Morgunblaðið - 17.11.1985, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985
69
Stjórn Félags íslenskra iðnrekenda
um hækkun vörugjalds:
„Óþolandi opin-
ber íhlutunu
Stjórn Félags íslenskra iðnrek-
enda ályktaði á fundi sínum nú fyrir
skömmu að lýsa yfir miklum von-
brigðum með þá lausn á fjárhags-
vanda ríkissjóðs að hækka vörugjald.
Hækkun veltuskatta væri gagnslaus
aðgerð til að minnka viðskiptahalla
og leiddi eingöngu til aukinnar verð-
bólgu.
„Það eru íslenskum iðnaði mikil
vonbrigði að leysa eigi fjárhags-
vanda ríkissjóðs með hækkun
vörugjalds. Hallalaus ríkisbúskap-
ur er mikilvægur þáttur í þeirri
viðleitni að eyða viðskiptahalla og
draga úr verðbólgu en eina raun-
hæfa leiðin til þess að jafna halla
á ríkissjóði er að lækka ríkisút-
gjöld frá því sem þau hafa verið,“
segir m.a. í ályktun stjórnar Fé-
lags íslenskra iðnrekenda, sem
samþykkt var nú fyrir skömmu.
I frétt frá félaginu segir einnig
að það hafi valdið vonbrigðum að
ríkisstjórnin hafi aðeins að hluta
til fallið frá þeim áformum að
hækka óbeina skatta, henni hafi
ekki tekist sem skyldi að draga úr
útgjöldum. Orðrétt segir í frétt-
inni: „Fyrirhuguð hækkun vöru-
gjalds eykur enn á þá mismunun
milli atvinnugreina, sem þessi
skattheimta hefur haft í för með
sér. Sumar atvinnugreinar verða
nú að þola það að á vörur þeirra
sé lagt 30% vörugjald og 25%
söluskattur á meðan aðrar vörur,
sem þær eiga í samkeppni við, eru
algjörlega gjaldfrjálsar. Þetta er
óþolandi opinber íhlutun í sam-
keppnisstöðu einstakra atvinnu-
greina og fyrirtækja."
f ályktun félagsins segir að til
að tryggja það að fjármagn leiti í
þá fjárfestingu sem arðbærust sé
hverju sinni, sé nauðsynlegt að
bönkum, sparisjóðum og lánasjóð-
um verði frjálst að ákveða vexti
og aðra lánaskilmála svo og form
inn- og útlána, en fylgst verði með
að eðlileg samkeppni sé í banka-
kerfinu. „Aðeins á þennan hátt er
unnt að tryggja það að ávöxtun
fjár og lánastarfsemi verði með
eðlilegum og heilbrigðum hætti.
Þetta er eina leiðin til að koma í
veg fyrir óheiðarlega og ólöglega
lánastarfsemi sem eingöngu getur
þrifist í skjóli hafta á almennum
lánamarkaði," segir orðrétt í
ályktun stjórnar Félags íslenskra
iðnrekenda.
JÓLATILBOÐ h
Þessi stórglæsilegu borðstofusett eru nú komin
á sérstöku jólat i Iboðs verði.
5oo.- stgr.
BorðstoÆogestólaraaðemskr. 37.500. 9
Við bjóóum einnig hagkvæm greiðslukjör.
Bláskógar
Ármúla 8. S. 686080 — 686744*^
Húsgagnasýning sunnudag 1—4
Surn'i vakna
•Sveigjanleiki gúmmtsins
tryggir rélta tjððrun
• Latex gúmmrið bœgir
• LoftrcBstikerfi heldur frg ryki og sýklum.
loftinu hreinu og raka-
• Fallegt dklœði stiginu réttu.
að eigin vali.
Latex dýna
Latex dýnan er eina dýnan d markaðnum
sem gerð er úr ekta ndttúrugúmmíi.
Latex dýnan flaðrar vel og veitir líkamanum
góðan stuðning. Þyngri líkamshlutar sökkva hœfi-
lega djúpt í dýnuna en hún veitir jafnframt stuðning
undir hina léttari.
Stabiflex rúmbotn
Stabiflex er einstaklega traustur og vandaður
rúmbotn sem hentar sérstaklega vel undir Latex
dýnuna. Samspil dýnu og rúmbotns er þar f full-
komnu samrœmi við hreyfingar og þyngd líkamans.
•Hryggsúlan helst bein *Stabiflex rúmbotninn er sniðinn undir Latex
og það slaknar á vöðvum. dýnuna - samvirkandi og hljóðlaust kerfi.
* • -;xxxa
Of hörð dýna.
■ -i
Of mjúk dýna.
Latex dýnan: Dýnan lagar sig að
líkamanum - hryggsúlan er bein.
LYóTADUn
•Botnramminn er gerður
úr níðsterku límtré.
Dugguvogi 8-10 Stml 84655
•Þverrimlamir eru gerðir úr Ifmtré
og bogna upp á við um miðjuna
- eru sveigjanlegir.
• Þverrimlamir hvfla á veltiörmum
úr gúmmfi sem hreyfast eftir
þrýstingl.
• Hœgt er að hœkka rúmbotninn
undir höfði og fótum.