Morgunblaðið - 02.11.1985, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER1985
Eistland:
Prestur dæmdur
í þrælkunarbúðir
London, 1. nóvember. AP.
Eistneskur prestur hefur verið
dæmdur til þriggja ára fangavistar í
þrælkunarbúðum fyrir „andsovéskan
áróður" í predikunum sínum. Keston,
stofnun í London sem sérhæHr sig í
rannsóknum trúarbragðamálefna í
kommúnistaríkjum, scgir í fréttabréfí
að eistneski presturinn Harri Motsnik
hafí hlotið dóm hinn 5 október sl.
Predikunum Motsniks hefur verið
dreift á laun í Eistlandi og þær
hafa einnig verið gefnar út í blöðum
eistneskra útflytjenda. Mikil fjöldi
Eistlendinga flúði land eftir að
Eistland var innlimað í Sovétríkin
árið 1940. í einni predikun sinni
segir Motsnik: „Erlend stjórnvöld
hafa kúað þjóð vora. Innrásarmenn-
irnir hafa sannleikann að engu og
syndga gegn guði.“ Motsnik var
prestur við kirkju í Urvaste í Suð-
ur—Eistlandi þar til kirkjuyfirvöld
viku honum úr embætti 1984, en
hann hélt þó prestsstarfi sínu áfram
óformlega.
Portúgal
Silva lýsir yfir
nýrri ríkisstjórn
Lissabon, 1. nóvember. AP.
ANIBAL Cavaco Silva tilkynnti í
dag að komist hefði verið að sam-
komulagi um nýja ríkisstjórn í
Portúgal, sem tæki við sjötta nóv-
ember. Þrettán ráðherrar munu
sitja í stjórninni.
Sjötta nóvember er einn mán-
uður liðinn frá því að kosið var
í Portúgal. Eftir kosningarnar
kom í ljós að flokkur Silva, sós-
íaldemókratar, nýtur mests fylg-
is, en hann náði þó ekki meiri-
hluta atkvæða.
Silva tilkynnti ríkisstjórnina
er hann lagði ráðherralista fyrir
forseta landsins, Antonio Ramal-
ho Eanes. Eanes samþykkti til-
lögu Silva. Þrettán ráðherrar
munu sitja í stjórninni, 10 fyrir
hönd Sósíaldemókrataflokksins
og 3 ráðherrar óháðra.
„Þetta er fyrsta framlag okkar
til þess að draga úr óráðsíu í fjár-
málum og merki um það hvernig
þessi stjórn ætlar að draga úr
eyðslu til félagsmála," sagði
Cavaco Silva þegar hann kynnti
stjórnina. Stjórnin nýtur stuðn-
ings minnihluta þingheims og
hefur engin stjórn haft svo lítið
fylgi á portúgalska þinginu, sem
þessi frá því að herinn steypti
herstjórninni af stóli 1974. 16
Anibal Cavaco Silva, leiðtogi Sósíal-
demókrata.
ríkisstjórnir hafa setið í Portú-
gal á þeim tíma.
Fjórir flokkar aðrir eiga sæti
á þinginu: Sósíalistar, Kristilegir
demókratar, Kommúnistar og
lýðræðislegi endurnýjunarflokk-
urinn, sem styður Eanes, forseta.
Leiðtogar þessara flokka vildu
ekki sitja í ríkisstjórn með flokki
Silva.
Fréttaskýrendur hafa leitt að
því getum að minnihlutastjórn
Silva sitji ekki lengi við stjórn-
völinn og spá henni falli upp úr
næstu forsetakosningum, sem
fram fara snemma á næsta ári.
Þrír ráðherrar úr fráfarandi
stjórn halda stólum sínum og
aðeins tveir ráðherrar sósíal-
demókrata hafa aldrei áður setið
í ráðherrastóli.
„Náttfari“ vill fá nýja lögfræðinga
AP/Simamynd
Richard Ramirez, sem ákærður hefur verið um 14 morð, hefur nú farið fram á nýjan lögfræðing. Ramirez
gengur undir viðurnefninu „náttfari". Hann er fyrir miðju hér á myndinni og lögfræðingarnir Daniel Hern-
andez (Lv.) og bróðir hans Arturo, standa beggja vegna við hann. Ramirez vill fá þá til að flytja mál sitt í
stað núverandi lögfræðings síns, Josephs Galligos. Dómarinn í málinu hefur ráðlagt Ramirez að skipta ekki
um lögfræðinga að óhugsuðu máli og gæti það skýrt ygglibrún hins ákærða.
Drápu lögregluþjón og
flýðu með tvo gísla
Bankaræningjarnir þrír í Luxemborg
handteknir eftir harðan skotbardaga
Lúxemborg, 1. nóvember. AP.
LÖGREGLUYFIRVÖLD í Lúxem-
borg skýrðu svo frá í gær, að þrír
menn, sem rændu banka og drápu
einn lögreglumann, en særðu átta til
viðbótar og tvo gísla, hefðu verið
handteknir eftir harðan skotbar-
daga.
Einn bankaræninginn var hand-
tekinn í skógi rétt fyrir utan Lúx-
emborg, en hinir tveir voru gripnir
á krá einni 20 km fyrir austan
borgina. Ekki hefur verið skýrt
frá því, hverjir mennirnir eru.
Vitað er þó, að einn þeirra er eftir-
lýstur í Vestur-Þýzkalandi og að
annar hefur áður setið í fangelsi
í Lúxemborg.
Mennirnir þrír réðust inn í
banka í miðborg Lúxemborgar, en
hlupu síðan beint í flasið á íög-
reglumönnum, sem voru þarna á
eftirlitsferð. Hófu ræningjarnir
skothríð á lögreglumennina og
drápu einn þeirra. Síðan gripu
þeir karlmann og konu sem gísla
og flýðu með þau í stolinni bifreið.
Um 10 lögreglubílar eltu bófana,
sem köstuðu konunni út úr bílnum.
Fannst hún síðar særð við vegar-
brúnina. Hafði hún verið skotin í
bakið.
Bíll bófanna lenti síðan í
árekstri við dráttarvél rétt fyrir
utan borgina. Þar hófst mikill
skotbardagi milli þeirra og lög-
reglunnar og særðust þar átta
lögreglumenn og hinn gíslinn, sem
var einn af viðskiptavinum bank-
ans, er ræningjarnir rændu.
Lögreglan vildi ekkert segja um
það, hve miklu fé ræningjarnir
hefðu náð annað en að það hefði
verið veruleg fjárhæð.
Grænland:
Rækjukvótar að
verða uppurnir
Kaupmannahöfn, 31. okL Frá Nils Jörgun
RÆKJUVEIÐUM er um það bil að
Ijúka við Grænland, að sögn græn-
lenska útvarpsins. Kvótarnir eru
brátt uppurnir.
Samkvæmt upplýsingum stofn-
unar þeirrar, er annast leyfisveit-
ingar, eiga útgerðir í einkaeign nú
eftir u.þ.b. 4 þúsund tonn af 24
þúsund tonna árskvóta sínum.
Grænlenska heimastjórnin hef-
ur boðið útgerðum stórra rækju-
togara að taka þátt í tilraunaveið-
um úti fyrir norðausturströndinni,
en ein slík tilraun, sem gerð var í
ágúst, bar ekki góðan árangur.
Áskorendamótið:
Tal tapaði í næstsíðustu umferð
Skák
Margeir Pétursson
ÞEGAR aðeins ein umferð er eftir
á millisvæðamótinu í Montpellier
f Frakklandi er enginn skákmaður
enn öruggur með að hreppa eitt af
efstu sætunum fjórum, sem veita
rétt til að tefla í áskorendaein-
vígjunum á næsta ári. Tíu skák-
menn af þátttakendunum sextán
eiga enn möguleika á að komast
áfram. Það bar helst til tíðinda í
næstsíðustu umferðinni að Mikhail
Tai, fyrrum heimsmeistari, sem
leitt hefur mótið lengi, beið sinn
fyrsta ósigur og féll þar með niður
í 3.-4. sæti. Löndum hans gekk
aftur á móti betur. Hinn 22ja ára
gamli Andrei Sokolov komst upp í
efsta sætið með því að sigra Ung-
verjann Ribli í stuttri skák og
Rafael Vaganjan vann Spraggett
frá Kanada og jók þar með mögu-
leika sína verulega.
önnur úrslit i fjórtándu um-
ferð urðu þau að Rússinn Alex-
ander Beljavsky vann Nigel
Short, yngsta þátttakandann,
jafntefli gerðu hins vegar Port-
isch og Jusupov, Nogueiras og
Timman, Smyslov og Korchnoi,
Chernin og Spassky.
Staðan fyrir síðustu umferðina
í dag er þannig, þegar aðeins er
ótefld ein biðskák, á milli þeirra
Vaganjan og Seirawan:
1.-2. Sokolov og Jusupov (báðir
Sovétríkjunum)8tá v.
3.-4. Tal (Sovétr.) og Timman
(Hollandi) 8 v.
5. Vaganjan (Sovétríkjunum)
7 xh v. ogbiðskák.
6. -7. Spassky (Frakklandi) og
Beljavsky (Sovétr.) 7 lÆ v.
8.-10. Smyslov, Chernin (báðir
Sovétr.) og Portisch (Ungverjal.)
7 v.
11. Seirawan (Bandaríkjunum)
6 v. og biðskák.
12. -15. Korchnoi (Sviss), Nogu-
eiras (Kúbu, Short (Englandi) og
Ribli (Ungverjalandi) 6 v.
16. Spraggett (Kanada) 4‘A v.
Timman tapaði klaufalega
fyrir Spraggett í 13. umferð og
er því ekki eins öruggur og áður.
Vaganjan hefur hins vegar tekið
mikinn sprett og ljóst er að allt
getur gerst. Taugastrekkingur-
inn í síðustu umferð hlýtur að
verða mikill en þá tefla:
Jusupov-Seirawan, Tal-Sprag-
gett, Vaganjan-Nogueiras, Tim-
man-Sokolov, Ribli-Smyslov,
Korchnoi-Chernin, Spassky-
Beljavsky og Short-Portisch.
Viktor Korchnoi hefur oft
tekist að leika Mikhail Tal grátt.
Það er eins og fléttustíll Tals nái
ekki að bíta á Korchnoi, sem er
afar þrautseigur og úrræðagóður
í vörn. Gegnum árin hefur seigl-
an nærri alltaf sigrað sókn-
dirfskuna, en í Montpellier náði
Tal að mjókka muninn. Þar ger-
sigraði hann Korchoni í aðeins
241eikjum.
Bruun, fréttaritara MorjfunblaAsin.s.
Rækjukvóti heimastjórnar-
togaranna við Austur- og Vestur-
Grænland er alls um 13.000 tonn.
A uppgjörsdaginn, 8. október, áttu
þeir eftir um 3.000 tonn af þessum
kvóta.
A miðunum við Grænland veiða,
auk Grænlendinga sjálfra, Færey-
ingar, Norðmenn og togarar frá
Evrópubandalaginu.
Færeyingar eru með 1.100 tonna
kvóta og hafa þegar veitt 800 tonn.
Norðmenn hafa þegar veitt upp í
kvótann, sem þeir fengu úthlutað,
2.500 tonn. Kvóti EB-togaranna er
um 1.100 tonn og hafa þeir þegar
veitt um 1.300 tonn.
Englandsdrottn-
ing í Grenada
St. George’s, Grenmda, 1. nóv. AP.
Elísabetu Englandsdrottningu II
var í dag fagnað með 21 fallbyssu-
skoti, er konungsskipið Brittania
varpaði akkcrum á ytri höfninni í
St. George’s á Grenada, fyrrum
nýlendu Breta. Fánar Bretlands og
Grenada blöktu víða við hún og
560 manna lögreglulið stóð heiðurs-
vörð.
Meðal þeirra, sem tóku á móti
drottningu, er hún sté á land
ásamt eiginmanni sínum, Filip-
usi prins, voru sir Paul Scoon
landstjóri og Herbert Blaize
forsætisráðherra.
Elísabet drottning heldur í
kvöld til Trinidad og er það síð-
asti viðkomustaðurinn á ferð
hennar til átta landa við Karíba-
haf.