Morgunblaðið - 16.05.1986, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1986
49
Selfoss:
Unnið af kappi
við frágang nýs
félaffsheimilis
Selfossi. __ —7
AÐ UNDANFÖRNU hefur verið unnið að kappi við innréttingar
í hinu nýja félagsheimili á Selfossi sem áformað er að opna 1.
júní nk. Verið er að leggja síðustu hönd á innréttingar samkomu-
salanna á annarri hæð og vinna við dúklagningu og máiun er
hafin á 3. hæð, þar sem eru 20 hótelherbergi.
Fyrsta samkoman sem áformuð er í húsinu er vegleg afmælis-
veisla í tilefni af 50 ára afmæli Ungmennafélags Selfoss.
„Það standa allar vonir til þess
að húsið verði tilbúið 1. júní eins
og áætlað var,“ sagði Stefán
Ómar Jónsson bæjarstjóri en uppi
hafa verið raddir um að til seink-
unar kæmi. „Við erum bjartsýnir
á að áætlunin standist, það eru
öll tæki komin til landsins og
okkar harðduglegu fagmenn
munu örugglega skila verkinu á
tilsettum tíma,“ sagði Stefán.
Félagsheimilið hefur verið
nokkuð lengi í byggingu, sl. Qögur
kjörtímabil, og segja má að öll
stjómmáiaöfl í bæjarfélaginu hafí
komið að uppbyggingu þess. Sá
hluti hússins sem tekinn er í
notkun er anddyri og umferðar-
miðstöð á neðstu hæð, samkomu-
salir á annarri hæð og hótelher-
bergi á þriðju hæð. Hluti þessa
lýmis er lykilatriði fyrir annan
áfanga hússins, leikhússálmu.
Ráðgert er að taka allt að 27
milljónir að láni til að ljúka bygg-
ingunni en undanfarin ár hefur
hún verið kostuð næsta eingöngu
af eigin fé bæjarins. „Ég tel tví-
mælalaust að það hafí verið rétt
að taka lánin á lokasprettinum
þannig að sá tími sem líður frá
fyrstu lántökum og til þess tíma
að húsið verður opnað er ekki
nema nokkrir mánuðir og því
strax komin nýting á það §ár-
magn sem bundið er í húsinu í
formi lánsijár," sagði Stefán
bæjarstjóri.
Það eru Samvinnuferðir/Land-
sýn sem gert hafa samning við
Selfosskaupstað um rekstur húss-
ins. Á Selfossi hafa heyrst gagn-
lýnisraddir á þennan samning.
Stefán Ómar bæjarstjóri var
spurður hvort hann væri bjart-
sýnn á rekstur hússins.
„Já, ég er það, en það er alveg
ljóst að það er lagt mikið undir
og víst er að fyrstu eitt til tvö árin
eru mikilvægust í því augnamiði
að skapa jákvæða og góða ímynd
af Selfossi sem ferðamannabæ og
starfsemi hússins öll fái á sig
gott orð. Því takist það ekki er
ekki nóg að gefa fögur fyrirheit
um að bæjarfélagið styðji við
rekstur hússins fyrsta árið eins
og nú var gert, heldur er víst að
við blasi um áraraðir bæjarrekstur
er krefðist sífelldra fjárútláta úr
bæjarsjóði og þá væri illa farið
fyrir gjaldendum þessa bæjarfé-
lags.“
Ekki hefur enn verið ákveðið
nafn á húsið en alls bárust rúm-
lega 400 uppástungur í hug-
myndasamkeppni sem bæjar-
stjórnin auglýsti fyrir skömmu.
Sig. Jóns.
Hið nýja félagsheimili, Ölfusárbrú í forgrunni.
Morgunblaðið/Sig. Jónsson
m 'm
Unnið að innréttingu hússins. Stefán Ómar Jónsson bæjarstjóri fylgist með.
Brids
Arnór Ragnarsson
Siglfirðingar sigur-
sælir í brids
Hinn 10. maí sl. var haldið hér
á Skagaströnd Norðurlandsmót
vestra í tvímenningi í brids. 36 pör
mættu til keppninnar frá 6 brids-
félögum á Norðurlandi vestra. Spil-
uð voru 2 spil á milli para með
barometerfyrirkomuiagi, alls 70
spil, undir styrkri stjóm Ólafs Lár-
ussonar mótsstjóra.
Tíu efstu pör urðu sem hér segir:
1. Sigurður Hafliðason og Sigfús
Steingrímsson Siglufírði með
! 262.
2. Bogi Sigurbjömsson og Anton
Sigurbjömsson Siglufírði með
238.
3. Jón Sigurbjömsson og Björk
Jónsdóttir Siglufirði með 171.
4. Hrafnhildur Skúladóttir og
Þórdís Þormóðsdóttir Sauðár-
króki með 170.
5. Margrét Guðvinsdóttir og
Bjöm Guðnason Sauðárkróki
með 125.
6. Reynir Pálsson og Stefán
Benediktsson Fljótum með 122.
7. Ásgeir Jónsson og Jón Tryggvi
Jökulsson Fljótum með 111.
8. Gunnar Stefánsson og Rúnar
Jóhannsson Skagaströnd með
102.
9. Valtýr Jónasson og Baldvin
Valtýsson Siglufírði með 99.
10. Ólafur Jónsson og Steinar
Jónsson Siglufírði með 92.
Eins og sést hér að ofan vom 5
af 10 efstu pömm frá Siglufírði og
þar af em þijú pör úr sömu fjöl-
skyldunni. Ólafur og Steinar Jóns-
synir, sem em aðeins 13 og 14 ára
gamlir, em synir Jóns Sigurbjöms-
sonar og Bjarkar Jónsdóttur. Jón
er svo aftur bróðir þeirra Boga og
Antons. Var haft á orði í mótslok
að þeir Ólafur og Steinar hefðu
gert mörgum þeim er eldri em
bréf þar sem gefendur geta sjálfír
ákveðið upphæðina með sömu skil-
málum, svo og dagsetningu gjald-
daga í þar til gerðum ramma á
gjafabréfi.
Næsta skrefíð er nú að væntan-
legir gefendur endursendi Brids-
sambandinu gjafabréfið, útfylltu,
og haldi eftir sjálfír neðsta afriti.
Bridssambandið mun sjá um fram-
haldið í samvinnu við Utvegsbanka
íslands, aðalbanka í Reykjavík^, en
þar hefur veri stofnaður sérstákur
hlaupareikningur (nr. 5005) í nafni
sjóðsins en eins og flestum mun
kunnugt er honum ætlað að fjár-
magna húsakaup sambandsins í
Sigtúni 9.
Bridssamband íslands vonar að
félagsmenn hvar á landi sem er
taki þátt í þessari herferð fyrir nýju
húsnæði. Látum draum Guðmundar
Kr. Sigurðssonar rætast.
Þrefaldur sigur Siglfirðinga á Skagaströnd, Jón, Björk, Bogi, Anton, Sigfús og Sigurður.
skömm til og að þeir bræður ættu
einhvem tíma eftir að láta að sér
kveða í framtíðinni í bridsmótum.
ÓB
Bridsfélag
Tálknafjarðar
Einmennings- og Firmakeppni
félagsins er lokið. Jöfn og efst spil-
ara urðu þau hjónakom Ævar Jón-
asson og Guðlaug Friðriksdóttir.
Dregið var um sigurvegara og hlut-
skarpari varð Ævar Jónasson. Varð
hann því einmenningsmeistari fé-
lagsins.
Röð efstu spilara/fírma varð
þessi:
Fiskvinnsla Ólafs Þórðarsonar
(Ævar Jónasson) 434
Ríkisskip
(Guðlaug Friðriksdóttir) 434
Vélsmiðja Tálknafjarðar
(Kristín Ársælsdóttir) 411
Bjamabúð
(Jón H. Gíslason) 402
Þórsberg hf.
(Heiðar Jóhannsson) 399
Bridsfélagið þakkar þeim sem
þátt tóku í keppninni.
Bridssamband
Vestfjarða
Vestfjarðamótið í sveitakeppni
verður spilað á Hólmavík dagana
14.—15.júnínk. Mótiðeropið öllum
félögum innan Vestfjarðasvæðisins.
Spilað verður allir v/alla og miðast
spilafjöldi í leik við þátttöku í mót-
inu. Skráning er hafin og geta
væntanlegir keppendur haft sam-
band við þá Ævar Jónasson á
Tálknafírði, vs.: 94-2524, hs.: 94-
2535 og Hans Magnússon á Hólma-
vík, vs.: 95-3118 og hs.: 95-3186,
til skráningar eða nánari upplýsing-
ar. Keppnisstjóri verður Hermann
Lárusson Reykjavík.
Vakin er athygli á því að skrán-
ingu lýkur sunnudagskvöldið 8.
júní. Eftir þann tíma er ekki hægt
að ábyrgjast að keppendur fái að
vera með.
Guðmundarsjóðurinn
Bridssamband íslands hefur nú
sent út gjafabréf til allra skráðra
félaga á Stór-Reykjavíkursvæðinu
og í öll bridsfélög á landinu. Þessi
bréf eru tvenns konar. Annars
vegar 10.000 kr. bréf sem greiðist
upp á 3 árum, óverðtryggt og
vaxtalaust. Hins vegar óhlutbundin
Sumarbrids í
Reykjavík
Árlegur Sumarbrids í Reykjavík
hefst á þriðjudaginn kemur 20.
maí. Spilað verður tvisvar í viku í
allt sumar í Borgartúni 18 (hús
Sparisjóðs vélstjóra). Umsjónar-
menn verða að venju þeir Hermann
og Ólafur Lárussynir.
Spilamennska á þriðjudögum
hefst í síðasta lagi kl. 19.30 en ef
vilji er fyrir hendi frá keppendum
má hefja keppni fyrr. Á fímmtudög-
um mun húsið verða opnað fyrir
kl. 19 (þegar sá frægi A-riðilshópur
mætir á vettvang) og spilamennska
hafín um leið og hver riðill fyllist.
Ákveðið hefur verið að taka upp
bronsstigakeppni yfír sumarið basði
keppniskvöldin. Keppnisgjald verð-
ur kr. 200 pr. spilara pr. kvöld.
Sumarbrids er tilvalinn vettvang-
ur fyrir alla að grípa í spil og
kynnast skipulagðri keppnisspila-
mennsku, auk þess að vera vett-
vangur fyrir þá sem æfa sig á móti
nýjum félögum.