Morgunblaðið - 07.11.1985, Page 16

Morgunblaðið - 07.11.1985, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER1985 Á ákveðnum tímum árs lekur vatn nidur f kjallara Gunnar Guðmundsson lögreglumaður í einum Stigagangur hússins er afar illa farinn af steypu- hússins og inn f fangaklefana og hafa lögreglu- fangaklefanum. skemmdum. Morgunblaftið/HBj mennirnir þá srinn starfa við að bera vatnið út úr húsinu í fötum. Erlingur Óskarsson bæjarfógeti á Siglufirði: „Ekki hægt að halda uppi eðlilegri löggæslu með þessari aðstöðu44 — Undirbúningur hafinn aÖ byggingu nýrrar lögreglustöðvar — Rætt um að innrétta fangelsi til bráöa- birgða á 2. hæö lögreglustöðvarinnar Dómsmálaráðuneytið hefur falið b»jarfógetanum á Siglufirði að at- huga hvort hægt sé að útbúa fanga- geymslur á 2. hæð lögreglustöðvar- innar á Siglufirði í stað fangaklefa í kjallara hússins sem dæmdir hafa verið óhæfir af heilbrigðisfulltrúa á Norðurlandi vestra. Lýsti heUbrigðis- fulltrúinn fangelsinu við dýflissuna sem lýst er í greifanum af Monte Cristo í samtali við Morgunblaðið á dögunum. Lögreglustöðin og fangageymsl- urnar eru að Gránugötu 18, í 60 ára gömlu húsi. Lögreglan er í þremur herbergjum á 1. hæð húss- ins. Er húsnæðið lélegt og vinnuað- staða lögreglunnar ófullnægjandi að sögn lögreglumanna. Fanga- klefarnir eru I kjallara. Samtals eru þar 10 klefar en aðeins 3 enn í notkun, og þó aðallega tveir þeir skástu. Þegar blaðamaður skoðaði aðstöðuna á dögunum var vatn á gólfi kjallarans og seytlaði það inn í klefana. Jóhannes Þórðarson yfirlögregluþjónn sagði að vatn hefði lengið runnið inn í kjallar- ann, en það hefði þó versnað um allan helming þegar byggður var stigagangur við húsið fyrir um 20 árum. Þessi stigagangur er mjög illa farinn af steypuskemmdum, mun verr en húsið sjálft sem þó er þrisvar sinnum eldra. Sagði Jóhannes að vatnið kæmi yfirleitt bara inn í vorleysingum og haust- rigningum. Hann sagðist ausa vatninu upp á hverjum degi þegar svo væri og í haust hefði hann mest ausið 52 fötum (520 lítrum) á dag, en aðra daga minna. Hann sagði að vatnsaginn stæði yfirleitt ekki i langan tlma og þornaði kjallarinn upp á milli. Klefarnir eru þröngir, en þó með hita, loft- ræstingu og dýnum. „Það er ekki hægt að halda uppi eðlilegri löggæslu hérna með þess- ari aðstöðu. Menn vita að þeir verða ekki settir inn nema i algerri neyð og geta því hagað sér eins og þeir vilja,“ sagði Erlingur óskarsson bæjarfógeti á Siglufirði í samtali við Morgunblaðið þegar rætt var við hann um fangelsis- málin. Sagði hann að þetta væri auðvitað ekki forsvaranlegt, enda margbúið að skýra ráðuneytinu frá því að menn væru ekki settir þarna inn nema í algerri neyð, það er að segja ef menn væru dýróðir - sjálfum sér og öðrum hættulegir. í staðinn væri reynt að fara með menn heim til sín eða um borð í skipin, en það væri oft á tíðum stórhættulegt. Erlingur sagði að húsnæðið hefði verið dæmt ónýtt fyrir 7-8 árum, og hefði enn versnað síðan vegna þess að ekki þætti borga sig að henda peningum í viðhald á ónýtu húsnæði. „Svona var þetta fyrir þremur árum þegar ég kom hingað. Það má ef til vill segja að ég hafi verið allt of linur við að fá úr þessu bætt, en ég hef talið það svo augljóst að úr þessu yrði bætt þegar menn hefðu skoðað aðstöðuna. Mér finnst að raða eigi cristal vönduðu bresku vegg-og gólfílísarnar Steinprýði hf. hefur tekið við umboði John Lindsay hf. á Islandi fyrir hinar þekktu framleiðsluvörur breska fyrir- tækisins H & R Johnson Tiles, og fyrirtækjanna A G Tiles og Maw & Co. Fyrirtækin eru þekkt fyrir vandaða og fjölbreytta fram- leiðslu á CRISTAL vegg- og gólfflísum, auk fylgihluta og margvíslegrar gjafavöru úr gleri. Verðið er hagstætt og í sumum tilvikum lægra, en áður hefur þekkst hér á landi. Steinprýði hefur fyrirliggj- andi sýnishom ásamt öllum nánari upplýsingum, og býður nýja viðskiptavini og að sjálfsögðu gamla viðskipta- menn velkomna. Nýr umboðsmaður á Islandi UmboAsmaður á Akureyri: i: steinpryði hf. I Stórhöföa 16 simi 83340-84780 Foreldra- og kennarafélag Réttarholtsskóla: Vinstri beygja af Reykjanesbraut á Bú- staðaveg verði bönnuð — Tæplega 14 þúsund bflar aka Bústaðaveg á dag Morgunblaðinu hefur borist eftir- farandi fréttatilkynning frá Foreldra- og kennarafélagi Réttarholtsskóla: „Á aðalfundi Foreldra- og kenn- arafélags Réttarholtsskóla, sem haldinn var í skólanum 28. október síðastliðinn, urðu miklar umræður um umferðarmál i skólahverfinu, en auk venjulegra aðalfundarstarfa voru umferðarmálin megin við- fangsefni fundarins, einkum þær breytingar er verða með tilkomu Bústaðavegsbrúar yfir Kringlu- mýrarbraut. Fram kom á fundinum, að umferð um Bústaðaveg hefur farið vaxandi að undanförnu og er nú næstum fjórtán þúsund bílar á dag við versl- unarhúsið Grímsbæ, en var fyrir fimm árum rösklega tiu þúsund bílar á dag. Nemendur skólans könnuðu umferð á Bústaðavegi 24. október sl. og kom þá i ljós að á tíu mínútum kl. 7.55 til 8.05 fóru 200 bílar um Bústaðaveg, eða 10 bílar á mínútu. Bústaðavegur er mjó gata með einni akrein í hvora átt. Á fundinum var samþykkt svo- hljóðandi tillaga: „Aðalfundur Foreldra- og kenn- arafélags Réttarholtsskóla, haldinn 28. október 1985, lýsir áhyggjum vegna fyrirsjáanlegrar stóraukn- ingar umferðar á Bústaðavegi með tilkomu brúar yfir Kringlumýrar- braut. Fundurinn bendir á, að gíf- urleg umferð er nú um Bústaðaveg, allt að fjórtán þúsund bílar á dag, og er þar alls ekki á bætandi. Tekur fundurinn undir þá tillögu Um- ferðarnefndar Reykjavíkur, að banna beri vinstri beyju af Reykja- nesbraut (Beiðholtsbraut) inn á Bústaðaveg." Mörg önnur atriði í tengslum við umferðarmál voru rædd á fundin- um, m.a. aðkoman að skólanum frá Réttarholtsvegi, þar sem lagfær- inga er þörf. Valgarð Briem for- maður Umferðarnefndar Reykja- víkur kom á fundinn og svaraði fjölmörgum spurningum fundar- manna. Einnig komu til fundarins fulltrúar Foreldrafélaga i Breiða- gerðisskóla og Fossvogsskóla. Á fundinum voru einnig ítrekuð til- mæli Foreldrafélagsins til borgar- yfirvalda, um að viðhaldi skólans verði betur sinnt en verið hefur, en skólahúsið er hriplekt, og liggur undir skemmdum af þeim sökum. Aðalfundinum var flutt skýrsla stjórnar og ný stjórn kjörin, en hana skipa: Eiður Guðnason. for- maður, Þórdís Bjarnadóttir, óli H. Þórðarson, Ragnhildur Jóhannes- dóttir, ólafur Þorsteinsson og Sveinn G. Sigurjónsson. Af hálfu kennara sitja i stjórn félagsins Haraldur Finnsson, skólastjóri og kennararnir Frfða Ásbjörnsdóttir og Gunnar Páll Jóakimsson." Borgarnes: Grohe-skákmótið hefst á morgun Hið árlega Grohe-skákmót í Bor- garnesi verður haldið sunnudaginn 10. nóvember nk. í Hótel Borgarnesi. Mótið hefst klukkan 13 og lýkur um klukkan 21. Tefldar verða 11 umferðir og er umhugsunartími 15 mínútur á skák fyrir hvorn kepp- anda. Þátttaka er öllum heimil. Þátt- tðkugjald er krónur 250 og er þá innifalið miðdegiskaffi. Þýsk-íslenska verslunarfélagið gefur verðlaun á mót þetta, bæði bikar og verðlaunapeninga. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.