Morgunblaðið - 14.02.1986, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR 1986
21
ERLENT
Luton B 244x L 300 áklæði.
Þú getur að sjálfsögðu greitt útborgunina
með greiðslukorti eða staðgreitt með því og
fengið hæsta staðgreiðsluafslátt.
QDSGAGNAHÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVÍK® 91-81199 og 81410
Sænska sljórnin veit-
ir Kockums gálgafrest
— 5,6 milljörðum króna veitt til eflingar atvinnulíf i í Málmey
AP/Símamynd
Rafmögnuð lending
Tveir menn sluppu með skrekkinn er þeir lentu flugvél sinni á
háspennulinum við flugvöllinn í Ontario við Los Angeles. Flug-
vélin kom of lágt inn til lendingar að kvöldlagi og rakst á
rafmagnslínumar og festist í þeim. Mennirair máttu dúsa í
flugvélinni i fjórar klukkustundir þar til þeim var bjargað.
Myndin var tekin á miðvikudag er reynt var að ná flugvélinni
af rafmagnslínunum.
Norsk Hydro:
12 mílljarða
gróðií fyrra
Osló, 13. febrúar. AP.
NORSK HYDRO skilaði 2,1 milljarðs hagnaði norskra króna á
síðasta ári, eða jafnvirði 12 milljarða íslenzkra, samkvæmt
bráðabirgðaársuppgjöri fyrirtækisins.
Samkvæmt uppgjörinu var velta Að sögn Torvild Aakvaag, fram-
Norsk Hydro á síðasta ári 42 millj- kvæmdastjóra Norsk Hydro, batn-
arðar norskra króna, eða jafnvirði
214 milljarða íslenzkra. Miðað við
árið 1984 jókst velta fyrirtækisins
um 18% í fyrra og hagnaðurinn um
3%.
aði afkoma fyrirtækisins jafnt og
þétt fyrstu níu mánuði ársins, en
hins vegar seig á ógæfuhliðina á
síðasta ijórðungi ársins, er hagnað-
ur varð lítill.
Stokkhólmi, 13. febrúar. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
SÆNKSA stjórain hefur ákveðið að veita einum milljarði sænskra
króna, eða jafnvirði 5,6 milljarða islenzkra, til að bæta atvinnuástand-
ið á Málmeyjarsvæðinu, og hefur það í för með sér að Kockums-
skipasmíðastöðin mun starfa með eðlilegum hætti þar til í ársbyrjun
1988.
Stjómin hefur ákveðið að ábyrgj-
ast smíði tveggja feija hjá Kock-
ums, en enginn kaupandi er að
skipunum ennþá. Kockums hefur
ekki borizt pöntun í nýsmíði frá
því 1983. Thage G. Peterson, iðnað-
arráðherra, segir að framtíð Kock-
ums velti á því hvort samningar
náist um nýsmíði.
Allt stefnir því í að í byijun árs-
ins 1988 missi 2.300 starfsmenn
skipasmíðastöðvarinnar atvinnuna.
Kafbátadeild fyrirtækisins verður
hins vegar haldið gangandi þótt
önnur starfsemi leggist niður, en
þar starfa um 500 menn.
Ný skoðanakönnun í Bretlandi:
Thatcher ekki not-
ið jafnlítilla vin-
sælda í fjögur ár
London, 13. febrúar. AP.
MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, hefur ekki
notið jafnlítilla vinsælda og nú á sl. fjórum árum, og flokkur
hennar, íhaldsflokkurinn, nýtur minna fylgis en báðir stjórnar-
andstöðuflokkarnir, að þvi er fram kemur í Gallup-könnun, sem
birt var í gær.
Niðurstöður könnunarinnar birt-
ust í blaðinu Daily Telegraph, sem
styður íhaldsflokkinn, og sýna þær,
að aðeins 29% þeirra 915 kjósenda,
sem spurðir vom, eru ánægðir með
störf Thatcher sem forsætisráð-
herra.
Aðeins einu sinni áður hafa vin-
sældir hennar verið minni, en það
var í desember árið 1981, tveimur
og hálfu ári eftir að hún var kjörin
í fyrra skiptið. Þá voru aðeins 25%
þeirra, sem spurðir voru, ánægðir
með störf hennar sem leiðtoga. Var
það lægsta vinsældahlutfall, sem
breskur þjóðarleiðtogi hafði hlotið
frá því í síðari heimsstyijöldinni.
Samkvæmt könnuninni hlyti
íhaldsflokkur Margaretar Thatcher
aðeins 29,5% atkvæðanna, ef kosið
yrði nú. Verkamannaflokkurinn
fengi 35,5% og samfylking frjáls-
lyndra og jafnaðarmanna 33,5%.
Jafnframt ákvað stjómin að ný
bílaverksmiðja Saab Scania skuli
byggð í Málmey og gæti hún að
likindum tekið við flestum þeim
starfsmönnum, sem missa atvinn-
una þegar Kockums verður að
mestu lokað. Ýmsir landshlutar
hafa togast á um verksmiðjuna, sem
reist verður í tveimur áföngum á
næstu fímm árum. Áætlað er að
hún kosti 1,5 milljarða sænskra
króna fullbúin, eða um 8,5 milljarða
íslenzkra. Verksmiðjan mun veita
3.000 manns atvinnu. Þegar verk-
smiðjan verður tilbúin verður starf-
semi Saab-verksmiðjunnar í Arlöv,
sem er fyrir norðan Málmey, dregin
saman, en þar starfa um 1.000
manns.
Einnig verður ráðist í miklar
vegaframkvæmdir á Málmeyjar-
svæðinu, m.a. byggður nýr hring-
vegur um borgina og nýr vegur,
sem tengja mun borgina vjð Evr-
ópuveg númer 6.
Loks ákvað sænska stjómin að
flýta og auka undirbúning að smíði
brúar yfír Eyrarsund milli Málmeyj-
ar og Kaupmannahafnar og jám-
brautarganga undir sundið milli
Helsingjaborgar í Svíþjóð og Hels-
ingjaeyrar í Danmörku. Aðeins
vantar grænt ljós frá dönskum
stjómvöldum áður en hægt er að
hefja brúarsmíði og gangnagerð.
Kostnaður við þessar framkvæmdir
er áætlaður um 8 milljarðar
sænskra króna, eða um 45 milljarð-
ar íslenzkra.
Sovétríkin:
Forréttindi gagn-
rýnd í lesendabréfi
Moskvu, 13. febrúar. AP.
SOVÉTMENN ættu að loka sérstökum verslunum, sjúkrastofum
og veitingastöðum fyrir hástéttina í iandinu og Iáta foringja
kommúnistaflokksins standa í biðröðum eins og almúgann. Þetta
segir í lesendabréfi, sem 46 ára gamall félagi í Kommúnista-
flokknum skrifaði og birtist í Prövdu, málgagni Kommúnista-
flokksins, í dag.
Hann og annar lesandi blaðsins
leggja einnig til að teknar verði
upp reglulegar hreinsanir í emb-
ættismannakerfínu og sá háttur-
inn hafður á að embættismenn
sitji aðeins ákveðinn tíma í senn
til að koma í veg fyrir spillingu.
Að sögn voru bréfín birt til
þess að skapa mætti umræðu um
hugmyndafræði og markmið fyrir
27. þing Kommúnistaflokksins,
sem hefst 25. febrúar.
Svör fylgdu. Reyndar voru
engin svör við kvörtunum yfír
forréttindi hástéttarinnar í
landinu, en því svarað til að
Kremlverjar hefðu ekki áhuga á
að láta ráðamenn sitja ákveðinn
tíma í senn. Betra þætti að taka
hvert mál fyrir sig til þess að
uppræta spillingu.
Nikolaj Kasan sagði í bréfi sínu:
„Við lifum við sósíalisma og því
ætti hver að hljóta laun í samræmi
við erfíði sitt. Látum vera að yfír-
maður hljóti hærri laun. En önnur
forréttindi ættu ekki að vera til.
Yfirmaðurinn getur farið í venju-
legar búðir og staðið í biðröðum.
Ef til vill kemur þá fyrr að því
að biðröðunum, sem allir hata,
verði útrýmt.“
Mikhail S. Gorbachev, aðalrit-
ari Kommúnistaflokksins, hefur
hamrað á því í viðtölum undan-
farið að embættismenn ættu að
gæta meiri hófsemi í stað þess
að guma sig af fríðindum og er-
lendum bílum. Þess eru þó engin
merki að draga eigi úr forréttind-
um.
Fulltrúar á 27. flokksþinginu
geta til dæmis farið fremst í bið-
raðir á bensínstöðvum og í leik-
húsum.