Morgunblaðið - 16.05.1986, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR16. MAÍ1986
4
„Ég er ekki í
vafa um að lögin
eru mín megin“
— segir Sverrir Hermannsson menntamála-
ráðherra um fyrirhugaða málsókn námsmanna
„ÉG er alveg sallarólegur og er ekkert að gera mér rellu út af
þessu. Enda hefur engin stefna borist mér ennþá. En ég er ekki
í vafa um að lögin eru mín megin,“ sagði Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra nm málsókn þá sem fjórar námsmanna-
hreyfingar eru með I undirbúningi á hendur honum fyrir að
hafa „fryst“ námslán á tveimur tímabilum eftir áramót. Telja
fulltrúar námsmannahreyfinganna að Sverri hafi skort lagalega
heimild til frystingarinnar, eins og skýrt var frá í blaðinu (gær.
„Ég ætla ekki að leiða neinum sögunni frá 1. júní næstkomandi,"
getum að því hvemig þetta fer,
veit enda ekkert meira um þessa
aðför að mér en ég les um í blöð-
um. En rétt er að minna á að ég
hefí boðað að frystingin sé úr
'O
INNLENT
sagði Sverrir.
Sverrir sagði að rekin væri póli-
tískur áróður fyrir því að hann
hygðist ganga af Lánasjóði ís-
lenskra námsmanna dauðum.
„Það er nú eitthvað annað. Ég
er að reyna að koma lagi á hlutina
- og hver nema ég fékk því fram-
gengt að ríksistjómin ákvað að
tryggja Qármagn til haustlána
upp á meira en kvartmilljarð. Það
vantaði hvorki meira né minna en
257 milljónir til að geta staðið við
skuldbindingar á hausti komanda.
Ég hef varla orðið var við að fólk
hafí tekið eftir þessu, hvað þá
meira,“ sagði Sverrir Hermanns-
son.
Verzlunar- og banka-
Morgunblaðið/RAX
Lítið vatn í Tjörninni
Þar sem endur köfuðu eftir sUum í fyrradag vöppuðu krakkar um í gær. Starfsmenn Tjaraarinnar
lækkuðu vatnsyfirborðið til að geta gert við raflagnir að gosbrunninum, en ekki er búist við að
langur tími líði þar til Tjömin verði hin sama og áður.
Ráðstefna um sjávarútvegsmál haldin í Eyjum:
Mikill vilji er á
aukinni samvinnu
— segir Árni Kolbeinsson, ráðstef nustj óri
menn semja við Utsýn
SAMBAND íslenskra banka-
manna, Landssamband íslenskra
verzlunarmanna og Verzlunar-
mannafélag Reykjavíkur hafa
gert samkomulag við ferðaskrif-
stofuna Útsýn um ódýrar ferðir
fyrir félagsmenn sína til London,
Lúxemborgar, Bergen, Gauta-
borgar, Parisar og Washington
í sumar.
Í38Ö
stúdentar
útskrifast
UM ÞAÐ BIL 1.380 nýstúd-
entar munu koma til með að
veifa hvitum kollum á næstu
dögum, en alls er það 21
framhaldsskóli sem útskrifar
stúdenta á næstu dögum.
Samvinnuskólinn er eini skól-
inn sem nú þegar hefur út-
skrifað. Fimmtán nemendur
fengu hvita kolla þar 10. mai
sl.
Næstu útskriftir verða á morg-
un, 17. maí, en þá útskrifast
nemendur frá Armúlaskóla,
Framhaldsskólanum í Vest-
mannaeyjum og Fjölbrautaskóla
Garðabæjar. Menntaskólinn á
Egilsstöðum útskrifar á hvíta-
sunnudag, Menntaskólinn við
Sund 22. maí, Flensborg og
Menntaskólinn í Kópavogi út-
skrifa báðir nýstúdenta 23. maí
og þann 24. maí ætla Kvenna-
skóiinn og menntaskólamir við
Hamrahlíð og á ísafírði að út-
skrifa auk fjölbrautaskólanna á
Suðumesjum, Akranesi, Sauð-
árkróki og Selfossi. Menntaskól-
inn í Reykjavík útskrifar flesta
nemendur, u.þ.b. 180, þann 29.
maí. Fjölbrautaskólinn í Breið-
holti og Verslunarskóli íslands
útskrifa báðir þann 30. maí,
Verkmenntaskólinn á Akureyri
31. maí, Menntaskólinn á Laug-
arvatni þann 6. júní og að síð-
ustu er það Menntaskólinn á
Akureyri sem bíður 17. júní að
vanda með sína útskriftarhátíð.
Að sögn Péturs A. Maack, hjá
VR hafa Samvinnuferðir-Landsýn
og Alþýðuorlof undanfarin ár boðið
félagsmönnum verkalýðshreyfíng-
arinnar lág fargjöld og dvöi í sumar-
húsum í Danmörku. Bankamenn og
verslunarmenn væru hins vegar
mjög fjölmennar stéttir og hefði
hlutur þeirra ekki verið nægur í
þeim ferðum.
Pétur sagði að með þessu sam-
komulagi við Útsýn ykist hlutur
þessara stétta verulega auk þess
sem boðið væri upp á ferðir til fleiri
staða í Evrópu og Ameríku, sem
væri nýjung. í fréttatilkynningu
frá ofangreindum aðilum segir að
hér sé um að ræða verulega kjara-
bót fyrir félaga þessara samtaka,
en í samkomulaginu felst einnig,
að Útsýn mun bjóða þessum félaga-
samtökum afslátt í ferðir til Ítalíu,
Portúgal og Costa del Sol.
Tilefni tilkynningarinnar var
fundur í fastanefnd Atlantshafs-
bandalagsins í gær þar sem fulltrúi
fslands, Tómas Á. Tómasson, gerði
grein fyrir þessari afstöðu ríkis-
stjórnarinnar.
f greinargerð sem fylgir fréttatil-
kynningu utanríkisráðuneytisins
segir.
„í tilefni umfjöllunar um efna-
vopn sem nú fer fram innan Atl-
antshafsbandalagsins, leggur ís-
land áherslu á að gerðir verði
samningar um algert bann við
framleiðslu og notkun efnavopna
RÁÐSTEFNU á vegum sjávarút-
vegsráðuneytisins I Vestmanna-
eyjum i gær um framleiðni í
fiskiðnaði sátu fulltrúar allra
helstu stofnana og hagsmuna-
samtaka tengd sjávarútvegi.
Fundurinn sendi ekki neinar
ályktanir frá sér, en á honum
kom fram mikill vilji á aukinni
samvinnu í sjávarútvegi. Ráð-
stefnustjóri var Arni Kolbeins-
son, ráðuneytisstjóri.
„Viðfangsefni ráðstefnunnar var
framieiðni í fískiðnaði, en í reynd
var fjallað um mjög mörg svið,“
sagaði Ámi Kolbeinsson í samtali
við Morgunblaðið. „Á ráðstefnunni
voru fulltrúar frá flestum eða öllum
stofnunum og hagsmunaaðilum og
unnu þeir í starfshópum. Þama fóm
umraeður fram af mikilli hreinskilni
og ákveðinn vilji kom fram til auka
samstarf milli þessara aðila vem-
lega og að auka veg og virðingu
sjávarútvegs í heild. Fjallað var um
íjölmörg atriði varðandi aukna
framleiðni I fískiðnaði og tæknivæð-
og útrýmingu fyrirliggjandi birgða
slíkra vopna hið fyrsta. Stefna þessi
er í samræmi við ályktun Allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðanna nr.
40/92 C um efna- og sýklavopn,
sem ísland var meðflytjandi að.
Áform Bandarílq'anna sem til
umræðu em hjá Atlantshafsbanda-
laginu lúta einkum að endumýjun
eldri birgða efíiavopna. Slík end-
umýjun mun ekki leiða til aukning-
ar á heildarbirgðum Bandaríkja-
manna. Sovétmenn njóta nú vem-
legra yfírburða hvað varðar bæði
efnavopn og tækni til að dreifa
ingu, bættan aðbúnað starfsfólks,
fískveiðistjómun og útflutning á
físki f gámum svo eitthvað sé nefnt.
Fundinum var ekki ætlað að senda
BORGARSTJÓRN samþykkti í
gærkvöldi tillögu frá félagsmála-
ráði um, að gerð verði í samvinnu
við Securitas sf. tilraun með
öryggisþjónustu fyrir ellilifeyris-
þega í heimahúsum. Tilraunin á
að taka til 50 ellilífeyrisþega og
felst í því, að þeir fá í hendur
lítið, þráðlaust senditæki, sem -
hægt er að nota tíl að kalla eftir
neyðaraðstoð.
Ákveðið var, að veija allt að 700
þúsund krónum í þessa tilraun. Hún
þeim. Samkvæmt upplýsingum
breska vamarmálaráðuneytisins
ráða Sovétmenn yfír um 300 þús-
und tonnum efnavopna og gera
sovéskar hemaðaráætlanir ráð fyrir
beitingu slfkra vopna á byijunar-
stigum átaka með hefðbundnum
vopnum. Talið er ósennilegt að
takast megi að knýja Sovétmenn
til raunhæfra samninga um fækkun
og útrýmingu efnavopna fyrr en
Atlantshafsbandalagið hefur yfír
að ráða tiltrúanlegri endurgjalds-
getu áþessu sviði.
Þegar Bandaríkjaþing samþykkti
á síðasta ári að hafín yrði fram-
leiðsla á efnavopnum þeim, sem hér
um ræðir, setti þingið m.a. það
skilyrði að gert yrði ráð fyrir slfkum
vopnum í áætluðum framlögum
Bandaríkjanna til vamarviðbúnaðar
Atlantshafsbandalagsins („Force
Goals“). Auk þess skyldi Banda-
ríkjastjóm hafa samráð við aðildar-
ríki bandalagsins um málið. Áætluð
framlög einstakra ríkja til vamar-
frá sér neinar samþykktir, heldur
ræða málin vítt og breitt og ég tel
að þetta hafí heppnast mjög vel,“
sagði Ámi Kolbeinsson.
á að hefjast í haust og standa í sex
mánuði. Úttekt á tilrauninni verður
síðan kynnt í borgarstjóm.
Ingibjörg Rafnar, formaður fé-
lagsmálaráðs, fylgdi tillögunni úr
hlaði og sagði, að hér væri um að
ræða viðbót við þá félagslegu að-
stoð, sem Reykjavíkurborg veitir
öldmðum borgarbúum. Oryggis-
tækin ættu ekki að koma í staðinn
fyrir aðra aðstoð, sem ellilífeyris-
þegar þyrftu á að halda.
íslandi
viðbúnaðar em ekki bindandi fyrir
þau eða önnur ríki bandalagsins.
í umræðum þeim sem nú eiga
sér stað innan Atlantshafsbanda-
lagsins, hafa Bandaríkjamenn ekki
leitað eftir samþykkti einstakra
ríkja til staðsetningar hinna nýju
efnavopna innan landamæra þeirra
á friðar- eða ófriðartímum. Ein-
göngu er um það að ræða að vopn
þessi verði framleidd og staðsett í
Bandaríkjunum og yrði staðsetning
þeirra annars staðar háð samþykki
viðkomandi ríkis. íslensk stjómvöld
hyggjast ekki leyfa efnavopn á ís-
lensku yfírráðasvæði, hvorki á frið-
ar- né ófriðartímum. Vegna legu
íslands hafa efnavopn sem vamar-
vopn enga hemaðarlega þýðingu
hvað vamir landsins snertir.
íslendingar hafa ekki tekið þátt
í undirbúningi málsins og munu
ekki taka afstöðu til hvað önnur ríki
bandalagsins telja nauðsynlegt að
gera öryggis síns vegna.“
Afstaða ríkisstjórnarínnar:
Efnavopn ekki leyfð á
ÍSLENSK stjómvöld hyggjast ekki leyfa efnavopn á íslensku yfir-
ráðasvæði og leggja höfuðáherslu á að gerðir verði samningar um
algjört bann við framleiðslu og notkun efnavopna og útrýmingu
fyrirUggjandi birgða slíkra vopna.
Vegna sérstöðu sinnar innan Atlantshafsbandalagsins sem herlauss
ríkis hefur ísland ekki tekið þátt í meðferð þessa máls þar og tekur
ekki afstöðu til þess hvað önnur ríki bandalagsins telja sér nauðsyn-
legt að gera öryggis síns vegna m.a. til mótvægis við miklar birgðir
Sovétríkjanna af efnavopnum sem þau hafa ekki verið fáanleg til
að minnka eða eyða, segir f fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins.
Borgarstjórn:
Öryggiskalltæki fyrir
aldraða Reykvíkinga