Morgunblaðið - 06.10.1985, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 06.10.1985, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. OKTÖBER1985 61 Hermann Andrés * Kristjánsson frá Siglufirði - Minning , ^ Hermann Andrés andaðist að heimili sínu Melhaga 12 Reykjavík 28. ágúst si. Hann var jarðsunginn frá Neskirkju mánudaginn 9. sept- ember sl. frá andláti hans, vil'eg minnast þessa norskættaða Siglfirðings og lífsferils hans með nokkrum orð- um. Hermann var fæddur í Skinnes í Suður-Noregi 7. nóvember 1917. Foreldrar hans voru hjónin Amanda Petersen frá Skinnes og Kristján Hallgrímsson frá Kapla- stöðum í Sléttuhlíð Skagafjarðar- sýslu. Árið 1919 eignuðust þau hjón annað barn, það var dóttir. Sama ár andaðist móðirin. Dóttirin hlaut nafnið Petrína. Harmur Kristjáns var mikill er hann varð ekkjumaður á erlendri grund eftir 3ja ára hjónaband með tvö ung börn. Ef til vill sýndi hann þá best hvað í honum bjó. Petrína var tekin í fóstur af móðurforeldrum sínum. Hún bjó allan sinn aldur í Noregi og andaðist þar árið 1965. Kristján annaðist son sinn með hjálp og aðstoð góðra manna, bjó áfram í Noregi og stundaði sjó- mennsku á vélbátum. Árið 1921 kvæntist Kristján annarri norskri konu, Kaia Petrika Henrietta Hansen Skoglund frá Meloj. Þau bjuggu áfram í Noregi í nokkur ár. Árið 1922 eignuðust þau dóttur, sem skírð var Jenfrid. Þegar hún var 3ja ára flutti fjölskyldan til íslands, til Siglufjarðar. Kristján sagði mér síðar er við vorum samstarfsmenn hjá Síldar- verksmiðjum ríkisins að aldrei hefði hvarflað að honum, ef heim skyldi haldið, annað en setjast að í Siglufirði. Hann þekkti byggðar- lagið áður en hann hélt til Noregs 1915 og þó vík væri á milli vina í áratug fylgdist hann með fólks- fjöigun á Siglufirði, uppbyggingu atvinnulífs og þróun mála þar. Hann sagðist aldrei hafa séð eftir þessari ákvörðun. Kristján Hallgrímsson var eins og fyrr segir Skagfirðingur. Eftir heimkomuna frá Noregi vann hann í Siglufirði við síldar- verkum á sumrin. Hann var eftir- sóttur beykir og varð síðar síldar- matsmaður. Hann stundaði eigin útgerð frá 1935, átti með öðrum vélbátinn Pálma. Kristján fórst með þessum bát 29. september 1941 út af Strákum við Siglufjörð, aðeins 49 ára að aldri. Að honum var mikil eftirsjá. Kristján var greindur dugnaðar- og skapfestu- maður. Hafandi í huga hið fornkveðna sjaldan fellur eplið langt frá eik- inni, minnist ég Kristjáns Hall- grímssonar hér um leið og einka- sonur hans er kvaddur. Jenfried, sem nú er búsett í Bandaríkjunum og Reykjavík man að sjálfsögðu ekki eftir landtöku í Siglufirði, en Hermann mundi það alla tið. Hvað hann hugsaði þá fengu fáir að vita, því hann var laus við að flíka tilfinningum sín- um. Við siglfirsku krakkarnir sem vorum fædd 1917 vorum að sjálf- sögðu öll í sama bekk í barnaskól- anum. Haustið 1926 höfðum við fregnir af því, að „strákur", eins og við orðuðum það, frá Noregi kæmi í bekkinn okkar. Það var nokkuð blendin tilfinning sem gerði vart við sig. í annan stað hlökkuðum við til að kynnast Norðmanninum, en hins vegar vorum við lítt hrifin af því ef þessi norski væri eitthvert gáfnaljós, sem ýtti þeim til hliðar sem efst voru á bekkjarprófum. Fæddur 25. október 1893 Dáinn 29. september 1985 Nú er hann Jóhann afi dáinn. Langri og viðburðarríkri ævi sem spannaði heil 92 ár er lokið. Þegar ævin er orðin svo löng er hvíldin oftast kærkomin og eiginlega það eina sem eftir er. En tilfinningin sem fylgir því að missa kæran ástvin sem er svo stór og óaðskilj- anlegur hluti af lífi manns og uppvexti eins og er með mig nú, er dálítið sérstök. Allt í einu verður til eins konar tómarúm í huganum, sem maður síðan leitast við að fylla með minningum og minn- ingabrotum. Jóhann afi fæddist 25. október 1893 að Görðum við Reykjavík. Móðir hans var Guðrún Þorsteins- dóttir og faðir hans Eiríkur Ein- arsson sjómaður. óhætt er að segja að afi hafi um margt verið sérstakur maður sem fór ekki endilega troðnar slóðir og kom víða við eins og sjá má ef litið er yfir lífshlaup hans. Hann ólst upp hjá tveimur fjöl- skyldum til 15 ára aldurs, og réðst þá sem vinnumaður að Hvanneyri til að byrja með, en lauk síðan búfræðiprófi þaðan árið 1915. Árið 1916 fór hann til Noregs þar sem hann dvaldi í 4 ár, en slíkar utan- ferðir hafa sjálfsagt ekki verið Hermann kom á haustdegi í skólann, bjartur yfirlitum, vel klæddur, frekar feiminn en bar þó höfuðið hátt. Hann var fámáll í frímínútum, meira áhorfandi að ærslum okkar hinna en þátttak- andi. Vorið kom með prófunum sínum. Hermann varð með 3ja hæsta prófið, lengra var ekki hægt að komast í þetta sinn. Þeir, sem mændu á þetta sæti en misstu af, ákváðu að lesa betur næsta vetur. Hermann varð að sjálfsögðu afar daglegt brauð í þá daga, og án efa þurft kjark og áræði til að leggja í slíkt. Þegar heim kom var hann í ýmsum störfum uns hann gerðist bóndi noður í landi árið 1925 og þar bjó hann um 5 ára skeið ásamt móður sinni, en fluttist síðan suður og hóf störf hjá Mjólkursamsöl- unni árið 1935. Þar var hann síðan þar til starfsdegi hans lauk, en þá var hann 78 ára gamall og geysi- lega vel á sig kominn líkamlega og andlega miðað við aldur. Þá hélt hann áfram að stunda þau störf sem hann hafði stundað í frítíma sínum áður, þ.e.a.s. ættfræðistörf. Út hafa komið eftir hann fjöldi bóka um ættfræði og vann hann mikið og gott starf í þeirri grein. Árið 1932 giftist hann ömmu, Helgu E. Björnsdóttur, og þar var hann heppinn, því aðra eins kosta- konu er vart hægt að hugsa sér, enda hvíslaði hann því oft að mér að það hefði verið hans gæfa er hann kynntist henni, og um það held ég að allir geti verið sammála sem til þekkja. Þau eignuðust saman þrjú börn: Eystein sem lést um aldur fram 1973, Jónínu og Guðrúnu. Heimilið var að Háteigsvegi 9 alla tíð, og þær eru margar góðar minningarnar sem ég á þaðan. Þar var maður alltaf svo innilega vel- kominn, fékk alla athygli gömlu hjónanna óskipta, og áhugi þeirra á velferð barnabarnanna var ótak- markaður. Andrúmsloftið á heim- ilinu var alltaf svo þægilegt og afslappað að manni gat ekki annað en liðið þar vel. Þær voru margar stundirnar sem við afi áttum saman. Mér erú sérstaklega minnisstæðar ferðirn- ar í Hafnarfjörð, þegar hann vann við innheimtustörf hjá Mjólkur- samsölunni. Við Jóhann bróðir hlökkuðum til alla vikuna, og jafn- vel fótbolti var látinn víkja til þess að komast með og sitja í bíln- um allan morguninn, heimsækja hin ýmsu fyrirtæki, og alltaf vor- um við teknir með inn því afi var svo hreykinn af strákunum sínum og fannst svo mikið til þeirra koma að hann vildi að allir fengju að sjáþá. Ferðin með afa vestur í Æðey er mér einnig ógleymanieg. Tíu ára gamall einn með afa sínum í rútu þar sem hann vissi allt um alla staði er fyrir augu bar. í dag finnst mér þetta líkast barnabókarsögu, alit svo spennandi og jákvætt. Aldrei gistum við bræður svo hjá ömmu og afa að ekki væri lesið fyrir okkur úr þjóðsögum Jóns Arnasonar, spjallað og hlegið. + Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför móður okkar, ömmu, langömmu og langalangömmu, GUÐRÍÐUR SIGURDARDÓTTUR frá Hallbjarnareyri, Eyrarsveit. Ingibjörg Jóhannesdóttir, Una Jóhanneadóttir Antrins, Jóhannes Þórðarson, Hulda Þóröardóttir, Jóna Þóröardóttir, Michael Antrins, William Antrins jr., barnabarnabörn og barnabarna- barnabörn. t Hjartans þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát EYGLÓAR VILHJÁLMSDÓTTUR, Sílalask. Foreldrar, systkini og aörir ástvinir. William Antrins, Þorvaldur Þóröarson, Þorsteinn Eyjólfsson, Minning: Jóhann Eiríksson ánægður þetta vor og kynnin juk- ust dag frá degi. Árin liðu — ferm- ing var framundan — gengið var saman til prests — eftir ferming- una skildust leiðir. Hermann var þess fljótt meðvit- andi, að án vinnu væri engin fram- tíð. Hann var jafnan við þá vinnu sem bauðst, en eftir tvítugsaldur vann hann einvögðungu að verzl- unarstörfum. Um tíma missti ég sjónar af honum en hafði þó af honum spurnir. Hann var allsstaðar vel látinn — duglegur og samvizku- samur — en hann gat vel hugsað sér að skipta um vinnustað og gerði það. Hermann kynntist ungur glæsi- legri stúlku, Kristrúnu Ingibjörgu Clausen, hún varð unnusta hans. Hún átti síðar við erfiðan sjúkdóm að etja. Hermann var hennar stoð og stytta í veikindastríði hennar. Þann 28. des. 1947 eignuðust þau son, Kristján Svavar. Hann er búsettur hér í Reykjavík og vinnur við verslunarstörf. Kristrun andj aðist í Reykjavík 24. apríl 1962. Hermann saknaði hennar og kvæntist aldrei. Við Hermann sáumst ekki oft eftir að hann flutti frá Siglufirði en þá fundum okkar bara saman var ætíð rætt um bernskudagana í Siglufirði. Þrátt fyrir móðurmissinn átti Hermann að mínu mati góða æsku. Kaia stjúpmóðir hans vildi veg hans sem mestan — hún var vinnusöm. dugnaður og snyrti- mennska var hennar aðalsmerki. Kristján Hallgrímsson unni einkasyni sínum og breytti eftir því. Hálfsystrum hans, Jenfriedt. ^ sem áður er nefnd svo og Ingrid og Kristjönu, sem fæddust í Siglu- firði en eru nú báðar búsettar í Reykjavík, og fjölskyldum þeirra þóttu vænt um Hermann og mátu hann mikils. Við, sem vorum með Hermanni í skóla í bernsku og unglingsárum okkar minnumst hans með virð- ingu, hann var „vel af guði gerður" eins og sagt er — mörgum kostum búinn — krafðist einskis af öðrum en mikils af sjálfum sér. Kristján var kvæntur Lenu Árnadóttur og áttu þau þrjú börn. Þau slitu samvistum. Sambýlis- kona Kristjáns er Sigríður Stein- grímsdóttir og eiga þau einn son. Barnabörnin voru sannkallaðir ljósgeislar afa síns. Hermann mat Lenu og Sigríði mikils og naut oft ánægjustunda á heimili einkason- ar síns. Kristjáni og fjölskyldu hans svo og hálfsystrum Hermanns eru með línum þessum sendar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Her- manns Kristjánssonar. Jón Kjartansson Þegar ég varð eldri og kominn í nám hafði ég aðstöðu í kjallara- herberginu til lesturs og þá vorum við afi töluvert mikið saman, og spjölluðum margt og alltaf var hann sami viskubrunnurinn og þær ófáar vísurnar sem hann fór með fyrir mig við þau tækifæri, því hann kunni svo margar að með ólíkindum var. Heimilisstörf voru honum aV gjörlega framandi og ég efast um að hann hefði getað soðið vatn hjálparlaust, því gleymi ég aldrei hvað hann var undrandi og forviða einu sinni þegar amma var fjar- verandi og ég eldaði matinn fyrir okkur og bar hann á borð. Fyrir honum var þetta ótrúlegt afrek, sem jaðraði við snilligáfu, og hann talaði mikið um hvað tímarnir hefðu breyst. Eitt er það enn sem mig langar að minnast á, og lýsir kannski best því sem ég hef reynt að segj'a hér með fátæklegum orðum. Og það eru kossarnir, því aldrei heils- aði hann manni eða kvaddi öðru- vísi en að smella kossi á kinn. Ég man einu sinni eftir að hafa farið án þess að kveðja hann með kossi alla mína tíð með honum, og þegar ég var kominn út á stétt fann ég að eitthvað vantaði, sneri við og kvaddi á hefðbundinn hátt. Þessa mun ég sakna. Og nú er hann farinn yfir móð- una miklu, og verður fyrir okkur minning um liðna tíð sem ekki kemur aftur. Ég vil fyrir hönd eiginkonu minnar, sona okkar og systkina minna þakka samfylgdina í gegn-, um árin. Elsku bestu ömmu send- um við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Eftir lifir minningin um góðan mann. Logi l lfarsson Valhúscjögn auglysa Eldhúsborö, stærö á plötu 95 sm + 40 sm stæKKun- arplata, ásamt 4 stólum, Ijóst og döKKt. Verö kr. 14.000. VALHÚSGÖGN Ármúla 4, símar 685375 og 82275.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.