Morgunblaðið - 17.06.1986, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ1986
Allt er endurtekning
eftir Jóhann
Hjálmarsson
Við lát Jorge Luis Borges
(1899—1986) koma tengsl hans við
Island og íslenska menningu fyrst
í hugann. Fomar norrænar bók-
menntir voru honum umhugsunar-
efni og innblástur. Hann samdi
dálitla bók um efnið og í verkum
hans, einkum ljóðum, er oft vikið
að norrænum sagnaheimi. Hann
orti til dæmis ljóð um Snorra Sturlu-
son.
Hingað til lands kom Borges
nokkrum sinnum. Ég kynntist
honum og ritara hans, Maríu, í einni
af þessum ferðum. Eins og fram
hefur komið í viðtöium Matthíasar
Johannessen við Borges taldi hann
íslenskar bókmenntir gegna miklu
hlutverki í samtímanum og hann
brýndi fyrir ungum skáldum að
missa ekki sjónar á arfinum. Að
mati Borges áttu skáldin að minna
á heim fombókmenntanna með því
að skírskota til þeirra. Skírskotanir
áttu þó að vera í hófí eða með þeim
hætti að æskilegt væri að íslensk
skáld færu að yrkja eins og fom-
skáldin, gerast fomleg í tjáningu
sinni. Það sem vakti fyrir honum
var að rétt orð, rétt setning iiðins
tíma, höfðaði til samtímans í vel
ortu ljóði. Vissulega eru góð dæmi
um þetta í samtímaljóðlist okkar.
Orðin sjálf voru Borges upp-
spretta og nautn. Þegar hann var
á íslandi átti hann það til að vitna
í fom kvæði og sögur og spyija
margs um orð og merkingu þeirra.
Ég held að áhugi hans á íslensku
máli og bókmenntum hafí kviknað
við lestur fomenskra bókmennta. í
þeim var Boregs vel að sér. í ljóðum
hans er oft bergmál frá Bjólfskviðu,
kappinn Hengest gengur í þeim ljós-
um logum.
í sagnagerð sinni tók Borges oft
mið af Islendingasögum. Hann
tamdi sér hnitmiðun í stíl, lagði
kapp á að láta samtöl segja mikið
um persónumar, en forðaðist viða-
miklar lýsingar. Hann heillaðist af
þvf hve vitundin um örlög manna
er rík í verkum fomra, íslenskra
höfunda. Þessa vitund gat hann
auðveldlega látið birtast í sögum
sem gerast í Argentínu og á fleiri
stöðum.
í sögum Borges og Ijóðum er
maðurinn staddur í völundarhúsi án
dyra eða hring sem ekki verður
rofínn. Einn maður er jafnframt
allir menn. Borges sjálfur er að
minnsta kosti tveir Borgesar eins
og í einni sögunni. Verk hans verða
ekki auðveldlega skilgreind. Það er
að vísu hægt að flokka þau eftir
heimspekilegum og bókmenntaleg-
um kerfum, einkum efni þeirra. Það
væri líka hægt að búa til skrá yfír
það hvert Borges sækir fyrirmyndir
sínar. Mörg verka hans fjalla um
önnur verk. Sjálfur lagði hann
áherslu á að vera góður lesandi.
Víða rekumst við á nokkurs konar
skýrslur um það sem hann hefur
verið að lesa, eitthvað í bókum sem
heldur fyrir honum vöku og krefst
túlkunar. Ekki er fráleitt að kalla
sum verk Borges þýðingar, en þá
í merkingunni að um fíjálslegar
endursagnir sé að ræða. Borges lifði
í heimi bóka og safna, en kom
stundum út undir bert loft. Orðin
breyttust þá í ilm eða andblæ, klið
borga.
Enn hef ég ekki ort ljóðið, yrkir
Borges. Æviverk hans var sífelld
leit að þessu eina ljóði, tilraun til
að orða hugsun sína þannig að vel
mætti við una. Hjá Borges vegur
varðveislan þungt; hann leit á verk
sín sem hluta stærri heildar sem
ekki mátti glatast.
Hugarflug skáldsins freistar þess
að draga upp mynd af hinu dular-
fulla, óskiljanlega. Það verður
naumast skýrt nema með því sem
felst í dulúð orðanna, orðin sjálf
geyma ráðningu sem ekki er þó
nein allsherjarlausn. Það kemur
ekki á óvart að meðal uppáhalds-
höfunda Borges voru Émanuel
Swedenborg, William Blake og
Edgar Allan Poe.
Borges hlaut margar viðurkenn-
ingar, en ekki Nóbelsverðlaunin
eins og mörgum þótti sjálfsagt að
hann fengi. Svíum þótti skáldið of
hægrisinnað. í sænskri uppsláttar-
bók um bókmenntir, sem út kom
1971 (Litteraturhandboken), fær
Borges þá einkunn að „venjuleg
mannleg vandamál snerti hann lít-
ið“. Þetta var skrifað á tímum hinna
„virku" bókmennta og er ítrekað í
nýrri útgáfu 1984. Meira er vert
um að mörg skáld Suður-Ameríku
telja sig standa í þakkarskuld við
Borges og hafa lært margt af
honum. Utan Argentínu var vegur
hans hvað mestur í Bandaríkjunum
og Frakklandi.
Eins og hjá öllum meiriháttar
skáldum var dauðinn síendurtekið
yrkisefni hjá Borges. Hefur dauðan-
um nú tekist að frelsa hann úr
því völundarhúsi sem hann orti svo
mikið um? Speglamir voru honum
líka áleitin yrkisefni, endurtekning-
in, sú vissa að allt er að vissu marki
endurtekning.
QIK/IAD 911KÍ1 —91*17(1 SOLUSTJ LARUS Þ VALOIMARS
diivian 4ii3U u lögm johþorðarsonhol
Vorum að fá til sölu:
Á úrvalsstað við Funafold
Glæsileg raðhús í smíöum á „einni og hálfri hæö“. Innanveggjamál íb.
um 170 fm. 4 rúmg. svefnherb. Bílsk. fyrir tvo bíla. Sólsvalir um 12 m
langar. Allur frágangur utanhúss fylgir. Fokh. að innan. Byggjandi Húni
sf. Frábær sveigjanleg greiöslukjör. Teikn. á skrifst.
3ja og 4ra herb. íbúðir við:
Kleppsveg — Hrfsateig — Eyjabakka — Laugaveg — Lindargötu —
Skúlagötu — Álfheima — Dvergabakka — Hverfisgötu — Æsufell —
Hraunteig — Ránargötu — Álfhólsveg — Hvassaleiti — Furugrund.
Kynnið ykkur nánar söluskrána.
Með öllu sér og góðum bílskúr
Sunnan megin í Kópavogi. Sór ib. á 2 hæðum um 160 fm i tvíbhúsi.
Allt sér. Svalir á báöum hæðum. Ræktuð lóð. Mikið útsýni.
Helst í vesturborginni eða á Nesinu
Læknir nýkominn frá námi i Ameríku óskar eftir einbhúsi eða raðh.
Stór sérhæð kemur til greina. Miklar og góöar greiðslur fyrir rótta eign.
Hagar — Melar — nágrenni
3-4 herb. íb. óskast til kaups á 1. hæö með sólsvölum. íb. í lyftuhúsi
kemur til greina. Rótt eign verður borguð út.
Opið í dag þriðjudag kl. 9-13.
Gleðilega þjóðhátfð.
AIMENNA
FASTEIGNASAL AM
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
NU ER TÆKIFÆRIÐ
AÐ EIGNAST SINA FYRSTUIBUÐ
Breytt áætlun
SVR í dag
Þjóðhátíðardaginn 17. júni
verða gerðar nokkrar breyting-
ar á akstursáætlun SVR. Ekið
verður eftir tímaáætlun helgi-
daga en aukavögnum verður þó
bætt við eftir þörfum.
Um miðbik dagsins, þegar há-
tíðahöldin standa sem hæst í
Lækjargötu, við Fríkirkjuveg og í
Hljómskálagarði, verður breytt frá
venjulegri akstursleið vagnanna.
Breytingin nær til þeirra 9 leiða
sem fara um Lælqargötu.
Vagnar á leiðum 2, 3, 4 og 5,
á vesturleið, sem aka venjulega
um Laugaveg og Lækjargötu
munu aka um Skúlagötu og
Tryggvagötu og hafa viðkomu í
Tryggvagötu við brúna upp á Toll-
stöð. Á leið austur hafa þessir
vagnar viðkomu í Hafnarstræti.
Vagnar á leiðum 6, 7, 13, 14
og 17, sem venjulega hafa enda-
stöð við Lækjartorg og neðan
Bemhöftstorfu, færa sig í Hafnar-
stræti.
Meðan á kvöldskemmtun stend-
ur á Lækjartorgi verður reynt að
halda uppi akstri eftir venjubundn-
um akstursleiðum, en reynist mjög
mannmargt á Lækjartorgi og
Lækjargötu verður að grípa til
sama fyrirkomulags og gildir um
miðbik dagsins eins og áður var
kynnt.
Frostafold 22-24-26 Grafarvogi
Mjög nákvœm og vönduð byggingarlýsing og teikningar
liggja frammi hjá fasteignasölunum.
GRUNNMYND:
Lýsing: 2ja og 3ja herb. íb. sem afh.
tilb. imdir tréverk og máln. með
milliveggjum. Að utan verður húsið
fullfrág. og málað, lóð verður tyrfð.
Húsið stendur mjög hátt og er útsýni
eitt hið besta í borginni. íb. eru m.
suðaustursvölum og mjðg sólríkar.
Sérþvottaherb. fylgir hverri íb. Með
íb. getur fylgt stæði í bílageymslu.
Afhending:
Febrúar - apríl 1987.
Stutt í alla þjónustu. T.d. eru verslun og skóli
í aðeins 300 m fjarlægð. Dagvistarheimili í 100
m fjarlægð. Gæsluvöllur í 200 m fjarlægð.
Boltaleikvöllur í 50 m fjarlægð og strætis-
vagnastoppistöð í 200 m fjarlægð.
Dæmi um greiðslukjör fyrir þann sem er að kaupa í 1. sinn og er í fullgild-
um lífeyrissjóði.
2ja herb. íb.
Við undirritun kaupsamn.
Með húsnæðismálaláni
Eftirst. mega greiðast á 12 mán.
(31.667.-á mán.) _____________
Samtals kr. 1.830.000.
250.000.-
1.200.00.-
380.000.-
3ja herb. íb.
Við undirritun kaupsamn. 350.000.-
Með húsnæðismálaláni 1.400.000.-
Eftirst. mega greiðast á 14 mán. 640.000.-
(45.714,-á man.) _____________
Samtals kr. 2.390.000.-
/5P\FASTEIGNASALAN
ÍCy FJÁRFESTING HF.
Tryggvsgötu 26 -101 Rvk. - 8:62-20-33
Lögfriadingar Pítur Þór SiguröMon hdl.,
Jónína Bjartmarz hdl.
BYGGINGARAÐILI:
BYGGINGARFÉLAGIÐ
GYLFIOG GUNNAR SF.
TEIKNING:
KJARTAN SVEINSSON.
FASTEIGNA FF
I^eJ markaðurinn
ÓMfMoötu 4, aémar 11540 — 21700.
Jón OuómundM. iðiurtL
Uó E. LOv* Mngrtúa Qu6toufl66on K