Morgunblaðið - 02.11.1985, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER1985
Landvari gerði tilboð í
steinullarflutningana
Steinull er ekki gámavara segja talsmenn flutningabflstjóra
LANDVARI, félag vörubifreidaeigenda á flutningaleiöum, hefur gert Steinull-
arverksmiðjunni á Sauðárkróki tilboö um flutninga á steinull frá fyrirtækinu
fyrir lægra verö en opinber taxti Skipaútgerðar ríkisins gerir ráð fyrir. Aö
sögn Ragnars Haraldssonar, formanns Landvara, og Stefáns Pálssonar,
framkvæmdastjóra félagsins, var verksmiðjunni sent bréf í september síöast-
liðnum en því heföi ekki verið svarað af hálfu verksmiðjunnar.
„Við fórum síðan á fund Þor-
steins Þorsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra verksmiðjunnar, og
reifuðum þessi mál nánar og
bjuggumst satt að segja við ein-
hverri umræðu, en því miður hafa
þeir ekki séð ástæðu til að ræða
við okkur um þennan möguleika,"
sagði Stefán. „Þeir hafa frekar
kosið viðskipti við Ríkisskip, þar
sem þessir flutningar eru greiddir
niður af almannafé."
Ragnar Haraldsson sagði að
Landvari hefði boðist til að sækja
vöruna að dyrum verksmiðjunnar
og aka henni að dyrum viðskipta-
vinanna, en hins vegar fælu tilboð
skipafélaganna aðeins í sér flutn-
ing á vörunni frá hafnarbakka að
hafnarbakka. Verksmiðjan hlyti
siðan að þurfa að reikna með
kostnaði við að setja steinullina í
gámana, koma þeim niður að höfn
og síðan til viðskiptavinanna frá
hafnarbakkanum syðra. „Þessi
gámaumræða skipafélaganna er
einnig vafasöm að mínu mati, þar
sem steinull er alls ekki dæmigerð
Góð loðnuveiði
norður af Horni
GÓÐ loðnuveiði var í gær norður af
Horni, en skipin fundu þar loðnu
vestar og grynnra en hennar hefur
áður orðið vart á vertíðinni. Á
fimmtudag var veiðin léleg vegna
veðurs.
Á fimmtudag varð heildaraflinn
aðeins 2.120 lestir af fimm skipum.
Auk þeirra skipa, sem áður hefur
verið getið í Morgunblaðinu, til-
kynntu eftirtalin skip um afla á
fimmtudag: Svanur RE, 650 og
Magnús NK 130 lestir. Síðdegis í
gær höfðu 9 skip tilkynnt um afla
samtals 6.730 lestir: Huginn VE,
600, Víkurberg GK, 540, Víkingur
AK, 1.350, Albert GK, 600, Hilmir
II SU, 560, Keflvíkingur KE, 540,
Harpa RE, 620 og Sigurður RE
1.400 lestir.
gámavara. Gámarnir vega um 2
tonn og eru mun þyngri en varan
sjálf. Eg held að miklu skynsam-
legra væri að taka steinullina
beint í bílana og nýta um leið
flutningsgetu þeirra, en vitað er
að bílar að norðan þurfa oft á
tíðum að keyra hálftómir suður,"
sagði Ragnar.
Þeir Ragnar og Stefán sögðust
hafa upplýsingar um, að Ríkisskip
hefði boðið verð, sem aðeins væri
um 10 til 15% af opinberri gjald-
skrá skipafélagsins, og fullyrtu að
Landvari gæti boðið þessa flutn-
inga frítt, ef þeir nytu sömu
styrkja og Ríkisskip. „En á sama
tíma og Ríkisskip er styrkt með
um 2 milljónum króna á viku er
skattheimta á landflutninga aukin
um rúm 56%. Þetta steinullarmál
er því aðeins angi af miklu stærra
máli, sem vert væri að fara í saum-
ana á, en það er hver sé tilgangur
og markmið með rekstri Skipaút-
gerðar ríkisins," sagði Stefán Páls-
son, framkvæmdastjóri Landvara.
Árni Guðmundsson, stjórnar-
formaður Steinullarverksmiðj-
unnar, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að tilboð Landvara hefði
verið tekið til athugunar, en ekki
þótt nógu hagstætt í samanburði
við tilboð skipafélaganna. Hins
vegar væri fullur áhugi á því af
hálfu verksmiðjunnar að semja við
Landvara um flutning á steinull á
ákveðnum leiðum og nefndi Árni
í því sambandi Borgarfjörð, Húna-
vatnssýslur, Akureyri og fleiri
staði fyrir norðan.
3
Þakplötur á Borgarleikhúsið
Framkvæmdir við Borgarleikhúsið hafa gengið vel undanfarin misseri,
enda stefnt að því að vígja leikhúsið á 200 ára afmæli Reykjavíkur
næsta ár. Um þessar mundir vinna smiðir að því að setja plötur á þak
hússins.
Sjónvarpið:
10 sækja um tvær stöður
10 MANNS sækja nú um tvær stöður
fréttamanna hjá Sjónvarpinu. Stöður
þessar eru til afleysinga f eitt ár.
Listi yfir umsækjendur hefur verið
lagður fram f útvarpsráði, en afstaða
til þeirra hefur ekki verið tekin.
Eftirtaldir sækja um stöðurnar,
einn óskaði nafnleyndar: Birna
Þórðardóttir, Edda Andrésdóttir,
Guðni Bragason, Helgi H. Jonsson,
Hrafnildur Pálsdóttir, Páll H.
Hannesson, Ingimar Ingimarsson,
ólafur ó. Angantýsson, Sigurjón
Bjarnason.
NÚGETAALUR
FARIÐÍ
KJÓL OG HVflT
-fierra-
GARÐURINN
A£VUSTWEri9 S:12234