Morgunblaðið - 16.05.1986, Qupperneq 56
JMEÐÁ
NOTUNUM.
QMnaðarbanlúnn
fT EUHOCARD
íiS?UGG0R
FÖSTUDAGUR16. MAÍ 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Játar að hafa
bundið og kef 1-
að eiginkonuna
Dánarorsök enn óljós
EIGINMAÐUR konunnar, sem fannst látin í íbúð sinni að Feijubakka
10 hinn 6. þessa mánaðar, hefur við yfirheyrslur játað að hafa
bundið og keflað konuna eftir átök þeirra á milli í íbúðinni um nótt-
ina Ekki liggur þó fyrir að þessi meðferð hafi leitt til dauða konunn-
ar, að þvf er Þórir Oddsson, vararannsóknarlögreglustjóri, sagði f
samtali við Morgunblaðið f gær.
Maðurinn bar við yfirheyrslur að
til átaka hefði komið á milli þeirra
hjóna um nóttina og hefði hann
bundið konuna á höndum og fótum
og kefiað hana. Síðan hefði hann
skilið hana eftir í herbergi, en er
hann vitjaði hennar síðar um nótt-
ina hefði hún verið orðin lífvana.
Svo virðist, sem hinir mennimir
þrír, sem voru í íbúðinni umrædda
nótt, hafi ekki vitað um það sem
fram fór f herberginu.
Þórir Oddsson sagði, að enn
væri ekki hægt að slá neinu föstu
um dánarorsökina. „Endanleg
skýrsla um niðurstöður krufningar-
innar liggur ekki enn fyrir og ýms-
um rannsóknum, svo sem efnarann-
sóknum á sýnum, er ólokið. Það er
því ekki hægt að slá neinu föstu
um dánarorsökina fyrr en allir
þræðir þessa máls era komnir
saman," sagði Þórir.
Gömul umslög úr dánarbúi eyðilögð:
Jafnvel hundr-
uð þúsunda
fóru forgörðum
HÆTT er við að allveruleg verðmæti hafi faríð forgörðum
þegar gömul umslög, mörg hver frá aldamótum, voru nú fyrir
skömmu klippt niður, og frímerkin klippt af. Telur Magni
Magnússon frímerkjakaupmaður í Magna að verðmætin geti
jafnvel skipt hundruðum þúsunda. Málsatvik voru þau að ensk
kona kom hingað vegna dánarbússkipta. Hún fann mikið magn
af gömlum póstkortum og umslögum og klippti frímerkin af
þeim.
,Hingað í verslunina kom kona
til þess að kaupa frímerkjaverð-
lista fyrir þessa konu svo hún vissi
hvaða verðmæti hún væri með í
höndunum," sagði Magni Magn-
ússon. „Þessi kona sagði mér að
enska konan hefði þá viku sem
hún var hér notað til þess að
klippa niður gömul íslensk umslög
og póstkort úr dánarbúinu. Þetta
gerði hún til þess að minna færi
fyrir frímerkjunum, þar sem hún
ætlaði með þau út og selja þau,“
sagði Magni.
Magni sagði ljóst að mikil verð-
mæti hefðu þama verið eyðilögð.
„Það er sorglegt til þess að vita,
að fólk veit svo lítið um hvemig
á að umgangast gömul umslög,
kort og bréf. Það gerist iðulega
að fólk er að klippa af gömlum
umslögum og póstkortum og
klippir þá burtu mikil verðmæti.
Ég hugsa að ef megnið af þessum
umslögum hefur verið frá alda-
mótum þá hefur blessuð konan
klippt burtu tugi, jafnvel hundruð
þúsunda," sagði Magni.
Magni sagði að það sem gerði
það að verkum að umslögin frá
liðnum tíma ykju á verðmæti frí-
merkisins, því þar gætu ' verið
stimplar og póstsögulegir hlutir
sem væra dýrmætir.
- Morgunblaðið/Rax
Sauðburður í borgarlandinu
FYRSTU kynni mörg hundruð reykvískra smákrakka af íslensk-
um búfénaði hafa um nokkurra ára skeið veríð í Fjárborg í Hólms-
heiði ofan við Rauðavatn, þar sem fjáreigendur í höfuðborginni
halda fé sitt. Þeir hafa með sér samtök, Fjáreigendafélag Reykja-
víkur, sem á næsta árí verður 60 ára. Þar var þessi mynd tekin
í gær þegar hópar barna af dagvistarheimilum borgarinnar komu
í heimsókn til að fylgjast með sauðburðinum.
Fjáreigendur halda upp á annað fyrramálið verða fjáreigendur
afmæli nú um hvítasunnuna, með „opið hús“ í Fjárborg og
nefnilega 200 ára afmæli Reylqa- þangað era allir velkomnir til að
víkurborgar. Frá klukkan tíu í skoða nýfædd lömb og mæður
þeirra. „Það verður engin sérstök
uppákoma hjá okkur að öðra leyti
- við viljum einungis gefa fólki
kost á að koma og fylgjast með
sauðburði í borgarlandinu," sagði
Sæunn Andrésdóttir, formaður
Fjáreigendafélags Reykjavíkur,
sem á myndinni er að sýna fjáreig-
endum framtíðarinnar fyrstu lömb
sumarsins.
Flugleiðir semja um
flug fyrir Alsírbúa
FLUGLEIÐIR og Air Algerie
hafa gengið frá samningi sín
á milli um að Flugleiðir annist
Jón Sigurðsson, forstjórí Þjóðhagsstofnunar:
Veruleg aukning á kaup-
mætti launa á þessu ári
| JÓN Sigurðsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, segir, að samkvæmt
spám stofnunarinnar um tekju- og verðlagsþróun muni kaupmáttur
launa aukast verulega á þessu árí. Standist spárnar megi segja, að
kaupmáttarrýrnunin frá árunum 1982-1983 hafi að mestu unnist
upp, ef tekið er mið af ráðstöfunartekjum. Þetta kom fram í erindi,
sem hann flutti á fundi Rotarýklúbbs Reykjavíkur sl. miðvikudag
og birt er i Morgunblaðinu i dag.
Jón Sigurðsson sagði, að á mæli-
kvarða kauptaxta virtist kaup-
máttur munu aukast um 4-5% frá
upphafi til loka samningstíma aðila
vinnumarkaðarins. Að meðaltali
yrði kaupmáttur taxtanna þó hinn
sami og var í fyrra. Kaupmáttur
ykist hins vegar veralega á mæli-
-kvarða heildarlauna, en með heild-
arlaunum er átt við ráðstöfunar-
tekjur áður en skattar era dregnir
frá. Nú vær því spáð, að heildarlaun
hækkuðu um 25-26% á mann miili
áranna 1985 og 1986, en í því
fælist 4-5% kaupmáttaraukning á
mann, sem væri heldur minna en í
fyrra. Kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna á mann ykist líklega minna
en atvinnutekna, eða um 3-4%
samanborið við 6-7% í fyrra. Skýr-
ingin á þessu væri sú, að beinir
skattar og útsvör virtust að
óbreyttu hækka heldur meira en
tekjur manna á þessu ári öfugt við
það, sem gerðist í fyrra, fyrst og
fremst vegna þess, að tekjumar í
fyrra, sem skattar greiðast af í ár,
reyndust hærri en ætlað var, þegar
ákvarðanir um álagningu vora
teknar um mánaðamótin febrúar-
mars sl.
Sjá eríndi Jóns Sigurðssonar á
miðopnu.
áætlanaflug á milli Alsír og
Frakklands. Heildarupphæð
samningsins er um 900 millj-
ónir, en aðeins hefur verið
gengið endanlega frá samn-
ingnum um áætlanaflug í
sumar. Fyrir þann þátt samn-
ingsins fá Flugleiðir 400 millj-
ónir króna.
„Nú er komið endanlegt sam-
komulag á milli Flugleiða og Air
Algerie, sem er niðurstaða þess
rammasamkomulags sem við
gerðum í vetur,“ sagði Sigurður
Helgason forstjóri Flugleiða í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gær.
Sigurður sagði að fyrsti hluti
þessa samkomulags næði til
áætlunarflugs á milli Alsírborgar
og Parísar annars vegar og Oran
í Alsír og Marseilles hins vegar.
Þessi hluti samkomulagsins næði
til fjögurra mánaða, og yrði
fyrsta flugið 22. júní nk. „Flug-
leiðir hafa leigt tvær vélar til
þess að sinna þessum fyrsta
hluta. Við leigðum eina DC-8 frá
Kanada, ásamt áhöfn og eina
Lockheed 1011 frá Bandaríkjun-
um til þriggja mánaða, en að
þeim tíma loknum gerum við
okkur vonir um að geta komið
inn okkar vélum í þetta flug,“
sagði Sigurður.
Sigurður sagði að fyrsti hluti
samkomulagsins, að upphæð 400
milljónir króna, væri endanlega
frágenginn, en ekki væri búið að
ganga frá seinni hlutanum. „Við
gerum ráð fyrrir þvi að Air Algerie
framlengi samningnum eftir
fyrstu fyóra mánuðina um sjö og
hálfan mánuð þannig að samtals
verði þetta ársverkefni. í heild
verður þetta því samningur upp
á 900 milljónir," sagði Sigurður.
Aðspurður sagðist Sigurður
vera mjög ánægður með þennan
samning, og sagðist hann gera
ráð fyrir að útkoma Flugleiða í
þessu dæmi yrði svipuð og gert
hafði verið ráð fyrir, þegar
rammasamningurinn varð til fyrr
í vetur og gert var ráð fyrir að
Flugleiðir önnuðust einnig píla-
grímaflug fyrir Alsírbúa.