Morgunblaðið - 02.11.1985, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER1985
19
Ljósmynd/ Morgunbladið
Á ráðstefnunni um flugöryggismál verða m.a. kynntar niðurstöður athugunar á óhöppum og slysum er orðið hafa (
einkaflugi undanfarin fimmtán ár. Myndin sýnir eitt smá óhapp er varð við Innstavog á Akranesi fyrir röskum tveimur
árum.
Ráðstefna um rekstur og öryggi í einkaflugi
____________Flug______________
Gunnar Þorsteinsson
í DAG, 2. nóvember, heldur Vclflug-
félag Íslands ráðstefnu um flugörygg-
ismál og rekstur og viðhald einkaflug-
véla. Ráðstefnan verður haldin að
Hótel Esju og hefst kl. 11.00 árdegis.
Allir flugmenn og flugvélaeigendur
eru velkomnir.
Ráðstefnugestir fá í upphafi af-
hent gögn og yfir hádegisverði
ávarpar ðmar Ólafsson, flugrekstr-
arstjóri Arnarflugs, gesti. Pétur
Einarsson, flugmálastjóri, og Sigur-
jón Ásbjörnsson, formaður Vélflug-
félagsins, flytja setningarávörp.
Fyrri dagskrárhlutinn snýst
umflugöryggismál. Haukur Hauks-
son, varaflugmálastjóri, kynnir
Loran C flugleiðsögutæki og nota-
gildi þeirra hérlendis. Ingvar Valdi-
marsson, leitarstjóri Björgunarmið-
stöðvar Flugmálastjórnar, ræðir
um skipulag og stjórn leitar- og
eftirlitsstarfa og hlutverk einka-
flugvéla í því sambandi. Þessum
hluta lýkur með því að Stefán
Sæmundsson, flugmaður, kynnir
niðurstöður könnunar Vélflugfé-
lagsins á flugöryggi í einkaflugi árin
1970—1985. Auk þess kynnir hann
niðurstöður athugunar á trygging-
um einkaflugvéla.
Síðari hluti ráðstefnunnar snýst
um viðhaldsmál og reks
flugvéla. Undir þessum málaflokki
talar bandarískur tryggingafræð-
ingur, Charles W. Hubbard, en hann
kemur sérstaklega hingað til lands
í boði Vélflugfélagsins. Bandaríski
gesturinn fjallar um viðhorf þar-
lendra tryggingarfélaga til trygg-
inga einkaflugvéla og vægi flugör-
yggis við ákvörðun iðgjalda. Af
hálfu Loftferðaeftirlitsins kynnir
Björn Björnsson, deildarstjóri,
ákvæði um flugvélaskoðanir og við-
hald flugvélahreyfla. Ráðstefnuslit
verða laust upp úr kl. 17.00.
Þátttökugjald er kr. 600.- en gegn
framvísun AOPA meðlimakorts
verður veittur 400.- kr. afsláttur.
Gestir af landsbyggðinni fá sérstak-
an afslátt á fargjöidum Arnarflugs
og Flugleiða.
Sigurjón Ásbjörnsson, formaður
Vélflugfélags íslands, sagði í sam-
tali við Mbl., að þetta væri í annað
skipti sem svona stór ráðstefna um
þessa málaflokka færi fram. Fyrri
ráðstefnan þótti heppnast ákaflega
vel, að sögn Sigurjóns.
Að lokum sagði hann, „að búast
mætti við fróðlegri og vandaðri
umfjöllun fyrirlesaranna. Sérstak-
tega má búast við athyglisverðri
umfjöllun Stefáns Sæmundssonar,
flugmanns, sem kynnir niðurstöður
athugunar á öryggi í íslensku einka-
flugi sl. fimmtán ár. Við buðum
sérstaklega hingað til lands banda-
rískum tryggingafræðingi sem
ræðir tryggingamál þar í landi og
fjallar jafnfamt almennt um þau
mál. Ég tel mikinn feng að því að
fá hlutlausan utanaðkomandi sér-
fræðing til að ræða tryggingamál
við íslenska einkaflugmenn. Oryggi
og tryggingar eru ein brýnustu
hagsmunamál einkaflugmanna svo
ég vil hvetja sem flesta til að mæta
á ráðstefnuna og sýna með þvi
samstöðu."
f framhaldi af ráðstefnunni verð-
ur haldinn haustfagnaður nýstofn-
aðs Flugklúbbs Reykjavfkur. Hefst
hann kl. 21.30 að Hótel Esju. Ágúst
Arnbjörnsson, formaður Flug-
klúbbsins, sagði að í byrjun yrði
boðið upp á veitingar en að öðru
leyti yrði um almenna skemmtun
að ræða. Troðið verður upp með
skemmtiatriði, niðurstöður úr sam-
keppni um klúbbmerki verða kynnt-
ar, kosið verður „flugdýr“ ársins
1985 og síðan stiginn dans fram eftir
nóttu.
STARFSFÓLK SKULI
RÁÐIÐ ALLT ÁRIÐ
Ágæti félagi.
I kröfugerðum St.Rv. að sérkj-
arasamningum hefur um mörg
undanfarin ár verið krafa um
heilsársráðningu starfsmanna í
skólum.
f bókun með sérkjarasamningi
dags. 14. desember 1984 segir:
„Aðilar eru sammál um að
kanna sameiginlega möguleika á
því, að starfsfólk skóla, svo sem
skólaritarar, bað-klefa- og
gangaverðir fái heilsársráðn-
ingu, þannig að dagvinnutími
yfir starfstíma skólanna reikn-
ist í hverju tilviki sem hlutfall
af dagvinnutíma allt árið. Síðan
verði starfið metið á ársgrund-
velli í sama hlutfalli."
Fundur var haldinn hinn 9.
janúar 1985 með starfsmönnum í
skólum, þar sem þessi bókun var
skýrð og óskað eftir viðbrögðum
félagsmanna.
Af undirtektum félagsmanna á
fundinum sjálfum, mátti hinsveg-
ar ætla, að málið væri á réttri leið,
og ekki hefur annað heyrst en
skólaritarar séu ánægðir með
samkomulagið.
Hinn 8. ágúst sl. var samþykkt
í starfskjaranefnd, að starfsfólk í
skólum skyldi heilsársráðið. Vegna
óánægju með þá samþykkt var
kallaður saman fundur bað-klefa-
og gangavarða hinn 8. október sl.
A rúmlega 30 manna fundi var
samþykkt að segja þessum „samn-
ingi“ upp með 30 atkv. gegn 3.
Á þessum fundi reyndi formaður
St.Rv. að útskýra helstu kosti
samningsins, en án árangurs, þar
sem haldið var uppi stöðugum
endurtekningum á „göllum“ hans.
Okkur fulltrúum St.Rv. var full-
Starfskjaranefnd Starfs-
mannafélags Reykjavík-
urborgar vegna heilsárs
ráðningar starfsfólks í
skólum borgarinnar hef-
ur óskað eftir að birt
verði eftirfarandi bréf
nefndarmanna til starfs-
manna í skólum:
kunnugt um þann „galla“ sam-
komulagsins, sem sneri að at-
vinnuleysisbótum.
Við töldum hinsvegar, að í ríkj-
andi ástandi, þ.e. þegar allir fá
vinnu, sem vilja, þá væri rétti
tíminn til að ná fram öðrum fé-
lagslegum úrbótum, sem hafa
verið baráttumál launþega í ára-
tugi.
Þvi teljum við, að eftirfarandi
skipti meginmáli.
1. Heilsársráðning í þrem hópum
eftir orlofsrétti. 83.26% —
84.33% — 85.43%. Þessi tala
var áður 77.25%.
2. Kaffitímar 0.5 klst. á dag
reiknaðar til vinnutíma.
(starfshlutf.).
3. Hraðara skrið til starfsaldurs.
(á launaskrá allt árið)
4. Hraðara skrið til veikindarétt-
ar.
5. Hraðara skrið til orlofs.
6. Fyrirframgreiðsla launa. (ef
óskað er).
7. Sólarhringsslysatrygging.
(eins og aðrir borgarstarfs-
menn).
8. Gleggri skipting milli frídaga
á skólatíma.
9. Fæðingarorlof. (án uppsagn-
ar).
10. Aukinn réttur til lífeyris.
(hækkað % ).
11. Hækkun á yfirvinnugreiðslum
v/íþróttafélaga.
Auk þess leiðir hærra starfs-
hlutfall til þess, að launamun-
ur frá mánuði til mánuði til
mánaðar allt árið, reiknaður
með 22% vöxtum veldur + tölu
kr. 52.71 að meðaltali pr. mán-
uð.
Með tilliti til alls þessa, en einn-
ig vegna þess, hve fáir mættu á
fundinum, höfðum við fulltrúar
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar í starfskjaranefnd ákveðið
að senda þér skýringar á samning-
unum ásamt spurningalista, sem
við biðjum þig að svara.
Við vonum, að þér sé það ljóst,
að þetta samkomulag var gert í
þeirri góðu trú, að um áfanga að
bættum kjörum væri að ræða,
jafnvel svo góðri trú, að okkur
finnst óhugsandi að „sleppa“ þessu
án þess að vita vilja þinn.
Við biðjum þig því um að svara
meðfylgjandi spurningum okkar
og leggja þær án undirskriftar þinn-
ar í póst merkt, Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar, Grettisgötu
89, Reykjavík.
Fulltrúar St.Rv. ístarfskjaranefnd.
Haraldur Hannesson.
Sjöfn Ingólfsdóttir.
Pétur Kr. Pétursson.
0f
dj##-
Nýjar umbúðír...