Morgunblaðið - 15.10.1985, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. OKTÓBER1985
"3
Nýkjörin stjórn Norræna félagsins ásamt framkvæmdastjóra og æskulýósfulitrúa. Morgunbla&ið/Sig. J6ns.
Áhersla lögð á tengsl ungs
fólks á Norðurlöndunum
Selfonsi, 7. október.
SAMBANDSÞING Norræna félagsins var haldið í Munaðarnesi dagana
4.—6. október sl. Þingið sóttu 62 fulltrúar 24 félagsdeilda víðs vegar af
landinu. Á þinginu kom fram mikill áhugi fyrir því að þátttaka ungs fólks
aukist í starfi Norræna félagsins og því sköpuð tækifæri til að stofna til
tengsla við ungt fólk á hinum Norðurlöndunum. Á þinginu var Gylfi Þ.
Gíslason kjörinn formaður félagsins.
Sambandsþing Norræna fé-
lagsins er haldið annað hvert ár
og eru þá ræddir hinir ýmsu
þættir í starfsemi félagsins.
Starfsemi félagsdeilda NF er
víða með miklum blóma og bygg-
ir þá einkum á reglubundnum
samskiptum við vinabæi á hin-
um Norðurlöndunum. Samskipt-
um þessum er í flestum tilfellum
þannig háttað að vinabæirnir
skiptast á um að halda vinabæj-
armót þar sem fulltrúar frá
hverjum vinabæ hittast. Á þeim
stöðum þar sem þetta er með
hvað mestum blóma er það fyrir-
komulag að hinn almenni félags-
maður félagsdeildarinnar hefur
tækifæri til að fara á vinabæj-
armót. Þessi vinabæjasamskipti
eru á flestum stöðum í nánu
samstarfi við sveitarstjórnir á
hverjum stað. Sem dæmi um
nýjar hugmyndir sem eru á döf-
inni í starfi félagsdeildanna má
nefna útvegun vinnupláss fyrir
ungt fólk í vinabæjum, húsnæð-
isskipti, útvegun sumarbústaða,
málanámskeið og hópferðir.
Norrænu félögin á Norður-
löndunum gefa út í sameiningu
félagsblaðið Vi i Norden sem
sent hefur verið hverjum félags-
manni. Á þinginu var samþykkt
að gera ritið Norræn jól að árs-
riti félagsins en félagsdeildin í
Reykjavík hefur til þessa annast
útgáfuna og dreift blaðinu til
sinna félaga og þeirra félags-
deilda annarra sem eftir því
hafa sóst.
Ferðamál hafa verið sá þáttur
í starfi Norræna félagsins sem
hvað mest aðdráttarafl hefur
haft til að laða að nýja félaga. Á
þinginu var samþykkt ályktun
þess efnis að efnt verði til leigu-
flugs til ákveðinna staða á Norð-
urlöndunum. Reyndar var einnig
samþykkt tillaga um að auglýst
skyldi a.m.k. eitt flug.
Vinabæjasamstarf er ríkur
þáttur í starfseminni. Það er álit
sambandsþingsins að þessi sam-
skipti þyrfti að bæta t.d. með því
að auka samskipti klúbba og fé-
laga innan vinabæjanna og með
því að fá það samþykkt að jafna
ferðakostnaði á vinabæjamót
niður þannig að jafndýrt sé á
vinabæjamót frá hverjum vina-
bæ. Einnig var lögð áhersla á
það að leita eftir nýjum tengsl-
um og þá jafnt fyrir sveita-
hreppa sem kaupstaði.
Miklar umræður urðu um
æskulýðsmál á þinginu. Á vegum
NF er starfandi æskulýðsfull-
trúi. Því starfi gegnir Kristín
Stefánsdóttir úr Reykjavík.
Fram kom að þörf er virkar
kynningar á Norðurlöndunum til
að vekja áhuga ungs fólks fyrir
samskiptum við fólk þaðan. Til
að ná þessu markmiði var helst
rætt um að koma á náms- eða
kynnisdvöl fyrir ungt fólk
16—20 ára. Lögð var áhersla á að
styðja þyrfti við bakið á íþrótta-
samböndum sem taka þátt í
Kalottkeppni í frjálsum íþrótt-
um og sundi en hætt er við að
þau samskipti leggist af vegna
mikils kostnaðar. Til þess að
marka æskulýðsstarf NF var
kosin milliþinganefnd.
Þingfulltrúar sambandsþings-
ins sátu boð Matthíasar Á.
Mathiesen ráðherra norrænna
mála sem haldið var í Hótel
Borgarnesi. Þar flutti Hjörtur
Pálsson stutt ávarp kryddað
gamanmálum.
Á þinginu var kjörin ný stjórn
fyrir næstu tvö starfsár. For-
maður var kjörinn Gylfi Þ.
Gíslason, meðstjórnendur Guð-
laugur Þorvaldsson, Karl Jeppe-
sen frá Reykjavík, Þorbjörg
Bjarnadóttir ísafirði, Árni Sig-
urðsson Blönduósi, Ólafur Guð-
mundsson Egilsstöðum og Jóna
Bjarkan Garðabæ.
Sig. Jóns.
„Víðsýni
eflir vin-
áttubönd“
Selfonsi, 7. október.
GAMANMÁL og glettni ein-
kenna oft samskipti félags-
manna norrænu félagsdeild-
anna jafnt milli samlanda sem
annarra. Þegar umræðum lauk
og kosningar voru afstaðnar
varpaði Eiríkur Pálsson frá
Ölduhrygg, búsettur í Hafnar-
firði, fram eftirfarandi kveð-
skap um leið og hann þakkaði
fyrir sig og kvaddi:
Kveðjuorð
Norræn samvinna
nú sem fyrrum
huga lyftir
að háleitu marki.
Góðvild auka
gagnmerk kynni.
Víðsýni efla
vináttubönd.
Á sambandsþingið
sóttu að víða
konur og karlar
er kunnu til verka.
Afköst því eru
eftir hætti,
tillögur traustar
og töluð orð.
Þakka ber
þessu liði
störf góð og styrk í gleði.
Heilla árnum
hópnum fríða
og velfarnaðar
á vegum öllum.
Sig. Jóns.
Samtök aðstandenda vímuefnasjúkra:
Vilja byggja hvfldarheimili
SAMTÖK aðstandenda vímuefna-
sjúkra, SAVES, voru stofnuð í vor
og er kjörorð samtakanna „Eitur af
eyju“.
Forgangsverkefni beirra er að
byggja hvíldarheimili fyrir
þreytta aðstandendur og aðstöðu
til fundahalda. Samtökin eru
stofnuð á ári æskunnar í þeirri
trú að uppvaxandi kynslóð verði
betur á verði gegn alvarlegum
afleiðingum vímufíknar.
í fréttatilkynningu frá samtök-
unum segir að stofnendur séu hóp-
ur fólks á öllum aldri, sem þreytt
eru orðin á að vera tvístruð í felu-
leik með hugsanir sínar varðandi
ýmsar úrbætur. Mælst er til þess
að þeir sem hafi áhuga á að láta
skrá sig í hópinn og starfa innan
samtakanna, geri svo. Einnig óska
samtökin eftir áheitum og er hægt
að leggja inn á gríóreikning nr.
63890-0. Nánari upplýsingar fást
með því að skrifa til: SAVES, póst-
hólf 9062, R-9 Reykjavík.
Listahátíð kvenna:
Kammer-
tónleikar
í Norræna
húsinu
í FRETT frá Listahátíð kvenna segir,
að Kammertónleikar verða í Nor-
ræna húsinu í kvöld á vegum Listahá-
tíðar kvenna og hefjast þeir kl. 20.30.
Á efnisskránni verða verk eftir
9 konur, tvær íslenskar; Karólínu
Eiríksdóttur og Mist Þorkelsdótt-
ur, og sjö erlendar. Tónleikarnir
hefjast á þremur lögum fyrir selló
og píanó eftir Nadiu Boulanger,
einn virtasta tónsmíðakennara
þessarar aldar, en mörg tónskáld
hafa lagt leið sína til Parísar til
að stunda nám hjá henni. Á tón-
leikunum verða einnig flutt verk
eftir tvo nemendur Nadiu, þær
Grazynu Bacewicz, sem var pólsk-
ur fiðluleikari og meðal fremstu
tónskálda Póllands á þesari öld og
Theu Musgrave sem er án efa
þekktust núlifandi kventónskálda.
Auk þess verða svo flutt verk eftir
Sylviu Bodorovu frá Tékkóslóvak-
íu, Betsy Jolas frá Frakklandi,
ísraelska tónskáldið Yardenu
Alotin og síðast en ekki síst Clöru
Schumann.
Flytjendur á tónleikunum eru
tíu. Þeir eru: Guðný Guðmunds-
dóttir, fiðluleikari; Inga Rós Ing-
ólfsdóttir, sellóleikari; Guðrún
Birgisdóttir, flautuleikari; Sigrún
Hjálmtýsdóttir, sópransöngkona;
píanóleikararnir Ánna Guðný
Guðmundsdóttir, Selma Guð-
mundsdóttir, Guðríður St. Sigurð-
ardóttir og Þóra Fríða Sæmunds-
dóttir; Jón Aðalsteinn Þorgeirs-
son, klarinettleikari og Arnþór
Jónsson, sellóleikari.
VMSÍ:
Ákvæði um 10
klst. samfellda
hvíld afgerandi
MORGUNBLAÐINU barst í gær
svohlóðandi fréttatilkynning frá
Verkamannasambandi Islands:
„Að gefnu tilefni vill VMSÍ taka
fram, að ákvæði laga nr. 46, 1980
um aðbúnað, hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum um 10 klst.
samfellda hvíld á sólarhring og
vikulegan frídag er afgerandi og
undantekningar einungis leyfðar
ef um er að ræða hjúkrunar- og
líknarstörf, vörslu dýra og gróðurs,
sérstakar aðstæður við þjónustu-
og framleiðslustörf og öryggisstörf
og varðveislu verðmæta.
I samkomulagi ASÍ við VSÍ og
VMS frá 10. apríl 1981 er kveðið
skýrt á um það í 7. gr. að sé vikið
frá vikulegum frídegi, skuli vera
frí 2 daga næstu helgi á eftir, þ.e.
laugardag og sunnudag. Slík til-
færsla á vikulegum frídegi er því
aðeins heimil að um hana hafi
verið gert sérstakt samkomulag
við viðkomandi starfsmenn."
Neskaupstaður:
21 stigs hiti
og sumarsól
Neskaupstað, 14. október.
SANNKÖLLUÐ sumarblíða hefur ver-
ið hér í dag. Hitinn fór í 21 gráðu í
sólskininu. Þetta er kærkomin uppbót
á kalda veðrið í sumar.
Annars hefur haustið verið mjög
gott hér eystra, miklar stillur og oft
séð til sólar.
Þrátt fyrir blíðviðrið hefur lítið
borist af síld til söltunar hér. Hjá
söltunarstöðinni Mána hefur verið
saltað í um eitt þúsund tunnur en
hjá söltunarstöð SVN mun minna.
Síldin sem veiðist er mjög feit og góð.
-Sigurbjörg.