Morgunblaðið - 08.02.1986, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986
Þjóðhagsstofnun;
Viðskiptakj örin
batna um 2000
milljónir króna
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN telur, að hækkun á fiskverði og lækkun á
olíuverði feli í sér viðskiptakjarabót fyrir íslenska þjóðarbúið, sem
svarar til um 2.000 milljóna króna á árinu 1986. Segir stofnunin,
að verðhækkun á freðfiski og saltfiski virðist valda því, að útflutn-
ingstekjur geti hækkað um 1.500 milljónir króna miðað við síðustu
spá hennar og olíureikningur þjóðarinnar lækki um 5—600 milljónir
króna eða 10% á þessu ári.
Þessi breyting til batnaðar á
viðskiptakjörum þjóðarinnar hefur
orðið á síðustu vikum. Miðað við
ríkjandi verðlag virðast kjörin
2—3% hagstæðari en á síðasta ári
og 3—4% hagstæðari en Þjóðhags-
stofnun reiknaði með í síðustu þjóð-
hagsspá, sem gerð var í desember
1985. Er nú spáð, að viðskiptakjörin
geti í heild batnað um 2 'h% á árinu
o
INNLENT
en í desember taldi stofnunin útlit
fyrir 1% rýrnun þessara kjara.
Þjóðhagsstofnun hefur ýmsa
fyrirvara á hinum nýju tölum, meðal
annars þann, að íslensku fisksölu-
fyrirtækin í Bandaríkjunum telja
óvíst, að hið háa verð á þorskblokk
haldist til lengdar. Þá er bent á að
óvissa ríki um varanleika olíuverðs-
ins. Um efnahagsáhrif hinna bættu
viðskiptakjara er sagt, að þau muni
hafa í for með sér aukinn innflutn-
ing, sem veiti minna svigrúm en
2.000 milljónir króna til að minnka
viðskiptahalla, draga úr verðbólgu,
bæta lífskjör eða afkomu fyrirtækja
með kjarasamningum eða stjóm-
valdsaðgerðum.
(Sjá tilkynningu Þjóðhagsstofnunar
um breytt viðskiptakjör á bls.27)
Morgunblaðið/ÓI.K.M.
Sigurfari U. verður seldur til Akraness. Tap Fiskveiðasjóðs vegna sölu skipsins nemur um 104 milljónum
króna.
Sigiirfari II tilAkra-
ness frá Grundarfirði
Þrír sljórnarmenn í Fiskveiðasjóði hótuðu að segja
af sér ef ekki yrði látið af pólitískum þrýstingi
STJÓRN Fiskveiðasjóðs ákvað á
fundi sínum i gær að selja Sigur-
fara II Haraldi Böðvarssyni &
Co. á Akranesi. Fyrirtækið bauð
187,5 milljónir króna í skipið og
hafi greiðsluáætlun og veð fyrir-
tækisins verið samþykkt af sjóðn-
um. Homfirðingar buðu 190
milljónir í skipið, en sjóðurinn
taldi greiðsluáætlun þeirra ekki
standast.
Sljórn Arnarflugs
vill þrefalda hlutaféð
STJÓRN Amarflugs hf. sam-
þykkti á fundi sinum í gær að
leggja til við hluthafa félagsins,
að hlutafé verði aukið um allt
að 96,7 miUjónir króna, sem er
um tvöfalt núverandi hlutafé.
Jafnframt samþykkti stjómin
að boða til hluthafafundar 25.
febrúar nk., þar sem tillagan
um hlutafjáraukninguna verður
lögð fram.
Tilgangurinn með hlutfjáraukn-
ingunni er að bæta lausafjárstöðu
félagsins og að styrkja fjárhag
þess. Að sögn Hauks Bjömssonar
stjómarformanns, benda óform-
legar könnunarviðræður til að vel
takist til með hlutafjáraukninguna.
Stjórn Dagsbrán-
ar leitar eftir
verkfallsheimild
STJÓRN Verkamannaf élagsins
Dagsbrúnar í Reykjavík mun
óska eftir formlegri heimild til
verkfallsboðunar á almennum
félagsfundi i Iðnó klukkan 14 í
dag. „Það er ekki hægt að beita
mörgum öðrum vopnum til að
þrýsta á um samningsgerð,“
sagði Þröstur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Dagsbrúnar, eftir
stjómarfund í félaginu í gær, þar
sem formleg ákvörðun var tekin
um að leita eftir verkfallsheim-
ildinni.
„Við erum orðnir þreyttir á að
reka okkar mál við Vinnuveitenda-
sambandið, hvort heldur er í sam-
floti með ASÍ eða sjálfir. Ýmis mál
höfum við verið að þæfa við at-
vinnurekendur árum saman," sagði
Þröstur. „Það fer svo eftir stöðunni
og gangi samningaviðræðnanna
hversu lengi verður beðið. Við
munum að sjálfsögðu velja okkur
þann tíma, sem við teljum hentug-
astan, fari svo óhönduglega að við
neyðumst til að nota þá heimild,
sem ég á von á að félagsfundurinn
veiti.
Hann sagði að farið yrði fram á
það við hluthafa að þeir féllu frá
forkaupsrétti sínum, og auk þess
hefði hann rætt við fulltrúa stærsta
hluthafans, Flugleiða, að félagið
keypti ekki hlutafé að því marki
að það yrði meirihlutaeigandi
Amarflugs. Flugleiðir eiga nú
tæplega 44% hlut í Amarflugi.
Grétar B. Kristjánsson, varafor-
maður stjómar Flugleiða, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær,
að stjómin hefði ekki tekið afstöðu
til þessara beiðna Amaflugs-
manna.
Samningaviðræður hafa nú
staðið um all langt skeið um sölu
á Boeing 707 flutningaþotu Amar-
flugs við ýmsa erlenda aðila. Að
sögn Hauks Bjömssonar eru líkur
á að takist að selja þotuna nú á
næstu dögum.
Á síðastliðnu ári námu heildar-
tekjur Amarflugs liðlega 1.125
milljónum króna og höfðu þær nær
þrefaldast milli ára. Ekki liggur
fyrir endanlegt uppgjör ársins, en
ætla má að nokkurt tap hafí orðið
af rekstri.
Sigurfari var áður gerður út frá
Grundarfirði af Hjálmari Gunnars-
syni og íjölskyldu hans. Þingmenn
Vesturlands rituðu vegna þessa sjáv-
arútvegsráðherra bréf fyrir
skömmu, þar sem þeir lögðu áherzlu
á að skipið færi aftur til heimahafn-
ar. Frá Grundarfirði komu tvö tilboð
í skipið, Siglunes hf. (Hjálmar Gunn-
arsson og fleiri) bauð 168,3 milljónir
í skipið og Hraðfrystihús Grundar-
fjarðar 165. Fjögur tilboð voru
hærri. Sjávarútvegsráðherra ritaði
síðan Fiskveiðasjóði bréf, þar sem
hann kynnti sjóðnum álit þing-
mannanna, en í svari sjóðsins kom
fram, að hann legði á það áherzlu
að selja skipið hæstbjóðanda, svo
fremi, sem greiðsluáætlun og veð
stæðust. Vegna þessa hótuðu þrír
stjómarmanna Fiskveiðasjóðs að
ganga úr stjóminni, linnti ekki póli-
tískum þrýstingi á stjómendur sjóðs-
Trúi þessu ekki
Hjálmar Gunnarsson, fyrrum
eigandi Sigurfara, sagðist í samtali
við Morgunblaðið, ekki trúa því að
Fiskveiðasjóður seldi Sigurfara til
Akraness, fyrr en hann fengi á
því staðfestingu frá sjóðnum. Hann
vildi því ekki tjá sig um málið á
þessu stigi.
Beittum engum þrýstingi
„Við ákváðum að bjóða f þetta
skip vegna þess, að nokkrar líkur
Könnun Lögreglufélags Reykjavíkur og fjármálaráðuneytisins;
Dánaraldur vaktavinnu-
fólks lægri en annarra
Munurinn vart undir tíu árum innan lögregl-
unnar í Reykjavík segir Einar Bjarnason
„MUNURINN á meðaldánaraldri vaktavinnufólks annars vegar
og hinsvegar dagvinnufólks innan lögreglunnar í Reykjavik er
varla undir tíu árum,“ sagði Einar Bjamason formaður Lögreglufé-
lags Reykjavíkur ( samtali við Morgunblaðið í gær. í nýlegri könnun
sem gerð var f samvinnu Lögreglufélagsins og fjármálaráðuneytis-
ins og metin var af tryggingarfræðingi kemur í Ijós að niðurstöður
styðja þá kenningu að vaktavinna hafi áhrif til að stytta líf lög-
reglumanna án þess þó að um sönnun sé að ræða.
Könnunin náði til 337 lögreglu-
manna, eða allra þeirra sem starf-
að höfðu í lögreglunni í Reykjavík
5 ár eða lengur á sl. 40 árum,
1946-1986. Niðurstöður könnun-
arinnar mætti hugsanlega túlka
svo að lögreglumenn mundu vera
langlíf stétt ef ekki væri vakta-
vinnan.
Bjöm Amórsson, hagfræðingur
hjá BSRB, sagði í samtali við
blaðamann að þetta væri mjög
alvarlegt mál og alls ekkert einka-
mál lögreglumanna heldur alls
vaktavinnufólks í landinu og fjöl-
skyldna þeirra auk allra laun-
þegasamtaka. Hann sagði að ekki
væri nærri því nógu hárt tekið á
þessum staðreyndum í samningum
hérlendis.
Einar sagði að líklega væri ekki
hægt að fullsanna þetta fyrr en
eftir u.þ.b. 30 ára tímabil. „Flestir
myndu eflaust halda að lögreglu-
menn ættu að hafa hærri Iffslíkur
heldur en aðrir þar sem þeir eru
sérstaklega valdir f störfín vegna
hraustleika síns. Menn eru virki-
lega orðnir þreyttir á allri þessari
næturvinnu hér innan lögreglunn-
ar og er stéttin hreinlega að
hrynja. Aukavinnan þarf að
minnka - hún er orðin vitleysislega
mikil. 41 manns hafa hætt á sl.
15 mánuðum í lögreglunni, þar af
hafa 30 farið í önnur og óskyld
störf. Þar á meðal hefur lögreglan
misst þriðjung liðsafla úr Víkinga-
sveitinni á undanfömum mánuðum
og sama hlutfall úr fíkniefnadeild-
inni. Það kostar mikla peninga og
tíma að þjálfa nýja menn upp í
þessi sérhæfðu störf."
Einar sagði að í komandi samn-
ingum yrði könnun þessi ekki
notuð til þess að knýja fram beinar
launahækkanir heldur yrði aðal-
áherslan lögð á breyttar reglur um
eftirlaun lögreglumanna eða
vinnutímastyttingu. „Við munum
ekki þola áfram hmn stéttarinnar
og ætlum okkur að verða óbilgjam-
ir í komandi samningum."
voru á því að skipið færi ekki til
fyrri heimahafnar," sagði Haraldur
Sturlaugsson, framkvæmdastióri
Haralds Böðvarssonar & Co., í
samtali við Morgunblaðið. „Það var
jafnframt ákvörðun okkar, yrðum
við inni í myndinni, að við töluðum
eingöngu við samningamenn Fisk-
veiðasjóðs. Við töluðum aldrei við
þingmenn Vesturlands eða settum
þrýsting á nokkum mann og enginn
talaði við okkur heldur. Ég skýrði
Hjálmari Gunnarssyni í Gmndar-
firði frá því, er við höfðum hafið
samningaviðræður við Fiskveiða-
sjóð. Vitað var að mál þetta yrði
viðkvæmt og þess vegna höfum við
fullan skilning á bréfi því, sem
þingmennimir skrifuðu sjávarút-
vegsráðherra. Hins vegar teljum
við, hefði skipið áfram átt að vera
gert út frá fyrri heimahöfn í Gmnd-
arfirði, hefði átt að vera búið að
bjarga málunum áður en skipið var
boðið út. Á eftir okkur vom Norð-
lendingar, sem hefðu fengið skipið,
hefðum við ekki staðizt þær ströngu
kröfur, sem stjóm Fiskveiðasjóðs
setti fram í þessum samningum.
Útgerðarfélag Akureyringa, sem er
eitt það sterkasta í landinu, var
næst á eftir okkur. Ef skipið átti
ekki að fara heim aftur, vonum við
að Gmndfirðingum sé sama hvort
það fari hingað eða norður til
Akureyrar. Meira hef ég ekki að
segja um þatta mál, en við vitum
það hjá þessu fyrirtæki, sem átt
hefur 35 skip frá upphafi, að mikill
vandi verður að reka svo dýrt skip,
sem Sigurfari er. Fyritækið á fjögur
skip fyrir og staða þess er góð. Það
er frábæm starfsfólki, bæði á sjó
og landi að þakka, að hægt var að
bjóða í skipið," sagði Haraldur.
Annar maður
handtekinn
Rannsóknarlögregla ríkisins
lagði í gær fram kröfu í Sakadómi
Kópavogs um gæsluvarðhald yfir
starfsmanni Mjólkursamsölunnar
vegna rannsóknar á meintri sölu
á stolinni mjólkurvöru i verslanir
á Reykjavíkursvæðinu, en einn
maður hefur þegar verið úrskurð-
aður i gæsluvarðhald. Erla Jóns-
dóttir, deildarstjóri þjá RLR, vildi
ekki tjá sig frekar um rannsókn
málsins, sem hún sagði vera á
frumstigi.
Fyrrum bflstjóri hjá Mjólkursam-
sölunni hefur viðurkennt að hafa
stolið mjólk og selt f um 20 verslan-
ir á höfuðborgarsvæðinu. Hann var
handtekinn eftir að RLR barst
beiðni um opinbera rannsókn frá
forráðamönnum Mjólkursamsöl-
unnar á því, hvort mjólkurvörum
hafi verið stolið og þær seldar
kaupmönnum, jafiivel á hálfvirði. Á
föstudag vom 16 kaupmenn yfir-
heyrðir hjá RLR vegna rannsóknar-
innar.