Morgunblaðið - 07.11.1985, Side 33

Morgunblaðið - 07.11.1985, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER1985 33 ofn- veiflur Þetta er atvinnustarfsemi sem hlýtur að verða aukin, þótt henni séu einhver takmörk sett. Nýting fjárfestingarinnar er til mikilla muna betri en í venjulegu frysti- húsi. Meðan skortur er á fólki til fisk- vinnslu og leiðir opnast til aukinn- ar sölu á ferskum fiski erlendis og frystitogarar sýna slíka yfir- burði sem raun er á, getur frysti- iðnaðurinn hér á landi staðið frammi fyrir nýjum og áður óþekktum vandamálum sem hann verður að finna lausn á. Ekki hafa verið færðar sönnur á þær fullyrðingar, að allur fiskur sé ekki nýttur um borð í þessum skipum, en að sjálfsögðu verður að gera sömu kröfur til áhafna þessara skipa og annarra um að nýta allan afla. Ástæða er til þess að leggja áherslu á, þótt sagt sé að afkoma sé betri en undanfarin ár, að hún er ekki viðunandi og þessa dagana hefur afkoman versnað vegna kostnaðarhækkana eins og t.d. á olíu. Vegna hins mikla tapreksturs undanfarin ár þyrfti útgerðin að vera rekin með umtalsverðum hagnaði til þess að geta staðið undir skuldbindingum á greiðslu skuldbreytingalána og lagt til hlið- ar fjármuni til endurnýjunar á fiskiskipaflotanum. Mjög mikilvægt er, að heimildir til aukins aflakvóta verði notaðar til þess að bæta rekstrarafkomu sjávarútvegsins, en ávinningurinn ekki af honum tekinn eins og gert var á aflaárunum 1980—1982. Skuldbreyting og lenging lána í Fiskveiðasjóði hafa skipt útgerð- ina miklu máli. Alls var skuld- breytt 4.840 milljónum króna og lánskjör samræmd. Samið var við útgerðarmenn um greiðslu hluta af aflaandvirði til að standa undir afborgunum af hinum nýju lánum. Hefur verið staðið við þessar skuldbindingar og þann 1. október voru vanskil vegna skipalána hjá Fiskveiðasjóði aðeins 62 milljónir króna á móti 800 milljónúm króna á sl. ári. Þá eru ekki meðtalin vanskil þeirra fjögurra skipa sem Fiskveiðasjóður hefur keypt á uppboði, en ekki reyndist unnt að skuldbreyta lánum vegna slæmrar fjárhagsstöðu þeirra. Gert er ráð fyrir að safnist vanskil að nýju hjá einhverjum skipum muni sama yfir þau ganga og þau sem seld hafa verið á uppboði. Frá sjónar- miði útgerðarinnar í heild verður að vera tryggt að ekki sé um mis- munun að ræða milli útgerðarfyr- irtækja. Hætt er við að þessar ströngu greiðsluskuldbindingar hafi valdið skuldasöfnun hjá öðrum aðilum. Ljóst er, að ekki hefur verið staðið við greiðslu skuldbreytingalána, sem veitt voru á viðskiptaskuldum í sama mæli. Það er fróðlegt að athuga yfirlit Þjóðhagsstofnunar um afkomu útgerðarinnar á und- anförnum árum. Þá kemur í ljós að afkoman var verst á aflaárun- um miklu 1981 og 1982 en þá fisk- uðum við 461 þús. lest af þorski annað árið og 383 þús. lestir hitt árið. Þá var afrakstri betri afla- bragða ráðstafað af ríkisstjórn til annarra þegna þjóðfélagsins og enn lengra var gengið á hlut út- gerðarinnar því hallareksturinn varð aldrei meiri, samfara aukinni skuldasöfnun, sem stórlega rýrði eigið fé útgerðarinnar. Afnám kerfisins Mjög miklu máli um afkomu útgerðarinnar hafa skipt þær greiðslur sem koma úr verðjöfnun- ardeild og almennudeild Afla- tryggingasjóðs og vaxtaafsláttur af lánum Fiskveiðasjóðs. Tekjur til þess að standa undir þessum greiðslum koma þó allar úr sjávar- útveginum með einum eða öðrum hætti. Við búum við tiltölulega flókið verðmyndunarkerfi þar sem eru lögbundnar greiðslur umfram hið ákveðna fiskverð. Er þar hægt að nefna greiðslur í Stofnfjársjóð, sem ekki koma til hlutaskipta, kostnaðarhlutdeild, þar sem mismikið kemur til skipta eftir stærð skipa, misháar greiðslur á einstakar fisktegundir úr verð- jöfnunardeild Aflatryggingasjóðs sem koma til hlutaskipta, greiðsl- ur úr almennudeild Aflatrygginga- sjóði sem ekki koma til hlutskipta. Einnig má nefna vaxtaafslátt úr Fiskveiðasjóði, en á móti honum kemur greiðsla útflutningsgjalds í sjóðinn. Æskilegt væri að fella allt þetta kerfi niður og einnig það sem eftir er af sjóðakerfi sjávarútvegsins og þær millifærslur milli manna sem það hefur í för með sér. Væri það gert, yrði unnt að taka þetta allt inn í fiskverðið, jafnframt því, að hlutaskiptum yrði breytt, þannig að sjómenn og útgerð hefðu að meðaltali það sama, sem hvor hefur í dag. Breyting af þessu tagi myndi draga úr tortryggni sem er í garð þessa kerfis og gera hvern og einn ábyrgari fyrir sínum rekstri. Þessi atriði eru öll lög- bundin og verður því ekki breytt nema fyrir atbeina Alþingis. Frjálst fiskverð Á síðasta Alþingi var lögum um Verðlagsráð sjávarútvegsins breytt á þann veg, að nú heimilast ráðinu að ákveða, að frjálst verð skuli vera á einhverri tiltekinni fisktegund, ef um það er algjört samkomulag i ráðinu. Þetta er merk breyting og á að geta stuðlað að opnara verðkerfi en því sem við höfum búið við. Fyrstu tilraunir í þessa átt hafa þó ekki náð fram að ganga vegna andstöðu fiskkaup- enda, sem óttast að samkeppnin muni leiða til óraunhæfs verðs. Ástæða er til að leggja áherslu á, að ekki getur orðið um frjálst verð að ræða nema í þeim tilfellum að samkeppni tryggi eðlilegt verð og þar sem tengsl útgerðar og fisk- vinnslu eru takmörkuð. Þessi breyting nær aldrei fram að ganga nema sjómenn og útvegsmenn séu sáttir við hana og sjái sér hag í henni, sem m.a. á að geta komið fram með hærra verði vegna auk- inna fiskgæða. Það verður aldrei frjálst verð þar sem einn fiskkaup- andi er til staðar eins og svo víða háttar til hér á landi. Þeir sem gagnrýna hvað mest núverandi verðkerfi þekkja þó venjulega minnst til þess. Þeir virðast ekki gera sér grein fyrir, að útvegs- menn, sjómenn og fiskkaupendur leggja deilur sínar I gerðardóm og hlíta niðurstöðum hans í stað þess að takast á með verkföllum og verkbönnum. Mættu fleiri þjóð- félagshópar taka sér þetta til fyr- irmyndar. Leggja niður ríkismat Hluti af ákvörðun fiskverðs er mat á gæðum fisks. Hluti af frjálsu fiskverði gæti verið, að kaupendur og seljendur semdu um þennan þátt fiskverðsins, sem vafalítið myndi skerpa mat manna á gæðum fisks. Það er viðurkennt, þótt óeðli- legt sé, að betur er gengið frá fiski í skipum, þegar sigla á með aflann á erlendan markað, þar sem verð ræðst að mestu af gæðum hans. Með þessari breytingu væri unnt að minnka afskipti hins opinbera af þessari atvinnugrein til muna og spara ríkissjóði hluta af því mikla fjármagni sem varið er til Ríkismats sjávarafurða en það er áætlað 65 milljónir króna á næsta ári. Rétt er að minna á í þessu sambandi, að í verkfalli opinberra starfsmanna á sl. ári sömdu menn sjálfir um fiskmat án árekstra. Slík breyting getur leitt til átaka og erfiðleika, en engan veginn svo mikilla, að ekki sé rétt að láta á reyna. Endurnýjun flotans Nýlega ákvað stjórn Fiskveiða- sjóðs að leggja til við ríkisstjórn- ina að heimiluð verði smíði á fiski- skipum á ný og gerð var tillaga um lánskjör ogskilyrði fyrir heim- ild til nýsmíði, þær heimildir yrðu mjög takmarkaðar af ástæðum sem eru okkur kunnar. Meðan þörf er á að takmarka sóknina og skammta aflann er fjarri lagi að stækka fiskiskipaflotann og af þeim ástæðum þyrfti hann frekar að minnka. Langt stopp á end- urnýjun mun hinsvegar valda því að við fylgjumst ekki með tækni- framförum. Tillögur stjórnar Fiskveiðasjóðs gera ráð fyrir að lánað verði 60% af kostnaðarverði þegar skip er smíðað erlendis, en 65% ef skip er smíðað hér á landi. Ekki verði heimilaðar frekari erlendar lán- tökur en Fiskveiðasjóður lánar og eldra skip, sambærilegt að stærð, verði að víkja úr rekstri. Ekki er líklegt að þessar reglur, ef sam- þykktar verða, muni hrinda af stað bylgju nýsmlða, vegna þess hve þröngar þær eru. Um nokkurn tíma hafa fjögur skip verið í smíðum I Islenskum skipasmíðastöðvum. Smíði þeirra var hafin í tíð fyrri rikisstjórnar og með fjárútvegun á hennar veg- um. Áttu þetta að teljast rað- smíðaskip, þótt þau séu nú öll orðin að sérsmíði, og verð þeirra eftir því. Þegar núverandi stjórnun fiskveiðanna hófst í ársbyrjun 1984 var ákveðið að þessi skip fengju ekki aflakvóta, nema þau kæmu í stað skipa, sem hyrfu úr rekstri og er gert ráð fyrir því að svo verði áfram í því frumvarpi að lögum, sem sjávarútvegsráð- herra hyggst flytja um stjórnun veiðanna fyrir næstu 3 ár. Við hljótum að styðja þessi sjónarmið og gera kröfu til þess, að við þau verði staðið. Framlag hins opin- bera til framkvæmda á fiskveiði- stefnunni getur ekki verið minna en sjá til þess að flotinn stækki ekki með tilkomu þessara skipa. Þegar stjórnendur landsins loks gerðu sér ljóst, að flotinn væri orðinn of stór, gagnrýndu eigendur íslensku skipasmíðastöðvanna mjög þessa stefnu og reiknuðu með ýmsum sérkennilegum aðferðum, ímyndaða endurnýjunarþörf og spáðu fyrir um mikinn verkefna- skort í skipasmíðastöðvunum. Hafa þetta reynst hinar mestu hrakspár, og verkefni skipasmíða- stöðvanna verið ærin við að sinna viðhaldsverkefnum. Er nú svo komið, að Islenskar stöðvar, eða þær þeirra sem tekið er mark á um afhendingartíma, geta ekki tekið þátt í að sinna útboðum á viðgerðum og breytingarverkefn- um fyrir fiskiskipaflotann. Frjálst olíuverð Okkur hefur oft orðið tíðrætt um verð á olíu hér á landi og fyrir- komulag á olíudreifingu og inn- kaupum. Á þessu ári hefur álagn- ing oliufélaganna hækkað i tveim- ur áföngum um 61% eftir ákvörð- un Verðlagsráðs. 1 hvorugu tilfell- inu var skýrt frá þessum ákvörð- unum vegna þess að þær höfðu ekki áhrif á útsöluverð á olíu, þegar ákvörðun var tekin. f fyrra tilfellinu var álagningin hækkuð um 48% þegar niðurfelling opin- berra gjalda á olíu var færð inn í álagningu olíufélaganna og í síð- ara skiptið var hluta af greiðslu á innkaupajöfnunarreikningi færð yfir I álagninguna, og hún hækkuð um 9%. Svo langt hafa þessi verð- lagningarmál á olíu gengið, að ákvörðun um hækkaða álagningu hefur verið gerð afturvirk á kostn- að innkaupajöfnunarreiknings, sem útgerðinni var síðan gert að greiða, og hefur nú verið greiddur að fullu á gasolíu. Á sama tima og Verðlagsnefnd hækkar álagn- ingu olíufélaganna með þessum hætti hefur hún ekki í 4 mánuði svarað erindi frá samtökunum um, að ákveðið verði staðgreiðsluverð á olíu, þannig að þeir, sem stað- greiða oliu, séu ekki að greiða kostnað af lánsviðskiptum. Vegna óhagstæðra innkaupa hafa oliufélögin setið uppi með birgðir af svartolíu, sem þau hafa ekki getað selt. Með þessum röngu innkaupum hafa þau haft af út- gerðinni ótalda fjármuni, með þvi að hún hefur ekki getað fengið olíu á markaðsverði. Síðastliðið haust lækkaði Verð- lagsráð álagningu olíufélaganna um upphæð, sem nam vaxtakostn- aði af 45 daga lánsviðskiptum og ætlaði olíufélögunum að inn- heimta vextina hjá þeim sem þau lánuðu. Þetta treystu oliufélögin sér ekki til að framkvæma vegna þeirrar takmörkuðu samkeppni, sem þessi ákvörðun fól í sér. Verð- lagsráð varð við bón þeirra um að setja vextina aftur inn í verðið, svo þau þyrftu ekki að framkvæma þetta óvinsæla verk. Höfum við ekki haft of mikla trú á verðjöfnun og verðlagskerfi, eins og því sem ákveðið hefur verið á olíu? Er ekki kominn timi til að reyna einhverjar nýjar leiðir í þessu efni? Er ekki líklegt að frjáls verðmyndun muni leiða til sam- keppni, er geti lækkað olíuverð? Ég bið menn að hafa i huga, að í dag skiptir olíufélögin engu, hvað olían kostar, hvar hún er keypt, eða hvenær innkaup eru gerð. Eg tel til dæmis, að það skipti olíufélögin meira máli að hafa birgðageymsl- ur fullar um áramót af skattaleg- um ástæðum en hvenær hagkvæmt er að kaupa olíu. Átök á vinnumarkaði Framundan virðast vera átök á vinnumarkaði, sem leitt geta til aukinnar verðbólgu á ný. Þótt allir hafi gert sér ljóst, að 3% launa- hækkun fyrrverandi fjármálaráð- herra hafi engra laun bætt, vegna þess að fyrir henni var engin inni- stæða, virðist enn eiga að knýja á um þessháttar sýndarlausn. Hvernig má það vera, að allir eru svo ósáttir við sitt hlutskipti, þótt staðfest sé, að einkaneysla er hér hærri en á öllum Norðurlöndun- um? Það er eitthvað alvarlegt að þegar svo er komið, að við erum skuldugasta þjóð í Evrópu og jafn- ingjar finnast ekki nema í Suður- Ameríku og þeir fáir. Stóriðja Mikið hefur verið um það rætt að undanförnu að æskilegt sé að koma á fót öflugri atyinnustarf- semi við hlið sjávarútvegsins til þess að tryggja betur en nú er hagsæld þjóðarinnar. I þessu efni hefur oftast borið á góma, að stór- iðja í einhverju formi væri hag- kvæmasti kosturinn. Það virðist sem svo illa hafi tekist til með virkjanir og raf- magnsframleiðslu að erfitt muni verða að fá kaupendur að orkunni. Nú er svo komið að stóriðjan okkar, fiskiðnaðurinn, verður að greiða mun hærra verð, allt að tvöfalt hærra, en sambærilegur iðnaður í nágrannalöndunum, þar sem rafmagn er framleitt með olíu. Nýlegt dæmi í þessu efni má nefna. Stóru fiskiðnaðarfyrirtæki var neitað um leyfi til þess að fram- leiða rafmagn með oliu til eigin þarfa, en það hefði orðið umtals- vert ódýrara. Skip nýta sér ekki tengingu við land vegna þess að ódýrara er að framleiða rafmagn með olíu um borð í skipunum. Er nema von, að svona sé komið þegar að málum er staðið með þeim hætti, sem gert hefur verið? Tekin eru erlend lán fyrir hönnun- arkostnaði, sem nálgast einn millj- arð króna, fyrir virkjun sem ekki er vitað, hvenær eða hvort byggð verður. Virkjunarfyrirtæki leggja vegi og byggja gangnakofa fyrir bændur, greiða hærra kaup en almennur vinnumarkaður, leggja byggðalínur, byggja kröflur og kosta svo miklu til við virkjanir að það er ekki hægt að selja ork- una. Þetta eru aðilarnir sem hafa verið að taka erlend lán og eiga stærstan þátt í þenslunni. Hvenær fara þeir að líta i eigin barm og kanna grundvöll sinna eigin ákvarðana? Viöhorf almennings Ég hef oft haft það hlutskipti að koma fram fyrir þjóðina og lýsa miklum rekstrarvanda í sjávarút- vegi. Oft höfum við haft áhyggjur af, að þetta hafi verið gert með of neikvæðum hætti, sem hafi valdið vantrú almennings á at- vinnugreininni. Með þetta í huga stóðu samtök okkar með öðrum samtökum í sjávarútvegi fyrir viðhorfskönnun hjá almenningi, sem frakvæmd var af Hagvangi sl. vetur. í könnun þessari kom fram mjög jákvætt álit hjá al- menningi i garð sjávarútvegsins og almenningur var sér þess mjög vel meðvitaður, hve stóran hlut sjávarútvegurinn á í velferð þjóð- arinnar. Þessi niðurstaða má þó ekki hafa þau áhrif, að við fyllumst sjálfumgleði og vanrækjum að kynna fyrir almenningi helstu mál sem upp koma innan sjávarútvegs- ins á hverjum tíma. Það hlýtur alltaf að verða svo, að það skiptast á skin og skúrir og almenningur á rétt á að fá rétt- ar upplýsingar á hverjum tíma um atvinnuveg, sem er jafn þýðingar- mikill og raun ber vitni. Að lokum þakka ég samstarfs- mönnum í stjórn LÍÚ fyrir ánægjulegt samstarf og starfsfólki fyrir vel unnin störf. Nú lætur af störfum hjá samtökunum Ágúst Einarsson, viðskiptafræðingur, eftir 12 ára árangursríkt starf. Um leið og við færum honum bestu þakkir fyrir vel unnin störf og ámum honum heilla á nýjum starfsvettvangi, bjóðum við Svein Hjört Hjartarson, hagfræðing, velkominn til starfa. Ég segi þennan 46. aðalfund LÍÚ settan.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.