Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ 1986
13
Tveir kórar
Listahátíðarlok
V ínarstrengjakvartettinn
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Fyrir þá, sem aðeins sækja
klassíska tónleika, lauk Listahátíð
með tónleikum Vínarkvartettsins.
Eini gallinn við þau klassísku
atriði, sem á Listahátíð voru, er
að þau voru allt of stutt. Miklir
listamenn koma, leika eða syngja
nokkur meistaraverk og eru síðan
famir, en þegar hljóðnar, situr
heimafóik og á aðeins eftir minn-
ingar, sem að vísu efla með fólki
áræði til að glíma sína eigin glímu
til þrautar. Vínarkvartettinn flutti
C-dúr-kvartettinn K.V. 465 eftir
Mozart, ópus 3, eftir Alban Berg
og þann fjórtánda eftir Schubert.
Félagamir í Vínarkvartettinum
em Wemer Hink, Hubert Kroisa-
mer, Klaus Peisteiner og Friedrich
Dolezal, allt frábærir tónlistar-
menn. Nítjándi kvartett Mozarts
(K.V. 465) hefst á krómantískum
inngangi, sem leiðir svo yfir í
ekta Mozart-laglínu, er framsag-
an hefst. Allur kvartettinn er eitt
blómaútflúr í tónum, þar sem
undursamleg fegurðin er jafn
sjálfsögð og úti í gróðurþrunginni
náttúru og að því leyti var leikur
Vínarkvartettsins eins og göngu-
ferð um þessa vin. Strengjakvart-
ett nr. 3 eftir Alban Berg er galdr-
aður upp með rómantískri dulúð
og á móti rósagarði Mozart, eins
og næturstemmning, þar sem til-
vist hins óræða virðist aðeins vera
armlengd frá því að umvefja hvem
náttfara örmum sínum. Leikur
Vínarkvartettsins var sérlega fín-
gerður og að því leyti flutti verkið
með sér andblæ rómantíkur, um
leið og þar sagði til um óorðna
hluti. Síðasta verkið í þessari
stuttu heimsókn, er Vínarkvart-
ettinn rétt tillti sér á bæjarhelluna
og gat almæltra tíðenda, var
kvartett sá eftir Schubert, sem
nefndur hefur verið Dauðinn og
stúlkan. Það er undarlegt með
Schubert, eins mikill lagasiða-
meistari og hann var, átti hann
og einstaklega létt með að vinna
úr einföldum tónhugmyndum. í
tónverkum hans sameinast því
ótrúleg lagaauðgi og sinfónísk
tækni, sem fær sagnfræðinga til
að staðhæfa að Schubert hefði
orðið mestur allra tónskálda, ef
maðurinn með ljáinn hefði ekki
lagt ljánum svo breitt, að aftók
hvert blóm, sem á vegi hans varð.
Það er eins með sönginn og blóm-
in, því fallegri sem þau eru, því
sjálfsagðari eru þau og því þarf
maðurinn að temja sér gætni;
hvar hann drepur niður fæti. I
fíngerðri fegurð náttúrunnar eru
margslungnir þræðir ofnir í eitt
og því verða allar skemmdir al-
gjörar. Vínarkvartettinn er einn
fallegasti þáttur Listahátíðar
1986. Fyrir þá sem aðeins sjá
fyrir sér hið ytra tilstand Listahá-
tíðar, er rétt að benda á, að heim-
sókn Claudio Arrau, Margaret
Price, The New Music Consort,
Thomas Lander og Vínarstrengja-
kvartettsins eru tíðendi stór og
góð, tónleikar með verkum Jóns
Nordal, sem í rúm þijátíu ár hefur
átt hlut að stórbrotnum fram-
gangi tónlistar á íslandi og af-
rakstur þeirrar vinnu, sem kom
svo skemmtilega fram á tónleikum
Guðna Franzsonar í tónsköpun
ungu kynslóðarinnar og glæsileg-
ur söngur Kristjáns Jóhannssonar,
er svo sannarlega þess virði að
menn geri sér dagamun til glaðn-
ings og skemmtunar, enda var
aðsókn á alla þessa tónleika mjög
góð. Þá er víst lítið annað eftir
en að þakka allan velgjöming og
biðja öllum heilla.
Kór Landakirkju í Vestmannaeyjum
og Skólakór Seltjamamess, héldu tón-
leika í Háteigskirkju en saman ætla
þessir kórar að fara í tónleikaferð til
Italíu. Á tónleikunum í Háteigskirkju
söng Skólakór Seltjamamess fíögur
lög, eitt íslenskt þjóðlag, eitt ítalskt
og tvo negrasálma, undir stjóm Mar-
grétar Pálmadóttur. Margrét hefur náð
að æfa nokkuð góðan kór, enda bæði
vel menntuð í söngfræðum og auk
þess alin upp í einum af bestu bama-
kórum landsins, Barnakór Öldutúns-
skóla í Hafnarfirði. Kór Landakirkju
flutti þijú lög fyrst, Heyr himnasmiður
eftir Þorkel Sigurbjömsson, þá Ave
vemm eftir Mozart og Sigurhátíð sæl
og blfð eftir Hándel. I tveimur seinni
lögunum lék strengjakvartett, sem í
em Guðný Guðmundsdóttir, Sigurlaug
Eðvaldsdóttir, Elísabeth Dean og
Gunnar Kvaran. Kvartettinn flutti sér-
staklega tilbrigðaþáttinn úr þeim
strengjakvartett eftir Schubert, sem
nefndur er Dauðinn og stúlkan, en
tilbrigðaþátturinn, sem kvartettinn lék
ágætlega, er unninn yfir þetta sama
lag. Síðasta verkefni kóranna var
sameiginlegur flutningur á messu eftir
Schubert, en verk þetta mun Schubert
hafa samið er hann var um það bil
átján ára. Kór Landakirkju er áheyri-
legur kór, all vel æfður, undir stjóm
Guðmundar H. Guðjónssonar. Ein-
söngvarar, bæði með kómnum og í
lögum eftir Áma Thorsteinsson og Pál
ísólfsson, vom Már Magnússon, ung
og efnileg söngkona, Esther H. Guð-
mundsdóttir að nafni, Viðar Gunnars-
son og Aðalsteinn Einarsson, er skiluðu
öll sínu vel. Undirleikari, auk stjóm-
anda Kórs Landakirkju, var Orthulf
Pranner. f tilefni af ferðinni hafa
aðstandendur ferðarinnar látið prenta
vandaða efnisskrá á ítölsku. Söngfólki
og hljóðfæraleikumm er óskað góðrar
ferðar og vonandi tekst þeim að koma
heim með sólina með sér.
NÝU OG, GIÆSILEGT
HOTEL A SELFQSSI
kótet
SELFOSS
EYRAVEGI 2, 800 SELFOSSI,
SÍMI 99 2500
Gisting í 20 herbergjum.
Verð á tveggja manna herbergi kr. 1.950.-
Verð á eins manns herbergi kr. 1.450.-
Glæsilegir samkomu- og ráðstefnusalir á
annari hæð fyrir allt að 400 manns í sæti.
Allar veitingar, fyrsta flokks matur í
veitingabúð á 1. hæð.
í hótelinu eru snyrtistofa og snyrtivöruverslun,
hárgreiðslustofa, gleraugnaverslun, minja-
gripaverslun og umferðamiðstöð.
Við gerum okkar ýtrasta til að uppfylla allar þínar óskir.
Við sjáum um fundi og ráðstefnur fyrir þig. Allt I einum pakka
-ferðirtil ogfrá Selfossi (leigubílar/ langferðabílár)
fundaaðstaða, veitingar og gisting.
Vertu velkominn á Selfoss í vinarlegt umhverfi!
HÖFUM OPNAÐ NÝTT HÓTEL
VIÐ,ÖLFUSÁRBRÚ Á SELFOSSI.