Morgunblaðið - 07.11.1985, Side 59
M0RGUNT3LÁÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER1985
59
'H ~ jji
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Úr félagsbeimili Cove Rangers FC.
Styrktarfélag aldraðra á
Suðurnesjum
Kanaríeyjarferð
Fyrirhugaö er á vegum styrktarfélags aldraðra á
Suöurnesjum 3ja vikna ferö til Kanaríeyja 28. janúar
1986 ef næg þátttaka fæst meö Samvinnuferöum
Landsýn. Nánari uppl. veitir: Sólveig Þóröardóttir
í síma 92-1948 og Soffía Magnúsdóttir í síma
92-1709.
6502
Hnitmiðað námskeið í notkun vél-
armálsins6502
LeiAbeinandi:
Tilvaliö námskeiö fyrir Apple II og KjartanJóna*»on
Commodore 64 eigendur sem vilja
nýta möguleika tölvanna til fulls.
FJÖLSKYLDUSTEMMNING
ÍÞRÓTTAFULLTRÚANS
Er það álit íþróttafulltrúans á
Akranesi eins og fram kemur í
viðtali á íþróttasíðu Morgunblaðs-
ins 17. okt. sl. að æskilegt sé fyrir
íslensk íþróttalið að tileinka sér
að öllu leiti það „fjölskylduand-
rúmsloft“ sem ríkir hjá skoska
knattspyrnufélaginu „Cove Ran-
ger FC“ en orðrétt segir, íþrótta-
fulltrúinn: „Við Skagamenn gæt-
um mikið íært af þessu félagi.
(Eflaust á knattspyrnuvellinum.
Innskot mitt.) Við þurfum einmitt
að skapa svona „fjölskylduand-
rúmsloft í kring um liðið okkar."
En hvernig er slíkt andrúmsloft
eins og í félagsheimili Cove Ranger
í Skotlandi og víðar annarsstaðar
erlendis þar sem, eins og fram
kemur í greininni, er opinn „Bar“
(samanber mynd) þar sem boðið
er uppá bjór og jafnvel sterkari
drykki?
Það er ekki að ófyrirsynju að ég
minnist á þessi mál. Eg hef átt
ungmenni, sem náði mjög langt í
sinni grein en hætti m.a. vegna
strangrar skólagöngu en einnig
vegna þess að það samrýmdist
ekki þeim lífsvenjum, sem því
miður alltof margt íþróttafólk,
sem virkilega ætlar að ná árangri,
temur sér þ.e.a.s. einhver sam-
skipti við Bakkus. Ég hef áður
gagnrýnt blöðin fyrir að birta á
íþróttasiðum blaðanna myndir af
íþróttamönnum fagnandi sigrum
með bjór eða vínneyslu, en í lok
greinar minnar er birtist fyrir
nokkru segir: „Er þetta æskileg
fyrirmynd fyrir yngsta íþrótta-
fólkið okkar, sem er að byrja
iþróttaferil sinn og kannski á eftir
að taka við af „köppunum", sem
eru á „toppnum" i dag?“ Fram-
kvæmdastjórn Iþróttasambands
islands svaraði þessari grein minni
á mjög jákvæðan hátt með fyrir-
sögninni „Áfengi og íþróttir fara
ekki saman“. Þeir kváðust þá fyrir
nokkru hafa skrifað öllum sam-
bandsaðilum sínum umburðarbréf,
þar sem þvi er beint til þeirra að
hlutast til um að hamlað verði
gegn þeim ósið að fagna sigri með
víndrykkju."
Enn er öllum i fersku minni
hinir átakanlegu og sorglegu at-
burðir sem gerðust á iþróttaleik-
vöngunum i Bretlandi og Belgiu.
Ekki ætla ég að ræða þá frekar
hér. Allir þekkja þá af fréttum
fjölmiðla, en þá loksins sáu yfir-
völd og íþróttahreyfingin i þessum
löndum, að þörf væri róttækra
aðgerða.
Við íslendingar eigum afburða
duglegt og efnilegt íþróttafólk sem
áreiðanlega á eftir að ná mjög
langt, en til þess að það takist
hverju sinni kostar það reglusemi,
sjálfsögun og stöðuga og stranga
þjálfun. Þetta þrennt fæst m.a. að
kjörorðið sé „Heilbrigð sál í hraust-
um líkama“.
Alltof stór hluti þjóðarinnar heyr
nú harða baráttu við hættulegan og
óvæginn mótherja þar sem Bakkus
er, en nú er hugur í þjóðinni að veita
viðnám í þeirri hörðu keppni. SÁÁ
hefur gert lofsvert átak, sem sannar-
lega ber að þakka og nýlega boðaði
kirkjan aðgerðir í þessu mikla vanda-
máli þjóðarinnar. Allt þetta lofar
góðu.
Ég vona að íslensk íþróttaæska
og forráðamenn hennar megi bera
gæfu til að standa saman í þessari
hörðu baráttu við hlið annara félaga-
samtaka og vinna sigra þar, ekki
síður en á íþróttavellinum. Með þvi
er hún ekki einungis að vinna
sjálfri sér gagn, heldur þjóðinni
allri.
Gamall íþróttaáhugamaður
Þessir hringdu . . .
Heinrich Schtitz
gleymdist ekki
Hringt var frá Akureyri í
sambandi við grein Sigurðar
Þórs Guðjónssonar í blaðinu
20. október þar sem segir að
Heinrich Schötz hafi gleymst
á ári tónlistarinnar.
Þetta segir Akureyringur-
inn að sé ekki rétt, því Kirkju-
kórasamband Eyjafjarðar-
prófastsdæmis hélt söngmót
í Akureyrarkirkju 15. júní,
þar sem Kirkjukór Akureyrar
undir stjórn Jakobs Tryggva-
sonar flutti verk eftir Schiitz
einmitt til þess að minnast
400 ára afmælis hans og
Kirkjukór Stærra-Árskógar-
kirkju undir stjórn Guð-
mundar Þorsteinssonar flutti
einnig verk eftir Heinrich
Schutz. „Við á Norðurlandi
gleymdum honum ekki,“ sagði
Akureyringurinn, „þótt hann
hafi ef til vill gleymst sunnan
fjalla.“
Tími: 18., 20., 26.
og 28. nóvember.
Klukkan 20—23.
Innritun í símum 687590 og 686790.
Tölvufræðslan
Ármúla36, Reykjavik.
nóv.)
Nú semfyrr
bjódum við þjónustu vel
þjálfaðs, sérhæfðs starfsfólks
Birna Sveinsdóttir,
snyrtifræðingur.
Sigríður Gunnarsd., snýrti-
fræðingur og „electrologist“
Undína Sigmundsdóttir, Ingunn Þórard.,
snyrtifræðingur. snyrtifræðingur
og „electrologist".
„Electrologist" þýðir sérmenntuð í varanlegri háreyðingu
(diathermy).
í tilefni dagsins bjóðum við viðskipta-
vinum okkar að líta inn og fá ókeypis
förðun og leiðbeiningar um förðun og
litaval, milli kl. 1 og 6.
Veriö velkomin!
r