Morgunblaðið - 16.05.1986, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1986
5
Tónlistarskólinn á Akureyri;
„Tónlistarveizla“
í tilefni afmælisins
Akureyri.
Tónlistarskólinn á Akureyri
býður til tónlistarveislu á hvita-
sunnudag i tilefni af 40 ára
starfsafmæli sinu, en skólinn hóf
starf sitt 20. janúar 1946.
Hljómsveitarleikur hefur verið
snar þáttur f starfi skólans og er
þvi vel við hæfí að fagna afmælisári
með veglegum og skemtilegum
hljómsveitartónleikum í íþrótta-
skemmunni á Oddeyri á hvíta-
sunnudagkl. 17.00.
Þar flytja Kammerblásarasveit,
HStúdíó“-hljómsveit og Sinfóníu-
hljómsveit Tónlistarskólans verk
Forsætisráðherra
um Þróunarfélagið:
„Alþingi
fól mér
einum
umboðið“
eftir Bruch, Gershwin, Jones, Raff,
Ravel og Rossini. Einleikarar eru úr
hópi nemenda skólans, þær Ásta
Óskarsdóttir á fiðlu og Ólöf S.
Valsdóttir á selló. Einnig koma
nokkrir gamlir nemendur skólans,
sem nú eru í framhaldsnámi, til
styrktar Sinfóníuhljómsveitinni,
ásamt hljóðfæraleikurum á hörpu,
fagott og óbó. Stjómendur á tón-
leikunum verða Edward J. Frede-
riksen, Michael J. Clarke, Oliver J.
Kentish og Roar Kvam.
Foreldrafélög strengja- og blás-
aradeilda hafa veitt mikla aðstoð
við undirbúning þessarra tónleika.
Einnig hafa mörg fyrirtæki og
stofnanir veitt liðsinni.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis, en fijálsum framlögum er
veitt móttaka við innganginn.
Úr fréttatilkynningu.
Ráðinn
dansari
við óperuna
íMunchen
EINAR Sveinn Þórðarson hef-
ur verið ráðinn ballettdansari
við óperuna í MUnchen frá 1.
júlí næstkomandi. Um 70 dans-
arar starfa hjá ballettflokki
óperunnar. Stjómandi hans er
Ronald Hynd. Einar Sveinn
starfar nú sem dansari við
óperuna í Stokkhólmi, en þang-
að réðist hann um síðustu ára-
mót.
tiotiö a5 sja exXX
ost\eQU8tu
hvenast Watírna.
hn6*n*u®w
THESHADOm
Segist ekki hafa
brotið gert
samkomulag
„ÉG tók þetta mál fyrir á fimdi
rikisstjóraarinnar í morgun, og
lét bóka þar að ég er, eins og ég
hef alltaf lýst yfir, hvetjandi
þess að það verði samstarf á
milli flokkanna um meðferð á
þessum 100 milljónum. Hins
vegar treysti ég mér ekki tíl
þess að skipta því umboði sem
Alþingi hefur falið mér einum,“
sagði Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra er blaðamaður
Morgunblaðsins spurði hann í
gær hvað hann vildi segja um
þá gagnrýni sem kom fram i máli
þeirra Þorsteins Pálssonar fjár-
málaráðherra og Daviðs Schev-
ing Thorsteinssonar á afskipti
hans af Þróunarfélagi íslands í
Morgunblaðinu í gær.
„Ég tel stjómvöldum skylt að
beita sér í þessu félagi. Ríkið á
þama 100 milljónir og er með
ábyrgðir upp á 500 milljónir króna.
Það þarf að gæta þessara fjármuna
vel. Vitanlega fer svo stjómin með
allar ákvarðanir, þegar hún hefur
verið kosin,“ sagði Steingrímur.
Forsætisráðherra sagði að hann
teldi nú að það hefði verið vafasöm
ráðstöfun hjá sér á stofnfundi Þró-
unarfélagsins að skipta því umboði
sem hann einn hefur. „Það er al-
rangt að ég hafi einhvem tíma lofað
því að umboðið yrði áfram skipt. Ég
hét því hins vegar að það yrði
samráð um meðferð þessa hlutaíjár
og við það mun ég standa. Ég vísa
því algjörlega á bug að nokkuð
loforð hafi verið rofið."
Forsætisráðherra sagði að lög-
fræðingur hefði bent honum á að
það væri mikil spurning hvort for-
sætisráðherra hefði heimild til þess
að skipta því umboði sem hann
hefði samkvæmt ákvörðun Alþing-
is, og afhenda einhveijum úti í bæ
það. Sagðist hann vel geta skilið
þá gagnrýni sem hann hefði orðið
fyrir, þess efnis að hann hefði
afhent iðnaðinum helming af því
umboði sem Alþingi fól honum.
„Mér finnst að sú reynsla sem af
þessu fékkst hafi verið svo slæm,
að ekki eigi að bjóða upp á slíkt á
ný,“ sagði Steingrímur.
Ótrúlegt ensatt
Enn einn heimsvidburdur í
12., 13., 14., 15., 16. og 17. júní
Loksins hefur tekist að fá hina frábæru Shadows
til að koma til íslands. Óhætt er að fullyrða að
Shadows hafi aldrei verið betri en nú enda hafa
þeir félagar haldið meira og minna hópinn í 28
ár. Heyrst hefur að hljómleikar Shadows hér
heima verði meðal þeirra síðustu þar sem Hank
Marvin hyggst flytja til Ástralíu bráðlega.
PANTIÐ BORÐ TÍMANLEGA
í BROADWAY í SÍMA 77500
KL. 10—19 DAGLEGA OG »H hljóðfæm
iSjjjjjjMI 'i11rrr-T-
UMHELGAR KL. 14—17
Miðar eftir mateinnig
seldirí forsölunni
í Broadway.
Missið ekki af þessum merka viðburði