Morgunblaðið - 17.11.1985, Page 7

Morgunblaðið - 17.11.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985 7 Árbókin 1984 Út er komið hjá Erni og Örlygi sjötta bindiö í árbókaflokknum HV’AÐ GERÐIST Á ÍSLANDI og tekur þetta bindi til ársins 1984. Höfundur er Steinar J. Lúðvíksson og mynda- ritstjóri Gunnar Andrésson, en flest- ir kunnustu fréttaljósmyndarar þjóð- arinnar eiga myndir í bókinni. í fréttatilkynningu útgefanda segir: „HVAÐ GERÐIST Á ÍSLANDI geymir ítarlega samtímasögu. Fjallað er um allt það helsta sem gerðist á tslandi og í íslensku þjóð- lífi á árinu og fjölmargar myndir eru í bókinni. Bókin er því í senn til ánægju þeim sem ýmist tóku þátt í viðburðinum, sem sagt er frá, eða fylgdust með þegar þeir gerðust og jafnframt verður hún ómetanlegt heimildarrit þegar tímar líða og öðlast æ meira gildi með árunum. Þegar spurt verður um HVAÐ GERÐIST A ÍSLANDI 1984? í framtíðinni þá er svarið að finna í þessari bók. Atburðir eru flokkaðir eftir eðli sínu, þannig að auðvelt er að finna það sem leitað er að. Höfundur bókarinnar, Steinar J. Lúðvíksson, hefur fengið lof gagnrýnenda fyrir skýra og glögga uppsetningu efnis og næmt mat á efnisvali." Efni bókarinnar er þannig raðað eftir eðli atburðanna og í tímaröð: Alþingi — stjórnmál; Atvinnu- vegirnir; Bjarganir — slysfarir; Bókmenntir — listir; Dóms- og sakamál; Efnahags- og viðskipta- mál; Eldsvoðar; Fjölmiðlar; fþrótt- ir; Kjarna- og atvinnumál; Menn og málefni; Náttúra landsins og veðurfar; Skák og bridge; Skóla- Aftakaveður í Borgarnesi Borgarnesi, 15. nóvember. MIKIÐ hvassviðri gerði í Borgarnesi og nágrenni aðfaranótt föstudags. Ýmislegt lauslegt byrjaði að fjúka um klukkan fjögur um nóttina, en undir morgun var komið aftakaveður og þá fóru þakplötur að fjúka af húsura, rafmagnsstaurar brotnuðu og kyrr- stæðir bflar fuku til á bflastæðum. Annasamt var hjá slökkviliðinu í Borgarnesi, björgunarsveitinni, starfsmönnum hreppsins og lögreglu við hjálpar- og björgunarstörf frá því um morguninn og þar til að veðrinu slotaði um níuleytið um kvöldið. Miklar eignaskemmdir urðu í þessu veðri sem er eitt það almesta sem gert hefur í Borgarnesi um árabil. Helstu skemmdirnar urðu á húsum, er þakjárnið fauk af þeim eða á þau. Einnig skemmdust bílar er járnplötur fuku á þá. Til marks um veðurhæðina valt fólksbifreið á hliðina á brúnni yfir í Brákarey og gekk þak bifreiðarinnar niður og handrið brúarinnar bognaði, en kom í veg fyrir að bifreiðin fyki út í Brákarsundið. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, var í bílbelti og hlaut aðeins minniháttar skrámur. Einnig gjöreyðilagðist hjólhýsi ofan við Borgarnes og gamlir hænsna- og hestakofar tókust á loft og tættust í sundur. Þá brotn- uðu rúður í allmörgum húsum. TKÞ. Garðabær: Ók á ljósa- staur og slasað- ist alvarlega TVEIR bræður slösuðust, annar al- varlega, er bifreið þeirra lenti á Ijósa- staur í Garðabæ aðfaranótt fóstu- dagsins síðastliðinn. Slysið átti sér stað við biðskýlið hjá Asgarði og mun bifreiðin hafa rifnað svo að segja í tætlur og gjöreyðilagst við áreksturinn. Bræðurnir, sem voru tveir í bíln- um, voru báðir fluttir á slysadeild og var annar þeirra, sá sem ók, talinn alvarlega slasaður og var þegar gerð á honum aðgerð í brjóstholi. Steinar J. Lúðvíksson og menntamál og Úr ýmsum átt- um. Bókin HVAÐ GERÐIST Á ÍS- LANDI 1984 er sett og prentuð í prentstofu G. Benediktssonar en bundin hjá Arnarfelli. Kápu hann- aði Sigurþór Jakobsson. Könnun Verðlagsstofnunar í matvöruverslunum um allt land: Verðlag 5,9% hærra á Vestfjörð- um en höfuðborgarsvæðinu Verðlag í matvöruverslunum á landsbyggðinni er að meðaltali 2,5% hærra en á höfuðborgarsvæðinu, 1,6% hærra ef aðeins er borið saman verð á matvörum. Verðlag á Vestfjörðum er 5,9% hærra en á höfuðborgarsvæð- inu. Þetta kemur fram í 11. tölublaði Verðkönnunar sem verðlagsstofnun gefur út, en þar er greint frá verðlags- könnun sem stofnunin gerir reglulega á 370 vörum í um hundrað matvöru- verslunum víðs vegar um landið. Sé litið á einstaka byggðarkjarna á landinu, kemur í ljós að verðlag á Melrakkasléttu (Kópaskeri, Þórs- höfn og Raufarhöfn) er 6,2% hærra en í Reykjavík og 5,3% hærra en á Húsavík. Verðlag á ísafirði, stærsta þéttbýlisstaðnum á Vestfjörðum, er 3,9% hærra en á Patreksfirði og 3% hærra en í Bolungarvík. Á Seyðis- firði er verðlag í matvöruverslunum hins vegar 3,4% hærra en á Egils- stöðum. Þá vekur það athygli í könnuninni að verðlag í Keflavík er að meðaltali hið sama og á höfuð- borgarsvæðinu. Verðlagsstofnun segir ýmsar skýringar vera á þessum verðmun milli landshluta og byggðarlaga, en þær sem þyngst vega að mati stofn- unarinnar eru meðal annars þær að verslanir séu smáar á ýmsum minni stöðum, þær séu því hlutfallslega dýrari í rekstri, hafi lítinn markað og þurfi hærri álagningu en stærri verslanir. Ein skýringin er sú að fjöldi verslana á sama stað og ná- lægð stórmarkaðar hvetji til verð- samkeppni og leiði til lækkunar á vöruverði. Þá vegur flutningskostn- aður mikið í verði nokkura vöruteg- unda, einkum þeirra sem eru þungar eða rúmfrekar miðað við þyngd. Nokkrar vörutegundir reyndust að meðaltali ódýrari á landsbyggðinni, sérstaklega fiskur og fiskvörur. KAUPMANNAHOFN 13.230 STOKKHÓLMUR 15.400 OSLÓ 12.320 GAUTABORG 13.350 LÚXEMBORG 11.620 Jólafargjöldin miöast vió brottför í desember. Hámarksdvöl 1 mánuóur Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SIMAR 27077 & 28899 SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SlMAR 21400 & 23727

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.