Morgunblaðið - 15.10.1985, Side 48

Morgunblaðið - 15.10.1985, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. OKTÓBER1985 • • Oryggis- og mennt- unarmál sjómanna — eftir Bjöm Ólafsson Kveikjan að þessum hugleiðing- um, er ráðstefna um öryggismál sjómanna, sem haldin var fyrir milligöngu Rannsóknarnefndar sjóslysa, Siglingamálastofnunar ríkisins, í samvinnu við 14 aðrar stofnanir, ráð samtök og félög, sem láta sig þessi mál nokkru varða. Á ráðstefnu þessari voru flutt 27 erindi og umræðuhópar fjölluðu þar um helstu málaflokka þessara vandamála, og skiluðu síðan áliti í loferáðstefnunnar. Þar sem fram kom á ráðstefn- unni, var síðan gefið út á prenti hinn 20. mars 1985 í Reykjavík. Ég tek mér það bessaleyfi, að taka þaðan ýmsar tölur og upplýs- ingar, og tilvitnanir, án frekari skilgreiningar í hverju einstöku tilfelli. í ávarpi samgöngumálaráðherra til ráðstefnugesta, kom fram meðal annars: „Að lítiö eyland i miðju Atlantshafi, er flestum öðr- um löndum háðara um siglingar, og þegar til viðbótar kemur, að undirstöðuatvinnuvegur þjóðar- innar er fiskveiðar, þá má öllum ljóst vera, að öryggi sjómanna okkar er ekkert einkamál þeirra, heldur mikilvægur þáttur í efna- hagsafkomu landsmanna. Þá á ég ekki aðeins við, að útreikningar hagfræðinga sýna, að hver slasað- ur og hvert glatað mannslíf, er milljóna vijrði í tekjutapi fyrir þjóðina, heldur einnig það, að ef fólk á að fást til starfa í sjó- mennsku, verður að tryggja öryggi þess.“ Þannig mælti sá vísi ráðherra, sem fer með það ráðuneyti, sem mest hefur slakað á um menntun sjómanna, og gefið hefur flestar undanþágur til skipsstjórnar og vélgæzlu, og lagt hefur niður loft- skeytamenntun í landinu, og leyft Landssíma Islands, að leggja af alla morse-þjónustu á 500 kc/s á strandstöðvum landsins, nema einni, en það er loftskeytastöðin TFA í Gufunesi. Þó segir hann í ávarpi sínu til ráðstefnunnar, sem vitnað var í, að fjarskipti hafi verið bætt. Fjarskipti er stórt orð og 'abúð- armikið, en fjarskipti á milli aðila á slysstað, og fjarskipti við björg- un í neyðartilfellum verða alltaf nauðsynleg. Ná þarf sambandi við skipið sem er í neyð, finna þarf það með miðun, eða björgunarbáta þess, og ná þarf sambandi við leitar- og björgunaraðila. Fjarskiptaþörfin, þegar slys ber að höndum, er ávallt mikil, enda eru til neyðarþjónustu notaðar 14 mismunandi tíðnir og eru 500 kc/s 2182 kc/s 156,8 kc/s þar aðaltíðn- irnar. Þau öryggistæki til fjar- skipta og þau fyrirmæli, sem kunna þarf og nota á neyðarstund, eru því mikilvæg, sé vanrækt að nota þau eða vanti kunnáttu eða getu til þess, koma þau að litlu gagni. Þarna hafa loftskeytamenn til þessa dags komið að mestu gagni með kunnáttu sinni og ár- vekni. Hin mannlega hlið fjarskipta, sem að sjómönnum snýr, hefur einnig verið forsómuð á skipum á fjarlægum siglingaleiðum, sem sigla án loftskeytamanns, og þann- ig ekki fært að rækja tengsl sín við fjölskylduna svo vikum skiptir, það kalla ég ekki bætt fjarskipti fyrir farmenn. Nefnd var skipuð 2. apríl 1982 af þáverandi samgöngumálaráð- herra til þess að endurskoða ákvæði laga um mönnun stóru togaranna. Nú kvað nefndin vera að vinna sér það helst til frægðar, að stuðla að því að loftskeyta- mönnum á togurunum verði vísað í land, og að það hefði nefndin ætlað sér að framkvæma fyrir síðustu áramót, en að það hafi dregist vegna tregðu af hendi togaraskipstjóranna á stærri skip- unum, sem telji þá nauðsynlega og ómissandi á stærri togurunum, svo að enn eru þeir um borð, þrátt fyrir skammsýni nefndarinnar, fækkunarjarm útgerðarmanna, og skilningsleysi samgöngumála- ráðuneytisins. Nú vinna útgerðarfélög dyggi- lega að því að koma loftskeyta- mönnum á farskipum i land af skipunum með alls kyns brögðum og tali um aukna tækni, en gleyma því að slík tækni er enn ekki til og verður ekki í náinni framtíð fyrir hendi hér á landi. Orð samgöngumálaráðherra um bætt fjarskipti, öryggis- og mennt- unarmál sjómanna, virðast því vera innantómt orðaglamur, og hugtök hjá ráðherranum án mein- ingar, því að orð hans og athafnir stangast þarna illilega á. Undanþágur, hafa verið hömlu- lausar, bæði til skipstjórnarstarfa, vélgæzlu og til stýrimanna, þannig að í hreint óefni er komið, þar sem fjöldi undanþága er orðinn á milli 1600 og 1700 á ári. Þetta ófremdar- ástand hefur sett niður sjómanna- menntun í landinu og stöðu sjó- mannastéttarinnar allrar. Sjó- mannaskólinn er ekki einu sinni hálfsetinn á móts við það sem áður var. Ungum mönnum á Islandi, sem ætla að gera sjómennsku að ævi- starfi fer fækkandi. Fækkun manna á skipunum. Undanþágurn- ar og skilningsleysi útgerðar- manna og ráðamanna á kjörum, öryggi, og menntun sjómanna eiga þarna sína sök á. Þessu til staðfestingar, vitna ég hér í úrdrátt úr ályktun umræðu- hóps ráðstefnunnar um öryggi fiskiskipa: „Orsakir sjóslysa, eru því miður oftast raktar til mann- legra mistaka, þar af leiðandi er brýn nauðsyn að auka menntun og alla fræöslu hjá skipstjórnar- mönnum og skylda þá til að fara í endurmenntun með vissu milli- bili. Miðlun á þekkingu frá eldri skipstjórnarmönnum til þeirra yngri, sem við skipsstjórn taka, þarf að aukast frá því sem nú tíðkast. Því miður er það að koma áþreifanlega fram, að reynsla og menntun skipstjórnarmanna fer minnkandi. Nýsamþykkt lög um atvinnu- réttindi skipstjórnarmanna á ís- lenskum skipum, þar sem m.a. mönnum er gert auðvelt fyrir að fá undanþágur til hinna ýmsu ábyrgðarstarfa til sjós, mun verka með auknum þunga til hins verra, þegar fram í sækir. Tíðni sjóslysa er alltof há hér við land, og má telja, að stöðugt minnkandi laun þeirra er á sjó starfa eigi þar einnig stóran þátt, og aðdraganda að mörgum slys- um.“ Þetta skilja allir. í beinu framhaldi af þessu, er ekki úr vegi að beina athyglinni að skipsströndum, sem orðið hafa hér við land á seinni árum. Frá 1964 til 1973 urðu 34 strönd, en frá 1974 til 1983 urðu þau 86 eða 120 skipsströnd frá 1964 til 1983, og er því mjög að fjölga. Við skipsströnd eru mannslíf jafnan í verulega mikilli hættu. óvíða í veröldinni, er eins stór hluti heillar þjóðar sjómenn, eða menn sem stunda sjómennsku einhvern hluta ævi sinnar og hér, og óvíða við verri aðstæður vegna veðurfars og erfiðs sjólags við strendur landsins og á Atlants- hafinu. Þessu má ekki gleyma þegar um þessi mál er rætt. Það er líka staðreynd, að slysa- tíðni er mjög há hér og því skiljan- legt að einstaklingar, sem þjóðin öll, láti sig öryggismál nokkru skipta, og menn hafi áhuga á að reyna að draga úr slysum á sjó, skipstöpum og björgun mannslífa. En það er óskiljanlegt, að þeir sem Björn Ólafsson „Krafa okkar loft- skeytamanna og krafa tímans er sú, að þegar í stað verði hafin kennsla í loftskeytafræðum og tæknimenntun með verklegri þjálfun við Iðnskólann eða Tækni- skólann, þannig að loft- skeytamenn verði færir um að svara þeim kröf- um, er til þeirra verður að gera í tæknivæddu nútíma þjóðfélagi.“ eiga að sjá ráð fyrir okkur í þessum efnum, svo sem samgöngumála- ráðuneytið, menntamálaráðuneyt- ið og Alþingi skuli ekki gæta vöku sinnar og skyldu við sjómanna- stéttina. Slysavarnarfélag íslands var stofnað 29. janúar 1928. Björgun- arfélag Vestmannaeyja var braut- ryðjandinn, en það félag var stofn- að í ágústmánuði 1918. Það hóf söfnun til kaupa á björgunarskipi. Aðstoðar- og björgunarskipið Þór sigldi í höfn þar í mars 1920. Það varð síðar okkar fyrsta varðskip, með stofnun Landhelgisgæzlunnar 1926. Tilkynningarskyldan hófst í maí 1977, og hefur Slysavarnarfélagið annast framkvæmd hennar. í starfi Slysavarnarfélags ís- lands, hefur auk björgunarstarfs- ins á mannslífum verið lögð mikil áherzla á fyrirbyggjandi aðgerðir, svo sem með kennslu og þjálfun í meðferð slasaðra, þjálfun í bruna- og björgunaræfingum og alla meðferð björgunartækja. Á Slysa- varnarfélag Islands þarna miklar þakkir skilið fyrir sitt fórnfúsa og vel unna starf. Fyrsti vísir að eftirliti með skip- um hér við land, er rétt áttatíu ára gamall, fyrstu lögin á því sviði voru gefin út 1903 og eru þau núm- er 25. Næsta skrefið varð hinn 19. júní 1922 með lögum númer 37 þar sem tilskipun um eftirlit með bátum, skipum og búnaði er undirrituð af Kristjáni tíunda í nóvember 1922. Þá má segja að regluleg skipaskoð- un hafi hafist hér á landi. Skipaskoðun ríkisins, síðar Sigl- ingamálastofnunin, var stofnsett með lögum númer 58 hinn 14. júní 1929. Var ólaf Th. Sveinsson skip- aður skoðunarstjóri frá 1. jan. 1930. ólaf Th. Sveinsson gegndi því starfi í 24 ár með mikilli prýði. Hjálmar R. Bárðarson tók við af Ólaf og gegndi því starfi í 26 ár eða til l.maí 1980, að Magnús Jó- hannsson tekur við sem núverandi sigl i ngamálastj óri. Við Siglingamálastofnunina og stjórnendur hennar eru að sjálf- sögðu tengdar miklar vonir í ör- yggismálum íslenskra sjómanna. Á árinu 1976 komu út fyrstu íslensku reglurnar um stöðug- leika- ákvæði íslenskra fiskiskipa og tilgreindar almennar varúðar- reglur. Hinn 28. apríl 1984 tóku gildi erlend ákvæði alþjóðasamnings, er var gerður á álþjóðlegri ráð- stefnu í London 1978 umþjálfun, atvinnuskírteini og varðstöður sjó- manna. (International Concention on standard of Training and Watchkeeping for Seafarers 1978). Þessi merkilegi samningur er sá fyrsti á Alþjóðavettvangi, sem fjallar um lágmarks menntun og þjálfun áhafna. Allir aðrir al- þjóðasamningar og reglugerðir á þessum vettvangi, og varðað hafa öryggismál sjómanna hafa fjallað um skipin sjálf, búnað þeirra og björgunartæki. Allt eru þetta merkir áfangar, sem hér hafa verið nefndir i öryggismálum, en þessi síðastnefndi er kannski sá eftir- tektarverðasti. Þessi samningur gildir fyrir áhafnir kaupskipa og setur fram ákveðnar kröfur um lágmarks menntun, þekkingu, þjálfun og endurmenntun skipstjóra, stýri- manna, vélstjóra, loftskeyta- manna og háseta, og mat á hæfni allra sjómanna í meðferð björgun- artækja og björgunarbúnaðar hverskonar. Samningur þessi er ekki síst athyglisverður fyrir sjómenn, sem sigla á erfiðasta og hættulegasta hafsvæði heims, en búa við undan- þágur á undanþágur ofan, niður- skráningur skipa sem komin eru í algjöra vitleysu. Þar meina ég skip, sem lesta 5.000 tonn, en eru á mælibréfi skráð .1599 tonn til þess að þurfa ekki að hafa loft- skeytamenn, þrjá stýrimenn eða fjóra vélstjóra, eins og því bæri að hafa, ef allt væri með felldu. Þannig er nú komið hjá okkur, að enginn getur lengur áttað sig á stærð skips, skipin lesta vörur og farma, sem eru tvö- og þrefaldir ísframleiðsluhús skreytt með listaverki eftir Helga Gíslason Húsavík: Húsavík, 11. október. ÍSFRAMLEIÐSLUHÚS hefur undanfarið verið í byggingu hjá Kiskiðjusam lagi Húsavíkur. Það er þriggja hæða hús að grunnfleti 160 fm, gluggalaust, svo útlit þess væri ekki glæsilegt ef ekkert væri gert til að fegra þessa stóru fleti. Strax við hönnun hússins var ákveðið að fá listamann til að lífga upp á þessa stóru fleti og varð fyrir valinu ungur listamaður, Helgi Gíslason, myndhöggvari í Reykjavík og þykir mönnum hon- um hafa vel tekist. Listaverkið er úr ryðfríu stáli og hefur listamað- urinn unnið það sjálfur, en ekki látið vinna það í stálsmiðju eins og oft er gert með slík verk. Aðspurður lýsir listamaðurinn verkinu þannig: „Verkin eru fjög- ur að tölu. Eitt á hverri hlið húss- ins og gerð úr ryðfríu, gljáandi stáli, jafn kalt og ísinn sem húsið geymir. Stærð myndanna er um átta metrar á hæð og allt að þrem- ur og hálfum metra að breidd og heildar flatarmál u.þ.b. 60 fm. Hvað varðar tákngildi verksins þá er það óhlutlæg útfærsla. En þeg- ar horft er á verkiö ofan af bakk- anum þá má finna samsvörun með því og fallegum borðstokki á báti í Húsavíkurhöfn eða stórbrotnum formum Kinnafjallanna. Jafnvel form brimaldanna sem komu hér inn flóann í vikunni. Svo ef grannt er skoðað getur hver og einn fund- ið sér eitthvað við hæfi í mynd- inni.“ Þetta voru orð listamannsins, en verkið mun vera með stærstu listaverkum sem prýða hús hér á landi. Helgi Gíslason lauk námi við Valands-listaháskólann í Gauta- borg 1976. Hann hefur haldið þrjár einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga. í þessum mán- uði opnar listamaðurinn einkasýn- ingu í Berlín. Isframleiðslan í þessu nýja húsi eru um 45 tonn á sólarhring og geymslur eru fyrir um 150—160 tonn. Togari eins og Kolbeinsey notar 70—80 tonn af ís í veiðiferð ef komið er með fullfermi. Neðstu hæð hússins á að nota fyrir móttöku fisks. KréttariUri Morgunblaðið/Silli Tryggvi Finnsson forstjóri Fiskiðjusamlags Húsavíkur Lv. ásamt Helga Gíslasyni myndhöggvara. í baksýn er hluti af listaverki Helga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.