Morgunblaðið - 16.05.1986, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR16. MAÍ 1986
37
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
Naut (20. apríl—20.
mai) og SporÖdreki
(23. okt.—21. nóv.).
Ég ætla í dag að fjalla um
samband Nauts og Sporðdreka.
Einungis er flallað um hið
dæmigerða fyrir þessi merki. Við
þurfum alltaf að hafa f huga
þegar við lesum lýsingu á einu
ákveðnu merki að hver maður
er samsettur úr nokkrum
stjömumerkjum.
Andstυur
Naut og Sporðdreki eru andstæð
merki og að mörgu leyti eins og
svart og hvítt. Þó svo sé eiga
þau ákveðna þætti sameiginlega
og víst er að þau laðast oft hvort
að öðru. Segja má að þau búi
hvort um sig yflr eiginleikum
sem hitt vildi gjaman hafa.
Undirdjúpin og
yfirborÖiÖ
Það sem m.a. skilur þau að er
að Nautið er einlægt og yfir-
borðslegt merki. Með því yfir-
borðslega er átt við að Nautið
er ekki sérlega „djúpt“ merki.
Það reynir ekki að hylja ætlunar-
verk sín og er það sem það sýn-
ist vera. Sporðdrekinn aftur á
móti er ekki allur þar sem hann
er séður. Hann hylur skap sitt
og ætlunarverk. Það er ekki þar
með sagt að hinn dæmigerði
Sporðdreki sé undirförall, frekar
má segja að hann álfti að öðram
komi hans innri maður ekki við.
Ró ogsprengigos
Það sem þessi merki dást að f
fari hvors annars er það að
Nautið virðir dýpt Sporðdrekans
og sálrænt innsæi. Sporðdrekinn
aftur á móti dáist að innri ró og
yfirvegun Nautsins. Drekinn er
þannig gerður að hann setur upp
grímu rólyndis, yfirvegunar eða
afskiptaleysis en í raun sýður
og kraumar undir niðri. Þvf vildi
hann gjaman öðlast eitthvað af
ró Nautsins sem aftur á móti
laðast að innri dulúð sem það
skynjar f Sporðdrekanum. Naut-
ið vill kynnast þessum djúpa og
dularfulla heimi sem það skilur
ekki.
Aldrei ró
Og hvað gerist svo þegar þau
dragast hvort að öðra? Jú, það
er mikil spenna, en hætt er við
að hinum ólfku eiginleikum Ijósti
fljótt saman. Nautið hættir fljót-
lega að skilja hvað er að gerast.
Það skilur ekki tilfinningastorm-
ana, það nennir ekki að taka þátt
í stöðugri dramatík. „Af hveiju
getur þú ekki tekið þessu máli
af skynsemi? Eftir því sem ég
fæ best séð er ekkert að gerast.
Svei mér þá ef ég er ekki búinn
að fá nóg, hér er aldrei friður
og ró.“ Og Nautið stiklar róleg-
um og ákveðnum skrefum á
brott.
Engin dýpt
Sporðdrekinn sem lifir sig af
krafti inn f hvem atburð, hveija
sekúndu sólarhringsins (móðg-
ast m.a. vegna fimmaura- og
ijómatertubrandara Nautsins),
skilur ekki sljóleika þess. „Þessi
maður er alveg ótrúlega jarð-
bundinn, sljór, þungur og tilfinn-
ingalaus." Og Sporðdrekinn
bætir við nokkram velvöldum og
óprenthæfunm „broddum“.
Trygglynd
Það sem kannski skiptir mestu
f samskiptum þessara merkja er
það að bæði era ótrúlega þijósk
og föst á sinni meiningu. Þvf
mætist stál við stál. Ef þau ná
hins vegar saman fyrirfinnast
varla tveir trygglyndari persónu-
leikar á þessari jarðarkringlu.
Þau era þá reiðubúin að vaða
eld og brennistein fyrir hvort
annað.
: I:: i::: i:: i I i:::::::::::::::::::::::: S:
X-9
flaskou ojunti hejur hoíil úrfonsky qörnlum ktppinau,f
'f'hjl, ai sjá ht'trn* ' ' ' “
tifíOkSk/aAMU
<£/1»8> K ir>9 t eafui ev S»ndn ale tnv. Wt»r IU r hjMí r ved
mrmt*
DÝRAGLENS
» \S I n m í/ lusi'/muwu ,, ■ ■ mÆ M.
1 o X . .- A i r f LJOSKA m 1 1 14»-’ 1—l l ttt: 1
Li'KA
Peita
UM AO Oi€MA/
pAO
0ORSn
AiEE>
RAFHLÖPU ,
I I.
x.
AN FyLGIR MEÐ I
KAOPUnUAH ?,
FERDINAND
SMÁFÓLK
WHEN VOU 6ET OLDER,
VOU MAV HAVE TO
CONSIDER A CHAN6E...
I 0 PROBABLV RETURN
TO MV PRIVATE
LAU) PRACTICE..
Eg- skal segja þér, að þú Þegar þú verður eldri Hvað skyldir þú gera.
getur ekki verið varð- gætir þú hugsað þér að
hundur alla ævi... breyta til...
Ég myndi líklega snúa
mér aftur að mínum
lögfræðistörfum___
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
á.
Með glæsilegri blekkingu
tókst sagnhafa í spili dagsins
að breyta 50% vinningslíkum í
100%.
Norður
*K6
▼ ÁG10832
♦ 105
♦ G74
Vestur Austur
♦ÁG2 ........
VD97 V65
♦ AKD7 ♦ 98432
+ Á109 ♦ D8632
Suður
♦ D1098753
¥K4
♦ G6
♦ K5
Suður vakti í fyrstu hendi á
þremur spöðum, sem vestur
doblaði. Og þar við sat.
Vestur byijaði á því að taka
tvo slagi á tígul, en lagði svo
niður laufás og spilaði lauf-
tíunni. Hvemig myndir þú spila?
Málið snýst auðvitað um það
að finna spaðagosann, með öðr-
um orðum, hvort spila eigi spaða
á kónginn eða svína strax fyrir
gosann í vestur. Venjulegir
meðalskussar hafa ekkert til að
treysta á í þessari stöðu nema ^
heppnina, en suður fann traust-
ara haldreipi. Hann byijaði á að
setja laufgosann á tíuna til að
koma þeirri hugmynd inn í höfuð
mótheijanna að hann ætti þijú
lauf heima. Austur setti drottn-
inguna og kóngurinn átti slag-
inn.
Til að fullkomna blekkinguna
tók suður næst hjartakóng og
spilaði svo spaðaþristinum á
blindan! Vestur setti lítið og þá
svínaði sagnhafi sexunni með
öryggL +
Sagnhafí lét líta svo út sem
hann ætti skiptinguna
7—1—2—3 og þyrfti að komast
inn í borðið til að henda lauftap-
ara ofan í hjartaásinn. Og sú
staðreynd að vestur var tilbúinn
til að hleypa honum inn á spaða-
kóng gat ekki þýtt annað en að
vestur byggist við tveimur slög-
um á tromp. Með ásinn annan
eða þriðja hefði hann ekki látið
sér detta í hug að setja lítið.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu skákmóti f Franze
í Sovétríkjunum fyrir áramótin
kom þessi staða upp f skák
sovézka stórmeistarans Makaric-
hev, sem hafði hvftt og átti leik,
og indverska alþjóðlega meistar-
ans Thipsay.
33. Rf5+! - gxfö (33. - Kh7,
34. Rd6 var tæplega betra) 34.
gxf5 - Dd7, 35. f6+ - Rf6 (Eða
35. - Kh7, 36. Dg3) 36. exf6+
— Kh7, 37. Dh4 og svartur gafst
upp. %