Morgunblaðið - 17.11.1985, Side 22
22
Þegar Yurchenko sneri
baki við fyrrverandi
húsbændum sínum í
sumar unnu Bandaríkja-
menn mikinn sigur i
hugmyndafræðilegu
stríði sínu og Rússa og
þeir voru sigri hrósandi. Nú hefur sigur-
víma þeirra snúizt upp í reiði og ráðaleysi.
Leyniþjónusta þeirra hefur beðið auðmýkj-
andi ósigur og áhrifanna getur gætt i
mörg ár.
Þess hefur enn ekki verið krafizt að
yfirmaður CIA, William Casey, verði settur
af, en reiður öldungadeildarmaður lét svo
um mælt í sjónvarpi að ef þetta hefði gerzt
á Bretlandi mundi yfirmaður brezku leyni-
þjónustunnar biðjast lausnar.
Málið hefur vakið mikla reiði í leyniþjón-
ustunefnd öldungadeildarinnar. CIA hefur
verið krafin um skýrslu um málið og
skýrslu verður skilað innan hálfs árs.
Alríkislögreglan FBI, sem keppir við CIA
á sviði gagnnjósna og tók þátt í að yfir-
heyra Yurchenko, mun hafa móðgazt, því
að leyniþjónustunni láðist að tilkynna að
hann væri sloppinn úr haldi. Leyniþjónusta
bandaríska utanríkisráðuneytisins hefur
einnig látið í ljós gremju og krafizt skýr-
inga.
Starfsmönnum Hvíta hússins virðist
ekki hafa verið sagt frá flótta Yurchenkos
fyrr en tilkynnt var um hann opinberlega
og þeir hafa reynt að leiða þetta dularfulla
mál hjá sér að mestu.
ÚTSENDARI?
Leyniþjónustustarfsmenn hafa fúslega
viðurkennt að þeir viti ekki hvernig í öllu
liggur, en ýmsar kenningar eru á lofti.
Sumir þingmenn, sem hafa fengið upp-
lýsingar um Yurchenko, segja að hann
hafi leikið tveim skjöldum og KGB hafi
sent hann til Vesturlanda til að koma
Bandaríkjamönnum í bobba.
Þeir segja að tilgangurinn geti hafa verið
sá að villa um fyrir Bandaríkjamönnum
rétt fyrir fund Ronalds Reagan forseta og
sovézka kommúnistaleiðtogans Mikhails
Gorbachev í Genf. Tilgangurinn geti einnig
hafa verið sá að auðmýkja bandarísku
leyniþjónustuna og valda sundrungu innan
hennar. Sé þetta rétt lauk Yurchenko
hiutverki sínu með glæsibrag þegar hann
birtist fyrir framan sjónvarpsmyndavélar
i sovézka sendiráðinu og tilkynnti að hann
vildi snúa aftur til Sovétríkjanna.
Reagan forseti virtist sammála þessu
áliti. Hann sagði í viðtali að ekki væri
hægt að útiloka þann möguleika að Yurch-
enko hefði tekið þátt í ráðagerð, sem hefði
miðað að því að valda Bandaríkjamönnum
erfiðieikum fyrir fundinn í Genf. Hann
bætti því við að Yurchenko hefði ekki veitt
nýjar eða athyglisverðar upplýsingar.
Ef um slíka ráðagerð var að ræða má
vera að úkraínski sjómaðurinn Miroslav
Medvid, sem stökk tvívegis af rússnesku
skipi í Mississippi, hafi verið þátttakandi
í henni.
Menn hafa ekki talið að málið hafi alvar-
leg áhrif á samskipti austurs og vesturs
fyrir fundinn, en þó álitið hugsanlegt að
erfiðara verði fyrir forsetann en ella að
bera upp mannréttindamál.
LIÐHLAUPI?
Flestir hafa hallazt að því að Yurchenko
hafi í raun og veru svikizt undan merkjum,
en fyllzt þunglyndi og vonleysi þegar hann
var yfirheyrður og ákveðið að snúa aftur
til Sovétrikjanna.
CIA sagði að Yurchenko hefði verið bú-
inn að fá sig fullsaddan á konu sinni,
börnum sínum og starfi sínu í KGB.
Vestanhafs varð hann mjög niðurdreg-
inn þegar ástarsambandi hans og eigin-
konu sovézks stjórnarerindreka lauk. Um
leið fylltist hann ugg út af blaðafréttum
um upplýsingar hans og mikilvægi.
Fréttir hermdu að ástkona Yurchenkos
hefði fleygt sér út um glugga á 27. hæð í
fjölbýlishúsi í Toronto. Kanadíska leyni-
þjónustan og CIA leyfðu honum að fara
til Kanada í september að hitta konuna
og sagt var að hún hefði hafnað honum
og neitað að búa með honum vegna þess
að hann hafði hlaupizt undan merkjum.
En kanadíska leyniþjónustan og utan-
ríkisráðuneytið i Ottawa hafa borið til
baka að konan, sem Yurchenko hitti, hafi
verið konan, sem fleygði sér út um
gluggann. Sú síðarnefnda hét Svetlana
Dedkova og var 47 ára gömul og gift
sovézkum viðskiptafulltrúa.'
Talsmaður kanadísku leyniþjónustunnar
viðurkenndi að það hefði verið „furðuleg
tilviljun" að frú Dedkova fyrirfór sér
daginn eftir að Yurchenko ákvað að snúa
heim. En hann sagði að allar hugmyndir
um að samband væri á milli þessara at-
burða væru út í hött. Joe Clark utanríkis-
ráðherra og yfirvöld í Washington tóku í
sama streng.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985
Yurchenko í sorézka sendiráðinu í Washington eftir flóttann þangad.
LÉT
CIA
GABBA
SIG?
FURÐULEGT mál KGB-mannsins Vita-
lys Yurchenko, sem talið var að hefði
útvegað Bandaríkjamönnum mikilvægar
upplýsingar eftir að hann sveikst undan
merkjum í Róm 1. ágúst, en leitaði hælis
í rússneska sendiráðinu í Washington á
dögunum, hefur sett Bandaríkjamenn í
mikinn vanda. Bandaríska leyniþjónust-
an CIA hefur orðið fyrir alvarlegu áfalli
og sennilega verða gerðar gagngerar
breytingar á henni.
Los Angeles Times segir að ástkona
Yurchenkos hafi verið Valentína Yeresk-
ovsky, eiginkona aðalræðismanns Rússa í
Montreal. Hún mun nú vera komin til
Moskvu.
Síðan hefur því verið haldið fram að
sagan um ástkonu Yurchenkos í Kanada
hafi verið tilbúningur. Kanadískar leyni-
þjónustuheimildir herma að konan, sem
CIA leyfði honum að hitta, hafi verið erind-
reki KGB og sagt honum hvenær og hvern-
ig hann ætti að snúa aftur til Sovétríkj-
anna. Samkvæmt þessum heimildum var
þetta liður í þaulskipulagðri ráðagerð.
„RÆNT í RÓM“
Yurchenko segir sjálfur svo frá að sér
hafi verið rænt í Róm og komið til Banda-
ríkjanna, þar sem hann hafi verið yfir-
heyrður í „þrjá hræðilega mánuði" á einka-
heimili skammt frá Fredericksburg og
aðalstöðvum CIA í Langley í Virginíu.
Hann sagði að sér hefðu verið gefin
eiturlyf meðan á yfirheyrslunum stóð og
að hann hafi sætt pyntingum. Hann gekkst
undir lygamælingu og stóðst prófið „með
prýði" að sögn bandarískra embættis-
manna. Sjálfur neitaði hann því að hann
hefði ljóstrað upp sovézkum leyndarmálum
af fúsum vilja, en bætti þvi við að hann
væri ekki viss um hvort hann hefði veitt
leynilegar upplýsingar, þar sem honum
hefðu verið gefin eiturlyf.
Yurchenko kvaðst hafa snætt kvöldverð
með yfirmanni CIA, William Casey, í
aðalstöðvum CIA, en sagðist ekki muna
vel eftir samtali þeirra, þar sem hann hefði
aldrei verið undir eins sterkum áhrifum
eiturlyfjaogþá.
Teikning, sem tímaritið Newsweek birti
af þessum fundi, jók ugg Yurchenkos út
af þeirri miklu athygli, sem mál hans fór
að vekja, og birting hennar átti þátt í
þeirri ákvörðun hans að snúa aftur. Honum
gramdist líka að CIA afhenti honum bréf
frá fréttamönnum, sem vildu ræða við
hann. Hann óttaðist m.a. að umfjöllunin
um málið gæti bitnað á fjölskyldu hans í
Sovétríkjunum.
VÍSAÐÁBUG
Staðhæfingum Yurchenkos var vísað á
bug og þær báru raunar keim af sovézkum
áróðri. Bandarískir embættismenn sögðu
að saga hans væri uppspuni frá rótum:
hann hefði hlaupizt undan merkjum af
fúsum vilja og notið allra venjulegra
mannréttinda þegar hann dvaldist í
Bandaríkjunum.
Saga Yurchenkos um illa meðferð virðist
ekki trúleg í ljósi þess hve auðvelt honum
reyndist að laumast inn í sovézka sendiráð-
ið. Lítið eftirlit var haft með honum, hann
var tiltölulega sjálfráður og mætti óvenju-
mikilli gestrisni. CIA tekur yfirleitt þannig
á strokumönnum nú orðið til að auka trú
þeirra á stjórnkerfið í Bandaríkjunum. Þó
virðist starfsmönnum CIA ekki hafa tekizt
að ná góðu sambandi við Yurchenko.
Ekki hefur verið borið á móti þeirri
fullyrðingu Yurchenkos að honum hafi
verið boðin greiðsla að upphæð ein milljón
dala, 62.000 dollara greiðsla á ári það sem
eftir væri ævinnar og húsgögn að verðmæti
48.000 dollarar.
Samkvæmt fráögn bandarískra leyni-
þjónustustarfsmanna um flótta Yurch-
enkos spurði hann starfsmann CIA, sem
snæddi með honum kvöldverð 2. nóvember
i frönsku veitingahúsi, Au Pied De Cochon,
skammt frá sovézka sendiráðinu: „Hvað
mundirðu gera ef ég gengi út. Mundirðu
skjóta mig?“
„Nei, þannig förum við ekki með stroku-
menn," svaraði CIA-maðurinn.
Yurchenko fór frá borðinu og sagði: 2Ég
kem aftur eftir 15 til 20 mínútur. Ef ég
kem ekki aftur verður það ekki þér að
kenna." Síðan gekk hann út og lét sig
hverfa í mannfjöldann. Seinna hringdi
hann í veitingahúsið og sagði CIA-mannin-
um að hann fengi bráðlega að sjá sig í
sjónvarpi.
BÚÐARFERÐ
Eftir heimkomuna staðfesti Yurchenko
að nokkru leyti frásögnina um „flóttann".
Laugardaginn 2. nóvembver kvaðst hann
hafa beðið einn þriggja manna, sem gættu
hans, að fara með sig í stórverzlun, þar
sem hann sagðist hafa keypt frakka, hatt
og regnhlíf, sem hann ætlaði að nota til
að breyta útliti sínu. Hann kallaði vörðinn
Tom Hannah og sagði að hann hefði verið
„yngri en hinir og virzt skammast sín dálít-
ið fyrir hlutverk sitt“.
Yurchenko kvaðst hafa hringt í sovézka
sendiráðið úr verzluninni og tilkynnt
starfsmanni þess að hann mundi snúa
heim. Síðan hefði hann farið með Hannah
í franska veitingahúsið. „Tom sagði að
hann þyrfti að þvo sér um hendurnar,"
sagði Yurchenko. „Ég þaut út, fór í frak-
kann og setti á mig hattinn og fór til
sendiráðsins."