Morgunblaðið - 17.11.1985, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLADID, SUNNUDAGUR17. NÖVEMBER1985
Markaðssókn —
á erlendum mörkuðum
Markmiö námskeiösins er að gefa þátt-
takendum innsýn í hvaða skilyrði þarf
að uppfylla til að markaðssetning og
sala á erlendum mörkuðum takist.
•4-V
Dagskrá:
Fyrsti dagur:
Almennar kröfur varðandi skipulag
og stjórnun fyrirtækisins. Grunn-
þættirmarkaðs-og sölumála.
Uppbygging markaðs- og sölustarf-
semi.
Markaðssókn á erlendum mörkuðum.
Leiðbeinandi: Christian Dam, sérnám í markaðs-
sókn og útflutningi, nú útflutnings-
stjóriB.M.Valláhf.
20.—22. nóvember kl. 08.30—
12.30. Samtals 12tímar.
Fyrirfélagsmenn F.í.l. kr. 3.200,-
Fyriraðra kr. 4.200,-
Þátttaka tilkynnist til Félags íslenskra iðnrek-
enda, sími 91-27577 fyrir 19. nóvember 1985.
FÉLAG iSL IDNREKENDA HALLVEIGARSTlG 1. SÍMI 27577~
Annar dagur:
Þriðji dagur:
Tími:
Verð:
COMBAC
Frístandandi sturtuklefar
með sjátfstillan/egum blöndunartækj
um. Hentar a/ls staðar fyrir heimiti og
vinnustaði.
Stærðir
80
80
90
90
70
90
90
70
Auðvelt
aðeins þarfað
uppsdtningu.
og frárennsti
tengja
vatn
Heilsolubirgöir
blAfell
Hverfisgotu
105
Simi 621640
Minning:
Þórður V. Benjamíns-
son frá Hergilsey
Fæddur 2. ágúst 1896
Dáinn 10. nóvember 1985
Hann afi er dáinn.
Þessi orð ómuðu lengi í eyrum
mínum, eftir að mér var tjáð að
hann hefði andast aðfaranótt
sunnudagsins 10. nóvember.
Síðan þá hafa flogið um hugann
ótal minningar um samverustund-
ir mínar við þau afa og ömmu.
Þau voru mér sem mínir aðrir
foreldrar, því síðan ég man eftir
mér, ólumst við systkinin upp á
þeirra heimili, að undanskildum
2—3 árum, að ég held.
Þau sumur sem ég var sem barn
í Flatey hjá afa og ömmu eru mér
mjög kær í endurminningunni, því
það skeði svo margt, svo ótal
margt.
Ég hef líklega verið með þeim
síðustu, ef ekki síðasta barnabarn-
ið þeirra, sem var hjá þeim fyrir
vestan, meðan þau voru þar allt
sumarið, fram á haust, og sáu
alveg um Vesturbúðir og það sem
þeim fylgdi.
Þær voru margar ferðirnar sem
ég fór með í, í leitir upp í eyjar
og stjórnaði afi þeim ferðum af
mikilli röggsemi og dugnaði. Lærði
ég mikið í þeim ferðum.
Man ég að í eitt skiptið var
ferðinni heitið í Skjaldmeyjareyj-
ar og til Hergilseyjar, að við afi
ræddum mikið saman. Það var svo
indælt að vera í samfylgd við hann
og hlusta á hann segja frá ýmsum
atvikum sem voru honum hjart-
fólgin og kær.
Þegar við vorum búin að leita
Hergilsey, þá gaf afi sér tíma til
að ganga um húsatóftirnar og
sýna, og segja mér frá, þegar hann
og amma bjuggu þar með sinn
mikla barnahóp.
Sú stund gleymist mér aldrei.
Hún var svo indæl, og hann ljóm-
aði svo, þegar hann sagði frá.
Þetta eru fátækleg orð um svo
mikinn mann, sem hann afi minn
var, en með þeim langar mig til
að kveðja hann.
Elsku amma mín, megi góður
guð styrkja þig í þínum mikla
missi, því hann er mikill.
Börnum þeirra og öðrum að-
standendum votta ég samúð mína.
Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir
Þann 10. nóvember 1985 andað-
ist á St. Fransiskuspítala í Stykk-
ishólmi, tengdafaðir minn, Þórður
Valgeir Benjamínsson frá Hergils-
ey, 89 ára að aldri. Ég kynntist
Þórði er ég kom til Stykkishólms
í janúar 1973 og hóf störf við sjó-
mennsku hér í Stykkishólmi. Það
var mitt mesta gæfuspor í lífinu,
er ég kynntist dóttur hans, Ástu
Sigrúnu, fljótlega eftir að ég sett-
ist hér að, og urðu kynni mín af
fjölskyldu hennar fljótt mjög náin
og ástúðleg, en við Ásta gengum í
hjónaband 20. júlí 1974.
Betri rnann en Þórð tengdaföður
minn hefi ég ekki þekkt. Hans
blíða og ástúðlega skapgerð birtist
í hverju hans orði, og í öllu hans
starfi og lífi. Þórður bar þá per-
sónu, að ósjálfrátt báru menn
virðingu fyrir honum. Og betri
heimilisföður er vart hægt að
hugsa sér. Þórður var með afbrigð-
um vinnusamur maður, honum féll
aldrei verk úr hendi, enda kom það
sér vel í erfiðri lífsbaráttu fyrri
ára, við óblíð kjör og erfiðan bú-
skap í Hergilsey og víðar, á meðan
börnin voru að vaxa úr grasi, og
lifa varð af gæðum náttúrunnar
til sjós og lands. Þórður var mikill
trúmaður, og þó að hann flíkaði
ekki tilfinningum sínum fundu
þeir, sem kynntust honum bezt,
Skýrslutæknifélag Islands og Reiknistofnun Háskólans, í sam-
vinnu við NORDUNET, boða til
NÁMSTEFNU
UM TÖLVUNET
og norræna samvinnu á því sviði
í Kristalssal Hótels Loftleiða, föstudaginn 22. nóvember kl. 09.00-17.00.
NORDUNET er norrænt verkefni á vegum NORDFORSK, sem fjallar um að
koma á, samræma og efla möguleika norrænna háskóla til gagnasamskipta
sín á milli og við umheiminn.
Tilgangur er að kynna verkefnið NORDUNET sem slíkt, en einnig og ekki
síður að gera áhugafólki hér á landi grein fyrir möguleikum gagnaneta
almennt.
Dagskrá:
09.00 Námstefnan sett — Páll Jensson og BirgittaCarlsson, forst.maðurSvíþjóö.
09.15 Um tölvunet, yfirlitserindi. Sven Tafvelin, prófessor, Svíþjóö.
09.55 Framkvæmdir i netmálum á þessari stundu. Hlutverk NORDUNET íþvísamhengi. Martti
Tienari, prófessor, Finnlandi.
10.35 Kaffihlé.
10.50 ISANET — Tillagaaö íslensku rannsóknaneti. Jóhann Gunnarsson, framkv.stjóri.
11.00 Áætlun um breiöbandsnet Háskóla íslands. Sigfús Björnsson, dósent.
11.15 Notagildi neta og þjónusta, sem í boöi er. Birgitta Carlsson.
12.00 Matarhlé, sýnd tenging viö erlend net.
13.30 Viömiöunarlikön fyrir net, ISO/OSI. Peter Villemoes, forst.maöur, Danmörku.
14.10 Fjarnet, X.21, x.25(Wide areanetworks). Alf Engdal, rannsóknastjóri, Noregi.
14.50 Nærnet (Local area networks). Arild Jansen, deildarstjóri, Noregi.
15.30 Kaffihlé.
15.30 Kaffihlé.
15.45 Sérstök viöfangsefni tengd þjónustu viö notendur: Skráaflutningur: Einar Lövdal, Noregi. MHS
(boöflutningskerfi). Lars Backström, forst.maöur, Finnlandi.
16.45 Umræöur og fyrirspurnir.
17.00 Námstefnu slitiö.
Öll erindin veröa flutt á ensku.
Nánstefnustjóri: Páll Jensson, forstööumaöur Reiknistofnunar Háskólans.
Þátttökugjald ánámstefnunaer Þátttökugjald ánámstefnunaer kr. 1.800,00. Fyrir
félaga Skýrslutæknifélagsins, háskólafólk og starfsmenn rannsóknastofnana
ríkisins, kr. 1.500,00. Innifaliö í þátttökugjaldi er: útdrættir úr flestum erindunum,
hádegisveröur og kaffi.
Þátttaka tilkynnist til Skýrslutæknifélagsins í síma 82500 eigi síöar en miðviku-
daginn 20. nóvember.
SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG ÍSLANDS
REIKNISTOFNUN HÁSKÓLANS