Morgunblaðið - 27.03.1986, Page 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ1986
Skákkeppni framhaldsskóla:
Sveit Verslunar-
skólans sigurvegari
SVEIT Verzlunarskóla ísiands
sigraði örugglega í skákkeppni
f ramhaldsskóla, haldin dagana
14.—16. mars sl. Sveit skólans
skipuðu: Davíð Ólafsson, Þröst-
ur Þórhallsson, Andri Áss Grét-
arsson og Gunnar Björnsson.
Félagslíf Verzlunarskólans hef-
ur löngum þótt öðrum til fyrir-
myndar þó ekki minnist ég, að
fjölmennir nemendahópar hafi
þaðan fyrr haslað sér völl á skák-
sviðinu. Og sannarlega er þetta í
fyrsta sinn sem sigur á fram-
haldsskólamóti í skák hlotnast
skólanum. Skýringin á góðu gengi
skólans nú er auðvitað að á síð-
ustu tveimur árum hafa margir
snjallir skákmenn hafíð nám við
Grundarstíg, og áhuginn í hinu
nýja aðsetri skólans tekur vonandi
flörkipp við þennan glæsilega
árangur.
Það varð strax ljóst eftir fyrstu
umferðimar hvert sigurinn
stefndi. Sveit Verzlunarskólans
gaf andstæðingum sínum engin
grið og lagði andstæðinga sína í
fyrstu fímm umferðunum án þess
að glata punkti. Aðeins var þá
slakað á klónni, enda sigurinn
þegar öruggur, og unnust síðustu
tvær umferðimar með minni mun.
Þröstur Þórhallsson og Andri
Ass Grétarsson stóðu sig best í
liðinu og sigmðu alla andstæðinga
sína, sjö að tölu.
Sú var tíðin að Menntaskólinn
í Hamrahlíð bar höfuð og herðar
yfír aðra skóla og gat hæglega
stillt upp b-sveit skólans til að
sigra aðra skóla í skákkeppnum.
Það er ekki lengur og mátti
a-sveit MH gera sér annað sætið
að góðu. Stór skellur gegn sigur-
sveitinni réði þar mestu um. Nám
við Hamrahlíð er ekki lengur það
aðdráttarafl fyrir sterkustu ungl-
inga á skáksviðinu sem áður var
og geldur frammistaðan auðvitað
þess. Þó fer áhuginn greinilega
ekki dvínandi því frá skólanum
vora mættar til leiks níu sveitir
og hlýtur það að vera einsdæmi.
Sveitimar settu líka skemmti-
legan blæ á keppnina og vöktu
margar athygli fyrir getu og
sumar vangetu. B-sveit MH
hreppti þriðja sætið, vinningi á
eftir A-sveitinni og einnig kom
G-sveit MH skemmtilega á óvart
með að sigra m.a. sveit Mennta-
skólans í Reykjavík 3-1.
27 sveitir mættu til leiks og
staða efstu sveita varð þessi:
1. Vcrzlunarskóli íslands, A-sv. 25'/2 v.
2. Mcnntask. v/Hamrahlíð, A-sv. 21V* v.
3. Menntask. v/Hamrahlíð, B-sv. 20'/« v.
4. Fjölbrautask. í Armúla, A-sv. 17'/« v.
5. Flensborgarskólinn, A-sv. 17 v.
6. Menntask. v/Hamrahlíð, C-sv. 17 v.
u. mciuiuiða. v/u<uiuaiuiu, v<-sv. x < v.
Ólafur H. Ólafsson og Ámi
Jakobssen gegndu dómarastörf-
um að þessu sinni. Hér fer á eftir
skák frá mótinu.
Hvítt: Þorvaldur Logason
(Flensborgarskóla).
Svart: Davíð Ólafsson
(Verzlunarskóla).
I. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4
- cxd4, 4. Rxd4 - Rf6, 5. Rc3
— a6, 6. Bg5 — e6, 7. f4 —
Be7, 8. Df3 - Dc7, 9. 0-0-0 -
Rbd7,10. Bd3 - Rc5,11. Hhel,
(Lítil gildra er fólgin í 11. Kbl —
h6, 12. Bh4 — Rfxe4! og svartur
vinnur peð.)
II. - Rxd3, 12. Hxd3 - 0-0,
13. e5?!
(Hið framsækna peð verður skjótt
veikt og því var 13. Dg3 vænlegri
möguleiki).
13. - dxe5, 14. fxe5 - Rd5, 15.
Bxe7 - Rxe7,16. Kbl - Hb8,
(Það er vert að líta aðeins á
möguleika stöðunnar. Hvítur hef-
ur sæmileg sóknarfæri á kóngs-
væng sem mótvægi við hið staka
peð á miðborðinu. Svarta staðan
er á hinn bóginn traust og nær
hann fyrirhafnarlaust framkvæð-
inu í næstu leikjum.)
17. Dh5 - Rg6, 18. Hh3 - h6,
19. Hg3 — b5,20. Rf3
(Reyna mátti 20. Re4!? Leikir
hvíts era of hægfara.)
20. - b4, 21. Rdl - Bb7, 22.
Rh4? - Hbc8,23. c3 - Dc4!
(Svartur sýnir skemmtilega fram
á vankanta síðustu leikja hvíts,
og hefur nú yfírburða stöðu.)
24. Rxg6 - Be4+, 25. Kal -
Bxg6,26. Dg4 - Dd5!, 27. Re3
(Fátt var til vamaðar því svartur
hótaði m.a. 28. — Dd2).
27. — Dxe5, 28. Dxb4 — Hb8,
29. Dg4?
(Lokaafleikurinn. 29. Dd4 var
altént skárri möguleiki.)
29. — Hxb2!
Sleggjuhögg. Hvítur verður mát
ef hann þiggur hrókinn, t.d. 30.
Kxb2 - Hb8+, 31. Ka3 - Dc3+,
32. Ka4 - Dc6+, 33. Ka3 -
Dc5+, 34. Ka4 - Db5+, 35. Ka3
— Da5+, 36. Da4 — Dc5+ og
mátar í næsta leik. Hvítur er því
vamarlaus.)
30. Rc2 - Dxel+!, 31. Kxb2 -
Dd2
Hvítur gafst upp enda tapast
riddarinn óbættur.
\
Páskaeggin
frá
Þau eru líka
langbest
Tilbodsverð med
30% álagningarafslætti
Verð: Egg nr. 1 kr.
Egg nr. 2 kr.
Egg nr. 3 kr.
Egg nr. 4 kr.
Egg nr. 5 kr.
Egg nr. 6 kr.
67,00 stk.
128,35 stk.
261,90 stk.
428,00 stk.
635,00 stk.
1.049,00 stk.
Opið laugardag
frá7—4
- É
Ferðaáætl-
un Utivist-
ar komin út
FERÐAÁÆTLUN ferðafélagsins
Útivistar er komin út. f henni er
að finna upplýsingar um lengri og
skemmri ferðir um fsland, áhersla
er lögð á gönguferðir og útiveru
við allra hæfi.
í áætluninni eru 225 ferðir, 125
styttri ferðir, 82 helgarferðir og 18
sumarleyfisferðir. Aukaferðir verða
auglýstar sérstaklega.
A síðasta ári tóku 5620 manns þátt
í ferðum Útivistar en það er mesta
þátttaka á 10 ára starfsferli félags-
ins, en félagið var stofnað 23. mars
1975. Ferðir Útivistar eru öllum
opnar og félagsmenn geta allir orðið
gegn greiðslu árgjalds. Ársrit er
innifaiið f árgjaldi.
Úrfi+ttatilkynmngu
ÚTIVISTARFERÐIR
OUTDOOR UFE TOURS
1986
ratTtnmu t i* mc
FRÍ í VINNUNNI - FRÍ í SKÓLANUM - FRÍ í ELDHÚSINU
ÍÓðinsváor
Þóskoh«lqino
Skírdíyjaugandag og atwan ípáskuM
Viö bjóöum upp á girnilegar kræsingar
viö allra hæfi og á viöráöanlegu veröi.
Sérstakir réttir fyrir börnin.
Og salatbarinn er auövitaö opinn.
Kokkarnir
eru í h
OEMNSVE
Oðinslorgi