Morgunblaðið - 17.11.1985, Qupperneq 43
MORGUNBLADID, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985
Flaututónleik-
ar í Gerðubergi
Nýstofnaöur flautukvartett með
þeim Bernard Wilkinson, Guðrúnu
Birgisdóttur, Martial Nardeau og
Kolbeini Bjarnasyni heldur tónleika
í Gerðubergi í dag, sunnudag kl. 17.
A tónleikunum verður leikið verk
eftir Friedrich Kuhlau sem nefnist
“La Caccia", “Sumardagur til fjalla"
eftir franska tónskáldið Eugéne
Bozza og “Kisur“ eftir landa hans,
Marc Berthomieu.
í fréttatilkynningu frá Gerðu-
bergi segir að síðastnefnda verkið
sé ástaróður til katta, “samið af
miklu innsæi í tilfinningalíf mis-
munandi kattarkynja svo sem
persneskra blákatta, síamskatta,
púmunnar og fleiri tegunda," eins
og segir orðrétt í tilkynningunni.
Ennfremur segir að ekkert þessara
verka hafi áður verið flutt hér á
landi.
Askriftœshnmn er 83033
42
Fjölbreytt námskeið í notkun einkatölvunnar frá IBM. Kynntur er
algengur notendahugbúnaður á IBM-PC. Tilvalið námskeið fyrir
þá sem eiga IBM-PC, Canon PC, Atlantis, Corona, Advance, Island
PC eða sambærilegar einkatölvur.
Innritun í símum
687590 og
686790.
Tími:
30. nóv. ogl.des.
kl. 10—17.
Dagskrá:
★ Uppbyggingognotkunarmöguleikar
einkatölva
★ Stýrikerfiö MS-DOS
★ Töflureiknirinn Multiplan
★ Ritvinnslukerfin Word og Word perfect
★ Gagnasafnskerfin D-base II og D-base III
★ AssistantforritinfrálBM
★ Bókhaldsforritfyrir PC-tölvur
★ Umræöurogfyrirspurnir
iL
t
p
—<8r
v VJ Dr. Kristján Ingvars- Margrét Pálsdóttir Yngvi Pétursson,
son, verkfræöingur BA menntaskóla-
Tölvufræðslan
Ármúla 36, Reykjavík.
'ÖL VUFRÆÐSL ANI
Af
Menningarboi^in Amsterdam
- þar fá allir listunnendur eitthvaö við sitt hæfí
Amsterdam hefur um alda-'
raðir verið ein af helstu
menningarmiðstöðvum
Evrópu. Þangað flykkjast list-
unnendur svo hundruðum
þúsunda skiptir, á hverju ári,
til að njóta tónlistar, balletts,
óperu, leikhúsa, kvikmynda
og til að skoða hin stórfeng-
legu myndlistarsöfn.
Af tónlistarhöllum ber hæst
Concertgebouw. Par eiga
tvær frábærar hljómsveitir
heima: Fílharmóníuhljóm-
sveit Amsterdam og Sinfón-
íuhljómsveit Concertge-
bouw. En Amsterdam er líka
miðstöð kammertónieika.
Þeir eru haldnir í „Litla" saln-
um í Concertgebouw og í
fjölmörgum kirkjum og
söfnum víðs vegar um borg-
ina.
Baliett er líka mikils met-
inn í Amsterdam. Nationale
ballettinn er heimsþekktur og
hefur á efnisskrá sinni bæði
klassískar og nútíma ballett-
sýningar. Annar frægur ball-
ettflokkur Nederlands Dans
Theater, sem einnig flytur
nútíma ballett.
Pað er að sjálfsögðu óp-
era í Amsterdam. Þar til lokið
verður við að reisa nýja tón-
listarhöll sem hún færaðsetur
í, deilir hún húsum með
Nationale ballettinum í
Stadsschouwburg. Auk fræg-
ustu óperuverka heímsins
flytur óperan stundum verk
eftir minna þekkta höfunda.
ARNARFLUG
LAgmúta 7. slm 84477
Pað eru Qölmörg leikhús
í borginni. Hollenskan er þar
að vísu nokkur þröskuldur
fyrir útlendinga, en nokkrir
enskumælandi leikflokkar
hafa búsetu í Amsterdam og
bjóða upp á fjölbreytt úrval
leikhúsverka.
Mörg af hinum fjörutfu
söfnum í Amsterdam bjóða
reglulega upp á sérstakar
sýningar af einhverju tagi, til
viðbótar við hinar föstu útstill-
ingar. Frægast af þessum
söfnum er Rijksmuseum, sem
geymir ýmsa helstu dýrgripi
þjóðarinnar, m.a. verk eftir
Rembrandt. Meðal annarra
safna má nefna van Gogh
safnið, Stedelijk, sem einkum
sýnir nútímalist, hús Rem-
brandts og sögusafn Amster-
dam. Auk þess bjóða yfir I40
gallerí upp á sölusýningar
eftir myndlistarmenn frá ýms-
um löndum.
Athugið að Arnarflug getur
útvegað ykkur fyrsta flokks
hótel og bílaleigubila, á
miklu hagstæðara verði en
einstaklingar geta fengið.
Nánari upplýsingar hjá
ferðaskrifstofunum og á
söluskrifstofu Arnarflugs.
Flugoggisting
frákr. 12.990