Morgunblaðið - 15.10.1985, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. OKTÓBER 1985
59
raHif f If
AJV? r bwI'
ATR 42 á Reykjavíkurflugvelli.
Morgunblaðið/Bjarni.
ATR 42 í kynnisflugi á íslandi:
Virðist henta vel við
íslenskar aðstæður
— segja forsvarsmenn íslenskra flugmála
Alain Brodein, fulltrúi framleiðenda ATR 42, Sigurftur Helgason for-
stjóri Flugleifta og Kristjana Milla Thorsteinsson ræða saman um borð
í vélinni í kynnisfluginu.
„OKKUR líst vel á vélina. Hún er
mjög fullkomin, þægileg og virðist
henta vel við aðstæður hér á landi.
Hins vegar er ekkert komið að því
að taka ákvörðun um flugvélakaup
eða endurnýjun og við munum
fylgjast vel með þróuninni í þessum
efnum á næstu árum“, sagði Sig-
urður Helgason, forstjóri Flug-
leiða, eftir reynsluflug með frönsk-
ítölsku skrúfuþotunni ATR 42 í
gærdag. Vélin kom hingað til lands
á sunnudag á leið til Bandaríkj-
anna, þar sem hún verður kynnt
þarlendum flugfélögum.
Vélinni var fyrst flogið í ágúst
1984 og hefur síðan farið f fjöl-
margar flugprófanir, sem lofa
tnjög góðu. Að sögn Alain Brodin,
aðstoðarflugstjóra á markaðs-
sviði, hefur vélin þegar vakið
mikla athygli og fjölmargir aðilar
sýnt henni áhuga. Fyrsta vélin
verður afhent frönsku flugfélagi
í nóvember næstkomandi. Síðar í
vetur verður einni vél af þessari
gerð reynsluflogið í Finnlandi við
vetraraðstæður, og sagði Sigurður
Helgason að þeir Flugleiðamenn
myndu fylgjast vel með gengi vél-
arinnar þar, enda um margt svip-
aðar aðstæður í Finnlandi og hér
á landi. Alain Brodin sagði að
meðal helstu kosta vélarinnar
væri mun minni eldsneytiskostn-
aður, miðað við aðrar sambæri-
legar vélar, sem stafaði meðal
annars af því að hún væri léttari.
Þá væri vélin búin mjög fullkomn-
um tækjakosti í stjórnklefa, háv-
aði frá hreyflum væri minni en i
öðrum sambærilegum vélum auk
þess sem þeir væru einfaldari að
gerð, sem auðveldaði mjög viðhald
og viðhaldskostnað. Þá nefndi
hánn ennfremur hversu stutta
braut vélin þarf til flugtaks og
lendingar.
Forráðamenn Flugleiða og full-
trúar ísleskra flugmálayfirvalda
fóru í reynsluflug með vélinni í
jgær og bar þeim öllum saman um
kosti vélarinnar. Pétur Einarsson
flugmálastjóri sagði að sér virtist
vélin henta mjög vel við islenskar
aðstæður. „Þeir höfðu uppi stór
orð þegar þeir hófu framleiðslu á
þessari vél og mér virðist hún
uppfylla öll þau fyrirheit sem þá
voru gefin“, sagði flugmálastjóri.
ATR 42 kostar um 7 milljónir
Bandaríkjadala, eða um 300 millj-
ónir íslenskra króna og að sögn
Leifs Magnússonar, fram-
kvæmdastjóra flugrekstrarsviðs
Flugleiða, er það svipað verð og
á sambærilegum vélum á þessum
markaði, sem eru meðal annars
hin kanadfska DASH 8 og hol-
lenska vélin Fokker 50.
Umfangsmikil fíkniefnaleit:
Fjórir farþegar
gegnumlýstir
FJÓRIR farþegar með flugvél deildar lögreglunnar í Reykjavík.
Arnarflugs frá Amsterdam voru Umfangsmikil leit var gerð í
gegnumlýstir um helgina vegna flugvél Arnarflugs á Keflavíkur-
gruns um að þeir geymdu fíknicfni flugvelli, vegna gruns um að
innvortis. Svo var ekki, en atvikið farþegar hygðustflytja inn fíkni-
var þáttur í rannsókn fíkniefna- efni en engin fundust.
Stjórnarfundur Sambands ungra sjálfstæðismanna:
Varar við hugmyndum um
stórhækkun eignaskatts
Stjórnarfundur SUS var haldinn á Akranesi 12. október sl. Friðrik Sopb-
usson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins mætti á fundinn svo og Geir
Haarde, aðstoðarmaður fjármálaráðherra og fyrrum formaður SUS.
Að sögn Vilhjálms Egilssonar
formanns SUS, voru á fundinum
reifaðar hugmyndir um niður-
skurð ríkisútgjalda og kynntar
ýmsar hugmyndir sem sérstök
nefnd á vegum SUS hefur verið
að vinna að um það mál. Ákveðið
var að nefndin skyldi starfa áfram.
Þá var rætt um stjórnmálavið-
horfið og Friðrik Sophusson,
skýrði frá niðurstöðum fundar
miðstjórnar og þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins sem haldinn var á
Stykkishólmi 28.-29. sept sl.
Á stjórnarfundi SUS kom fram
mikil gagnrýni á vinnubrögð Al-
berts Guðmundssonar, fjármála-
ráðherra, bæði vegna launasamn-
inga og aukafjárveitinga.
Á fundinum var samþykkt eftir-
farandi ályktun:
„Stjórn SUS fagnar því að for-
maður Sjálfstæðisflokksins skuli
nú taka sæti í ríkisstjórn. Ungir
sjálfstæðismenn vænta mikils af
starfi hans við þau erfiðu verkefni
sem framundan eru.
Niðurstaða sameiginlegs fundar
þingflokks og miðstjórnar Sjálf-
stæðisflokksins í Stykkishólmi 28.
og 29. sept. sl. var sú að efnahagsá-
ætlanir ríkisstjórnarinnar skyldu
miðast við að utanríkisviðskipti
verði sem næst hallalaus, að
skuldasöfnun erlendis verði stöðv-
uð, og jafnvægi í ríkisbúskapnum
verði náð með niðurskurði ríkisút-
gjalda, enda þegar of langt gengið
í skattheimtu. Þetta er í samræmi
við Verkefnaskrá Sjálfstæðis-
flokksins sem samþykkt var á
Landsfundi sl. vor. Stjórn SUS
hvetur ráðherra og þingmenn
Sjálfstæðisflokksins að hvika
hvergi frá þessum áformum.
Stjórn SUS varar sérstaklega
við hugmyndum um stórhækkun
eignaskatts sem þarf að leggjast
almennt á heimilin f landinu til
þess að skipta einhverju máli fyrir
tekjuöflun ríkissjóðs".
MorguobUAift/Jón Gunnlaugsson
Frá stjórnarfundinum. Fyrir miðri mynd situr Vilhjálmur Egilsson, hag-
fræðingur og formaður SUS og honum á vinstri hönd Friðrik Sophusson,
varaformaóur Sjálfstæðisflokksins, Anna K. Jónsdóttir, lyfjafræðingur,
Hreinn Loftsson, lögfræðingur og Sigurður Magnússon, kjarneðlisfræðingur.
Vilhjálmi á hægri hönd situr Sigurbjörn Magnússon, framkvæmdastjóri
þingflokks Sjálfstæðisflokksins, Arni M. Mathiesen, dýralæknir og Bjarni
Arnason, gjaldkeri SUS.
OSRAM fæst
á bensínstöðvum
1007. MEIRI LYSING
OSRAM halogen perur lýsa 100/. meira en
venjulegar perur og endast tvöfalt lengur.
Hinn velupplýsti maður O Q A II J|
er með peruna í lagi 011 IVI