Morgunblaðið - 17.11.1985, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÖVEMBER1985
fslenskar fegurðardrottningar:
Hversu langt hafa
þær komist erlendis?
Guðrún Bjarnadóttir varð fegurðar-
drottning íslands árið 1962. Hún
varð í þriðja sæti í keppninni „Ung-
frú Norðurlönd", númer fimm í
Evrópukeppninni og sigraði síðan í
Miss Intcrnationalkeppninni sem
haldin var á Long Beach árið eftir.
Henný Hermannsdóttir sigraði í táningakeppni Mis Young International árið
1970 sem haldin var í Tókýó.
Ungfrú Heimur, Hólmfríður Karlsdóttir, er hér við hlið unnusta síns Elfars
Rúnarssonar laganema í Háskóla íslands.
„Var á Breiðholtsbraut-
inni er ég heyrði úrslitin“
— sagði Elfar Rúnarsson
„Ég frétti fyrst um sigur Hófíar kl. 10.20 á fimmtudagskvöld en þá
tilkynnti Svavar Gests það í þætti sínum á rás 2 og var ég að aka niður
Breiðholtsbrautina á bflnum á leið heim,“ sagði Elfar Rúnarsson unnusti
nýkrýndrar Ungfrú heims, Hólmfríðar Karlsdóttur. Blaðamaður Morgun-
blaðsins náði af honum tali á föstudagskvöld en hann var þá á þönum
við að pakka niður því morgunin eftir ætlaði hann að fljúga til London
ásamt foreldrum Hólmfríðar í boði Flugleiða.
Elfar sagðist hafa sofið rúm- spenntur vegna velgengni unn-
María Guðmundsdóttir komst
undanúrslit Miss árið 1961.
Thelma Ingvarsdóttir hreppti fyrsta
sæti íUngfrú Norðurlandakeppninni
árið 1963.
Sif Sigfúsdóttir sigraði í keppninni
Ungfrú Norðurlönd sem fram fór í
lega klukkutíma nóttina eftir
krýninguna. Hann bar óveðrinu
við sem gekk yfir landið en sagði
að auðvitað hefði hann líka verið
u-
cö
'©
'Cö
a
í meira en 20 ár hefur lceland Review komið lesendum sínum á óvart.
Landið, fólkið, og menning okkar. Nú átt þú leik. Komdu vinum þínum
og viðskiptamönnum í útlöndum á óvart með gjafaáskrift að Iceland
Review. Kærkomin gjöf, sem treystir tengslin.
Við sendum gjafakort og tilkynnum nafn gefenda Síðan berast blöðin
eitt af öðru allt næsta ár. Gjöf, sem berst aftur og aftur og er alltaf ný.
Hvaðerbetra?
Sértilboð til nýrra áskrifenda: Við sendum allan árganginn 1985, þú
greiðir aðeins sendingarkostnaðinn, kr. 220,-
S
S
o
Gjafaáskrift 1986
□ Undirritaöur kaupir_ gjafaáskrift(ir) aö lceland Review 1986 og
greiöir kr. 950 pr. áskrift. Sendingarkostnaöur um allan heim innifal-
inn.
□ Argangur 1985 veröi sendur ókeypis til viötakanda(enda) gegn
greiöslu sendingarkostnaöar kr. 220 pr. áskrift.
Tilboö þetta gildir til 31. jan. 1986. Áskrift öðlast gildl þegar greiösla
berst.
□ VISA □ Eurocard
Rennurút.
Undirskrtft
Nafnáskrifanda
Sími
Heimilisfang
Nafn móttakanda
Heiminsfang
Nöfn annarra móttakenda fylgja meö á ööru blaöi.
Sendiö til lceland Review, Höföabakka 9, Reykjavík,
eöa hringiö í síma 84966.
Iceland Review
Hóföabakka 9, sími 84966, Reykjavík.
ustu sinnar. „Ég vissi að hún
myndi standa sig vel en að sigra
hafði mig ekki órað fyrir og eftir
að hafa horft á hluta keppninar
í sjónvarpinu í kvöld, fannst mér
hún standa sig frábærlega. Hún
hélt jafnvæginu fullkomlega og
kippti sér lítið upp við tíðindinn
þó hún hafi auðvitað verið í sjö-
unda himni.
Ég get ekki annað en verið án-
ægður fyrir hennar hönd þó svo
að ég viti nú þegar að ég fæ lítið
að sjá hana á komandi ári. Ég er
viss um að hún muni standa sig
vel sem „Ungfrú heimur" og hef
ég sjaldan kynnst neinni mann-
veru sem ég treysti betur en ein-
mitt henni. Hún er svo yfirveguð
og laus við alla sýndarmennsku
að ég er nær viss um að hún
kemur aftur úr þessu ævintýri
með þann sama persónuleika og
hún nú hefur. Jafnvel er henni
trúandi til að fara á sinn gamla
vinnustað til barnanna, sem hún
ann svo mjög.
Ég reyndi allt til að fylgjast
með keppnini beint. Fyrst fór ég
á Hótel Holt til að vita hvort leið
væri að ná keppninni gegn um
kapalkerfið þar án árangurs. Síð-
an hafði ég samband við Ara Þór
Jóhannesson, sem nýlega setti
upp skerm hjá sér í Breiðholtinu
til móttöku á erlendu efni. Hann
bauð mér í heimsókn og var þar
fleira fólk fyrir sem hugðist ætla
að horfa á beina útsendingu frá
keppninni. Við hinsvegar náðum
engu nema bíómyndum."
Elfar sagðist ekki vita hvað
framtíðin bæri í skauti sér. Eitt
ár getur auðvitað verið langur
tími þegar biðin er annars vegar.
„Hólmfríður verður auðvitað
mjög upptekin. Ég er á þriðja ári
í laganámi í Háskóla íslands svo
ég veit ekki hvort við sjáumst
mikið á komandi mánuðum. Við
verðum að ræða það.“
Leiðrétting:
Basar kvenfé-
lagsins er í dag
f TILKYNNINGU í Morgunblað-
inu í gær um basar og kaffisölu
Kvenfélags Kristskirkju í Landa-
kotsskóla var ranglega sagt að
basarinn væri í gær, laugardag-
Hið rétta er að hann er kl. 15.00
í dag, sunnudag. Morgunblaðið
biðst velvirðingar á þessum mis-
tökum.