Morgunblaðið - 07.11.1985, Qupperneq 42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER1985
4
Staða loftskeyta-
manna á kaupskipum
— eftir Einar
Hermannsson
Björn ólafsson, loftskeytamað-
ur ritaði grein í Morgunblaðið þ.
15. þessa mánaðar, undir fyrir-
sögninni „öryggis- og menntunar-
mál sjómanna". Greinarhöfundur
kom víða við í grein sinni, en
undirritaður vill gera nokkrar
athugasemdir við ýmsar staðhæf-
^ingar greinarhöfundar, um stöðu
loftskeytamanna á kaupskipum og
skyld atriði.
Kjarni málsins
Kjarni greinarinnar er reyndar
tilraun til að réttlæta áframhald-
andi stöðu loftskeytamanna á
kaupskipum og stærri fiskiskipum,
þrátt fyrir hina gífurlegu tækni-
byltingu sem orðið hefur á síðustu
árum í fjarskiptum skipa og einnig
alþjóðlegrar þróunar í þá átt að
sérhæfðir loftskeytamenn á skip-
um munu innan tiðar tilheyra
fortíðinni. Við það að sérhæfðir
loftskeytamenn hverfa úr áhöfn-
.-■'um skipa, munu fjarskipti þeirra
skipa færast i hendur skipstjórn-
armanna, en það fyrirkomulag
ríkir reyndar þegar á þorra ís-
lenska skipastólsins.
Það er skiljanlegt frá félagsleg-
um sjónarmiðum, að stétt loft-
skeytamanna á skipum skuli vera
uggandi um hag sinn, en samtímis
ber að hafa í huga að staða loft-
skeytamanna er ekki önnur en ót-
eljandi annarra starfsstétta, bæði
til sjós og lands (og jafnvel í lofti),
sem hafa orðið að horfast í augu
við að hin öra tækniþróun, gerir
mögulegan tækjabúnað sem er
undantekningalítið hæfari og ör-
uggari til að sinna starfsþáttum
sem áður voru í mannlegum hönd-
um. Því miður er annað óhjá-
kvæmilegt fyrir eigendur atvinnu-
tækjanna, eins og t.d. útgerðanna,
að búa og reka skip sin á sem
hagkvæmastan hátt, að meðtöld-
um sparnaði í mannahaldi. Ef
eigendur atvinnutækja fylgja ekki
slíkum hagkvæmissjónarmiðum,
þá glata þeir samkeppnishæfni
sinni og atvinnutækifærin, þótt
færri séu, glatast alfarið. Hið síð-
astnefnda á ekki sfst við kaupskip,
sem eru í beinni samkeppni á
■'fc alþjóðlegum markaði og eru kaup-
siglingar öllum frjálsar. Það er
mikil skammsýni að ætla, að kaup-
skipaútgerð íslendinga sé einangr-
uð frá umheiminum, né að halda
að við getum verndað eigin kaup-
skipaútgerð frá erlendum sam-
keppnisaðilum, því ísland umfram
öll önnur lönd, verður að eiga kost
á sem hagkvæmustum kaupsigl-
ingum, til að vega upp á móti
landfræðilegri einangrun og koma
afurðum okkar á fjarlæga markaði
á sem hagkvæmustu verði, í sam-
keppni við önnur lönd sem liggja
mikið nær mörkuðunum.
Alþjódlegar reglur
Núverandi alþjóðareglur um
öryggisbúnað skipa (SOLAS 1974,
Kafli IV) krefjast loftskeyta-
manna á stærri flutningaskipum
(yfir 1600 brl.), sem afleiðingu af
kröfum i sömu alþjóðareglum um
loftskeytastöðvar (radio-tele-
graphy). Greinarhöfundur, annað
hvort af vankunnáttu, eða til þess
að komast hjá því að segja alian
sannleikann, minnist ekki á að
Alþjóðasiglingamálastofnunin
(IMO) og öryggismálanefnd
(MSC) stofnunarinnar hafa þá
þegar endurskoðað núverandi
Kafla IV, 1974 SOLAS samþykkt-
arinnar með þeirri veigamiklu
breytingu, að „morse“-tíðnin og
sendingar falla alfarið út úr fram-
tíðar fjarskiptum skipa og þar með
núverandi starf loftskeytamanna
til sjós. Fyrrnefndar breytingar á
fjarskiptum skipa taka alþjóðlega
gildi fyrst 1990 fyrir ný skip og
síðan stig af stigi fyrir önnur skip
eftir aldri, þannig að 1996 verða
öll kaupskip komin yfir á hin nýju
fjarskiptakerfi og verða án loft-
skeytamanna í núverandi mynd.
Aðdróttanir greinarhöfundar á
hendur samgönguráðherra um að
hafa lagt niður strandþjónustu á
„morse“-tíðni eru þvi út í hött, því
með þeirri framkvæmd er einungis
verið að aðlaga fjarskiptakerfið
að alþjóðlegri þróun sem býður
upp á stórkostlegar framfarir í
fjarskiptum og þar með aukið
öryggi sjófarenda.
Það framtíðar fjarskiptakerfi
(Kafli IV. SOLAS 1974) sem al-
þjóðasiglingamálastofnunin er
þegar búin að samþykkja, gerir ráð
fyrir að öllum alþjóðlegum sigl-
ingasvæðum heimsins verði skipt
niður í fjóra flokka, þ.e.a.s.
(i) Strandsiglingar sem metra-
bylgju (VHF) samskipti ná yfir.
(ii) Siglingasvæði sem milli-
bylgju (MF) samskipti ná yfir.
(iii) Siglingasvæði þar sem
gervitunglafjarskipti (Inmar-
sats) ná yfir. (iv) önnur sigl-
ingasvæði (núverandi aðallega á
heimskautasvæðum).
„Loftskeytamenn verða
að horfast í augu við þá
staðreynd, sem margar
aðrar starfsstéttir hafa
þegar gert, að störf
þeirra á kaupskipum til-
heyra brátt fortíð-
í nánum tengslum við hina nýju
alþjóðlegu fjarskiptareglugerð, er
tiltölulega ný alþjóðleg reglugerð
um leit og björgun í hafi (Internat-
ional Convention on Maritime
Search and Rescue, 1979), en sú
reglugerð tók alþjóðlegt gildi 22.
júni siðastliðinn og væntanlega
verður ísland aðili að þessari
samþykkt, nú innan tíðar. Þessi
siðastnefnda reglugerð i tengslum
við nýja fjarskiptakerfið, mun
mjög bæta allt fyrirkomulag og
framkvæmd björgunarmála á hafi
úti og þar með verða stórt skref
til aukins öryggis sjófarenda.
Loftskeytamenn á
kaupskipum
Greinarhöfundur vænir kaup-
skipaútgerðir um að vera að reyna
„að koma loftskeytamönnum á
kaupskipum i land með alls kyns
tali um aukna tækni“, en segir þær
„gleyma þvi að slik tækni er enn
ekki til og verður ekki i náinni
framtið fyrir hendi hér á landi.“
Annað tveggja, er greinarhöfund-
ur að reyna að fela sannleikann,
eða hann er vart starfi sinu vaxinn
sem loftskeytamaður, þar sem
hann virðist ekki hafa fylgst með
þeirri þróun sem átt hefur sér stað
í fjarskiptum skipa. Veit greinar-
höfundur t.d. ekki, að þúsundir
skipa eru nú búin gerfitunglafjar-
skiptastöðvum (Inmarsats), þar
sem skipin eru í beinu símasam-
bandi við heimaland sitt hvar sem
er í heiminum, allt frá 75 gráðum
norðlægrar til 70 gráðum suðlægr-
ar breiddar? Það er hvorki meira
né minna mál að hringja frá, eða
til, slikra skipa en að hringja á
milli landa með sjálfvirku sima-
sambandi.
Nágrannalönd okkar, t.d. Noreg-
ur og Svíþjóð, eru þekkt á alþjóða-
vettvangi fyrir að vera leiðandi
þjóðir í kröfum um öryggi í búnaði
kaupskipa og i menntun áhafna
þeirra. Þessar fyrrnefndu þjóðir,
Fyrirliggjandi í birgðastöð
SVARTAR OG
GALVANISERAÐAR
PÍPUR
Samkv.:Din 2440
OQO° oc o O O 0 3 O ^
Sverleikar: svart, 3/8 - 5“
galv., 3/8 - 4“
Lengdir: 6 metrar
SINDRAi rM .STÁLHF
Borgartúni 31 sími 27222
ásamt mörgum öðrum, hafa fyrir
nokkrum árum þá þegar hrundið
í framkvæmd hinu nýja fjar-
skiptakerfi skipa, bæði á afmörk-
uðum siglingasvæðum og einnig i
heimssiglingum. Ástæður ákvörð-
una, siglingayfirvalda þessara
þjóða að taka í notkun nýja fjar-
skiptakerfið, áður en það tekur
alþjóðlegt gildi, eru fyrst og fremst
að þau gera sér grein fyrir hinum
miklu yfirburðum hins nýja fjar-
skiptakerfis hvað viðvíkur öryggi
skipa og sjófarenda. Einnig er
fullur skilningur hjá siglinga- og
stjórnvöldum í þessum löndum, að
ef þróuðu þjóðirnar (ísland þar
með talið) eiga að halda hlutdeild
sinni i kaupsiglingum i harðri
samkeppni við þróunar og aust-
antjaldslöndin, sem búa við mjög
lágan launakostnað, þá verður það
einungis gert með þvi að nýta sér
tækniþróun búnaðar og tæknilega
yfirburði áhafna þeirra á sem
hagkvæmastan hátt. í Sviþjóð og
Noregi er nú svo komið að kaup-
skip yfir 1600 brl. á siglingasvæð-
um í Evrópu (að meðtöldu Islandi)
allt suður að norð-vesturhorni
Portúgal eru undanskilin skyldum
um loftskeytamenn, að uppfylltum
vissum kröfum um tæknibúnað
(Navtex móttakara, Martex-fjar-
rita o.s.frv.) og menntun skip-
stjórnarmanna (5 daga viðbótar-
námskeið). Á sama hátt eru norsk
skip i heimssiglingum undanþegin
skyldu um loftskeytamann, að
uppfylltum kröfum um búnað (In-
marsats/gerf itunglafj arskipta-
stöð) og menntun skipstjórnar-
manna. íslensku kaupskipaútgerð-
irnar hafa i ljósi fyrrnefndrar
margra ára reynslu nágranna-
þjóða okkar i þessum málum, hafið
viðræður við stjórnvöld um þær
breytingar sem þegar hafa átt sér
stað og eru væntanlegar í fjar-
skiptum kaupskipa, með það að
markmiði að koma á samskonar
fyrirkomulagi hérlendis i fjar-
skiptum kaupskipa og tiðkast i
nágrannalöndum okkar. í tengsl-
um við slíkar viðræður er augljós-
lega eðlilegt að kaupskipaútgerð-
irnar og stéttarfélag loftskeyta-
manna eigi viðræður um þær
breytingar sem verða á félagsleg-
um og starfslegum högum starf-
andi loftskeytamanna á kaupskip-
um og hafa slfkar óformlegar við-
ræður þá þegar hafist.
Siglingamálastofnun
og mælingar skipa
Greinarhöfundur ávítar Sigl-
ingamálastofnun fyrir að ráðskast
með mælingar skipa og segir stofn-
unina endalaust sinna óskum út-
gerða um lægri mælingar. Slikar
staðhæfingar gera ekkert annað
en að upplýsa þá sem þekkja betur
til um þekkingarleysi greinar-
höfundar á málefnum, s.s. skipa-
mælingum, sem hanri sem sjómað-
ur ætti að vera betur upplýstur
um. Brúttólestir segja því ltið um
burðargetu skipa, þótt greinar-
höfundur virðist ætlast til þess að
það eigi að vera samasemmerki
milli brúttólesta og þyngdar burð-
argetu skipa. ísland er aðili að
alþjóðasamþykkt um mælingar
skipa, svo nefndi Oslóar-
samþykkt, sem flest lönd Norður-
Evrópu eru aðilar að. Siglinga-
málastofnun framfylgir einungis
reglum þessarar alþjóðasam-
þykktar við mælingu íslenskra
skipa og er ómaklega verið að vega
að Siglingamálastofnun með að-
dróttunum greinarhöfundar.
Störf loftskeytamanna
á kaupskipum
Greinarhöfundur gerir itrekað-
ar tilraunir til að tengja störf
annarra yfirmanna á kaupskipum
við störf loftskeytamanna og virð-
ist telja að með því megi tryggja
stöðu loftskeytamanna. Fyrrnefnd
samtengins greinarhöfundar, und-
irstrikar hversu eðlileg yfirtaka
annarra yfirmanna á störfum loft-
skeytamannsins er. Sá búnaður
sem fyrirsjáanlegur er á íslenskum
kaupskipum yfir 1600 brl. í Evr-
ópusiglingum, við að loftskeyta-
menn hverfi úr áhöfn með sírita
sem tekur á móti sérstökum upp-
söfnuðum sendingum strand-
stöðva um siglingahættur og að-
varanir til sjófarenda, s.s. „vitabil-
anir, baujubreytingar, veður og
ístilkynningar o.s.frv.” Strand-
stöðvar sem benda út á Navtex
tíðni eru nú um alla Norður-
Evrópu, að meðtöldu íslandi. Slfkir
móttakarar eru fremri loftskeyta-
manninum við þessi störf að þvi
leyti að þeir eru i gangi allan sólar-
hringinn, en ekki aðeins þá átta
tima sem vaktstaða loftskeyta-
mannsins er. Einnig er hluti slíks
búnaðar fjjtrriti (telex) á milli-
bylgju og geta skipstjórnarmenn
haft beint samband um slikan
fjarrita við hefðbundna fjarrita í
landi hvenær sem er sólarhrings-
ins og án milligöngu loftskeyta-
manns. Fyrrnefndum búnaði til
viðbótar eru einnig frekari kröfur
um búnað, að viðbættum þeim
fjarskiptabúnaði sem þegar er í
öllum þorra íslenskra kaupskipa,
s.s. stutt og miðbylgjustöðva, neyð-
armóttökurum, veðurkortamót-
tökurum, gerfitungla eða Loran
staðsetningartækjum, miðunar-
stöðvum o.s.frv. og hefur reynslan
sýnt að á íslenskum skipum undir
1600 brl. i Evrópusiglingum eru
fjarskipti sist verri, né samband
áhafnar við fjölskyldur sinar, en á
þeim skipum sem mönnuð eru
loftskeytamönnum, nema að sfður
sé.
Nidurlag
að lokum vill undirritaður árétta
að störf loftskeytamanna á skipum
á fyrri tímum, áður en hinar miklu
tækniframfarir i fjarskiptum áttu
sér stað og nú eru orðnar að raun-
veruleika, voru nauðsynleg öryggi
skipa og sjófarenda og i óteljandi
tilfellum bæði björguðu mannslíf-
um og sköpuðu eðlileg samskipti
milli skipa og lands. En eins og
áður var drepið á, þá er tilgangs-
laust að berjast á móti tækniþróun
sem felur í sér aukið öryggi skipa
og sjófarenda og sist af öllu með
aðfinnslum á störf þeirra aðila
sem vinna að því að tryggja öryggi
sjómanna. Loftskeytamenn verða
að horfast i augu við þá staðreynd,
sem margir aðrar starfsstéttir
hafa þegar gert, að störf þeirra á
kaupskipum tilheyra brátt fortíð-
inni og vænlegra sé að eiga viðræð-
ur við aðra hagsmunaaðila og yfir-
völd, um hvernig starfandi loft-
skeytamenn geti aðlagast öðrum
skyldum störfum. Það að krefjast
endurvakningar á menntun starfs-
stéttar sem þegar er orðin undir i
tækniþróuninni, eins og greinar-
höfundur gerir, er ótrúleg skamm-
sýni og ábyrgðarleysi og myndi
leiða af sér að ungir menn og konur
væru tældir út i nám sem ekki
gæfu þeim neina starfsmöguleika.
Höfundur er fulltrúi Sambands
íslenskra kaupskipaútgerða.
Forstjóri einnar
stærstu snyrti-
stofu Parísar-
borgar með nám-
skeið á íslandi
SILVIE DelMas, forstjóri einnar
stærstu snyrtistofu Parísarborgar, var
stödd hér 4 landi í síðustu viku og
hélt þá námskeió fyrir snyrtifreóinga
og umboósaóila Sothys snyrtivara.
Snyrtivörur frá Sothys eru unnar
úr lífrænum efnum á rannsóknar-
stofum og eru vörurnar miðaðar við
ýmsar meðferðir sem fram fara á
snyrtistofum t.d. meðferðir á aug-
um, hálsi, brjóstum, til grenningar,
alhliða líkamsmeðferðir og til lag-
færinga á ósléttri húð. Sérfræðing-
ar Sothys bjóða upp á andlitslyft-
ingu með vörum frá fyrirtækinu án
þess að til skurðaðgerðar komi.
Þessi tegund meðferðar hjálpar
húðinni við að halda sínum upp-
haflegu eiginleikum lengur því húð-
in geymir efnin og endurnýtir þau
til lengri tíma þannig að ef hrukka
er komin í undirhúð, hverfur hún á
yfirborðinu.
Vörurnar frá Sothys eru allar
alkohólfríar og hafa þann eiginleika
fram yfir gerviefnaframleiddar
snyrtivörur.
+