Morgunblaðið - 16.05.1986, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR16. MAÍ 1986
7
Landhelgisgæslan:
Sérhæft
vopn til
að eyða
sprengjum
Landhelgisgæslunni áskotn-
aðist nýlega sérhæft vopn
sem eyðir sprengjum. Gylfi
Geirsson sprengjusérfræð-
ingur Landhelgisgæslunnar
sagði að tækið hefði þegar
verið reynt og hefðu meðal
annars rússnesk hlustunar-
dufl verið opnuð og gerð
óvirk. Um þessar mundir er
Ingvar Kristjánsson starfs-
1 maður Landhelgisgæslunnar
í 10 vikna þjálfun erlendis í
meðferð tækisins.
Landhelgisgæslunnar við sérhæft vopn sem notað er til að eyða
sprengjum.
„Stórbók“ með verkum
Þórbergs Þórðarsonar
MÁL og menning hefur sent frá
sér bók með fjórum verkum Þór-
bergs Þórðarsonar. Er henni
ætlað að gefa þeim sem kynnast
vilja þessum snjalla rithöfundi
færi á að eignast gott sýnishom
af list hans og fjölbreyttum við-
fangsefnum í einni bók, segir í
frétt frá Máli og menningu.
Hér er að finna sígilt meistara-
verk Þórbergs, Bréf til Láru, sem
fyrst birtist 1924, Sálminn um
blómið, söguna um Sobegga afa
og Lillu Heggu, sem upphaflega
kom út í tveimur bindum 1954-55,
frásögnina um Viðfjarðarundrin,
þar á meðal Viðfjarðar-Skottu, sem
fyrst var gefin út 1943, og fræga
ritgerð Þórbergs um frásagnarlist
og stil, Einum kennt — öðrum
bent, sem fyrst var prentuð 1944.
Verkin eru birt í heilu lagi eftir
útgáfunni í ritsafni Þórbergs Þórð-
arsonar, sem Mál og menning gaf
út á síðasta áratug.
Ætlunin með þessu verki er að
kynna nýjan útgáfumöguleika hér
á landi. Erlendis hefur það lengi
tíðkast að mörg verk sama höfund-
ar séu gefin út í einu bindi í svo-
nefndri „omnibus" útgáfu, sem ekki
kostar meira en ein venjuleg inn-
bundin bók. „Stórbókin" með verk-
um Þórbergs er 664 síður og kostar
1.390 krónur. Það er ætlun forlags-
ins að gefa verk fleiri höfunda út
með hliðstæðum hætti ef þessi til-
raun hlýtur góðar undirtektir.
Stórbókin með verkum Þórbergs
Þórðarsonar er unnin í Prentsmiðj-
unni Odda hf.
KOSNINGA-
HAPPDRÆTTI
SJÁLFSTÆÐISFLOkksiNS
VERQMÆtt VINNiHQA ALLS KR. • 749 7S0,
DREGÍÐ 27. MAí 1986
vbp.0 kr. aso •
Kosningahappdrætti Sjálfstæðisflokksins:
Aðeins verður dreg-
ið úr seldum miðum
NÚ NÝLEGA hafa verið sendir
út miðar i kosningahappdrætti
Sjálfstæðisflokksins til flokks-
bundinna sjálfstæðismanna og
fjölmargra annarra stuðnings-
manna flokksins. Dregið verður
i kosningahappdrættinu 27.
þessa mánaðar.
Að sögn Kjartans Gunnarssonar
framkvæmdastjóra Sjálfstæðis-
flokksins eru miðamir í Reykjavík
að þessu sinni sendir út sem gíró-
seðlar til þess að auðvelda greiðslu.
Annars staðar á landinu er á flest-
um stöðum um hefðbundna miðaút-
sendingu að ræða. Kosningahapp-
drættið er flokknum afar mikilvægt
en miðasalan stendur straum af
kosningabaráttunni bæði í Reykja-
vík og annars staðar á landinu.
í happdrættinu eru að venju
glæsilegir vinningar: þijár bifreiðir,
Nissan Cherry Gl, 5 dyra, Corolla
1300, 5 dyra, og Suzuki Swift, og
14 utanlandsferðir. Samtals er
verðmæti vinninganna krónur
1.749.780.00.
Kjartan sagðist vilja hvetja alla
sem hefðu fengið senda miða til að
gera skil sem allra fyrst og sagðist
vilja minna á að hjá Sjálfstæðis-
flokknum hefði það ávallt verið
tíðkað að draga einvörðungu úr
seldum happdrættismiðum. Það
væri sérstaklega mikilvægt, sagði
Kjartan Gunnarsson framkvæmda-
stjóri, vegna þess að hún stæði
undir kosningabaráttu flokksins í
Reykjavík, en áframhaldandi meiri-
hluti Sjálfstæðisflokksins í borgar-
stjóm undir forystu Davíðs Odds-
sonar borgarstjóra væri auðvitað
höfuðatriði í sveitarstjómarkosn-
ingunum.
Happdrættismiðana er bæði unnt
að greiða í bönkum, sparisjóðum
og pósthúsum svo og á aðalskrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins, Valhöll,
Háaleitisbraut 1, en auk þess er
unnt að hringja þangað í síma
82900 og biðja um að greiðsla sé
sótt. Utan Reykjavíkur má greiða
miðana hjá umboðsmönnum happ-
drættisins eða á flokksskrifstofun-
um á hverjum stað.
Utankjör-
staða-
atkvæða-
greiðsla um
hvítasunnuna
Utankjörstaðaatkvæða-
greiðsla í Ármúlaskóla, á vegnm
Borgarfógetaembættisins í
Reykjavík, verður opin laugar-
daginn fyrir hvítasunnu frá kl.
10 til 12 og milli kl. 14.00 og
18.00. Lokað verður á hvíta-
sunnudag en opið milli kl. 14.00
og 18.00 á annan í hvítasunnu.
Hverfaskrifstofur Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík verða opnar
frá 13.00 til 19.00 á laugardag.
Lokað á hvítasunnudag en opnar
milli kl. 13.00 og 19.00 á annan í
hvítasunnu.
(Úr fréttatilkynningpi)
Þú svalar lestraiþörf dagsins
ásíöum Moggans! y
PAÐ ER ENGM SPURNING,
HJÓLIN FFÁ ERNINUM
S1ANCA
UPPUR
Reiðhjólaverslunin_
ORNINN
Spítalastíg 8 og vió óóinstorg símar: 14661,26888