Morgunblaðið - 16.05.1986, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR16. MAÍ 1986
23
SENDIHERRA Svíþjóðar á íslandi, Gunnar Dahlström, sæmdi á
dögunum Aðalstein Davíðsson, cand. mag., heiðursmerkinu „Ridd-
artecknet av Kungliga Nordstjameorden, första klassen". Viðurkenn-
inguna hlýtur Aðalsteinn fyrir störf sín að sænsk-íslenzkri orðabók,
sem hann og prófessor Gösta Holm í Lundi unnu og kom út í Lundi
árið 1982. Afhendingin fór fram 29. apríl.
Isafjörður:
Álján útskrifast með 30
tn skipstjórnarréttindi
taafirði.
MEÐ aukinni notkun sportbáta
og smærri fiskibáta eykst þörf
fyrir stjórnendur þeirra. Sjó-
mannaskólinn I Reykjavík hef-
ur skipulagt námskeið fyrir
verðandi skipstjórnarmenn
báta undir 30 lestum.
Eitt slíkt námskeið var haldið
hér á ísafírði í vetur í iðnskólanum
og var Símon Helgason aðalkenn-
ari námskeiðsins. Kennt var ýmis-
legt um meðferð skipa s.s. sigl-
ingafræði og siglingareglur, stöð-
ugleiki, meðferð siglinga- og físki-
leitartækja, brunavamir og hjálp í
viðlögum. 18 nemendur luku prófi
og hlaut einn þeirra einkunnina
10 þ.e. svaraði öllum spumingum
og leysti öll dæmi rétt.
í ræðu sem Snorri Hermannsson
skólastjóri iðnskólans hélt við af-
hendingu prófskírteina sagði hann
að nauðsynlegt væri að efla
kennslu í siglingafræðum og að
þetta námskeið ýtti undir að hald-
inn yrðu 80 tonna og 200 tonna
námskeið á næsta vetri.
Meðaleinkunn nemenda á nám-
skeiðinu var 8,6 og þökkuðu nem-
endur meistara sínum, Símoni
Helgasyni, sem líklega hefur upp-
rætt fleiri skipstjóraefni á ísafírði
en nokkur annar með því að bjóða
honum til kvöldverðar á Hótel
ísafírði þar sem þeir fluttu þakkir
og ámaðaróskir í mörgum skála-
ræðum.
- Úlfar
Ljóam. Úlfar Ágústsson
Tryggvi Sigtryggsson fékk einkunnina 10 á skipstjóraprófi. Á
myndinni er hann fyrir miðju ásamt Snorra Hermannssyni skóla-
stjóra vinstra megin og Símoni Helgasyni kennara.
Úr hinum VÍStlega matsal nýja hótelsins. Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsaon
Hvammstangi:
Sæmdur sænsku heiðursmerki
Vertshúsið, nýtt hótel og
veitingastaður opnar
Ljósm. Ulfar Agústsson
Hluti af nemendum á skipstjórnarnámskeidinu á ísafirði ásamt Snorra Hermannssyni skólastjóra og
Símoni Helgasyni aðalkennara. Á námskeiðinu voru 18 nemendur þar af þrjár konur.
Hvammrtanga.
NÝTT hótel er risið á Hvamms-
tanga og ber það nafnið Verts-
húsið. Eigendur þess eru
Hvammstangahreppur, Kaup-
félag V-Húnvetninga og 5 ein-
staklingar á Hvammstanga.
Húsið er timburhús á einni hæð,
frá Húseiningum á Siglufirði.
Forstjórar Olíufélagsins og Skeljungs:
„Superbensínið“ er
ekki „superbensín“
Bílgreinasambandið telur að flestar vélar þurfi að stilla til að fá bestu nýtingu með nýja bensíninu
97 OKTAN bensinið, sem OLÍS
hóf að selja og auglýsa í gær,
er ranglega auglýst sem „sup-
er“ bensín, að því er segir í
yfirlýsingu sem forstjórar OIíu-
féiagsins hf. og Skeljungs hf.
sendu frá sér í gær.
í yfirlýsingu þeirra segir: „I lok
mars komu hingað til lands rúm
12 þúsund tonn af bflabensíni,
sem lestað var í Rotterdam en
keypt frá norska fyrirtækinu
Statoil. Bensínið keyptu Olíufé-
lagið hf. og Skeljungur hf. en að
beiðni Olíuverslunar íslands fékk
það félag síðar að ganga inn í
kaupin að hluta, en þó minnstan
hluta, eða um 3.200 tonn. Gæði
bensínsins áttu að vera minnst
93 oct research method (RON)
og 85 oct motor method (MON),
en það er sá lágmarks gæðastuð-
ull, sem er á bensíni, sem keypt
er frá Sovétríkjunum. Kaupverð
bensínsins var í samræmi við
þennan gæðastuðul.
Bensínið er talið hafa gæða-
stuðul 97,1 oct (RON) og 86,2
oct (MON).
Bensín þetta hefur verið selt
undanfamar vikur frá bensín-
stöðvum Skeljungs og Olíufélags-
ins. Verður það gert áfram á
meðan birgðir endast.
Þar sem eiginleikar þessa bens-
íns eru ekki ýkja frábrugðnir því
rússneska bensíni, sem selt er hér
á landi og innkaupsverðið hið
sama, þótti undirrituðum olíufé-
lögum ekki ástæða til þess nú,
fremur en áður við svipaðar að-
stæður, að auglýsa þetta sérstak-
lega.
Rétt er einnig að benda á, að
eimingarhlutfall þessa umrædda
bensíns er lítið eitt lakara en bfla-
bensíns, sem keypt er frá Rúss-
landi.“
Forstjórar olíufélaganna
tveggja segja ennfremur að okt-
antala þess rússneska „research“
bensíns, sem sé nú til sölu á ís-
landi, sé 93,4 en oktantala „mot-
or“ bensíns sé 85,0. Blýinnihald
þess sé 0,33 g Pb/1. Sambærilegar
tölur fyrir almennt „super" bensín
í V-Evrópu séu 98,0 (RON) hið
minnsta og 88,5 (MON) hið
minnsta og að blýinnihaldið sé að
hámarki 0,15-0,30 gPb/1.
Síðan segir. „Af framanrituðu
er ljóst, að það bensín, sem OLÍS
er nú að auglýsa, er ranglega
auglýst sem „super“ bensín."
Undir yfírlýsinguna rita Vilhjálm-
ur Jónsson, forstjóri Olíufélagsins
hf. og Indriði Pálsson, forstjori
Skeljungs hf.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið aflaði sér í gær hjá
Bflgreinasambandinu og Heklu
hf., má gera ráð fyrir að flestir
bíleigendur, sem kjósa nú að
kaupa 97 oktan bensínið, þurfí
að láta stilla vélar bfla sinna til
að fá sem besta nýtingu. Þetta á
þó síður við um bfla með háþrýst-
um vélum.
Framkvæmdir hófust um mán-
aðamót okt./nóv. ’85 og var hús-
ið gert fokhelt fyrir áramót.
Starfsemi hófst svo formlega
þann 1. maí.
í hótelinu eru tveir veitingasalir,
annar rúmar 50-60 manns, en hinn
nokkru minni. Þá eru í húsinu 6
tveggja manna herbergi með sturtu,
útvarpi og síma.
Hotelstjóri og yfirkokkur er Ing-
var H. Jakobsson, sem áður starfaði
sem yfirkokkur hjá Hótel Holti í
Reykjavík. Starfsfólk verður um 10
manns.
Ingvar H. Jakobsson hótelstjóri
og yfirkokkur að störfum í eld-
húsinu ásamt starfsfólki sínu.
Hótel hefur ekki verið rekið á
Hvammstanga í áratugi, en áður
fyrr störfuðu hér jafnvel tvö hótel
í senn, að vísu í heimahúsum. Mun
hið nýja hótel breyta mannlífi stað-
arins verulega. Eigendur þess
áforma að brydda upp á ýmislegu
til að laða til sín gesti. Ánægjulegt
er þegar menn hrinda hugmyndum
sínum í framkvæmd af svo miklum
dugnaði sem þetta átak ber vott um.
Karl