Morgunblaðið - 17.11.1985, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985
Sundlaugarnar
í Laugardal:
Leki í nýju
búnings-
klefunum
VATNSLEKI hefur komiö fram
í nýjum búningsklefum viö sund-
laugarnar í Laugardal og hefur
byggingardeild borgarverkfræð-
ings verið falið aö annast rann-
sókn á orsökum lekans. Að sögn
Guömundar Pálma Kristinsson-
ar, forstöðumanns byggingar-
deildar, hafa starfsmenn bygg-
ingardeildar skoðað lekann og
beinist rannsóknin að viðloðun-
arhæfni kíttis á gleri búnings-
klefanna.
í umsögn byggingardeildar
borgarverkfræðings, sem lögð
hefur verið fram á fundi borgar-
ráðs, kemur meðal annars fram,
að rannsóknin hafi leitt í ljós leka
með gluggum niður útveggi svo
og leka með þakniðurföllum. Við
könnun starfsmanna byggingar-
deildar á orsökum lekans hafi
komið í ljós að toppfyllingar með
gleri í húsinu séu gallaðar og
viðloðun þéttiefnisins við glerið
sé engin. Hafi þetta verið staðfest
með prófun.
I framhaldi af þessari rann-
sókn hefur verið leitað aðstoðar
Rannsóknarstofnunar bygging-
ariðnaðarins og Iðntæknistofn-
unar íslands varðandi nánari
rannsókn á umræddu kítti og
jafnframt hvort um hugsanlegan
hönnunargalla geti verið að ræða.
Morgunblaðift/Friðþjófur
Mistókst að ná Urriðafossi á fiot
EKKI tókst að ná Urriðafossi, skipi Eimskipafélagsins, á flot í gærmorgun, en líklega verður gerð önnur tilraun á háflóði í dag, milli kl. 8 og 9 f.h.
Varðskipið Óðinn og drátUrbáturinn Magni settu Uug í skipið og reyndu að draga það á flot, en skipið haggaðist ekki og svo fór á endanum að
Uugin slitnaði.
Urriðafoss slitaði sem kunnugt er frá bryggju á Grundartanga í óveðrinu á föstudagsmorguninn og rak upp í fjöru. Töluverðar skemmdir
urðu á botni skipsins. Sjö skipverjar voru um borð og voru enn um hádegisbilið í gær. Á föstudaginn fór olía að leka úr skipinu og sjór
flæddi inn í vélarúm. Ekki var vitað í gær til þess að frekari skemmdir hefðu orðið á skipinu.
Myndin er tekin á Grundartanga i gærmorgun, rétt áður en taugin slitnaði milli Urriðafoss og dráttarskipanna.
Fiskiþing samþykkir
kvóta til tveggja ára
— leggur til breytingar á friimvarpinu í 7 liðum
Víða varð tjón í óveðrinu.
IDAG
Meðal efnis í blaðinu í dager:
Útvarp/sjónvarp 6
Dagbók 8
Fasteignir . 10-21
Leiðari 32
Reykjavíkurbréf ... 32/33
Myndasögur ... 35/36
Peningamarkaður 38
Raðauglýsingar ...46-53
Fólkífréttum ..26/27b
Dans/bíó/leikhús 28b—31b
Velvakandi 32b/33b
Menning/listir lc—12c
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eyjafjöll:
Tveir bflar
fuku af veginum
Holti, 16. nóvember.
HÉR undir Eyjafjöllum var mjög
mishvasst í þeim veðurham er var
í gær. Óveðursstrengir lágu með
fjöllunum. Ófært var um tíma og
fuku tveir bílar út af þjóðveginum
í Dalshverfi. Að Moldnúpi hjá Jó-
hannesi Árnasyni fauk helmingur
af hlöðuþaki og einnig fauk þar af
þaki gamla íbúðarhússins og víðar
urðu skemmdir.
Fréttaritari.
FISKIÞING samþykkti á fundi sínum á föstudag fiskveiðistefnu, sem í
megindráttum byggist á framkomnu frumvarpi um stjórnun fiskveiða. 23
þingfulltrúa voru fylgjandi þessu en 10 á móti. Ekki kom til þess, að atkvæði
yrðu greidd um tvær aðrar tillögur, sem fram komu á þinginu um stjórnun
fiskveiða, tegundamark og frjálsar veiðar með sóknarstöðvun og veiðistýringu
í aðrar físktegundir en þorsk.
Athugasemdir og eða breytingar
í 7 liðum við framkomið frumvarp
um stjórnun fiskveiða voru jafn-
framt samþykktar á þinginu og
fara þær hér á eftir:
Gildistími verði tvö ár í stað
þriggja.
I 9. grein er gert ráð fyrir veiði-
stöðvun smábáta á línu- og hand-
færaveiðum frá 15. nóvember til 9.
febrúar. í stað þess komi stöðvun
frá 15. desember til 15. janúar.
Sama regla um veiðileyfi nýrra
fiskiskipa verði látin gilda jafnt um
fiskiskip undir 10 lestsum og yfir
10 lestum, hafi skipið ekki verið
afhent kaupanda fyrir gildistöku
laganna.
Gæzluvarðhald íslendings framlengt um átta vikur f Noregi:
Sakaður um morðhótanir auk
tilræðis við lögreglumann
6sló, 16. nóvember. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblatains.
GÆSLUVARÐHALD íslendingsins, sem situr í fangelsi í Ósló sakaður um
morðtiiræði við lögregluþjón, hefur nú verið framlengt um átta vikur. Neitar
hann enn að segja nokkuð við lögregluna, sem grunar hann um að hafa
framið fleiri alvarlega glæpi.
íslendingurinn var handtekinn
7. október sl. og settur í gæsluvarð-
hald í átta vikur og þegar það rann
út 12. nóvember sl. var það fram-
lengt um átta vikur að auki. Það
voru tveir lögreglumenn, sem
komu að íslendingnum við innbrot
og þegar annar þeirra ætlaði að
taka hann, dró hann upp byssu og
reyndi tvisvar að skjóta á lögreglu-
manninn. Var byssan hlaðin en af
einhverjum ástæðum riðu skotin
ekki af. Að sögn Per Carlssons,
lögregluforingja í Ósló, er enn ekki
ljóst hvernig á því stóð.
íslendingurinn er sakaður um
marga glæpi, morðtilraun, morð-
hótanir við margt fólk, ólöglegan
vopnaburð og fíkniefnabrot. Þegar
hann var handtekinn var hann
Framsalsréttur á aflakvóta
þeirra skipa, sem ekki eru gerð út,
verði takmarkaður verulega.
Rýmkuð verði ákvæði í 7. grein
þannig að hægt sé að vinna sig
fljótar út úr viðmiðunarárunum
þremur.
Leitast verði við að leiðrétta
misvægi í þorskaflahámarki togara
á svæði 1 og 2.
Fiskiþing telur æskilegt að við
gerð reglugerðar um sóknarmark,
verði möguleikar þeirra báta, sem
stunda þorskveiðar með netum,
gerðir aðgengilegri með einhverri
fjölgun sóknardaga.
í umræðum um fiskveiðistefnuna
komu fram fleiri tillögur um breyt-
ingar á frumvarpi sjávarútvegs-
ráðuneytisins, en þær voru allar
felldar. Þar má nefna tillögu um
úthlutun aflakvóta til fiskvinnsl-
unnar, gildistíma laganna í eitt ár
og um að framsal aflakvóta skipa,
sem ekki eru gerð út á botnfiskveið-
ar, verði takmarkað verulega.
Albert Guðmundsson:
„Hlynntur að rann-
sókn fari fram“
með nokkuð af amfetamíni í fórum
sínum og 80.000 nkr. og telur lög-
reglan, að hann hafi stundað eitur-
lyfjasölu og hugsanlega eiturlyfja-
smygl. Hefur Islendingnum áður
verið vísað frá Noregi og Dan-
mörku fyrir fíkniefnabrot.
Islendingurinn neitar enn að
ræða nokkuð við lögregluna og
gerir það rannsókn málsins erfiða.
Nokkur timi mun því líklega líða
áður en mál hans verður tekið fyrir
í rétti.
ALBERT Guðmundsson iðnaðarráð-
herra sagði í utandagsskrárumræðu á
Alþingi a fímmtudag að hann teldi
nauösynlegt að fram færi rannsókn á
viðskiptum Hafskips og Útvegsbank-
ans á þeim tíma sem hann gegndi
stjórnarformennsku í báðum fyrir-
tækjunum til þess að fá úr því skorið
hvort þær fullyrðingar sem fram komu
í máli einstakra þingmanna og beind-
ust gegn honum, ættu við rök að styðj-
ast. Morgunblaðið spurði Albert, hvers
konar rannsókn hann hefði haft í
huga, er hann sagði þetta.
„Því skipti ég mér ekki af. Það
þarf bara að staðreyna hvort þessar
fullyrðingar eigi við rök að styðjast.
Ég hef ekki beðið um slíka rann-
sókn, en er því hins vegar fyllilega
hlynntur að slík rannsókn fram,“
sagði Albert.
Albert sagði að fram á mitt sl. ár
hefði allt verið í mjög góðu lagi
hvað varðar rekstur Hafskips.
Gengislækkun á sl. ári, missir flutn-
inga fyrir varnarliðið, verðfall á
kaupskipum og mánaðarverkfáll
BSRB væru þeir þættir sem hefðu
gert það að verkum að allt hefði
farið úr böndunum hjá Hafskip.
Ekki væri við stjórnendur fyrirtæk-
isins að sakast, heldur væri hér um
utanaðkomandi áhrif að ræða sem
stjórnendur fyrirtækisins hefðu alls
ekki ráðið við.
Albert var spurður hvaða breyt-
ingar hefðu orðið á skuldastöðu
Hafskips og Útvegsbankans á með-
an hann var stjórnarformaður í
báðum fyrirtækjunum:
„Ég hef ekkert með slíkar upplýs-
ingar að gera. Ég ræð engu í félag-
inu og hef ekki komið nálægt stjórn-
un þar síðan ég varð ráðherra, en
vissulega myndi ég ekkert hafa við
það að athuga að slík könnun færi
fram. Miklu frekar myndi ég segja:
Haldið þið bara áfram, og kannið
allt sem þið getið kannað í þessu
sambandi."