Morgunblaðið - 17.11.1985, Page 5
í ,T( aaOAOUMHÖR ,qi(lA,!8HU0íl0M
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985
Þing Landssambands íslenzkra
verzlunarmanna:
Launaskrið ger-
ir fullkomna sam-
stöðu erfiða
KAUPMÁTTARRÝRNUN launþega-
hópa innan ASÍ og LÍV hefur orðiö
frá 9,4 prósentum og upp í 26,5 pró-
sent frá því á síðari hluta ársins
1982 og fram á þennan dag. Þetta
kom fram í erindi sem Björn Björns-
son hagfræðingur ASÍ flutti á 15.
þingi LIV sem stendur yfír á Hótel
Esiu.
I erindi Björns kom fram, að
kaupmáttarrýrnun hæstu taxta-
hópa í báðum samböndum hefur
orðið 26,5 prósent. Hjá konum í
afgreiðslustörfum nemur rýrnunin
21,7 prósentum, körlum í sömu
störfum 17,1 prósenti, konum á
skrifstofustörfum 13,9 prósentum
og körlum í sömu störfum 9,4 pró-
sentum.
Sú kjarabarátta sem í vændun
er setti svip sinn á erindi Björns
svo og erindi Ásmundar Stefáns-
sonar forseta ASÍ. Þannig ítrekaði
Björn, að meðaltalstölur sem
gjarnan væru notaðar væru úr öllu
samhengi við raunveruleikann
hvað varðaði fjölmarga launþega.
Sagði Björn að meðallaun kvenna
í afgreiðslustörfum væru 24.000
krónur á mánuði, karla í sömu
störfum 29.000 krónur, kvenna í
skrifstofuvinnu væru 29.000 krón-
ur og karla í sömu störfum væru
40.000 krónur. „Þetta eru allt
meðaltalstölur og þær sýna að
þessir taxtar eru úr öllu samhengi
við það umhverfi sem fólk starfar
í. Þó er hópur fólks sem býr við
þessa taxta," sagði Björn.
Ástæðan fyrir því að ekki mætti
styðjast um of við taxtatölur væri
„launaskrið", eða yfirborganir sem
fjölmargir launþegar fá ofan á sín
laun samkvæmt taxta. „Karlar fá
frekar yfirgreiðslur en konur,
skrifstofufólk frekar en af-
greiðslufólk og launþegar á höfuð-
borgarsvæðinu frekar en laun-
þegar úti á landi,“ sagði Björn og
rakti síðan hvað hugsanlega væri
til ráða. Hugmyndir hans um það
voru t.d. að minnka launahækkan-
ir til handa þeim sem hefðu yfir-
greiðslur, semja um sérhækkanir
fyrir þá launþega sem fá ekki yfir-
greiðslur eða að hafa sveigjanleika
í tímasetningu launahækkanna.
Það væru hins vegar vankantar á
þessum aðgerðum. í fyrsta lagi
væri engin trygging fyrir því að
þeir sem njóta nú yfirgreiðslna
væru öruggir með þær alltaf og
því gætu þeir setið eftir ef þeir
misstu þær. I öðru lagi væru yfir-
greiðslur oft einstaklingsbundnir
samningar og ýmsir væru trúlega
ekkert of fúsir til að ljá heildinni
Þorsteinn Gísla-
son endurkjörinn
fiskimálastjóri
ÞORSTEINN Gíslason var á Fiski-
þingi endurkjörinn fiskimálastjóri til
næstu fjögurra ára. Jafnframt var
Jón Páll Halldórsson endurkjörinn
varaforseti til jafnlangs tíma. Var
kjör þeirra beggja staófest með lófa-
taki í þinglok.
í stjórn Fiskifélagsins til næstu
fjögurra ára voru eftirtaldir kosn-
ir: Frá A-deild Guðmundur Run-
ólfsson, Ágúst Einarsson, Eiríkur
Tómasson, Hilmar Bjarnason,
Hjörtur Hermannsson, Kristján
Ásgeirsson og Guðjón A. Kristj-
ánsson. Frá B-deild Eyjólfur ísfeld
Eyjólfsson, Sigfinnur Karlsson,
Tómas Þorvaldsson og Árni Ben-
ediktsson.
Á þinginu var ennfremur kosin
milliþinganefnd þriggja manna til
að vinna að endurskoðun laga
Fiskifélagsins. Hana skipa Hilmar
Bjarnason, Jón Páll Halldórsson
og Tómas Þorvaldsson.
lið. Slíkt græfi hins vegar undan
sameinuðu átaki launafólksins og
tvístraði því.
f ræðu á þinginu sagði Ásmund-
ur Stefánsson að ákveðnar kröfur
yrði að gera til að tryggja hags-
muni fólks. Aðalkröfurnar hljóð-
uðu upp á hærri laun, jafnari
tekjuskiptingu, réttlæti og aukið
öryggi. Lagði hann áherslu á að
krónutöluhækkun ein sér hefði
lítið að segja ef henni fylgdi ekki
traust kaupmáttartrygging.
Keppa bæri að siíku og þyrfti að
ganga tryggilega frá ýmsum liðum
til þess að það gæti orðið. T.d. yrði
að stöðva verðhækkanir í landinu,
koma yrði í veg fyrir að stjórnvöld
Frá þingi LÍV, Björn Þórhallsson, formaóur Landssambands verzlunarmanna og varaforseti ASÍ, og Magnús L.
Sveinsson, formaöur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, fremst til hægri á myndinni.
og atvinnurekendur veltu kaup-
hækkunum umsvifalaust út í verð-
lagið. Einnig yrði að stilla saman
seglin í hópnum, efla samstöðuna,
og til þess að það væri framkvæm-
anlegt yrði að takast á við yfir-
greiðsluvandamálið.
Ásmundur gerði einnig bágt
ástand í húsnæðismálum að um-
talsefni og sagði að þær mætti
„rekja til hinnar geigvænlegu
kjaraskerðingar sem yfir hefur
dunið og endurspegla hins vegar
þau rangindi og ójöfnuð, sem beint
má rekja til yfirdrifinnar vaxta-
stefnu og hreinnar okurstarfsemi
sem flokkast þó ekki undir lög-
brot“.
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA í REYKJAVÍK
dagana 24. og 25. nóv. 1985
HULDA VALTÝSDÓTTIR
borgarfulltrúi
Við hvetjum þig til að setja Huldu í öruggt sæti á
prófikjörslistanum vegna dýrmætrar reynslu hennar,
Qölþættra hæfileika og nútímalegra viðhorfa.
Stuðningsmenn
Kosningaskrifstofa Lágmúla 9, 2.h. Símar: 36323 og 37595
Verið velkomin