Morgunblaðið - 07.11.1985, Síða 14

Morgunblaðið - 07.11.1985, Síða 14
MARTIN 14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR7. NÓVEMBER1985 + 13111®* VINETTA Vinetta nærbuxur. Mjúkar, þægilegar og falla vel aö líkamanum. Framleiddar úr 65% bómull, 32% polyamid og 3% Elastan. Bómull snýr að húðinni og bómullarfrotté í skrefbót. Fást í hvítu og húðlit. Mini - Midi - Maxi. Stærðir 36/38 - 40/42 - 44/46 - 46/48. Heildsölubirgðir: Sambandið verslunardeild. Fatadeild. Viggó Magnússon útvarpsstjóri RÚVSKA önnum kafinn við kynningar. Skagaströnd: Vinnuvika í skólanum Skagaströnd, 31. október. ÞESSA viku sem nú er að líða hefur skólahald hér verið með nokkuð óvenjulegum hætti. Öli venjuleg kennsla hefur verið felld niður og í stað þess er svokölluð vinnuvika. I vinnuvikunni starfa kennarar og nemendur saman að ákveðnum verkefnum í þágu skólans. Fer þetta þannig fram að nemendurnir velja sér stað í tveim hópum af fimm til að vinna í að áhuga- málum sínum. Hóparnir sem í gangi eru kallast: smíðar, saumar, skreyting- ar, bakstur og fjölmiðlar. í smíðahópnum er unnið að því að smíða húsgögn á ganga skólans þar sem nemendur og annað starfsfólk skolans ætla að láta sér líða vel, þegar stund gefst á milli stríða í framtíðinni. Saumahópurinn saumar glugga- tjöld fyrir glugga á göngum, saum- ar utan um sessur i stóla sem koma frá smíðahóp, púða og fleira. Skreytingahópurinn vinnur að gerð myndverka til að hengja upp í skólanum, nemendum og öðrum til augnayndis. Koma daglega fram margir listamenn í skreyt- ingahópnum sem enginn vissi um og allra síst þeir sjálfir. Baksturshópurinn sér um að allir sem í skólanum starfa fái næringu því hópurinn bakar á hverjum degi og hefur til kaffi handa öllum. Fjölmiðlahópurinn gefur út dagblað sem dreift er I hvert hús í kauptúninu. Auk dagblaðsins rekur hópurinn útvarpsstöð sem nýtur mikilla vinsælda, ekki að- Léttir Skermaveggir á skrifstofuna og fleiri staöi Hönnuður: Sturla Már Jónsson innanhússhönnuður. Leitið nánari uppl. og þær verða veittar góðfúslega. Einnig allar gerðir skrifstofuhúsgagna. Sendum um allt land. Sérverslun með skrifstofuhúsgögn. Á. GUÐMUNDSSON Húsgagnaverksmiðja, Skemmuvegi 4, Kópavogi, Sími 73100 Stykkishélmur: Kynningar- dagur í Grunn- skólanum StykkÍHhólmi, 3. nóvember. KENNSLA var á laugardag í Grunn- skólanum í Stykkishólmi og var þaö um leið kynning á grunnskólastarfi og öllum boðið að koma og kynna sér starf skólans og vinnu nemenda. Þetta tækifæri nýttu margir sér og komu foreldrar með börnum sínum og fylgdust með. Voru menn að koma meðan skóladagur var. Ég kom þarna og fylgdist með og átti tal við kennara og skólastjóra, sem sögðu að vel hefði tii tekist. Gest- um voru boðnar veitingar; kaffi og kökur. Skólinn starfar nú í 9 bekkjardeildum auk framhalds- deildar. Þá fer fram í skólanum kennsla í stýrimanna- og vél- stjórafræðum og stunda það nám 24. Þetta nám stendur fram yfir áramót. Þá fara nú fram námskeið á vegum námsflokka Stykkishólms sem á þessum vetri hafa boðið fólki nám í mörgum greinum. Einnig stendur yfir í Grunnskólanum danskennsla að ógleymdu því að margir nemendur taka þátt í tón- listarskólanum og nokkrir eru fé- lagar i lúðrasveit Stykkishólms. Það er því nóg að gera hjá nemendum Grunnskólans í Stykk- ishólmi. Skólastjóri sagði að nú væru nemendur 270 talsins og 18 kenn- arar. Helgafellssveit er aðili að Grunnskólanum. Árni Þú svalar lestraifxkf dagsins 4 Qirfoim ✓ i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.