Morgunblaðið - 08.02.1986, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986
21
Vetrar-
heræfingar
í Norður-
Noregi
Casteau, 7. febrúar. AP.
UM 20.000 hermenn frá átta
NATO-ríkjum munu taka þátt
í heraefingum í Norður-
Noregi, sem hefjast eiga í
næstu viku og stánda í mánuð.
Heræfíngum þessum hefur
verið gefíð nafnið „Anchor Ex-
press" og er ætlunin með þeim
að þjálfa herlið Norðmanna og
bandalagsþjóða þeirra við vetrar-
aðstæður svo og hraðlið NATO.
Æfíngar þessar fara fram í
Norður-Noregi í tengslum við
sérstakar heræfíngar norska
hersins, sem nefnast „Flotex".
Eiga þær að standa yfír frá 15.
febrúar til 18. marz. Þeim verður
stjómað af brezka hershöfðingj-
anum Sir Geoffrey Howlett, sem
nýlega var skipaður yfírmaður
herja NATO í Norður-Evrópu,
ítalskur hermaður úr hraðliðasveitum NATO í viðbragðsstöðu í
Norður-Noregi.
norska hershöfðingjanum Ulf
Berg, yfírmanni hers NATO í
Norður-Noregi og Andrew
Christie hershöfðingja frá Kan-
ada, en hann er yfírmaður hrað-
liðs NATO í Evrópu.
Herliðið, sem tekur þátt í
heræfíngunum, verður frá Kan-
ada, Vestur-Þýzkalandi, Ítalíu,
Noregi, Luxembúrg, Hollandi,
Bretlandi og Bandaríkjunum.
Ástralía:
Nýjar upplýsingar
í „Dingó-málinu“
Sydney, Ástralfu, 7. febrúar. AP.
LINDY Chamberlain, prestsfrú,
sem var dæmd í lífstíðarfangelsi
fyrir þremur árum, var látin
laus úr fangelsi í dag vegna
góðrar hegðunar.
Hún var sakfelld fyrir að hafa
valdið dauða tíu mánaða gamallar
dóttur sinnar, en sjálf hélt hún
fram sakleysi sínu og sagði að
villtur dingó-hundur hefði ráðist á
bamið og drepið það. Dómarinn í
málinu sagði að málið yrði senni-
lega tekið upp á nýjan leik, þar
sem mjög athyglisverðar nýjar
upplýsingar hefðu komið fram sem
kynnu að varpa Ijósi á málavöxtu.
Málið vakti mjög mikla athygli
í Astralíu á sínum tíma og var
kallað „Dingó-málið". Samkvæmt
fréttum AP í dag segir að tætlur
af bamafötum hafí fundist rétt
hjá líki karlmanns sem virðist hafa
hrapað til bana við Ayerklett,
frægustu klettamyndanir í Ástral-
íu.
Lindy Chamberlain lýsti fatnaði
telpunnar og sagði hana hafa verið
í fötum þeim sem nú virðast hafa
, fundist. Þar sem þau komu ekki
fram við rannsókn málsins á sínum
tíma var framburður konunnar
m.a. dreginn í efa á þeim forsend-
um.
Kosningar undir smásjá
Manila, 7. febrúar. Frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Mbl.
YFIR 26 milljónir Filippseyinga voru skráðar til að kjósa í forseta-
kosningunum sem haldnar voru á Fiiippseyjum i dag, föstudag.
Þeir höfðu tækifæri til að skipta um forseta í fyrsta skipti í 20
ár. Ferdinand Marcos, forseti, barðist hart gegn Cory Aquino,
ekkju Benigno Aquino, stjómarandstæðings, en hún hafði samúð
fólksins eftir morðið á manni hennar og gæti haft stuðning
meirihluta þess. Kosið er vitt og breitt um eyjaraar svo það tekur
sinn tima að telja öll atkvæðin og koma þeim til skila. Búist er
við endanlegum niðurstöðum á sunnudag. Aquino hafði forystu
samkvæmt fyrstu tölurn úr þéttbýU en 70 prósent þjóðarinnar
býr í dreifbýU og Marcos er sterkur þar.
Atkvæðakössum dreift f Manila fyrir kosningarnar.
Otti við óheiðarleika og ófrið
setti svip á kosningamar. Svindl
og skærur hafa ávallt átt sér stað
í kosningum á Filippseyjum, en
nú er minna um það en áður var.
Þó hafa fréttir af ýmiss konar
misferli og ofbeldi í borgum og út
um landsbyggðina heyrst í allan
dag.
Samtök borgara sem beijast
fyrir heiðarlegum kosningum,
Namfrel, voru stofnuð fyrir þing-
kosningamar 1984 og þóttu gera
mikið gagn. Þau em nú mjög
áberandi og sjálfboðaliðar þeirra
unnu við að fylgjast með kosning-
unum út um allt land í dag. Full-
trúar Namfrel em viðstaddir
fyrstu talningu atkvæða og mis-
ferli em tilkynnt til þeirra. Það
verður þeirra að skera úr um hvort
kosningamar vom heiðarlegar
eða ekki.
Namfrel hefur vakið athygli
fólks á svindli og minnkað það á
mörgum stöðum. Lítill bær í
Cavite fyrir sunnan Manila var
þekktur fyrir misferli í kosningum
hér áður fyrr. í bæjarstjómar-
kosningum árið 1979 gekk það
svo langt að kjörstöðum var lokað
tveimur tímum eftir að þeir opn-
uðu og sex tímum á undan áætlun.
Kjósendur sem komu í seinna lagi
fengu ekki að kjósa og gátu
ekkert gert nema kært málið. Það
hefur enn ekki verið dæmt í því.
Það er nú í verkahring Namfrel
að sjá til að slíkir atburðir eigi
sér ekki stað.
Starf Namfrel í bænum var
mjög vel skipulagt í dag. Einn
fulltrúi var inni á hveijum kjörstað
og sá til að rétti kjósenda væri
framfylgt. Þeir vom viðstaddir
talningu atkvæða, fylgdust með
þegar kjörkassar voru fluttir á
skrifstofur bæjarstjómar og eltu
bifreið sem flutti lokaniðurstöð-
umar í innsigluðu umslagi til
höfuðborgar kjördæmisins. Yfír-
maður Namfrel á staðnum, E.
Manrip, bauðst til að aka sjálfur
með skjalið til höfuðborgarinnar
en ritari kjömefndar sagist ætla
að nota bíl borgarstjórans og hafa
lögreglufylgd. Óttast er að skipti
verði höfð á kjörgögnum þegar
þau verða flutt á milli staða og
því fylgist Namfrel mjög grannt
með því sem fram fer.
Það er kosningavél forsetans,
KBL-flokkurinn, sem notar öll
brögð til að fá atkvæði, meðlimir
flokksins gengu í hús í Cavite
kvöldið fyrir kosningar og gáfu
fólki 20 til 50 pesa, 40 til 100 ísl.
kr., sem er þó nokkur peningur
þar, fyrir að kjósa rétta frambjóð-
endur.
Manrin taldi að fólk myndi
kjósa samkvæmt samvisku sinni
og ekki endilega greiða Marcosi
atkvæði sitt þótt það tæki peninga
afKBL.
En þakkarskuld er sterk tilfinn-
ing í þessu þjóðfélagi. Fólk vill
endurgreiða þeim sem hafa gert
því gott. Skólastjóri og eftirlits-
maður á einum kjörstað sagi að
hún hefði beðið Guð mjög innilega
að láta Cory Aquino sigra. „En ég
kaus Marcos,“ sagði hún. „Ég er
ríkisstarfsmaður og hann er æðsti
yfírmaður minn. Við fómm fram
á að fá nýja byggingu hér við
skólann í vor og fulltrúi skólamála
hjá bænum samþykkti það strax.
Hann er í KBL og ég kaus Marcos
af því að ég stend í þakkarskuld
við þennan stuðningsmann hans.
Mér fínnst hann eiga það inni
hjá mér að ég kjósi eins og hann
vill að ég geri.“ Þakkarskuld
þessarar konu reyndist sterkari
en samviska hennar og hún var
ekki fullsátt við það sjálf.
Namfrel eru vel skipulögð í
þéttbýli en hafa færri sjálfboða-
liða í dreifbýli. Sveitarstjórar eru
áhrifaríkir og langflestir þeirra
eru stuðningsmenn Marcos. Þeir
telja Namfrel hliðholl stjómarand-
stöðúnni og letja fólk til að vinna
fyrir samtökin. Namfrel er t.d.
ekki starfandi í höfuðborg Cavati.
Ríkisstjómin er mjög áhrifamikil
og varla nokkur sála í borginni
kaus Aquino.
Manarín kvartaði undan að
8.000 manns væm á kjörskrá í
borginni en íbúar hennar væm
alls 10.000. „Hinir látnu em látnir
kjósa þar,“ sagði hann en gat
ekkert við því gert.
Það er algengt áður fyrr að fólk
væri skráð á fleiri en einum stað
og kysi oft. Það er erfiðara nú
þar sem ein fíngumögl er lökkuð
blá á þeim sem kjósa.
Færri komu og kusu í Caviti
en búist var við. Einn vinstrisinn-
aður stjórnmálaflokkur hvatti fólk
til að kjósa ekki í mótmælaskyni
við Marcos en Manarin taldi það
ekki hafa haft mikil áhrif. „Þetta
vom mjög mikilvægar kosning-
ar,“ sagði hann, „og allir mótuðu
sínar skoðanir. Fjölskyldumeðlim-
ir vom ekki alltaf sammála um
frambjóðenduma og ég held að
sumir hafi sleppt að kjósa til að
halda friðinn heima fyrir."
ALVORU
ÚTIHURÐASÝNING
00
00
Bff
00
□
Á þessari meiriháttar sýningu í sýningarsal okkar að Kársnesbraut 98, Kópavogi, sýnum við
okkar glæsilega og fjölbreytta úrval HIKO-útihurða. Láttu þig ekki vanta ef þig vantar útihurð.
LAUGARDAG 8. FEBRÚAR S
OG
SUNNUDAG 9. FEBRÚAR
KL. 10-17
HURÐAIÐJAN
KÁRSNESBRAUT 98 - SÍMI43411
200 KÓPAV0GUR