Morgunblaðið - 07.11.1985, Page 17
28G
t saaMa/OM .v auoAauTMMia .oiaAjavruofloi/ 91
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER1985................................... ^7
Morgunblaöið/HBj
Lögreglustöðin á Siglufirði. Fangaklefarnir eru i kjallaranum og eru hlerar
fyrir gluggum þeirra eins og sjá má. Lögreglustöðin er á 1. hsðinni. Fyrir-
i hugað er að innrétta 2. hæðina til bráðabirgða fyrir fangageymslur.
•li"
ðs
i ' verkefnum á þessu sviði eftir þörf
m! en ekki pólitík. Bæjarfógetar og
sýslumenn eiga ekki að þurfa að
fara þá leiðina til að fá byggðar
ðiC lögreglustöðvar og embættisskrif-
8-Y stofur,“ sagði Erlingur.
ns'
sif Sagði Erlingur að undanfarin ár
i> hefði staðið til að hús fyrir starf-
s? semina yrði byggt við bæjarskrif-
stofurnar en það hefði ekki verið
fyrr en nýlega að endanlega varð
ljóst að það fengist ekki samþykkt.
Hefðu orðið tafir á framkvæmdum
ió- þess vegna. Sagðist Erlingur von-
ös ast til að þessi mál stæðu nú til
bj. bóta. Embættið væri búið að fá lóð
að Gránugötu 4-6 og yrði byrjað
að teikna húsið á næstunni. Hann
sagði að þar væri gert ráð fyrir
200 fermetra húsi á tveimur hæð-
um, fyrir lögreglustöð, bifreiðaeft-
irlit og tollgæslu á neðri hæðinni
og skrifstofu embættisins, skjala-
geymslur og fleira á efri hæðinni.
Sagði hann stefnt að því að teikn-
ingar yrðu til fyrir vorið þannig
að hægt yrði að bjóða verkið út
og hefja framkvæmdir á næsta ári.
Hann sagði þó að fjármögnun
væri ekki tryggð og óvíst hvernig
þau mál skipuðust. Hann sagði að
mögulegt ætti að vera að ljúka
neðri hæðinni fyrst, vegna þess að
þörfin þar væri brýnust, enda væri
þetta ekki dýrt hús.
Skólabörn nm allt land munu um næstu helgi ganga ( hús og selja hvfta penna og verður ágóðanum ráðstafað f
þágu aldraðra. Alls verður hundrað þúsund pennum dreift um landið og verður hver þeirra seldur á eitt hundrað
krónur.
„Æskan þakkar öldruðum“:
Skólabörn um allt land selja
penna til styrktar öldruðum
SKÓLABÖRN um allt land munu um næstu helgi ganga í hús og selja penna
undir kjörorðinu „Æskan þakkar öldruðum", en ágóða af sölu pennanna
verður varið í þágu aldraðra i landinu.
„Takmarkið er að selja 100.000
penna á 100 krónur stykkið, og
safna þannig tíu milljónum," sagði
Guðmundur Einarsson fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofnunar
kirkjunnar á blaðamannafundi
sem boðað var til nú í vikunni.
Sagði Guðmundur, að átta fram-
kvæmdanefndir hefðu verið settar
á laggirnar, sin í hverjum lands-
hluta og að í hverri nefnd ætti
sæti einn fulltrúi frá ASÍ, einn
frá Stéttarsambandi bænda og
einn frá Þjóðkirkjunni.
Hjálparstofnun kirkjunnar hef-
ur séð um skipulagningu þessa
átaks og gerði það að beiðni ASÍ,
Lífeyrisþegadeildar BSRB, Sjó-
mannasamtakanna, Stéttarfélaga
bænda og þjóðkirkjunnar.
Guðmundur Einarsson sagði að
pennunum hefði þegar verið dreift
í skóla á landsbyggðinni en dreif-
ing á Stór-Reykjavíkursvæðinu
færi fram á föstudag. „Undirtektir
hafa hvarvetna verið mjög góðar,“
sagði Guðmundur, „en fram-
kvæmdanefndirnar skipuleggja
sölu pennanna með skólastjórum
og fræðslustjórum á hverju svæði
og sjá síðan um ráðstöfun söfnun-
arfjár á viðkomandi svæði í þágu
aldraðra. Þess má geta að þegar
hefur verið ákveðið að það sem
safnast í Reykjavík mun renna til
Hjúkrunarheimilis aldraðra sem
samtökin Skjól standa fyrir bygg-
ingu á að Kleppsvegi 64. Forseti
íslands, frú Vigdís Finnbogadótt-
ir, tók fyrstu skólfustunguna að
hjúkrunarheimilinu 23. ágúst síð-
astliðinn.
Pennar þeir sem hér um ræðir
eru hvítir að lit og eru ekki fáan-
legir í verslunum, en í næstu viku
verður hafist handa við að selja
þá í fyrirtækjum. „Auk þess að
vera gagnlegir, eru þessir pennar
táknrænir og hver sá sem ber slík-
an penna sýnir stuðning við aldr-
aða í þjóðfélaginu,“ sagði Guð-
mundur Einarsson framkvæmda-
stjóri Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar að endingu.