Morgunblaðið - 08.02.1986, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Stórsvigsmót
Ármanns
í flokkum 14 ára og yngri veröur
haldið 15. febrúar. Þátttaka til-
kynnist í sima 77101 fyrir miö-
vikudagskvöld.
Stjórnin.
KROSSINN
ÁLFHÓLSVEGI 32 - KÓPAVOGI
Samkomur á sunnudögum kl.
16.30. Samkomur á laugar-
dögum kl. 20.30. Bibliulestur á
þriöjudögum kl. 20.30.
Allirvelkomnir.
ÚTIVISTARFERÐIR
Sunnudagur 9. febr.
Kl. 10.30. Gullfoss í klakabönd-
um. Einnig farið að Geysi, Strokki,
Haukadalskirkju og víöar. Síðasta
ferðin. Verð kr. 750 kr.
Kl. 13.00 Orustuhóll. Milli
hrauns og hlíða, skíðaganga og
gönguferð. Auðveld og
skemmtileg gönguleið. Brottför
frá BSÍ, bensinsölu. Helgarferð
í Tindfjöll verður 21. febr. og í
Þórsmörk 7. mars. Sjáumst.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferðir sunnudag
9. febrúar
1. Kl. 13.00, Varðaða leiöin á
Hellisheiði. Gengið með gömlu
vörðunum frá Hellisheiði, um
Hellisskarð að Kolviöarhóli. Létt
ganga. Verð kr. 350.00,- Farar-
stjóri: BaldurSveinsson.
2. Kl. 13.00, skíðaganga á Hell-
isheiði ef aðstæður leyfa. Verð
kr. 350.00,-. Brottför frá Um-
ferðarmiðstööinni, austanmeg-
in. Farmiðar við bíl. Fritt fyrir
börn í fylgd fullorðinna.
Ath.: Ferðaáætlun 1986 er
komin út.
Myndakvöid.
Ferðafélagið efnir til mynda-
kvölds i Risinu, Hverfisgötu 105
miðvikudaginn 12. febrúar
kl.20.30.
Efni: Hellaskoðun. Árni Stefáns-
son segir frá forvitnilegum hell-
um í máli og myndum. Hellaskoð-
un með Áma er ævintýri likust.
Skiðagönguferðir og fl. Jón
Gunnar Hilmarsson sýnir myndir
og segir frá skiðagönguferðum
á Hornströndum og víðar.
Allir velkomnir, félagar og aörir.
Verð kr. 50.00,-.
Helgarferð 14. — 16. febrúar.
Brekkuskógur skíða- og göngu-
ferð. Gist í orlofshúsum í Brekku-
skógi. Brottför föstudag kl.
20.00.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofunni, Öldugötu 3.
Gullfoss í klakaböndum. Dags-
ferð sunnudag 16. febrúar.
Munið vetrarfagnað Ferðafé-
lagsins i Risinu, föstudaginn 7.
mars.
Góuferð til Þórsmerkur verður
farin helgina 28. febrúar
— 2. mars nk.
Feröafélag fslands.
Dyrasímar - Raflagnir
Gestur rafvirkjam., s. 19637.
raðauglýsingar
raðauglýsingar
1
Mosfellssveit — prófkjör
Prófkjör vegna sveitarstjórnarkosninganna fer fram laugardaginn 8.
febrúar kl. 9.00-18.00 í Hlégarði. Utankjörstaðakosning stendur yfir
í versluninni Þverholti.
Kjörnefnd.
Týr Kópavogi
Kynnisferð á Keflavíkurflugvöll
Farin verður kynnisferð á Keflavíkurflugvöll laugardaginn 8. febrú-
arnk. Mæting verður að Hamraborg 1 þann dag kl. 11.30 og lagt af
stað fyrir kl. 12.00. Flugvöllurinn skoðaður til kl. 17.00, þá borðaö
á Glóðinni, Keflavík, og loks notið gestrisni ungra sjálfstæðismanna
í Keflavík og Njarðvík. Komið verður að Hamraborg aftur um kl.
23.30. Rútugjald er kr. 400.00. Pantanir i simum 41589 og 42196
í hádeginu milli kl. 12.00-13.00. Ath. að panta tímanlega því sæta-
fjöldi er takmarkaöur. Stjórn Týs
Týr — skólanefnd
Fundur í menntaskólanum
Skólanef nd Týs í Kópavogi efnir til umræðu-
fundar um lánasjóö islenskra námsmanna
í Menntaskólanum í Kópavogi þriðjudaginn
11. febrúar kl. 17.00.
Gestur fundarins verður Sverrir Hermanns-
son menntamálaráðherra. Fundarstjóri
verður Haraldur Kristjánsson formaðurTýs.
Skólanefndin.
Félagi alifugla-
bænda meinað að
reisa stofnræktar-
stöð að Stóra-Armóti
Seifossi, 3. febrúar.
FÉLAGI alifuglabænda hefur verið synjað um leyfi til að reisa og
reka stofnræktarstöð í landi Stóra-Ármóts þar sem Búnaðarsamband
Suðurlands er að byggja upp tilraunastöð í landbúnaði.
Félag alifuglabænda hefur stofn-
að sérstakt hlutafélag um byggingu
stofnræktarstöðvar, Stofnegg hf.,
og sótti um það til stjórnar Búnað-
arsambands Suðurlands sl. haust
að fá að reisa og reka stofnræktar-
stöð að Stóra-Armóti í Hraungerð-
ishreppi.
Með stofnræktarstöðinni hyggj-
ast alifuglabændur bæta stofninn
með markvissu kynbótastarfi og ná
með því afurðameiri fuglum í fram-
leiðsluna. Fyrirhugað var að koma
stöðinni upp í tveimur áföngum. í
fyrri áfanga yrðu reist tvö stofnhús
fyrir varphænur og holdafugla. í
seinni áfanga var ætlunin að reisa
Leiðrétting við
minningargrein:
Lína féll
niður
í minningargrein um Harald
Ásgeirsson eftir Hauk Má Har-
aldsson, í blaðinu á föstudag,
urðu þau leiðu mistök að niður
féll lína sem olli því að merking
textans brenglaðist. Málsgreinin
öll átti að hljóða svona: „Við
vorum þama uppi í um það bil
45 mínútur og ég fékk þann
skemmtilegasta landafræðitíma
sem ég hef fengið á lífsleiðinni.
Vélin fannst mér óttalegt hró
þegar hún stóð á flugvellinum,
en allur uggur gleymist við hlið
Halla,...“ Það sem undirstrikað
er féll niður í greininni.
uppeldishús þar sem stofninn væri
endumýjaður.
Rekstur stöðvarinnar yrði með
þeim hætti að öllum stæði til boða
að skipta við stöðina og kaupa af
henni egg. Engin útungun er fyrir-
huguð á stöðinni heldur er kaupend-
um eggjanna ætlað að sjá um það.
Stofnegg hf. hugðist fjármagna
stöðina að fullu og annast rekstur
hennar en fullbúin er áætlað að
stöðin kosti 5—6 milljónir.
Stjóm Búnaðarsambands Suður-
lands tók í fyrstu jákvætt í erindi
Félags alifuglabænda um að stöðin
yrði staðsett á Stóra-Ármóti en vildi
að leitað yrði umsagnar Rannsókn-
arstofnunar landbúnaðarins og til-
raunanefndar sem er nefnd innan
búnaðarsambandins.
Þann 3. janúar barst Félagi ali-
fuglabænda bréf þar sem hafnað
er erindi félagsins um að reisa
stöðina á Stóra-Ármóti. Bréf þetta
er frá Stóra-Ármótsnefnd. Í bréfinu
segir að tillögur Félags alifugla-
bænda um stofnræktarstöð hafí
verið kynntar stjómum RALA,
Búnaðarsambandi Suðurlands og
tilraunanefnd.
í framhaldi af þeirri umijöllun
sem þar átti sér stað ákvað staðar-
stjómin að Stóra-Ármóti eftirfar-
andi:
— Að stefna að áframhaldandi
þjónustu við hænsnfuglarækt í
landinu.
— Að flytja stofnræktarstöðina
(útungun og uppeldi) sem nú er í
Laugardælum að Stóra-Ármóti.
— Að stofnræktarstöðin taki að
sér innflutning á kynbótastofnum í
samvinnu við yfírdýralæknisemb-
ættið og hagsmunaaðila.
— Að við hönnun húsakosts að
Stóra-Ármóti verði tekið mið af
hugsanlegum rannsóknum t.d. í
húsvist.
Éinar Eiríksson, formaður Fé-
lags alifuglabænda.
Síðan óskar stjómin eftir stuðn-
ingi og samvinnu allra hænsnfugla-
ræktenda við þessa ákvörðun og
felur Gunnari Guðmundssyni til-
raunastjóra á Laugardælum að
vinna að framgangi málsins.
Undir bréfíð ritar Snorri Þor-
valdsson formaður Stóra-Ármóts-
nefndar.
Einar Eiríksson bóndi að Mikla-
holtshelli í Hraungerðishreppi er
formaður Félags Alifuglabænda.
Hann sagði að félagið liti svo á að
um algert afsvar væri að ræða og
að þetta kæmi mönnum mjög í opna
skjöldu einkum vegna þess að fyrir-
huguð væri uppbygging á Stóra-Ár-
móti fyrir allar búgreinar. Hann
sagði að yfírdýralæknir, Páll A.
Pálsson, hefði verið því mjög með-
mæltur að slík stöð yrði reist þar
sem það auðveldaði mjög allt eftirlit
þegar innflutnigur væri á einni
hendi. Einar sagði að menn væru
hissa á þessari afgreiðslu Stóra-
Ármótsnefndar þar sem Stofnegg
hf. ætlaði að fjármagna þessa
uppbyggingu. Hann sagði að félag-
ið hefði ekki gert ályktun um málið
er það yrði afgreitt formlega innan
tíðar. „En við stefnum að því að
byggja þessa stöð á þessu ári og
koma henni í starfrækslu svo fljótt
sem auðið er,“ sagði Einar um
framhald málsins og gat þess að
unnið væri að því að fá land undir
stöðina.
Sig. Jóns.
Alþjóðasamtök háskólakvenna:
„Hvetjum konur til náms
og starfa í samfélaginu“
— segir forsetinn sem er hér I stuttri heimsókn
AÐALFUNDUR Kvenstúdenta-
félagsins og Félags háskóla-
kvenna verður haldinn í dag I
veitingahúsinu „Mandaríninn“
á Nýbýlavegi í Kópavogi. Fé-
iagið er meðlimur í Alþjóða-
samtökum háskólakvenna og í
því tilefni kom forseti samtak-
anna, Dr. Helen S. Dunsmore,
hingað til landsins, en hún flyt-
ur erindi um starfsemi samtak-
anna á alþjóða vettvangi á
aðalfundinum.
„Aðaltilgangur alþjóðlegu sam-
takanna er að stofna til vináttu-
banda milli háskólamenntaðra
kvenna víða um heim, hvetja
konur til náms og stuðla að því
að þær nýti menntun sína í sam-
félaginu," sagði Dr. Helen S.
Dunsmore í stuttu spjalli. Hún
sagði að samtökin hefðu verið
stofnuð 1919, nú eru 54 lönd
meðlimir í alþjóðasamtökunum og
um 240 þúsund einstaklingar.
Þetta er þriðja ár Helen í þessu
embætti, en forsetar samtakanna
eru kosnir á fundi sem haldinn
er með meðlimum allra landanna
þriðja hvert ár, þeim sem sjá sér
fært að mæta, en það eru oftast
800—1.400 konur. Þess á milli eru
haldnir minni fundir þar sem fjall-
að er um ýmis málefni. Samtökin
eru einnig með fulltrúa víða um
heim, í Vín, New York, í Paris
og Genf og þar geta meðlimir
Helen S. Dunsmore
fengið upplýsingar um hvað er
að gerast á alþjóðavettvangi
samtakanna. Hún sagði ennfrem-
ur að konur væru hvattar til að
hafa samband við samtök annarra
landa er þær eru að ferðast er-
lendis á eigin vegum, m.a. til að
kynnast landi og þjóð betur.
Dr. Helen er búsett í Glasgow,
og er efnafræðikennari þar við
Háskólann.
Grétar Reynisson
í Nýlistasafninu
NÚ um helgina lýkur sýningu Grétars Reynissonar í Nýlistasafninu
við Vatnsstíg. Sýningin verður opin báða dagana frá 14—20.
Grétar útskrifaðist úr nýlista-
deild Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1978. Hann var við nám í
Hollandi veturinn 1978—79. Grétar
hefur áður haldið sýningar á högg-
myndum og þrívíðum verkum, en
undanfarin ár hefur hann unnið við
leikmyndagerð við flest leikhús
borgarinnar.
Á sýningunni eru á annað hundr-
að myndir, unnar með acryl á pappa
og olíu á striga og eru flestar
myndanna til sölu.