Morgunblaðið - 07.11.1985, Side 29

Morgunblaðið - 07.11.1985, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER1985 29 Finnum svar við geim- vopnum Banda- ríkjamanna — segir Sokolov MoHkvu, 6. uóvember. AP. SERGEI L Sokolov marskálkur, varnarmálaráðherra Sovétríkjanna, hélt því fram í gær, að Bandaríkja- menn gerðu sig seka um brot á svonefndum SALT II-samningi um takmarkanir á vígbúnaði, ef þeir létu verða af því að framleiða tvær nýjar tegundir kjarnorkuflauga, það er MX og Midgetman. Þetta kom fram í grein, sem Sokolov skrifaði i Pravda, málgagn sovézka kommúnistaflokksins. Þar hélt hann því fram, að með því að búa til “geimárásarvopn", væru Bandaríkin að draga úr “eigin öryggi" og auka á hættuna á styrj- öld. Itrekaði hann fyrri yfirlýsing- ar Sovétmanna um að “finna full- nægjandi svar“. Svo virtist sem tilgangurinn með grein Sokolovs væri að svara staðhæfingum Caspars Weinberg- er, varnarmálaráðherra Banda- ríkjanna frá því 22. október sl. um, að Sovétríkin væru að brjóta ákvæði SALT II samningsins með því að setja upp nýjar kjarnorku- flaugar af tegundinni SS-25. Líbería: AP/Símamynd Bjargað úr bálinu Fyrir nokkrum dögum kom eldur upp í húsi, sem notað hefur verið sem kvennaathvarf, í Boston í Bandaríkj- unum og brunnu inni kona og barn. Slökkviliðsmönnum tókst að bjarga mörgum og þar á meðal þessu barni, sem hér er verið að blása lífi (. Noregur: Gengur hvorki né rekur í fiskveiðiviðræð- um við EB Osló. 6. nóvember. Frá Jan Erik Uure, frétUríUra Morgunblaósins. SÍLDAR- og makríl-kvóti Norð- manna veldur því, að erfitt getur reynst að ná saman endum í fisk- veiðisamningunum við Evrópu- bandalagið. Fyrsta fundinum, sem haldinn var í Osló, lauk án þess að nokkuð miðaði, og munu samninga- nefndirnar koma saman á nýjan leik í Briissel 27. og 28. þ.m. Síldarkvótinn er ásteytingar- steinninn — eins og vanalega. Heildaraflakvótinn hefur enn ekki verið ákveðinn, en í samningavið- ræðunum var miðað við 450— 500.000 tonn fyrir allt Norðursjáv- ar-svæðið og Ermarsund. í fyrra var kvótinn 400.000 tonn. Tilboð EB Norðmönnum til handa hljóðaði upp á 20% af kvót- anum, en því var hafnað. Er búist við, að Norðmenn fari fram á 30—40%, eða sama og í fyrra. Neita að taka sæti á þingi — deilt um misferli í kosningum Monrovia, Líberiu, 5. nóvember. AP. ALLIR þrfr stjórnarandstöðuflokk- arnir í Líberíu hafa neitað að taka sæti á þinginu vegna misferlis í nýaf- stöðnum kosningum. Kosningarnar stóðu yfir frá 15. til 19. október. Kosninganefndin tilkynnti þá að Samuel K. Doe hefði verið kosinn forseti með 50,9 prósentum atkvæða og þjóðernisflokkur hans hefði hlotið 72 af 90 þingsætum á löggjafar- þinginu. Formaður eins stjórnarand- 3töðuflokkanna, sameiningar- flokks Líberíu, Lesli Green, krafð- ist þess í tilkynningu til frétta- manna að kosninganefndin drægi kosninganiðurstöður sinar til baka og efndi til nýrra kosninga innan fjögurra vikna. Hann fór einnig fram á að erlendir aðilar fengju að fylgjast með framgangi þeirra kosninga. Réð misheppnað ást- arævintýri ákvörð- un Yurchenkos? Washington, 6. nóvember. AP. VERA kann, að sovézki KGB-maö- urinn Vitaly Yurchenko hafi í raun beiðst hælis á Vesturlöndum til þess að vera í nágrenni við vinkonu sína í Kanada og hafi síðan ákveðið að snúa aftur heim til Sovétríkj- anna, er ástarævintýrið fór út um þúfur. Kona þessi var eiginkona sovézks sendistarfsmanns, sem hafði aðsetur í Kanada. Ekki er vitað, hvort Yurchenko kynntist konunni heima í Moskvu eða þá fyrst, er hann var orðinn yfir- maður KGB í Bandaríkjunum og Kanada. „Hún var hrifin af honum sem njósnara en ekki sem landflótta Sovétmanni," var haft eftir leyniþjónustumanni í dag. Er talið, að það hafi að minnsta kosti átt verulegan þátt í þeirri ákvörðun Yurchenkos að snúa heim, er konan sneri við honum bakinu. Sjálfur á Yurchenko eiginkonu og son í Sovétríkjun- um. Yurchenko lýsti því yfir í dag í návist bandarískra embættis- manna, að hann væri ekki neydd- ur til þess að snúa heim af sovézkum erindrekum í Banda- ríkjunum. Rétti hann upp hönd- ina líkt og sigursæll hnefaleika- maður, þegar hann gekk út úr bandaríska utanríkisráðuneyt- inu í Washington og hrópaði til fréttamanna, sem þar biðu: „Já, ég fer heim.“ Charles Redman, talsmaður utanríkisráðuneytisins, sagði, að ákvörðun Yurchenkos hefði virzt „afar persónuleg". Er hann kom í ráðuneytið, voru fjórir sovézkir sendistarfsmenn með honum, þeirra á meðal læknir. Að við- talinu loknu lýsti utanríkisráðu- neytið því yfir, að Yurchenko væri frjálst að halda heim til Sovétríkjanna. “Markmiðið með þessum fundi var aö fá fullvissu um, að það væri í raun og veru vilji Yur- chenkos að snúa aftur heim til Sovétríkjanna og að hann tæki þá ákvörðun af fúsum og frjáls- um vilja,“ sagði Redman. ÚRVALS AMERÍSK HEIMILISTÆKl ELECTRIC BRAUÐRIST íSÁWARNýJJ^ ICJÖTHNÍFUR rafmagns /fiitaiVrís^ Fullkomin varahluta- og vidgerðaþjónusta HEIMILIS- OG RAFTÆKIADEILD IhIHEKLAHF *■ LAUGAVEGI 170- 172 SÍMAR 1168> 21240 CÓSAHNÍFUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.