Morgunblaðið - 08.02.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAU GARDAGUR 8. FEBRÚAR1986
17
Ómerkileg ósannindi
eftirKarl
Steinar Guðnason
Almenn fyrirlitning og hneykslun
verkafólks á Suðumesjum hefur
knúið Sigurð T. Garðarsson, fram-
kvæmdastjóra til að biðjast afsök-
unar á fuiðuskrifum hans um leti
og ómennsku verkafólks.
Hann reynir samt að klóra í
bakkann með rógi og órökstuddum
dylgjum um mig persónulega. Er
svo mikið við haft að meira að segja
Gróa sáluga á Leiti er leidd til vitn-
isburðar.
Furðuskrif þau er hann birti í
Morgunbl. 1. febr. sl. eru þeirrar
gerðar að tæpast er sæmandi að
standa í orðaskaki við manninn.
„Það er hinsvegar
umhugsunarefni hvort
maður sem viðhefur
hvað eftir annað ósann-
indi og óhróður í blaða-
greinum hafi efni á að
tala um siðleysi.“
ástæðulaust er ég andmælti óhróðri
hans um verkafólk að blanda fjár-
málum fyrirtækis hans f málið.
Var það gert af tillitssemi, sem
greinilega hefur verið misskilin.
Pyrst hann kýs að fara út í þá sálma
er rétt að fram komi að fyrirtæki
hans hefur árum saman svikist um
að skila launatengdum gjöldum,
þ.e. lífeyrisgjöldum, félagsgjöldum
o.fl.
Þessa flármuni hefur hann tekið
af fólkinu, en síðan valsað með það
að eig^in geðþótta. Það smáfyrirtæki
sem hann rekur skuldar með vöxt-
um um tvær milljónir króna vegna
landverkafólks. Enn hefur ekki
verið gerð krafa um uppboð vegna
þessara gjaida. Þá mun hann hafa
svikist um að greiða gjöld af sjó-
mönnum. Fór það í lögfræðinn-
heimtu í fyrra. Sú upphæð var með
vöxtum kr. 23.122.00. Rétt er að
geta þess að sú krafa er nú greidd.
Karl Steinar Guðnason
Gjöld vegna sjómanna fyrir árið
1985 eru öll í vanskilum. Upp-
boðsauglýsingar á fyrirtæki hans
birtast alltaf annað slagið. Fyrir
nokkrum dögum var mér bent á
eina slíka. Aldrei hefur verkalýðs-
félagið átt hlut þar að.
Sjálfur hefi ég ekkert með inn-
heimtu þessara gjalda að gera.
Hinsvegar hefí ég að gefnu tilefni
fengið þessar upplýsingar hjá
starfsfólki verkalýðsfélgasins og
bæjarfógetans. Það væri fremur
ástæða til að ásaka verkalýðsfélag-
ið fyrir tillitssemi við umrætt fyrir-
tæki en nokkuð annað. Það er
hinsvegar umhugsunarefni hvort
maður sem viðhefur hvað eftir
annað ósannindi og óhróður í blaða-
greinum hafi efni á að tala um
siðleysi.
Hvað kallast það að skila ekki
fjármunum, sem menn innheimta
fyrir aðra?
Höfundur er fomiaður Verkalýða-
og ajómannafélags Keflavíkur og
nágrennis.
Uppboð — Siðleysi
Eitt atriði í furðuskrifum Sigurð-
ar tel ég svaravert. Annað er
ómerkilegt bull, sem verður að
fíokka undir bamabrek og van-
þekkingu.
Hann segir I grein sinni að undir-
ritaður hafi á síðasta ári gengið
manna lengst í því að bjóða upp ;
fiskiskip fyrirtækis hans. Ég taldi
Tónlistarfélag'
Akureyrar:
Þrennir tón-
leikará
næstu vikum
Akureyri, 6. febrúar.
ÞRENNIR tónleikar verða i
Borgarbíói hér á Akureyri á
vegum T ónlistarfélags Akur-
eyrar á næstu vikum.
15. febrúar verður það Anna
Málfríður Sigurðardóttir sem heldur
píanótónleika. Þar flytur Anna
Málfríður eingöngu verk eftir kon-
ur, en þessa efnisskrá flutti hún í
tengslum við kvennafrídaginn í
haust við góðan orðstír.
8. marz heldur Elísabet Eiríks-
dóttir einsöngstónleika á sama stað.
Elísabet hefur um árabil stundað
söngnám hjá Þuríði Pálsdóttur í
Söngskólanum og sló eftirminnilega
í gegn í einu aðalhlutverkinu í
Grímudansleiknum eftir Verdi. El-
ísabet fékk mjög lofsamiega dóma
gagnrýnenda. Einn þeirra komst
svo að orði, að hún hefði eina full-
komnustu óperusópranrödd sem er
til á fslandi.
í marz koma einnig þeir Halldór
Haraldsson píanóleikari, Gunnar
Kvaran sellóleikari og Guðný Guð-
mundsdóttir fíðluleikari. Þau halda
tónleika á vegum félagsins 22.
NORDURLÖND
BANDARÍKIN
EINSITÐIR SKÁKVIÐBURÐIR
t HAMRAHLÍÐARSKÓIA
i
marz.
Áskriftarkort að öllum tónleikun-
um verða send félagsmönnum en
þau verða einnig til sölu í bókabúð-
inni Huld.
(Úr f réttatilkynningu)
Bæjum, Snæfjallaströnd:
íbúðarhús
byggtáþorra
Bæjum 5. febrúar.
ÞAÐ mun ekki hafa gjörzt áður
við ísafjarðardúpi að heilt íbúð-
arhús væri byggt hér á þorran-
um, en svo gerði Benedikt Egg-
ertsson, forstjóri íslax í Hafnar-
dal í gær. Hann steypi upp 150
fermetra íbúðarhús sitt við lax-
eldisstöð íslax á Nauteyri og lauk
því verki á 10 tímum.
Góðviðri er hér og frostlaust, þiðnað
svell og snjóar. Vegir greiðfærir um
allt Djúpið og Steimgríms^arðar-
heiði nýmokuð og fær sem á sumri
væri, en þó nokkuð svellaðir vegir
á köflum.
Jens í Kaldalóni
Lauganiag og sunnudag, 8.og 9. febrúar
Allir fremstu skákmeistarar þjóöanna taka
þátt í mótinu, 20 stórmeistarar og 6 alþjóðlegir
meistarar.
Tefldar veröa 2 umferðir á 12 boröum.
Dagskrá:
Laugardagur kl. 13.00: Setningarathöfn
— — 13.30-19.30: l.umferð.
Sunnudagur — 13.30-19.30: 2. umferö.
Allur aögangseyrir rennur til Skákminjasafns S.í.
SKÁKSAMBAND NORÐURLANDA
VjS/VSQ