Morgunblaðið - 16.05.1986, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1986
Egilsstaðir:
Mjólk kynnt grunn
skólanemendum
Egilsstöðum.
í KJÖLFAR mjólkurkynningar
svonefndrar mjólkurdags-
nefndar í fjölmiðlum og þeirr-
ar ákvörðunar viðskiptaráðu-
neytis að heimila niðurgreiðslu
mjólkur til grunnskóla afréð
stjórn Foreldra- og kennarafé-
lags Egilsstaðaskóla að efna
til sérstakrar mjólkurkynning-
ar meðal grunnskólanemenda
hér á Egilsstöðum. Stjórnin
fékk ákveðna aðila hér um
slóðir til að fjármagna þessa
kynningarherferð — en það er
Mjólkursamlag KHB, Kaup-
félag Héraðsbúa, Búnaðar-
bankinn og Samvinnubankinn
á Egilsstöðum.
hér líta nú vart við öðrum drykkj-
um í nestistímum í skólanum en
mjólk. En vel að merkja, mjólkin
verður að vera ísköld svo að hún
smakkist sem best að sögn krakk-
anna. Og þvi gaf KHB skólanum
kæli — og hefur því reynst mögu-
legt að afhenda nemendum mjólk-
ina ískalda beint úr kælinum.
Að hausti er ætlunin að heQa
sölu mjólkur í skólanum nema
einhver framtakssöm og skilnings-
rík fyrirtæki á Egilsstöðum vilji
enn um sinn leggja þessari mjólk-
urkynningarstarfsemi lið og halda
mjólkurgjöfínni áfram um hríð.
— Ólafur.
Mjólk er góð, segja krakkarnir á Egilsstöðum.
Morgunblaðið/Ólafur
Kynning þessi hefur nú staðið
yfír um flögurra vikna skeið með
þeim árangri að skólanemendur
Ibúar í Seljahverfi:
Skora á borg-
aryfirvöld
að byggja
almennings-
sundlaug við
Olduselsskóla
Borgaryfirvöldum hefur bo-
rist áskorun frá íbúum Selja-
hverfis i Breiðholti um sundlaug
við Ölduselsskóla. Undir áskor-
unina rituðu 2.119 manns.
í bréfí íbúa Seljahverfis segir
meðal annars að á sínum tíma,
þegar ákveðið var að hraða bygg-
ingu íþróttahúss við Seljaskóla,
hafí því jafnframt verið heitið að
byggð yrði sundlaug við Öldusels-
skóla og vitandi það hafí íbúar f
neðri hluta Seljahverfis verið þolin-
móðir þótt alla íþróttaaðstöðu hafí
vantað við Ölduselsskóla.
Þá segir orðrétt í bréfínu: „Nú
hefur flogið fyrir að fræðsluyfírvöld
hafí ákveðið að sundlaugin, sem
verður hönnuð á þessu ári, verði
minni en áður var fyrirhugað og
auk þess aðeins fyrir skólasund og
því ekki opin almenningi. Við undir-
rituð, íbúar í Seljahverfí, skorum
hér með á borgaryfírvöld að breyta
þessari ákvörðun og ákveða bygg-
ingu myndarlegrar (25 metra langr-
ar) sundlaugar við skólann sem
verði opin almenningi."
Bréfið var lagt fyrir borgarráð á
þriðjudaginn og var því vísað til
fræðsluráðs. Jafnframt óskuðu
Sigurjón Pétursson (Alþb.) og
Kristján Benediktsson (F) að eftir-
farandi yrði bókað:
„Við teljum að óskir íbúa Selja-
hverfís um að sundlaug við Öldu-
selsskóla verði jafnfram byggð sem
25 metra löng almenningslaug séu
eðlilegar og sjálfsagðar. Við bend-
um á að sundlaug við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti, sem byggð var
einnig sem almenningslaug, varð
svo vinsæl að nauðsynlegt var að
stækka þá laug á síðasta ári. Það
er eðlilegt markmið að koma upp
almenningssundlaugum sem víðast
í borginni."
VJterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
LITIÐ STYKKI (250 g.) KR.
STÓRT STYKKI (500 g.) KR.
SMJÖRASKJA
AUKhf. 9.147/SÍA