Morgunblaðið - 07.11.1985, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER1985
41
ÆskanaAsUrfi
MorgunblaAiö/Jón Sig.
Opinn skóli á Blönduósi
BlönduÓHÍ, 4. nóvember.
GRUNNSKÓLI Blönduóss var öllum
opinn laugardaginn 2. nóv. Fjöldi
manns, aöallega foreldrar barna í
grunnskólanum, notfærði sér þetta
tækifæri og fylgdist með starfi barna
sinna og kennara þeirra.
Þessi nýbreytni í skólastarfinu
virtist mælast vel fyrir hjá for-
ráðamönnum barnanna svo og hjá
nemendunum sjálfum og kennur-
um. Viðmælendur Morgunblaðsins
úr kennarastétt sögðu að þessi
nýbreytni í skólastarfinu hefði
ekki haft truflandi áhrif á hið
hefðbundna skólastarf svo neinu
næmi. Má þvi segja að foreldrar
hafi fengið allgóða mynd af því
sem er að gerast í skólanum, þess-
um stóra vinnustað sem börnin
þeirra sækja mestan hluta ársins.
Jón Sig.
Morgunblaðið/Emilta
Verslunin METRA opnuð
Selur vefnaðarvörur og sniðinn fatnað
VERSLUNIN Metra opnaði 1. nóv-
ember sl. eftir gagngerar breytingar
á húsnæði að Ingólfsstræti 6 þar sem
áður var til húsa fornbókaverslun
og Furubær. í Metru verða á boðstól-
um vefnaðarvörur og margvíslegur
varningur, sem tengist saumaskap.
Til viðbótar almennri efnissölu
til fatagerðar verður einnig fáan-
legur sniðinn fatnaður svo sem
pils, blússur, jakkar og buxur. Ef
um sérstakar óskir er að ræða
varðandi snið, yfirstærðir eða
þvíumlíkt þá mun sérfræðingur
verða í versluninni tvisvar í viku
til að ræða fyrirspurnir, leiðbeina
og greiða úr málum.
Unnt verður að kaupa snið á
staðnum, ef fólk vill sjá um þá
hliðina sjálft.
Eigendur Metru sf. eru Hrafn-
hildur Hannesdóttir og ólafía
Sveinsdóttir.
Áfengisvamaráð:
Afengisvarna-
nefndir efla bindindi
Vegna umræðna um stöðu
áfengisvarnanefnda og kjörs í þær
vill Afengisvarnaráð vekja athygli
á nokkrum atriðum varðandi
starfssvið þeirra og stöðu:
1. Umsagnir um hvort veita beri
vínveitingaleyfi eru ekki eina
atriðið sem áfengisvarnanefnd-
ir eiga að fjalla um og þvi síður
meginverkefni þeirra.
2. Samkvæmt lögum ber nefndun-
um að „vera ráðgefandi um öll
bindindis- og áfengismál fyrir
sveitarstjórnir, lögreglustjóra,
áfengisvarnaráð, ríkisstjórn og
aðra þá aðila sem komið geta
til greina í því sambandi".
3. í reglugerð eru nánari ákvæði
um störf nefndanna. Aðalatrið-
ið er samkvæmt reglugerðinni
að „leitast við að efla bindindi
í hverjum þeim kaupstað eða
hreppi, er hún starfar í, með
því: a. að styðja bindindisstarf-
semi, þar sem hún er fyrir, og
vinna að því, að slík starfsemi
sé hafin, þar sem hún hefur
ekki átt sér stað.“ — Síðan eru
talin upp fjölmörg fleiri verk-
efni.
4. Sú er raunin að sveitarstjórnir
hafa jafnan kosið í áfengis-
varnanefndir fóLk sem áhuga
hefur á að „vinna gegn neyslu
áfengra drykkja og leitast við
að draga úr skaðlegum afleið-
ingum hennar" eins og segir í
reglugerðinni.
5. Rétt er enn einu sinni að minna
á að áfengislögin íslensku eru
sjálfsagt betri smíð en áfengis-
lög flestra annarra þjóða enda
samin undir handarjaðri
manns, sem talinn hefur verið
einn hæfasti lagasmiður sem
þjóð vor hefur alið, Bjarna
Benediktssonar.
Hitt er svo annað mál að ýmis
bestu ákvæði laganna hafa ve-
rið brotin eins og mörg önnur
ágæt lög. En þar er ekki við
lögin sjálf að sakast heldur
framkvæmd þeirra.
< ÁfenKwnmriuráb)
„Þú getur notað
þau sem
eftir Önnu
Kristjánsdóttur
„Þú getur notað þau sem
reiðufé."
Þetta er hluti úr texta úr auglýs-
ingu ríkissjóðs sem hljómar þessa
dagana í fjölmiðlum og er þar beitt
allri hugsanlegri nútímatækni til
að fá neytandann til að kaupa
auglýsta vöru.
Eg verð að viðurkenna að ég er
ekki alveg með á nótunum.
Ég skil ekki hvernig það er í
framkvæmd að nota skuldabréf
sem reiðufé.
Ég vil því beina eftirfarandi
spurningum til aðstandenda um-
ræddra skuldabréfa:
Hvað merkir það að geta notað
skuldabréf sem reiðufé?
Getur húsbyggjandi sem hugs-
anlega fær svona bréf í jólagjöf
frá tengdaforeldrunum farið á
fjórðu hæðina á Laugavegi 77 og
greitt af láninu sínu?
Getur hann kannske líka lagt
bréf sem ekki eru komin á gjald-
daga inn á verðtryggðan banka-
reikning ef hann skyldi vilja
minnka pappírsflóðið sem hann
verður að burðast með daglega?
reiðufé“
„Ég verð að viðurkenna
að ég er ekki alveg með
á nótunum. Ég skil ekki
hvernig það er í fram-
kvæmd að nota skulda-
bréf sem reiðufé.“
Eða getur hann greitt matar-
reikninginn sinn hjá kaupmannin-
um á horninu með bréfunum og
myndi þá kaupmaðurinn reikna út
vexti og verðtryggingu bréfanna?
„Þau er auðvelt að selja," segir
á öðrum stað í sömu auglýsingu.
Það er nú það. Hvernig skyldi það
nú ganga fyrir sig?
Jú, húsbyggjandinn fer með
bréfin á verðbréfasölu sem tekur
þau í umboðssölu.
Verum nú bjartsýn eins og ís-
lenskum húsbyggjendum er tamt
og reiknum með því að kaupandi
finnist, þá tekur verðbréfasalan
2% í sölulaun eða þóknun eftir því
hvort orðið hljómar betur það og
það sinnið. — Afföll eru víst ekki
notuð í þessu tilfelli.
En ef enginn kaupandi finnst?
Ekki er annað að skilja af aug-
lýsingunum en lagerinn sé nægur
svo líklegt verður að telja að nýir
skuldabréfakaupendur snúi sér ^
beint til þeirra söluaðila sem aug-
lýsa en láti verðbréfasölur eiga sig.
Þarna hlýtur eitthvað að vanta
inn í myndina.
Svo þess vegna spyr ég:
Kaupir ríkissjóður bréf — sem
ekki eru komin ágjalddaga — fullu
verði aftur, þ.e. með öllu tilheyr-
andi — 9,23% vöxtum, verðtrygg-
ingu og óskertum höfuðstól, án
þóknunar?
Ef ekki er auglýsingin villandi
og til þess gerð að blekkja fólk.
Svo er annað. Skýtur það ekki
skökku við að á sama tíma og *
ríkisstjórn Islands telur sig hafa
„náð niður verðbólgu" (eins og þeir
orða það í fjölmiðlum) og segja
kjósendum stöðugt að þeir séu að
„kveða niður verðbólgudrauginn
(eins og þeir orða það á Alþingi)
þá auglýsir ríkissjóður sín skulda-
bréf með loforði milli línanna um
hækkandi verðbólgu og bullandi
gróða til handa þeim sem hafa
fjármagn til að kaupa umrædd
skuldabréf og eiga þau?
Ég leyfi mér að óska opinberra
svara við ofangreindum spurning-
um og athugasemdum.
Höíundur er formaður Lögrerndar.
BORGAR SIG
BOS hugbúnaöur
er ekki háður einni tölvutegund, heldur gengur á
margar tölvutegundir þ.m.t. IBM XT/AT, DEC MICRO PDRll, STRIDE,
ISLAND XT/AT og ADVANCE.
BOS hugbunaður
er fjölnotenda með allt að 20 skjái eða einnotenda
með möguleika á að vinna í 4 kerfum samtímis.
BOS hugbúnaður
gerir kleift að byrja smátt og stækka stig af stigi.
BOS hugbúnaöur
er margreyndur og í stöðugri sókn.
Kerfin, sem boðið er upp á eru m.a.:
Fjárhagsbókhald, viðskiptamannabókhald, sölu- og pantanakerfi,
birgðabókhald og birgðastýring, greiðslubókhald, launabókhald,
verkbókhald, tollskýrslu- og verðútreiknmgar, uppgjörskerfi og tima-
bókhald fyrir endurskoðendur, framleiðslustýring, ritvinnsla, gagna-
grunnur, skyrslugerð. áætlanagerð ásamt tugum sérhannaðra forrita.
Söluaöilar BOS hugbúnaöar
Gísli J. Johnsen hf., Skrifstofuvélar hf., Aco hf., Kristján Skagfjörð hf.,
Hugur sf., Almenna kerfisfræðistofan, Tölvutæki sf. Akureyn.
Tölvumiðstöðin hf
F Höföabakka 9 — Sími 685933