Morgunblaðið - 17.11.1985, Qupperneq 24
2i
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985
Hljómplata með
píanóleik Jónasar
Ingimundarsonar
ÚT ER komin hljómplata með einleik
Jónasar Ingimundarsonar píanóleikar
hjá bókaútgáfunni Erni og Orlygi.
Á plötunni eru verk eftir Bach,
Galuppi, Sveinbjörn Sveinbjörnsson
og Liszt. Meðal efnis er hinn þekkti
sálmur Bachs „Slá þú hjartans
hörpustrengi", og „Idyl“ og „Viki-
vaki“ eftir Sveinbjörn Sveinbjörns-
son, sem unnin eru úr íslensku þjóð-
lögunum „Stóð ég úti í tunglsljósi",
„Hér er kominn Hoffinn" og „Góða
veislu gjöra skal“. Helmingur plöt-
unnar er helgaður verkum eftir
Til sölu
Er laus nú þegar í Seljahverfi 4ra herb. íbúö
ca. 115fmá2.hæö.íbúöinerþannig:3
svefnherb., sjónvarpshol, þvottahús inní
íbúðinni, góö stofa, gott eldhús, fremri
forstofa, bílskýli. Sérstakt útsýni. Verö ca.
2,4 millj. Veröur til sýnis þeim sem hafa
áhuga. Uppl. sunnudag ísíma641170.
Franz Liszt, en á næsta ári er öld
liðin frá andláti hans.
Upptökur fóru fram stafrænt
(digital) í Hlégarði og Háskólabíói,
og annaðist þær Halldór Víkings-
son.
Áskorun til Sjálfstæðis-
manna í Reykjavík
— frá Karli
Eiríkssyni
Við næsta prófkjör eigum við
þess kost að velja um frambjóð-
endur fyrir flokk okkar úr stór-
um hópi ágætis fólks. Undirrit-
aður vænti sér mikils af hinum
dugandi glæsilega borgarstjóra
okkar Davíð Oddssyni í upphafi
kjörtímabils hans, en mér er svo
farið eins og fjölmörgum öðrum
að frammistaða hans á síðasta
kjörtímabili hefur farið fram úr
okkar björtustu vonum. Á starfs-
ferli hans sem borgarstjóra hef-
ur hverju málinu á fætur öðru
verið siglt í farsæla höfn með
dyggum stuðningi samstæðra
borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins. Því verðum við Reyk-
vfkingar að standa saman um að
við lendum aldrei aftur í höndum
hinna ósamstæðu vinstri afla þar
Hulda Valtýsdóttir
sem skattpeningurinn okkar
glatast í stjórnleysi og hrossa-
mangi. *
Mig langar að nota þetta tæki-
færi til að minna Sjálfstæðis-
menn í Reykjavík á konu sem
hefur þjónað hugsjónum okkar
af frábærum dugnaði og ósér-
hlífni í fjölda ára og nú síðustu
4 árin sem borgarfulltrúi. Hér
er um að ræða frú Huldu Valtýs-
dóttur sem verið hefur formaður
umhverfismálaráðs undanfarið
kjörtímabil, jafnframt því að
vera formaður Skógræktarfélags
íslands. Ég skora á okkur öll að
tryggja þessari ósérhlífnu og
velvinnandi konu öruggt sæti á
listanum okkar og tryggja þar
með að við fáum að njóta starfs-
krafta hennar enn eitt kjörtíma-
bil. Setjum því Huldu í öruggt
sæti við prófkjörið.
Höíundur er forstjóri Bræðranna
Ormsson hf.
MITSUBISHI 1.300
Á fíughraða
með fragt
eða farþega
ÓTRÚLEG FJÖLBREYTNI:
S Afturdrif eöa aldrif.
y Bensínvél eöa dieselvél.
y Háþekja eöa lágþekja.
✓ Lokaöur sendibíll eöa smárúta meö
sætum og gluggum.
OG ALLIR ERU ÞEIR:
y Liprir og sparneytnir.
y Traustir og gangvissir,-
y Á hagstæöu veröi og auöveldir í endursölu.
HEKLAHF
Laugavegi 170 -172 Sími 21240
Bananar Del Monde — Appelsínur Fuen Mora —
Appelsínur Zimbabwe — Klementínur spánskar —
Epli rauð USA — Epli gul — Epli græn Granny
Smith — Sítrónur — Greipfruit rautt — Greipfruit
hvítt — Melónur gular — Melónur grænar — Vínber
græn — Vínber blá — Perur — Avocado — Ananas
— Mangó — Kiwi — Granada-epli — Kakí — Hnetur
í skel — Kastaníu-hnetur.
Ath. Kartöflur og grænmeti í miklu úrvali.
iERT KRISTJANSSON HF
Sundagörðum 4, sími 685300.
'
Jf KAUPMENN-VERSLUNARSTJÓRAR
AVEXTIR
IKUHNAR
m
Hallgrímskirkja:
Hátíðardagskrá
um Matthías
Jochumsson
Listvinafélag Hallgríms-
kirkju gengst fyrir hátíðardag-
skrá um séra Matthías Joc-
humsson í dag, sunnudag, í
tilefni þess að liðin eru 150 ár
frá fæðingu hans. Hefst dag-
skráin kl. 17.00 og mun dr.
Sigurbjörn Einarsson biskup
flytja ræðu og leikararnir
Guðrún Ásmundsdóttir, Karl
Guðmundsson og Valgeir Skag-
fjörð flytja ljóð og kvæði
skáldsins, einnig verða sungnir
• nokkrir ástsælustu sálmar séra
Matthíasar.
(Úr fréttatilkynningu.)
*
Utgerðarmenn
loðnuskipa
á móti afnámi
kvótans
ÚTGERÐARMENN loðnuskipa
höfnuðu á fundi sínum í gær tillögu
um afnám kvóta á hvert skip á loðnu-
veiðum. Tillaga þessi kom fram á
aðalfundi LfÚ fyrir skömmu.
Það var Hrólfur Gunnarsson
útgerðarmaður, sem flutti þessa
tillögu á aðalfundi LfÚ í ljósi þess,
að á yfirstandandi vertíð verður
leyfilegt að veiða um eina milljón
lesta af loðnu. Auk hans rituðu
þrír útgerðarmenn undir tillöguna,
sem vísað var til fundar útgerðar-
manna loðnuskipa. Á fundinum
voru mættir útgerðarmenn 42
loðnuskipa af 48. Við atkvæða-
greiðslu hlaut tillagan aðeins eitt
atkvæði, 6 fundarmanna sátu hjá
og 35 voru á móti henni.
Loðnukvótanum er nú skipt
þannig milli skipa, að % hlutar
skiptast jafnt milli skipa, en Vt
hluti eftir burðargetu.