Morgunblaðið - 17.06.1986, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRISJUDAGUR 17. JÚNÍ 1986
3
Hve margir
horfa á HM
í fótbolta?
- Hlustendakönnun fer fram á
næstunni á vegum sjónvarpsins
ÚTVARPSRÁÐ samþykkti sam-
hljóða á fundi sínum sl. föstudag
að láta fara fram hlustendakönn-
un á þvi hversu margir fylgdust
með beinum útsendingum sjón-
varpsins á heimsmeistarakeppn-
inni i fótbolta sem nú fer fram
í Mexíkó.
Pétur Guðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri sjónvarpsins, sagði í
samtali við blaðamann að ráðgert
væri að könnunin færi fram á næstu
dögum og myndi hann ráðfæra sig
við tilvonandi framkvæmdaaðila á
morgun viðvíkjandi alla skipulagn-
ingu hennar. „Ekki hefur verið
ákveðið hveijir endanlega taka að
sér könnunina eða hversu stórt úr-
takið verður, en okkur finnst rétt
að könnunin fari ftam þar sem
nokkuð hefur verið umdeilt, bæði
af sumum fulltrúum útvarpsráðs
auk annars almennings, hve stórum
hluta dagskrárinnar skuli varið til
slfkra viðburða sem heimsmeistara-
keppninnar í fótbolta. Aðrar hlust-
endakannanir, sem gerðar hafa
verið, hafa t.d. leitt í ljós að færri
hafa horft á þessar hefðbundnu
fótboltaútsendingar sjónvarpsins á
laugardögum, ensku knattspyrn-
una, en menn héldu áður,“ sagði
Pétur.
Broddurinn
sló í gegn
FÓLK knnni svo sannarlega að
meta broddinn sem félagar i
Samkór Selfoss buðu upp á á
Lækjartorgi sl föstudag. Brodd-
urinn og kökumar sem til sölu
'voru hurfu eins og dögg fyrir
sólu.
„Þetta var alveg meiriháttar að
selja fólkinu broddinn," sagði Ólöf
Halldórsdóttir formaður Samkórs-
ins um torgsöluna. Fólk dreif að
og beið hreinlega eftir að salan
hæfist og lét ekki á sig fá þótt það
slagrigndi á meðan á sölunni stóð.
„Þú verður að láta mig fá svolít-
ið,“ sagði kona úr Breiðholtinu og
maður úr Kópavoginum vildi gerast
áskrifandi að broddi og bað um að
fá ábendingu um bónda I Flóanum
sem gæti látið hann fá brodd. Annar
maður skildi ekkert í þvi að Mjólk-
urbú Flóamanna skyldi ekki taka
við broddinum og selja hann. “Mað-
ur er alveg vitlaus f þetta“, sagði
hann.
„Það er svo sannarlega markaður
fyrir þetta," sagði ólöf Halldórs-
dóttir,„og það er alveg víst að við
komum betur undir þetta búin næst
með helmingi meira af broddi.“ ólöf
sagði að kökumar hefðu einnig
runnið út og mikil ásókn hefði verið
í heimabakaða hveitibrauðið og
ferðin f heild hefði tekist vel.
Sig.Jóns.
Kópavogur:
A-flokkarnir í
meirihlutaslj ór n
Alþýðuflokkur og Alþýðu-
bandalag hafa náð með sér
samkomulagi nm myndun meiri-
hluta í bæjarstjóm Kópavogs.
Fyrsti fundur nýs meirihluta
verður haldinn nk. föstudag.
Bæjarstjóri verður áfram Krist-
ján Guðmundsson, sem verið
hefur bæjarstjóri þar sl. fjögur
ár.
Flokkamir hafa ákveðið að skipta
með sér embættisstörfum ár frá ári.
Gert er ráð fyrir að fyrsta árið
muni fulltrúi frá G-lista gegna for-
mennsku í bæjarráði og fulltrúi frá
A-lista fara með embætti forseta
bæjarsljómar.
Á síðasta kjörtímabili vom full-
trúar Alþýðuflokks, Framsóknar-
flokks og Alþýðubandalags í meiri-
hlutastjóm í Kópavogi.
Aðalfundur SÍS haldinn á
Akureyri 20. og 21. júní nk.
AÐALFUNDUR Sambands is-
lenskra samvinnufélaga verður
haldinn á Akureyri dagana 20.
og 21. júní nk. Fundurinn hefst
kl. 13.30 þ. 20. júní á Hótel KEA
og lýkur sfðdegis á laugardag.
Til fundarins koma 120 fulltrúar
kaupfélaganna innan sambands-
ins, stjórn þess og framkvæmda-
stjórn, framkvæmdastjórar sam-
starfsf yrirtækja og aðrir gestir.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
Iiggur fyrir fundinum umræðuefnið
„Samvinnuhreyfing framtíðarinn-
ar“.
Þess má geta að þetta er síðasti
fundur Erlends Einarsssonar sem
forstjóra en hann lætur af störfum
forstjóra 30. júní nk. eftir rúmlega
30 ára starf.
Ejgja ara
öfum
nallþórur
orðinu
HUSIVERSLUNARINNAR
Ibreyttar,
Hallargarðurinn er ánin
Veitingahöllin vinsælasti