Morgunblaðið - 08.02.1986, Page 1

Morgunblaðið - 08.02.1986, Page 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ1913 32. tbl. 72. árg. LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ferdinand Marcos Filippseyjaforseti, greiðir atkvæði í forsetakosningunum i gær. Hann var sigurviss. Á innfelldu myndinni sést hvar Corazon Aquino greiðir atkvæði. Likt og Marcos lýsti hún yfir óumdeil- anlegum sigri i forsetakosningunum áður en Morgunblaðið fór i prentun í gærkvöldi. Richard Lugar öldungadeildarþingmaður gagnrýnir kosningaframkvæmd harðlega ManíU, 7. febrúar. AP. CORAZON Aquino lýsti yfir „óvéfengjanlegum sigri, sin og þjóðar- innar“ i forsetakosningunum á Filippseyjum og Ferdinand Marcos, forseti, kvaðst „líklega“ hafa borið sigur úr býtum, þegar talin höfðu verið 6,7% atkvæða í forsetakosningunum á Filippseyjum. Tölur hafa aðeins verið birtar úr nokkrum kjördeildum og ekki er talið að þær getí gefíð vísbendingu um hvom veg úrslitin verða. Banda- rískir þingmenn, sem fylgdust með kosningunum, gagnrýndu fram- kvæmd þeirra. Richard Lugar, öldungadeildar- þingmaður, formaður bandariskrar eftirlitsnefndar, gagmýndi ríkis- stjóm Marcosar harðlega fyrir hvemig hún hefði staðið að talningu atkvæða. Hann sagði að skyndilega hefði verið hægt á birtingu talna og gaf í skyn að ef til vill væri stjóm Marcosar að reyna að fela ósigur sinn. Hann deildi á stjómina fyrir að meina eftirlitsnefndinni aðgang að talningu atkvæða og fyrir að taka úr sambandi flar- skiptakerfi, sem miðla átti upplýs- ingum um talninguna til samtaka, sem beitt hafa sér fyrir réttlátum kosningum. Tíu stundum eftir að kjörstaðir lokuðu höfðu aðeins verið talin 6,7% atkvæða. Hafði frú Aquino þá hlotið 883.220 atkvæði en Mareos 614.432. Um 26 milljónir manna munu hafa kosið. Lugar kvaðst telja að stjóm Mareosar hefði þungar áhyggjur af úrslitum kosninganna og biði Reagan lýsir ánægju með flótta Duvaliers með birtingu talna unz sæist hvert stefndi. Hann dró ( efa að heiðar- lega hefði verið að kosningunum staðið. Á Qórða tug manna biðu bana í ofbeldisaðgerðum á kosn- ingadaginn. Endanleg úrslit kosn- inganna verða ekki tilkynnt fyrr en eftir helgi. Sjá ennfremur „Kosningar undir smásjá“ á bls. 21. Olíuríkin: Samstarf um að sporna við lækkun? Kairó, Londoo, 7. febrúar. AP. OLÍURÁÐHERRAR Venezu- ela, Mexíkó og Egyptalands ákváðu í dag að reyna að fá olíuríki til samvinnu um að koma jafnvsegi á olíumarkað- inn. Hyggjast þeir ferðast til allra olíuframleiðaluríkja næstu daga í þessu skyni. Olíuframleiðendur hafa áhyggjur af þróuninni síðustu daga, en menn, sem málum em kunnugir, telja að henni verði tæpast snúið við í bráð. Júgóslavar reyna nú að knýja Sovétmenn til að lækka verð á olíu. Sovétmenn selja Júgóslöv- um olíufatið á milli 26 og 27 dollara. Corazon og Marcos lýstu bæði yfir sigri Washington, 7. febrúar. AP. RONALD REAGAN, Bandarikjaforseti, lýsti ánægju sinni með að Jean-Claude Duvalier, forseti Haití, skyldi hafa flúið land. Duvalier flýði til Frakklands, þar sem hann hefur fengið hæli tíl bráðabirgða. Reagan sagði að Duvalier hefði verið búinn að glata öllu traustí og einungis getað stjómað áfram með valdbeitingu og kúgun. Duvalier, sem fengið hefur við- umefnið Baby Doc, fór frá Haiti upp úr hádegi að staðartíma í C-141 herflutningaflugvél, sem Banda- rikjamenn lögðu til flóttans, að beiðni Duvaliers sjálfs og frönsku stjómarinnar. Kom hann til Grenoble í Frakklandi í kvöld ásamt 20 manna fylgdarliði. Duvalier mun dveljast í nágrenni Grenoble unz annað ríki býðst til að skjóta yfir hann skjólshúsi til frambúðar. Ríkisstjómin á Jamaíku skýrði frá því í kvöld að Duvalier hefði ákveðið að yfirgefa Haiti eftir þrjá leynifundi með Neville Gallimore, utanríkisráðherra Jamaíku, í viku- byijun. Einnig hefði Clayton McManaway, sendiherra Bandaríkj- anna á Haiti, komið þar við sögu. Ólga hefúr verið á Haiti undan- fama mánuði og tugir manna beðið bana í mótmælaaðgerðum, sem beinst hafa gegn Duvalier. Hafa landsmenn ótvírætt látið í ljós að þeir vildu breytingar, en Duvalier hafði tekið sér forsetavald til lífstfð- ar. Mikil gleði braúst út á Haiti í kjölfar flóttans. Tilkynnt var af hálfu Bandaríkja- stjómar að hún myndi bjóða alla aðstoð, sem í hennar valdi væri, til að endurreisa lýðræði á Haiti. Landsstjómin er nú í höndum sex manna ráðs, sem í sitja herforingjar og óbreyttir. Ráðið lýtur forystu Henri Namphy, hershöfðingja, yfir- manns alls herafla landsins. AP/Símamynd Lögreglumenn standa vörð við stórverzlun í Port-au-Prince, höfuð- borg Haiti, í gær. í óeirðum, sem beindust gegn stjóm Jean-Claude Duvalier, var farið ránshendi um verzlanir og fyrirtæki á Haiti. Lát varð ekki á aðgerðum af þessu tagi eftír að Duvalier flýði land i gær, enda þótt mikið hefði verið um dýrðir, söng og gleði, í kjölfar flóttans. Vestur-Þýskaland: Dæmdur fyrir njósnir CeUe, Veetur-Þýikelandi. AP. VERKFRÆÐINGUR að nafni Hans Jochheim var í dag dæmd- ur í rúmlega þriggja ára fangelsi fyrir qjósnir í þágu Austur- Þýzkalands og fyrir að hafa afhent þangað hátæknibúnað, sem bannað var að láta af hendi. Jochheim sagðist hafa verið í góðri trú um, að tækin ættu að fara til Svíþjóðar og ekki haft hugmynd um, að þau yrðu flutt til Austur-Þýzkalands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.