Morgunblaðið - 16.05.1986, Qupperneq 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ1913
106. tbl. 72. árg._____________________________________FÖSTUDAGUR16. MAI1986__________________________________Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Veiðiþjófar
nota þyrlur
og vélbyss-
ur í Zambíu
Lusaka, Zambiu. AP.
VEIÐIÞJÓFAR, íklæddir her-
búningi Zambíuhers og fljúg-
andi um i þyrlum, eru að slátra
með vélbyssum síminnkandi
hjörðum nashyrninga og fíla á
Luangwa verndarsvæðinu, að
sögn dagblaðsins The Zambia
Maii.
Blaðið, sem er í eigu ráðandi
stjómmálaaflsins í Zambíu, segir
að tilraunir öryggislögreglu til
þess að hafa hendur í hári veiði-
þjófanna, hafi verið árangurs-
lausar til þessa. Flokkur lögreglu-
manna, sem nýlega var sendur
fótgangandi í mánaðarferð inn á
vemdarsvæðið, rakst á veiðiþjóf-
anna, en þeir áttu auðvelt með
að komast undan, þar sem þeir
höfðu þyrlu til umráða.
Hom nashyminga og tennur
fíla, em mjög eftirsóttur svarta-
markaðsvamingur. Seljast hom
nashymingsins á allt að því 25
þúsund Bandaríkjadali eða á um
milljón íslenskra króna, en í
austurlöndum fjær em þau álitin
ákjósanleg uppistaða í fiygðarlyf.
Að minnsta kosti 11 veiðiþjófar
frá Zambíu hafa verið skotnir til
bana í nágrannaríkinu Zimbabwe
á undanfömum 18 mánuðum, en
þangað sækja þeir til þess að
drepa hinn fágæta svarta nas-
hyming. Yfírvöld í Zimbabwe
fullyrða að háttsettir stjómmála-
menn, embættismenn og herfor-
ingjar, í Zambíu eigi stóran hlut
að veiðiþjófnaðinum.
Grænlending-
ar minnka
drykkjuna
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen
Bruun, fréttaritara Morgunbladsins.
NEYSLA Grænlendinga á
sterkum vínum minnkaði
mikið á síðasta ári og neysla
á öðru áfengi minnkaði einn-
ig, þó í minna mæli væri.
Þrátt fyrir þessa minnkun
eyðir sérhver Grænlendingur
að meðaltali 10 þúsund dönsk-
um krónum i áfengi á ári eða
sem jafngildir um 50 þúsund
íslenskum krónum.
Á síðasta ári vom fluttir inn
til Grænlands 118 þúsund lítrar
af sterku áfengi, en samsvar-
andi innflutningur á árinu 1984
nam 172 þúsund lítrum. Þá
drukku landsmenn 35,1 milljón
flöskur af bjór á sfðasta ári,
samanborið við 36,4 milljónir
árið á undan. Neysla léttra vína
minnkaði um 20 þúsund lítra,
en rúmlega milljón lítrar af slík-
um vínum voru fluttir inn til
Grænlands árið 1985 og neysla
á millisterkum vínum og líkjör-
um minnkaði úr 62 þúsund lítr-
um í 42 þúsund lítra.
..............*1 .... , i . . ' ................................................................................
í flæðarmálinu
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Þirig Evrópubandaiagsins fjallar um kjarnorkumál:
Sovétríkin kraf-
in um samvinnu
Moskvu, Strassborg, Vínarborg. AP.
ÞING Evrópubandalagsins fordæmdi í gær Sovétríkin fyrir að
liggja á upplýsingum um kjarnorkuslysið í Chernobyl og krafð-
ist þess að sett yrði á fót sérstök stofnun, til að fást við slys
sem þessi. Sagði þingið að samvinna Sovétríkjanna um slika
stofnun ætti að gera að skilyrði fyrir samvinnu Evrópuríkja við
Sovétríkin á öðrum sviðum.
Tillaga þessa efnis var samþykkt
með 263 atkvæðum gegn 30. Var
í henni skorað á aðildarríki banda-
lagsins að koma sér saman um
sameiginlegar öryggisreglur hvað
varðar kjamorkuver. Jafnframt
skyldu úrelt kjamorkuver lögð nið-
ur og hert yrði á öryggisráðstöfun-
um er Iúta að tilflutningi og meðferð
á úrgangi kjamorkuvera. Hins
vegar var felld tillaga frá fulltrúum
umhverfísvemdarmanna, þess efnis
að banna skyldi byggingu nýrra
kjamorkuvera og láta þau sem fyrir
eru úreldast.
Þá var einnig samþykkt tillaga,
sem kristilegir demókratar lögðu
fram á þinginu, um að gert yrði
yfirlit yfír tjón sem bændur í Evrópu
hefðu orðið fyrir vegna kjamorku-
slyssins og yrðu Sovétríkin krafín
um skaðabætur í samræmi við það.
Hópur sovéskra og bandarískra
lækna, sem hefur með aðhlynningu
fómarlamba slyssins að gera, sagði
í gær það óumflýjanlegt að fleiri
myndu deyja, en nú hafa níu manns
látist og 299 eru á sjúkrahúsum.
Enginn hinna sjúku er frá bænum
Pripyat, þar sem verið er, né frá
bænum Chemobyl í nágrenninu, að
því er fram kom hjá læknunum.
Sögðu þeir að líða myndu mörg ár,
áður en hægt yrði að gera sér fulla
grein fyrir áhrifum slyssins á
heilsufar fólks í héraðinu í kringum
kjamorkuverið.
Sovéskir fréttamenn fengu að
fara til versins í gær og kom fram
í frásögnum þeirra hversu naum-
lega tókst að forða stórslysi. Meðal
annars köfuðu verkamenn við
kjamorkuverið, niður í geislavirkt
vatn til þess að hleypa burt vatni,
sem safnast hafði saman undir
kjamakljúfnum.
Mauno Koivisto, forseti Finn-
lands, réðist harkalega á Svía og
fínnska fjölmiðla fyrir gagnrýni á
viðbrögð stjómvalda við kjamorku-
slysinu. Segir hann gagnrýnina
ósanngjama og sé hún enn eitt
dæmið um hroka Svía í garð Finna.
Sjá ennfremur frétt á bls. 24.
Finnland:
Markið
síöfur
um 2%
HelsinkL AP.
SEÐLABANNKI Finnlands lét
gengi flnnska marksins síga mn
2% í gær gagnvart viðmiðunar-
gjaldmiðlum. I tilkynningu bank-
ans þessa efnis, sagði að ekki
væri um gengisfellingu að ræða.
Jafnframt voru útlánsvextir
bankans lækkaðir um 1%, úr 8%
í 7% og var það sagt til þess
gert að örva langtimasparnað i
landinu.
Talsmaður bankans sagði, að þar
sem gengisbreytingin væri innan
leyfílegra marka, væri ekki um
gengifellingu að ræða. Sagði hann
ákvörðunina til komna vegna spá-
kaupmennsku á erlendum gjaldeyr-
ismörkuðum, sem hefði verið mark-
inu í óhag. Hann sagði að gengi
marksins yrði ekki lækkað frekar.
Eftir 12% gengislækkun norsku
krónunnar nýlega hefur fínnska
markið átt undir högg að sækja á
gjaldeyrismörkuðum.
ísraelar
seldu Irön-
um vopn
HÁTTSETTUR israelskur emb-
ættismaður segir í blaðaviðtali
að ísraelar hafi selt írönum
hergögn allt fram á árið 1982
og hafi það verið gert með vitund
Bandarikjamanna.
Menachem Meron, fyrrum ráðu-
neytisstjóri vamarmálaráðuneytis-
ins í ísrael, segir í viðtali við The
Daily Maariv, að Bandaríkjamönn-
um hafí verið fullkunnugt um sölu
varahluta í hergögn til írans, þó
ekki hafí verið leitað eftir samþykki
þeirra fyrir viðskiptunum.
ísraelskir embættimenn hafa áð-
ur viðurkennt slík viðskipti ísraels-
manna og írana fram til ársins
1981, en Bandaríkiamenn bönnuðu
sölu hergagna til Irans árið 1979.
„Við seldum þeim varahluti, ekki
vopn. ísrael selur ekki írönum vopn.
En ég get hins vegar ekki lagt eið
út á það að vopnabúnaður frá Israel
hafí ekki komist í hendur írana
með einum hætti eða öðrum," sagði
Meron meðal annars í viðtalinu.
AP/Símamynd
Prófessor Robert Gale við Kaliforníuháskóla á fundi með fréttamönn-
um í Moskvu í gær. Hann er sérfræðingur í mergflutningi og hefur
aðstoðað sovéska lækna við aðhlynningu sjúkra eftir kjarnorkuslysið.