Morgunblaðið - 15.10.1985, Side 60
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR.
I framhaldi af samningi BSRB og fjármálaráðherra:
ASÍ og VSÍ
' hefja viðræður
Yfir 20 stiga hiti
ÞEGAR þad spurðist inn á fund í
öryggismálanefnd sjómanna á
föstudaginn, að verið væri að draga
varðskipið Þór suður í Straumsvík-
urhöfn rifjaðist það upp fyrir nefnd-
armönnum að fyrir fáum missenim
höfðu þeir reynt í félagi við Slysa-
varnafélagið og samtök sjómanna
að fá skipið keypt til að nota sem
þjálfunar- og fræðslumiðstöð fyrir
íslenska sjómenn.
Einn nefndarmanna, Árni
Johnsen alþingismaður, hugsaði
með sér að nú væri að hrökkva
eða stökkva. Hann skaust því út
af fundinum, hringdi til Alberts
Guðmundssonar fjármálaráð-
herra og lagði að honum að láta
skipið af hendi til þessara nota.
Albert tók því ekki ólíklega og
þeir Árni og Haraldur Henrys-
son, forseti Slysavamafélagsins,
fóru þegar á fund ráðherrans.
Hálftíma síðar var það nánast
frágengið að Slysavarnafélagið
fengi skipið keypt á þúsund krón-
ur.
í gær borgaði Haraldur svo
skipið upp í topp, eins og sagt
er, og í reiðufé að auki. Myndin
var tekin þegar fjármálaráð-
herra hafði tekið við þúsund
króna seðlinum og rétti hann
áfram til Höskuldar Jónssonar,
ráðuneytisstjóra í fjármálaráðu-
neytinu um leið og hann lagði
að ráðuneytisstjóranum að passa
peningana vel.
- Sjá nánar á bls. 5
Eskifirði, 14. október.
í DAG ríkir sumarveðrátta á Austur-
landi og hefur hiti farið yfir 20 stig
í forsælu. Haustið hefur verið gott
eftir erfitt sumar og hitastigið undan-
farið verið 5—10° á daginn flesta
daga. Þeir voru ekki margir dagarnir
í sumar, þegar hitinn fór yfír 20 gráð-
ur.
Menn hafa notað góða veðrið vel
til útiveru, að minnsta kosti þeir
sem ekki eru á kafi í síld og öðrum
önnum. Verið er að salta síld í
þremur söltunarstöðvum, en lítið
á hverri. Saltað hefur verið flesta
daga, mest er búið að salta hjá
Friðþjófi hf. — hátt í fjögur þús-
und tunnur.
Þá var mikil loðnulöndun f vik-
unni og hafa nú komið yfir 40
þúsund tonn af loðnu á land.
Ævar.
GERT er ráð fyrir að forystumenn Alþýðusambandsins og Vinnuveitendasam-
bandsins hittist á morgun til viðræðna um hugsanlega breytingu á launaliðum
kjarásamninga aðilanna í framhaldi af nýgerðum samningi BSRB og fjár-
málaráðherra. Framkvæmdastjórn VSÍ mun væntanlega taka formlega ákv-
örðun um að ganga til þessara viðræðna á fundi sínum í hádeginu í dag,
enda telur VSl sér afar óhægt um vik að standa gegn því að launþegar
almennt fái samsvarandi hækkun á launum og ríkisstarfsmenn í BSRB.
Af hálfu ASÍ hefur ítrekað
komið fram, að sambandið telur
augljóst að samsvarandi hækkun
eigi að ganga til félaga í Alþýðu-
sambandinu. Magnús Gunnarsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, hefur sagt
Vjm að fyrirtækin í landinu rísi ekki
undir þeim launahækkunum, sem
muni kosta atvinnureksturinn
1,2-1,3 milljarða króna árlega.
Nýkjörin stjórn Launamálaráðs
ríkisstarfsmanna í Bandalagi há-
skólamanna mun koma saman til
fyrsta fundar síns á morgun, m.a.
til að ræða hvernig bregðast eigi
við samningi BSRB og fjármála-
ráðherra. ,
Á aðalfundi ráðsins um helgina
var samþykkt ályktun, þar sem
~ segir á þá leið, að vegna samnings
BSRB og fjármálaráðherra sé
ástæða fyrir BHM-R að óska end-
urskoðunar á launalið gildandi
samnings síns. Var stjórn ráðsins
falið að fylgja málinu eftir, að sögn
Þorsteins A. Jónssonar lögfræð-
ings, sem kosinn var formaður
ráðsins á aðalfundinum í stað
Stefáns ólafssonar,
ólafur Karlsson viðskiptafræð-
ingur var kosinn varaformaður
ráðsins en aðrir í stjórn þess eru
Jón Hannesson kennari, Már Ár-
sælsson tækniskólakennari,
Auðna Ágústsdóttir hjúkrunar-
fræðingur, Eydís Arnviðardóttir
hjúkrunarfræðingur og Haraldur
Sigursteinsson tæknifræðingur.
• Ljósm. Arni Sœberg
Flugvirkjarnir Kristján Svavarsson (tv.) og Theódér Brynjólfsson halda á skemmda burðarbitanum sem tekin var úr
DC-8 þotu Flugleiða. Bitinn er 3 metra langur og tengja fjórir svona bitar skrokk vélarinnar við væng og hjólabúnað.
Spninga finnst í burð-
arbita Flugleiðaþotu
Mesta viðgerð á þotu hérlendis
Tæplega fímm tommu sprunga
fannst í einum burðarbita Flugleiða-
þotunnar Vesturfara sem undan-
farnar þrjár vikur hefur verið í svo-
kallaðri C skoðun í flugskýli á Kefla-
víkurflugvelli. Flugvélin er af gerð-
inni Douglas DC-8. Unnið er að því
að skipta um bitann og reiknað með
að verkinu Ijúki um næstu helgi.
Einnig leiddi skoðunin í Ijós að
skipta varð um einn af fjórum
hreyfíum þotunnar. Þessi annars
Morgunblaöid/RAX.
Varðskipið Þór borgað á borðið
reglulega skoðun, sem fer fram á
þrjú þúsund tíma fresti, er því orðin
að mestu viðgerð sem fram hefur
farið á flugvél á íslandi.
Burðarbitinn sem skipt var um
er þrír metrar á lengd og er einn
af fjórum sem ásamt fleiru tengir
skrokk vélarinnar við væng og
hjólabúnað.
Henning Finnbogason verk-
stjóri í tæknideild Flugleiða sem
hefur yfirumsjón með skoðun þot-
unnar sagði í samtali við Mbl., að
sprungan hefði strax sést með
berum augum en síðan hefði burð-
arbitinn verið skoðaður með svo-
kallaðri „Eddy Current" aðferð, en
með henni er hægt að kanna
styrkleika ýmissa málma í flug-
vélum þó að skemmdirnar sjáist
ekki með berum augum. „Flugvél-
ar Flugleiða eru skoðaðar eftir
mjög ströngu kerfi og mér finnst
þetta einmitt sýna hvað eftirlitið
er nákvæmt", sagði Henning
Finnbogason.
Samkv. heimildum Morgun-
blaðsins er ekki óalgengt að
sprungur sem þessar finnist í
burðarbitunum fjórum og vegna
þess að stórskoðanir á DC-8 þot-
um eru nýbyrjaðar hérlendis var
sérfræðingur frá Mc Donnel
Douglas flugvélasmiðjðunum
fenginn til ráðgjafar. Varð að
smíða sérstaklega undir flug-
vélina og stífa hana algjörlega svo
hún skekktist ekki þegar bita-
skiptin viku vegna bitaskiptanna,
en Henning sagði að verkið hefði
gengið ágætlega og sýndi að ís-
lenskir flugvirkjar væru fullfærir
um að vinna svona stórverk.
Nýr burðarbiti kostar tæpar 700
þúsund krónur og eru þá ekki
meðtaldar festingar og annað til-
heyrandi.
Sjá nánar grein á bls. 34.
wrw
r v
Sá stærsti
til þessa
EIÐUR Guðjohnsen hlaut hæsta
vinning sem til þessa hefur unnist
í íslenskum getraunum um helg-
ina. hann hlaut 893 þúsund krónur
fyrir eina röó meó 12 réttum og
14 með ellefu réttum.
Potturinn var vel yfir eina
milljón að þessu sinni. Eiður
hefur áður unnið í getraunum
en aldrei eins mikið og að þessu
sinni.
Sjá nánar á blaðsíðu B 8.
Eskifjörður: