Morgunblaðið - 17.06.1986, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ1986
Guðmundur J. Guðmundsson vegna frétta Ritzau:
Aldrei þegið
fé frá Hafskip
GUÐMUNDUR J. Guðmundsson, alþingismaður og formað-
ur Dagsbrúnar og Verkamannasambands Islands, segir í
yfirlýsingu, sem Morgunblaðinu barst í gær, að hann hafi
„aldrei, hvorki fyrr né síðar, þegið fé frá Hafskip né
nokkru öðru skipafélagi, fyrirtæki eða forsvarsmönnum
þeirra.“ Tilefni yfirlýsingarinnar er frétt í „ríkisfjölmiðl-
um“ á sunnudagskvöldið.
í sjónvarpsfréttum á sunnudags-
kvöld las Bogi Ágústsson, fréttarit-
ari sjónvarps í Danmörku, pistil,
sem hann byggði á skeyti frétta-
stofunnar Ritzau, en Magnús Guð-
mundsson er fréttaritari hennar hér
á landi. Pistill Boga hófst á þessum
orðum: „Ritzau, fréttastofan
danska, segist í dag hafa áreiðan-
legar heimildir fyrir því að einn af
áhrifamestu verkalýðsleiðtogum ís-
lands, eins og það er orðað, hafi
tekið við háum peningaupphæðum
úr leynilegum bankareikningum
Hafskipsmanna ... frétt Ritzau var
send út í dag og er skrifuð af
Magnúsi Guðmundssyni, fréttarit-
ara Ritzau á íslandi. Magnús ber
fyrir sig ónefnda en áreiðanlega
heimildarmenn. Verkalýðsleiðtog-
anum, sem aldrei er nefndur á nafn,
er lýst sem einum áhrifamesta
verkalýðsleiðtoga landsins."
Hér fer í heild yfírlýsing Guð-
mundar J. Guðmundssonar, sem
Morgunblaðinu barst í gær, en
Guðmundur situr nú fund á vegum
Alþjóðavinnumálastofnunarinnar í
Genf:
„Yfirlýsing
I gærkvöldi var í ríkisfjölmiðlum
frétt af svokölluðu Hafskipsmáli.
Þar var látið að því liggja að þekkt-
ur alþýðubandalagsmaður og
verkalýðsforingi hafí þegið mútur
frá Hafskip hf.
Ekki duldist neinum sem á
heyrðu að þar var átt við undirritað-
an, Guðmund J. Guðmundsson.
Þar sem ég er staddur erlendis
hef ég beðið um að eftirfarandi
yfírlýsing verði birt.
Ég hef aldrei, hvorki fyrr né síðar
þegið fé frá Hafskip né nokkru
öðru skipafélagi, fyrirtæki eða for-
svarsmönnum þeirra. Allar aðdrótt-
anir í þá veru eru úr lausu lofti
gripnar.
Eg mun fara fram á að yfírstand-
andi opinberri rannsókn verði hrað-
að sem mest og málið .skýrt opin-
berlega. Það er ákaflega vftavert
að ríkisQölmiðill skuli birta frétt í
þessum búningi, þar sem m.a. er
vitnað í vitnisburð manns sem situr
í gæsluvarðhaldi. Það er ný aðferð
til að gera óhróður trúverðugan. Ég
hef gert ráðstafanir til að hraða för
minni heim hið fyrsta.
15.6.1986.
Guðmundur J. Guðmundsson."
■- ’-i
*
©
INNLENT
Sjaldan verður það of brýnt fyrir ökumönnum,
sem ferð eiga um óbyggðir landsins, að gæta
fyllstu varúðar þegar farið er yfir ár, að fara
yfir á réttum stöðum. Þessi mynd er tekin við
ána Krossá f nágrenni Þórsmerkur, þar sem
Morgunblaðið/Karl T. Sæmundsson
Bronco-bifreið hafði fest sig aðfaranótt sunnu-
dagsins og losnaði ekki fyrr en síðdegis á
sunnudaginn. Rétt hjá þessum stað er skilti,
þar sem ökumenn eru varaðir við því að fara
yfirána.
Svavar Gestsson ekki
ritsljóri Þjóðviljans
Málamiðlun um þriðja ritstjórann sem ráðinn verði með haustinu
NIÐURSTAÐA fyrsta fundar
útgáfustjórnar Þjóðviljans i gær
varð sú að, ákveðið var að feia
nýkjörnum formanni útgáfu-
stjómarinnar, Ragnari Ámasyni,
og ritstjórum Þjóðviljans þeim
Ossuri Skarphéðinssyni og Ama
Bergmann að leita eftir þriðja
manni á ritstjórastól Þjóðviljans,
sem víðtæk samstaða geti tekist
um. Hann taki til starfa á haust-
mánuðum. Svavar Gestsson, for-
maður Alþýðubandalagsins,
greindi frá þvi á fundinum að
hann myndi ekki geta tekið að
sér ritstjórastarf, sökum anna
við formennskustörf.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins voru átök um þetta mál
Morgunblaðið/Geir Ólafsson
Lögreglan ósk-
ar eftir vitnum
Harður árekstur varð á mótum
Hringbrautar og Hofsvallagötu
á laugardagskvöld. Mazda-
bifreið sem ók norður Hofs-
vallagötu lenti á Ford-bifreið,
sem ók austur Hringbraut.
Bifreiðiraar em mjög illa fam-
ar, ef ekki ónýtar, en meiðsli
farþega vom óveraleg. Öku-
menn em ekki á einu máli nm
hvor þeirra ók yfir á grænu
ljósi og beinir lögreglan þvf til
hugsanlegra vitna að þau gefi
sig fram við Slysarannsókna-
deild lögreglunnar.
mikil sl. helgi og fékkst ekki mála-
miðlunamiðurstaða sú, sem hér er
greint frá, fyrr en snemma í gær-
morgun. Munu aðilar málsins vera
sáttir við þessa niðurstöðu og þeir
sem íhugað hafa uppsagnir við
blaðið að undanfömu munu nú hafa
horfíð frá slfkum hugleiðingum að
undanskildum Óskari Guðmunds-
syni, ritstjómarfulltrúa, sem hafði
þegar ákveðið að hætta hjá Þjóðvilj-
anum í sumar.
Svavar Gestsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, lagði á fundin-
um í gær fram bókun, þar sem
segir m.a.: „f umræðum um rit-
stjóra Þjóðviljans undanfama daga
hefur mitt n_afn verið nefnt m.a. í
flölmiðlum. Ástæðan er sú að Ijöl-
margir félagar í flokknum og út-
gáfufélaginu hafa verið að leita að
manni til þess að skipa þriðja rit-
stjórasæt.ið á blaðinu. Ljóst er af
viðtölum að meirihluti stjómar út-
gáfúfélagsins hvetur mig eindregið
til þess að takast á hendur ritstjóm
blaðsins . . . Annir mínar sem
formanns flokksins gera mér ekki
kleift að þessu sinni að taka áskor-
unum.“
Svavar var í gær spurður hvort
hann yrði áfram með í umræðunni
sem ritstjóraefni, þegar farið yrði
að ræða ráðningu ritstjóra með
haustinu: „Ég reikna ekki með því.
Eftir að Iíður að haustinu, þá fer
nú að styttast í alþingiskosningar,
og annir eiga þá eftir að aukast. Ég
reikna því síður með því að mitt
nafn verði með í þeirri umræðu."
Svavar var spurður hvort hann
teldi þessa niðurstöðu farsæla lausn
málsins: „Það er m.a. hlutverk
formanna í stjómmálaflokkum að
leysa vandamáí og ég tel að í þessu
tilviki hafí það tekist og með það
er ég ánægður.“
Össur Skarphéðinsson, ritstjóri
í^jóðviljans, sagði að loknum fund-
inum í gær. „Eg er mjög ánægður
með þessa niðurstöðu og ef það
tekst að fínna góðan mann í rit-
stjórastól hér við hliðana á okkur
Ama, þá er ég mjög ánægður."
Lúðvík Geirsson, blaðamaður
Þjóðviljans, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gæn „Ég heyri ekki
annað en að menn hér á ritstjóm
Þjóðviljans séu mjög ánægðir með
þessa niðurstöðu og að þetta sé sú
lausn málsins sem menn geta mjög
vel fellt sig við.“
Lúðvík var spurður hvort blaða-
menn Þjóðviljans litu á Össur sem
sigurvegara þessa máls: „Já, ég
held að menn hljóti að meta stöðuna
þannig. Hann hefur sýnt það að
hann hefur fúll völd á þessu blaði
og hann hefur ritstjómina og starfs-
menn blaðsins sér að baki. Það sem
við eram hvað ánægðastir með er
að niðurstaða þessa fundar varð
breið samstaða og menn sáu þama
að sér og leituðu eftir samkomulagi.
Þó svo að það megi að einhveiju
leyti líta á þessa niðurstöðu, sem
vopnahlé fram á haustið, þá liggur
það nú fyrir að menn ætla að standa
saman að þvi sem verður í fram-
haldinu."
Ragnar Ámason, nýkjörinn for-
maður útgáfustjómar Þjóðviljans,
var spurður hvort hann og ritstjórar
Þjóðviljans væra famir að svipast
eftir þriðja ritstjóranum: „Við eram
nú ekki famir að hittast ennþá, við
sem voram settir í það verkefni að
ráða þriðja ritstjórann. Við þurfum
fyrst að leggja línumar fyrir þá
vinnu, en ég býst við að við munum
eins fljótt og unnt er fara að líta í
kringum okkur," sagði Ragnar.
Áfangaskýrsla Flugslysanefndar:
Misskílningur og
ónákvæmt orðalag
- olli því að SAS- og BA-þotunum
var heimilað að fljúga í sömu hæð
VIÐ RANNSÓKN Flugslysanefndar á atviki því er tvær farþegaþot-
utr höfðu nær rekizt hvor á aðra yfir Austurlandi fyrir nokkra
hefur komið fram, að misskilningur og ónákvæmt orðalag í samskipt-
um innanlandsdeildar og úthafsdeildar flugumferðar hafi valdið
því, að vélunum var báðum heimilað að fljúga í sömu hæð. Enn-
fremur segir að fijálslynd túlkun á starfsreglum um stjóraun flug-
véla í gegnum flugstjórnarsvæðið, það er úr einni deild í aðra, virð-
ist einnig hafa orðið til þess að ábyrgðarkerfi starfsreglna hafí
riðlazt eða brostið.
Þessar upplýsingar koma fram í
fréttatilkynningu frá samgöngu-
ráðuneytinu. Þar segir, að ráðu-
neytinu hafi borizt áfangaskýrsla
Flugslysanefndar vegna rannsókn-
ar á „flugumferðaratviki" er orðið
hafí á íslenzka flugstjómarsvæðinu
þann 2. júní síðastliðinn. í fréttatil-
kynningunni er gangur mála rakinn
í stóram dráttum og sagt, að nefnd-
in hafí farið yfír skýrslur um fyrri
atvik svipaðs eðlis, sem orðið hafí
í íslenzka flugstjómarsvæðinu,
kjmnt sér tiltæk gögn um samskipti
flugumferðarstjómar og flugmála-
stjómar í því efni, þar á meðal
afskipti samgönguráðuneytis og
sérstaklega kynnt sér skýrslur
bandarísku flugmálastjómarinnar,
dagsetta í desember 1985.
Þá segir orðrétt í tilkynningunni:
„Rannsókn atburðarins hefur staðið
sleitulaust frá þvi að hann gerðist.
í áfangaskýrslunni eru einnig’ gerð-
ar ýmsar tillögur til úrbóta er varða
verklega þjálfun og nám í flugum-
ferðarstjóm, samskiptaörðugleika,
tækjabúnað og framkvæmd starfs-
reglna. Rannsókninni er hins vegar
ekki lokið og því ekki unnt að svo
stöddu að greina frá niðurstöðum
hennar."