Morgunblaðið - 06.10.1985, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGAR 6. OKTÓBER1985
B 15
FRÆÐSLUÞÆTT1R HINS ISLENSKA NATTURUFRÆÐIFELAGS
VORFLUGUR
Eftir Gísla Má
Gíslason
Vorflugur eru eini skordýra-
ættbálkurinn þar sem lirfur
allra tegunda lifa eingöngu í
vatni. Þær eru meðalstór skor-
dýr, 10—20 mm á lengd, með tvö
pör vængja. Framvængirnir
mynda háreist þak yfir flugun-
um þegar þær sitja. Fálmararnir
eru mjóir og langir, svipaðir að
lengd og vængir dýrsins. Flestar
flugurnar eru brún- eða gráleit-
ar og vekja ekki mikla athygli.
Þær finnast oftast nálægt ám og
vötnum. Hérlendis fljúga þær á
daginn þegar hlýtt er í veðri og
lítiil vindur.
Náttúruskoðarar þekkja lirf-
urnar betur, sem einnig ganga
undir nafninu hýðormar, vegna
þess að þær byggja sér hús úr
sandkornum eða plöntuleifum,
sem þær draga að.
Nafnið vorfluga kemur úr
dönsku: »várflue“. Sama nafn er
á flugunum á norsku. Svíar
nefna hana aftur á móti „natts-
lánda", því að í nágrannalöndun-
um flýgur hún á nóttunni. Á
ensku er það „cattisflies“, en það
nafn er af sama uppruna og hýð-
ormar á íslensku. Fræðiheiti
þessa ættbálks er Trichoptera,
sem þýðir hárvængjur, en væng-
irnir eru hærðir.
Hér á landi eru þekktar 11
tegundir af um 7.000 tegundum,
sem lýst hefur verið í heiminum.
í Skandinavíu eru þekktar um
250 tegundir og á Bretlandseyj-
um eru þær um 200.
Nafnið vorflugur er ekki í
samræmi við flughegðun þeirra
hérlendis. Flugtími tegundanna
á íslandi er mjög breytilegur.
Fer það nokkuð eftir búsvæða-
vali þeirra hvenær þær fljúga.
Fullvaxnar vorflugur í lindám og
stórum stöðuvötnum eru á flugi
frá því snemma á vorin og fram
á haust, en tegundir sem eru í
grunnum tjörnum og flæðiengj-
um verða ekki fullorðnar fyrr en
um mitt sumar. Slík búsvæði eru
oft botnfrosin yfir veturinn, og
kemur það í veg fyrir að eggin
þroskist á veturna og vaxa lirf-
urnar því yfir sumarið. Ein teg-
und, sem er nýkomin til landsins
og er í ám á Áustur- og Norður-
landi, flýgur aðallega á haustin.
Þessi tegund er mjög stór, um 2
sm á lengd, og þar sem hún hef-
ur sest að hefur hún útrýmt ann-
arri minni vorflugnategund.
Lirfur vorflugna á Islandi eru
svokallaðar alætur, þ.e. lifa á
flestu því sem er í fjörum stöðu-
vatna eða á steinum í ám. Það
10 mm
Lirfur tveggja vorflugnategunda sem lifa í ám. Stærri lirfan hefur nýlega
sest að hérlendis, og flnnst í ám á Austur- og Norðurlandi. Minnilirfan
flnnst í ám annars staðar á landinu og hefur verið útrýmt af þeirri stærri
úr ám á Austur- og Norðurlandi. a: haus, b: lirfa, c: hús (hýði), d: haus, e:
lirfa, f: hús.
Vorfluga séð að ofan með út-
breidda vængi og frá hlið sitjandi.
eru aðallega þörungar, plöntur
og plöntuleifar og smáar skor-
dýralirfur. Ein tegund étur ein-
göngu kísilþörunga, en hún er
aðeins innan um steina í fjörum
stórra stöðuvatna og í straum-
vatni.
Stangveiðimenn, sem hnýta
flugur, líkja oft eftir vorflugum.
Vorflugurnar eru stærstu skor-
dýr í vötnum og ám og eru mikið
étnar af silungi og fuglum. Á
þeim tíma sem þær eru að skríða
úr púpunum má segja að silung-
x ur rífi þær í sig og magar þeirra
eru úttroðnir af vorflugum og
vorflugnapúpum. Þeir éta einnig
vorflugurnar þegar þær setjast á
yfirborð vatna eða kafa til að
verpa eggjum. í ám eru vorflug-
ur og lirfur þeirra mikilvæg
fæða fyrir urriða og uppvaxandi
lax.
Höfundur er dósent í vatnalíffræði
við Háskóla íslands.
Það fer eftir því hvernig
hver og einn er innstilltur,
hvað honum dettur í hug
þegar París er nefnd. Hvort
það er mannkynssagan eða
matstaðir, listasöfn eða
verslanir, næturlíf, arkitekt-
úr eða Birgitta Bardot.
Við getum að vísu ekki
lofað því að þið hittið Birg-
ittu. Hinsvegar gætuð þið
skoðað og keypt nýjasta
tískufatnaðinn í Forum Les
Halles, fram að hádegi, skoð-
að Versali fram að kaffi, Pom-
pidou safnið fram að kvöld-
mat og þá snætt á veitinga-
húsi á 59. hæð í turni Mont-
llr
parnasse. Þaðan er stórkost-
legt útsýni yfir borgina, ekki
síst þegar fer að rökkva og
París næturinnar vaknar til
lífsins með allri sinni Ijósa-
dýrð.
Eftir kvöldmat er svo hægt
að líta inn á Rauðu mylluna
eða Crazy Horse Saloon, og
dingla sér fram undir
morgun. (í alvöru talað
myndum við nú ráðleggja
ykkur að dreifa þessu á
nokkra daga.)
í samvinnu við Alr France
býður Arnarflug upp á París-
arferðir, með gistingu, á
mjög hagstæðu verði. Ferða-
tilhögun er þannig að flogið
er með Arnarflugi til Amster-
dam og þaðan áfram með
Air France.
í París er dvalið á mjög
góðum hótelum í fjóra daga
eða allt upþ í mánuð, eftir
því hvað þið hafið mikinn
tíma.
Nánari upplýsingar hjá
ferðaskrifstofum og á sölu-
skrifstofu Arnarflugs.
Bon voyagel
ARNARFLUG
Lágmúla 7, simi 84477