna fram á hvað gæti réttlætt þá stórhuga ákvörðun að kaupa heilt kvik- myndahús og gott betur, þar sem 240 m2 íbúð fylgir með í kaupun- um, undir starfsemi Kvikmynda- safns og Kvikmyndasjóðs. Söfnunarstarf Fjöldi kvikmynda í vörslu Kvikmyndasafnsins liggu ekki nákvæmiega fyrir en óhætt er að áætla að þar séu varðveittar hátt í 800 myndir af ýmsum stærðum og gerðum. Hér er um að ræða leikn- ar myndir, heimildamyndir, aug- lýsingakvikmyndir, kynninga- myndir o.fl. Þetta eru svart/hvít- ar kvikmyndir, litmyndir, eldfim- ar myndir, óeldfimar myndir, frumeintök, kópíur, hljóðnegatíf og hljóðbönd og nú síðast mynd- bönd. Filmurnar eru nánast af öll- um mögulegum breiddum: 8 mm, 9,5 mm, 16 mm, 35 mm og 70 mm. Að sjálfsögðu er myndasafn þetta misjafnt að gæðum en ómögulegt er að leggja endanlegt gæðamat á þær myndir sem safnið fær til varðveislu. Það sem virðist lítils virði í dag getur reynst ómetan- legt á morgun. Margvíslegum heimildum um kvikmyndagerð og kvikmyndasögu hefur verið safnað í þar til gerðar möppur, sem flokkaðar eru eftir titlum, kvikmyndahöfundum o.fl. Vísir að tækniminjasafni hefur verið að myndast og einnig má nefna Ijósmyndasafn, bækur og tímarit. Þegar Kvikmyndasafnið hóf söfnunarstarfið átti það einungis 2 kvikmyndir, sem voru stofn- framlag menntamálaráðuneytis- ins og Jóns Ármanns Héðinsson- ar, alþingismanns. í sambandi við kvikmyndasöfnunina hefur ríkt sú stefna að Kvikmyndasafnið hefði sem mest frumkvæði við kvik- myndaleitina og öllu yrði veitt viðtaka, sem bærist. Það mun hins vegar koma að því í framtíðinni að framkvæma verður ákveðið forval. Ef nefna ætti einhverjar sérstak- ar myndir í safninu, koma upp í hugann söfn kvikmynda Lofts Guðmundssonar og Óskars Gísla- sonar, en flestar kvikmyndir þess- ara frumherja íslenskrar kvik- myndagerðar eru nú varðveittar hjá Kvikmyndasafninu. Þá hefur safnið fengið til varðveislu heild- arsöfn síðari tíma kvikmynda- gerðarmanna eins og Ásgeirs Long, Gunnars Rúnars o.fl. Ástæða er til að nefna nokkrar af elstu kvikmyndum safnsins: Þing- mannaförin 1906, Slökkviliðs- æfing í Reykjavík 1906, Vígsla styttu Jóns Sigurðssonar í Winni- peg 1911, Ólympíufararnir 1912, Þorskveiðar við ísland 1919, safn kvikmynda Bíópetersens, ca 1919—27, Vestmannaeyjakvik- mynd Kjartans Guðmundssonar 1925, íslandskvikmynd Huberts Schonger 1926, íslandskvikmynd Leos Hansen 1929. Kvikmyndasafninu hefur tekist að komast yfir eintök af öllum leiknu kvikmyndunum frá þögla myndaskeiðinu, sem tengjast ís- landi (kvikmyndir sem Islend- ingar léku í vestan hafs undan- skildar). Hér er um að ræða eftir- taldar myndir: Saga Borgarættar- innar 1921 (Nýja Bió lagði mynd- ina inn til varðveislu), Glataði sonurinn, bresk mynd tekin að hluta á íslandi 1922, Hadda Padda, dönsk/íslensk, tekin að hiuta á íslandi undir stjórn Guð- mundar Kamban 1923, Fiskimenn- irnir við ísland, frönsk frá árinu 1924, Det Sovende hus, tekin í Danmörku 1926 eftir verki Guð- mundar Kamban, sem stjórnaði gerð hennar. Af talmyndunum er það að segja, að engin af þeim leiknu kvikmyndum, sem gerðar hafa verið frá og með Morðsögu Reynis Oddssonar hafa verið lagðar inn til varðveislu hjá safninu að frá- slepptri ítalskri útgáfu af Landi og sonum. Ef við undanskiljum einnig talmyndaútgáfu af Fiski- mönnunum við ísland, Leyndar- dóma Snæfellsjökuls og Die Nieb- elungen, þ.e. þýsku Völsungasögu- myndina frá 1966, þá eru allar ís- lenskar og hálfíslenskar leiknar kvikmyndir frá upphafi talmynda- skeiðsins varðveittar í Kvikmynd- asafninu. Ýmsar stofnanir hafa lagt myndasöfn sín inn til varðveislu hjá Kvikmyndasafninu, svo sem Námsgagnastofnun (varðveislu- eintök), Fræðsludeild Sambands- ins, Árbæjarsafn, Skógrækt ríkis- ins, Þjóðminjasafnið, utanríkis- „Kjarni málsins er eftir sem áður sá, að Kvik- myndasafni og Kvik- myndasjóð stendur Hafnarfjarðarbíó til boða. Ekkert annað er í boði og mun ekki verða það sem eftir er aldar- innar að minnsta kosti. Óhætt er að fullyrða að á sama tímabili verður heldur ekki lagt í að byggja yfir þessa starf- semi. Sá möguleiki sem við stöndum frammi fyrir nú er því einstak- ur.“ ráðuneytið, Skaftfellingafélagið o.fl. 1 Margar af þeim kvikmyndum, sem nú skipa öndvegi í hillum Kvikmyndasafnsins, voru taldar með öllu glataðar og aðrar myndir voru gleymdar og grafnar þegar Kvikmyndasafnið hóf söfnunar- starfið. Af myndum, sem taldar voru glataðar en tekist hefur að hafa upp á má nefna: Slökkviliðs- æfing í Reykjavík 1906, Alþingis- hátíðarkvikmynd Lofts Guð- mundssonar, síðari hluti Lýðveld- ishátíðarkvikmyndar Lýðveldis- hátíðarnefndar, Islandskvikmynd Leos Hansen, kreppuárakvik- myndir Þjóðverjans Pauls Burk- ert. Mikið starf er eftir óunnið við kvikmyndasöfnun og leit að týnd- um kvikmyndum, bæði hér heima og erlendis. Vitneskja er hjá safn- inu um kvikmyndir tengdar ís- landi í a.m.k. 13 löndum en tilraun til leitar hefur aðeins verið gerð í Danmörku, Svíþjóð (þar þarf að leita betur) og Áustur-Þýskalandi. Nauðsynlegt er að fara til þessara landa og gefa sér tíma til leitar og skoðunar og finna þarf leiðir til þess að safnið geti eignast eintök af þeim myndum, sem fengur væri í. Reynslan hefur sýnt að óvarlegt er að afskrifa týndar myndir. Kvikmyndir hafa komið í leitirn- ar, sem heimildir gátu um að hefðu eyðilagst í eldsvoða. Ég nefni eitt dæmi um týnda kvik- mynd, sem mikill fengur yrði að: íslandskvikmynd Svíans Alberts Engström frá árinu 1911. Enn hafa ekkki verið settar reglur um skylduskil kvikmynda, sem verið er að framleiða á líðandi stundu, og sökum fjárskorts hefur litið sem ekkert verið keypt af sí- gildri kvikmyndalist. Þó er rétt að geta þess í þessu sambandi að Fjalla-Eyvindur var gerður upp hjá Sænska kvikmyndasafninu fyrir atbeina Kvikmyndasafns ís- lands og á Kvikmyndasafnið nú nýtt eintak af þeirri merku kvikmynd. Varöveislumál Talsvert starf á sviði varð- veislumála hefur verið innt af hendi á undanförnum árum, í mörgum tilvikum með dyggri að- stoð utanaðkomandi aðila, svo sem Þjóðhátíðarsjóðs, Almennra trygginga hf. og ýmissa aðila, sem tengdir hafa verið viðkomandi kvikmyndum með einhverjum hætti. Slík þátttaka kemur sér af- skaplega vel, því það segir sig sjálft að Kvikmyndasafnið hefur aldrei yfir að ráða nægilegu fjár- magni til varðveislustarfsemi. Það cr ekkert launungarmál, að tölu- vert magn kvikmynda í fórum safnsins er nú við ystu mörk eyði- leggingarinnar en sumt er þegar farið að skemmast og verður varla að fullu bætt. Um leið og nauð- synlegt er að tryggja safninu fjár- veitingar, sem gerir því kleift að rækja skyldur sínar við þann menningararf, sem þvi hefur verið trúað fyrir, er mjög mikilvægt að reynt sé að finna sem fjölbreyti- legastar leiðir til þess að fjár- magna viðgerðarstarfið. Oft eru ýmsir aðilar tilbúnir að leggja slíkum þjóðþrifamálum lið, ein- kum þegar þeim rennur blóðið til skyldunnar, en það kostar iðulega mikla vinnu og útsjónarsemi að koma slíkum samstarfsverkefnum í gang og í því sambandi hefur Kvikmyndasafnið liðið fyrir manneklu og sannast þá að það getur verið dýrt að vera fátækur. I kvikmyndaarfinum felst snar þáttur af sjálfsvit- und þessarar þjóðar, bæði leiknum myndum og heimildamyndum og komandi kynslóðir munu ekki taka neinar afsakanir gildar mistakist okkur það verkefni okkar að varðveita þennan menningararf. Handritin hafa stundum verið tekin til sam- anburðar í þessu sambandi. Á fyrri öldum var varðveislu þeirra mjög hætt komið og margt glat- aðist fyrir fullt og allt og fyrir það dæmum við fyrri tíma kynslóðir, þrátt fyrir það að efnahagur var þá ekki sambærilegur við það sem hann er í dag. Sem betur fer hefur nokkuð áunnist i varðveislumálunum á undanförnum árum. Allar leiknar kvikmyndir Óskars Gíslasonar að einni undanskilinni hafa verið kópíeraðar, þ.e. útbúin ný frum- eintök af mynd og hljóðrás auk sýningarkópíu. Þá hefur Lýðveld- ishátíðarkvikmynd Óskars verið endurklippt og hljóðsett. Þessi verkefni hafa verið unnin með styrk frá Þjóðhátíðarsjóði. Kvikmyndasafnið sjálft hefur kostað kópíeringu leiknu kvik- mynda Lofts Guðmundssonar, sem eru myndirnar Milli fjalls og fjöru og Niðursetningurinn. A þessu ári lét safnið kópíera safn kvikmynda Bíópetersens, en þar á meðal voru nokkrar smámyndir, sem sýndar voru í Gamla Bíó árið sem það tók til starfa, 1906. Einn- ig var Islandskvikmynd Huberts Schonger frá 1926 forðað frá eyði- leggingu og hún kópíeruð. Þá er þess að geta, að á þessu ári var loks lokið við að setja upp kæli- og loftræstikerfi fyrir kvikmyndageymsluna og má segja að með þeim áfanga hafi orðið þáttaskil í sögu safnsins. Filmu- geymslan er nú loftræst og kæld niður í 8—9 gráður á Celsíus og rakanum haldið um 50%. Með til- komu þessa búnaðar er með góðri samvisku hægt að hvetja bæði stofnanir og einstaklinga að at- huga, hvort ekki sé í fórum þeirra kvikmyndir, sem betur væru komnar í þessari geymslu Kvik- myndasafnsins. Myndir er hægt að afhenda til geymslu, án þess að þær séu gefnar. Það er með varðveisluna eins og söfnunina, að mikið verk er eftir óunnið. Meta þarf ástand mikils hluta Kvikmyndasafnsins, búa þarf myndir undir viðgerð, í mörg- um tilvikum væri ástæða til að gera ófullgert myndefni sýn- ingarhæft, útbúa þarf millitexta á íslensku og klippa þá inn í þöglar kvikmyndir, sem síðan ætti að sýna með lifandi hljóðfæraleik, og þannig mætti lengi telja. öll þessi vinna þarf að eiga sér stað í sam- starfi við erlendar kvikmynda- vinnustofur og hefur verið byggt upp náið og gott samstarf við Ankerstjerne kvikmyndavinnu- stofuna í Kaupmannahöfn á und- anförnum árum. Að sjálfsögðu þarf hér einnig að koma til mikið og gott samstarf við rétthafa, þeg- ar Kvikmyndasafnið sjálft hefur ekki umráðarétt yfir því efni, sem talið er nauðsynlegt að endur- vinna og kópíera. Hér er um trún- aðarsamband að ræða, sem hætta virðist á að brestur sé að koma í með tilkomu hinna nýju kvik- myndalaga og er það alvarlegt umhugsunarefni. Skrásetningin Á undanförnum árum hefur Kvikmyndasafnið haft með hönd- um söfnun upplýsinga um kvik- myndir, sem tengjast Islandi með einhverjum hætti frá upphafi kvikmyndagerðar hér á landi og til okkar dags. Mikið magn upp- lýsinga liggur nú fyrir en því mið- ur í óaðgengilegu formi. Unnið hefur verið að skrásetningu kvikmynda safnsins en það verk hefur sóst seint, enda eðli sínu samkvæmt tímafrekt yfirlegu- verkefni. Litið hefur verið svo á, að Kvikmyndasafninu bæri að safna upplýsingum til birtingar í kvikmyndaskrá, sem spannaöi all- ar íslenskar kvikmyndir, varð- veittar og glataðar, svo og myndir, sem með einhverjum hætti tengj- ast íslandi. Margvísleg önnur skrásetning þarf að eiga sér stað í Kvikmyndasafninu. Skv. nýju kvikmyndalögunum virðist Kvikmyndasjóði ætlað að yfirtaka þetta verkefni, sbr. 2. gr/3.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.