Morgunblaðið - 02.11.1985, Side 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 2. NÓVEMBER1985
Verðlagning
hrossakjöts og kartaflna:
Allar for-
sendur til
frjálsræðis
— segir formaður
Neytendasamtakanna
„ÞAÐ HEFUR sýnt sig aö undan-
förnu að samkeppni er næg á mat-
vörumarkaðnum, ekki síður í hrossa-
kjöti og kartöflum en öðrum tegund-
um. Það kemur skýrt í Ijós í mjög
breytilegu verði þessara vörutegunda
eftir verslunum. Því tel ég að allar
forsendur séu til að gefa þær frjálsar
í heildsölu, eins og gert hefur verið,“
sagði Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna þegar álits
hans var leitað á þeirri ákvörðun
verðlagsnefnda landbúnaðarins að
gefa verðlagningu hrossakjöts og
kartaflna frjálsa í heildsölu.
Jóhannes taldi ástæðulaust að
óttast að þessar vörur hækkuðu
óeðlilega í verði. Hann sagðist vita
til að verðlagsyfirvöld hefðu kann-
að verðlagið áður en þær voru gefn-
ar frjálsar og ef samkeppnin
minnkaði og verð þeirra hækkaði
óeðlilega gætu verðlagsyfirvöld
auðveldlega gripið þar inn i. Jó-
hannes taldi aðspurður að heild-
söluverðlagning búvara ætti al-
mennt að vera frjáls, eins og á
öðrum matvörum, en undanskildi
þó mjólkina.
Morgunblaðið/Gmilía
Ostameistari ’85
„Þetta er mjög skemmtilegt og
hvetjandi,“ sagði Haukur Pálsson
ostameistari mjólkursamlags KS
á Sauðárkróki sem hlaut aðalverð-
launin í ostasamkeppni Osta- og
smjörsölunnar. í gær voru úrslit í
samkeppninni tilkynnt og afhenti
Jón Helgason landbúnaðarráð-
herra ostameisturunum verölaun
fyrir bestu ostana. Athöfnin mark-
aði jafnframt upphaf að Ostadög-
um ’85 sem verða fyrir almenning
í húsakynnum Osta- og smjörsöl-
unnar á Bitruhálsi í dag og á
morgun. Haukur fékk verðlaunin
fyrir kúmen/Maribo ost 45%.
Sfldarsöltun:
Þorlákshafnarbúar
í sfld á Eyrarbakka
Eyrarbakki 1. nóvcmber.
Mikil vinna hefur verið hér á Eyrar-
bakka megnið af þessu ári. í maí sl.
tók Suðurvör hf. í Þorlákshöfn við
rekstri Hraðfrystistöðvarinnar og
síðan hefur verið þar stöðug vinnsla.
Þessa dagana er unnið á tveimur
12 tíma vöktum við síldarsöltun.
Síldin er flökuð hér og söltuð fyrir
Svíþjóðarmarkað. Alls vinna 35
manns á hvorri vakt, en þar sem
ekki hefur tekist að manna báðar
vaktirnar með heimafólki hefur
verið fengið fólk úr Þorlákshöfn.
Það mun ekki hafa gerst áður að
Þorlákshafnarbúar hafi sótt vinnu
á Eyrarbakka. En hvað er það sem
ekki skeður í síldinni?
Óskar
McDonald yfirflotaforingi herja
Atlantehafsbandalagsins á Atlantshafi hér í heimsókn:
Ræddi við forsætis-
og utanríkisráðherra
Morgunblaðið/Öl.K.M.
McDonald yfirflotaforingi og Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra á fundi
þeirra í utanríkisráðuneytinu í gær.
YFIRFLOTAFORINGI herja Atl-
antshafsbandalagsins á Atlantshafi,
McDonald, er staddur hér á landi,
í kveðjuheimsókn, en hann mun láta
af starfl þann 1. desember nk.
McDonald átti í gær fundi með
Steingrími Hermannssyni forsætis-
ráöherra og Geir Hallgrímssyni utan-
ríkisráðherra. Geir Hallgrímsson
sagði að loknum fundinum með
McDonald yfirflotaforingja: „Þetta
var kveðju- og kurteisisheimsókn
flotaforingjans, og við ræddum
ástand og horfur almennt.”
Blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi litillega við flotaforingjann
að fundunum loknum:
„Ég er hér í kveðjuheimsókn, en
ég hef gegnt starfi yfirflotaforingja
herja Atlantshafsbandalagsins sl.
þrjú ár. 1. desember læt ég af starfi,
og þá verður mínu starfssviði skipt
þannig að annars vegar tekur flota-
foringi við stjórn bandarísku herj-
anna á Atlantshafi, og hins vegar
mun annar flotaforingi stjórna
flotanum sjálfum og þeim flota-
stöðvun sem honum tengjast, á
Atlantshafssvæðinu. Þeir sem taka
við þessum störfum eru Trost flota-
foringi, sem hefur reyndar nú þegar
tekið við sínu starfi, og Bagget
flotaforingi, sem mun hefja störf
þann 27. þessa mánaðar."
McDonald var spurður hvort
hann hefði rætt við ráðherrana um
atvik það sem átti sér stað á Kefla-
víkurflugvelli, sl. þriðjudag, þegar
bandarískar herþotur þurftu snögg-
lega að lenda, og töfðu þar með
brottför sovéska utanríkisráðherr-
ans: „Nei, við ræddum þann atburð
ekki sérstaklega, en ég tel að verið
sé að gera úlfalda úr mýflugu í
umfjöllun um þennan atburð. Ég
hygg að vanþekking liggji þarna
að baki, því ef skilningur er fyrir
hendi, á því hvernig flugæfingum
hersins er háttað, þá skilja menn
jafnframt hversvegna það var
nauðsynlegt að vélarnar lentu á
þessum tíma.“
Dómkirkjan:
Allra sálna messa
Á MORGUN, sunnudaginn 3. nóv-
ember kl. 2 e.h., verður í Dómkirkj-
unni rainnst allra sálna messu, sem
er hugsuö til fyrirbæna fyrir látnum
ástvinum.
Prédikunarefnið verður helgað
hugsuninni um framhaldslífið og
tónlagið er helgað þesum degi
einnig, eins og verið hefur í Dóm-
kirkjunni í áratugi. Svala Nielsen
óperusöngkona syngur stólversið,
hið fagra lag Schuberts, „Friður
sé með öllum yður“. Síðast en ekki
síst verður sameinast í bæn fyrir
látnum ástvinum. Þessi messudag-
ur, hinn fyrsti í nóvember, hefur
lengi verið helgaður þessu málefni
og guðsþjónustan jafnan verið
fjölsótt. Vænti ég, að svo verði enn
og að samstilling trúar, vonar og
kærleika nái að samaeina kirkju-
gesti í lofgjörð og bæn.
Þórir Stephensen
Kjötmiðstöðin Opiðídag tilkl. 16.00. Kostakaup
Laugalæk 2, s. 686511 Hafnarfirði, s. 53100
Útbeinaöhangilæri
466
Útbeinaöur
hangiframpartur
355
Kr.
kg.
Kr.
kg.
Nýegg 128 n Lambahakk 168n Dilkaskrokkar sagaöir 188i
Hreinsuösviö Lambakarbonaöi Svínakótilettur
118® 178® 495 s.
Nautaskrokkar
útb. innpakkaöir
198
Kr.
kg.
VfSA