Morgunblaðið - 17.11.1985, Síða 27

Morgunblaðið - 17.11.1985, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985 27 Ein elsta stúkan, Eining aldargömul í dag: „Leggjum áherslu á val einstaklingsins — segir Gunnar Þorláksson æðstitemplar stúkunnar Gunnar Þorláksson æðstitemplar Einingarinnar 1985—1986. Myndin tekin við málverk Freymóðs Jóhannssonar af gamla Góðtemplarahúsinu við Templarasund. STÚKAN „Eining nr. 14“ er 100 ára í dag, sunnudag, og er hún ein elsta stúka landsins. „Eining“ spratt upp úr annarri stúku sem hét „Framtíð- in“, en harla lítið er vitað um þá stúku nú, því bækur hennar eru glataðar. Framtíðin var hins vegar stofnuð í október 1885 þar eð „Verð- andi“, fyrsta stúkan í Reykjavík, þótti orðin svo fjölmenn að það var varla hægt að halda fundi vegna húsnæðisskorts. 17. nóvember komu saman 14 menn sem höfðu verið í „Framtíðinni“ en sagt sig úr henni, og stofnuðu þeir „Einingu.“ Síðan eru liðin 100 ár og lifir Eining enn og dafnar sem aldrei fyrr. Núverandi formaður eða æðstitemplar Einingar, er Gunnar Þorláksson og var hann heimsóttur í tilefni ársins. Spurður um hvað yrði gert til hátíðabrigða: „Það verður mikil skemmtihátíð í Templarahöllinni á laugardags- kvöldið, kvöldverður dans og glaumur. Á sunnudagsmorgun verður svo messa í Hallgríms- kirkju þar sem afmælisins verður minnst, enda eru báðir sóknar- prestar þeirrar kirkju, þeir Ragnar Fjalar Lárusson og Karl Sigur- björnsson, í stúkunni. Klukkan tvö eftir hádegið verður svo kaffisam- sæti.“ En þið ætlið ekki að halda upp á afmælið með hressri og endurnýjaðri ■>ókn gegn óvininum mikla, áfeng- inu? „Ja, starfsemin er í föstum skorðum, en innan starfsins rúm- ast flest, landsstjórnarinnar er að boða stefnur eða stefnubreytingar. Þess ber hins vegar að geta, að þetta er notalegur félagsskapur og við vitum að það eru margir bind- indismenn úti um allan bæ sem taka ekki þátt í starfinu. Við munum reyna að fá þetta fólk til að koma til okkar." „Þó ég segi þetta, er það mín skoðun, að áherslupunkturinn hafi breyst í þessu máli. Nú orðið talar varla nokkur maður um áfengis- bann. Auðvitað erum við í stúkun- um allir sammála um að best væri að enginn neytti áfengis, en það er ekki í takt við tíðarandann að tala um bann. leggja ber heldur áherslu á að fólk hafi val. Það er til dæmis allt of algengt að fólki sé boðið til síðdegiskokteils og þar fær það áfengi eða ekki neitt nema að það setji allt á annan endann til þess að fá svo á endanum krana- vatn í stóru glasi á sama tíma og annað fólk er að drekka úr íburð- armiklum krystalglösum. Það er ekkert viðkunnalegt fyrir fólk að þurfa að skera sig úr með þessum hætti einungis fyrir að vilja ekki neyta áfengis. Því nefni ég þetta sem dæmi, vegna þess að fyrir skömmu hélt fyrirtæki hér í borg kynningu á vörum sínum og bauð miklum fjölda fólks. Aðstandend- ur sýningarinnar reyndu skv. áeggjan að bjóða einnig upp á óá- fenga drykki jafnframt þeim áfengu og mátti fá drykki eins og grenadine og trópí. Þegar fólk átt- aði sig á því að það voru óáfengir drykkir einnig á boðstólum, kom í ljós að mikill meiri hluti þess kaus það fremur. Mér finnst eins og margir séu að opna augun gagn- vart þessu atriði og er það vel. Þessu ná slagorðin: Drykkur er nauðsynlegur — áfengi óþarft. „Þetta getur ekki verið svo erfitt í framkvæmd, svo margar upp- skriftir eru til fyrir drykki sem sóma sér vel sem samkvæmis- drykkir þótt ekki sé í þeim áfengi. Bindindi er nefnilega betra og fólk verður að gera sér grein fyrir því að áfengi hentar ekki öllum alltaf. Það verður að vera val. Það eru ýmsir aðilar sem eru að opna augun fyrir þessu, víða er nú boð- aður nýr og glaður lífsstíll þar sem áhersla er lögð á líkamsrækt, hreysti og fallegt útlit. Þetta er lífsstíll sem hafnar óþörfum fíkni- efnum.“ Þú nefnir þennan lífsstíl og nauö- syn þess að fólk geti valið hvort það vill áfengi eða ekki. Myndi bjór að þínum dómi reka fleyg í þessa þró- un? „Já, tvímælalaust, við höfum svo mörg dæmi erlendis frá sem stað- festa að bjórdrykkja myndi bæta við heildaráfengisneysluna. Því meiri sem áfengisneyslan er, því verri áhrifin af henni. Það ber því að berjast gegn komu bjórsins." Þjónar stúkan fleiri hlutverkum en að vinna að fyrirbyggjandi aðgerð- um gegn áfengisneyslu og neyslunni sjálfri? „Að mínum dómi á stúkan að vera griðland í önnum dagsins. Vimuefnalaust umhverfi. Það er bæði gagnlegt og hvilandi að taka þátt í félagsstarfi af slíku tagi. Markmiðin eru heilbrigð og mann- ræktarsambönd í hávegum höfð. Allir hafa gott af slíku starfi og þau eru meira gefandi heldur en margan grunar. Reglan er öllum opin og fólk ætti að kynna sér hvað það hefur farið á mis við, því þarna er ræktaður kraftur sem verður seint bugaður." Þið talið ekki lengur um bönn, hver eru þá hin raunhæfu markmið bindindishreyfingarinnar í dag? „í stuttu máli, að sem flestir meti gildi bindindis. Einnig að auka þjálfun og kennslu í tjáningu, við viljum útrýma því sem kallað hefur verið „að drekka í sig kjark“, því besta ráðið til þess að menn finni að áfengi sé óþarft er að þeir geti tjáð sig bæði í orðum og hreyf- ingum. Danskennsla er mikilvæg og einnig ber að þakka ýmsum félagasamtökum á borð við JC fyrir að kenna mönnum að tjá sig með orðum. Með þessu móti fær fólk meira sjálfstraust og minni- máttarkenndir fjúka. Þá er það sameiginleg stefna norrænna bindindishreyfinga að stuðla að því að áfengisneysla dragist saman um 25 prósent fram til ársins 2000. Þetta er stórt markmið og álita- mál hvort okkur verður að ósk okkar, hins vegar getur allt gerst, hinir breyttu lífshættir fólks sem ég gat um áðan gætu orðið ofan á, þannig hafa reykingar stórlega dregist saman. Slík þróun gæti einnig orðið hvað varðar áfengis- neyslu. Málið er nefnilega það, að þó við flytjum mál okkar á nútíma- máli ef svo mætti að orði komast, sem sagt að leggja meiri áherslu á það jákvæða við bindindi heldur en að tíunda hrylling ofdrykkjunn- ar, þá verður staðreyndum ekki haggað, grunntónninn er alltaf hinn sami, þ.e.a.s. áfengi er böl og það er engum hollt að neyta þess.“ 12 núlifandi félagar Einingarinnar sem gegnt hafa starfí æðstatemplars stúkunnar. Frá vinstri: Aftasta röð: Jón F. Hjartar, Ólafur F. Hjartar, Einar Hannesson, Halldór Kristjánsson. Miðröð: Þorvarður Örnólfsson, Þorlákur Jónsson, Sigurður Jörgensson, Ólafur B. Jónsson. Fremsta röð: sigrún Sturludóttir, Gunnar Þorláksson, Sigrún Gissursdóttir, Sigurlaug R. Sævarsdóttir. Höíum íyiiiliggjandi loítveikíœii fiá INGERSOLL-RAND i hœsta gœdaílokki Loíthamrai 18 • 45 kg. Sprengiholuborar 37 kg. Loítþjöppur 30 L/S(65 cím) og 60 L/S(125 cím) [ulHEKLAHF I J Laugavegi 170 -172 Sími 212 40 HAGSTÆTT VERÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.